Morgunblaðið - 28.01.2003, Síða 21

Morgunblaðið - 28.01.2003, Síða 21
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 21 NÝLEGA var opnuð skrifstofa Krabbameinsfélags Skagafjarðar, um leið og kynnt var aukin þjón- usta félagsins, sem felst í því að ráðinn hefur verið starfsmaður í hlutastarf, sem annast mun ýmis málefni félagsmanna á svæðinu. Í ræðu formanns félagsins Ágústu Eiríksdóttur hjúkr- unarstjóra kom fram að tekist hefði samkomulag milli félagsins og Skagafjarðardeildar Rauða kross Íslands um húsnæði fyrir skrifstofuna og einnig að gengið hefði verið frá ráðningu Maríu Reykdal í hlutastarf á vegum fé- lagsins. Sagði Ágústa að María mundi annast og skipuleggja allt fræðslu- starf á svæðinu, veita upplýsingar til krabbameinssjúklinga og að- standenda þeirra, skipuleggja fjár- aflanir og annast félagatal, og síð- ast en ekki síst vera tengiliður við Krabbameinsfélag Íslands. Ágústa sagði að um til- raunaverkefni væri að ræða sem standa mundi eitt ár og því mik- ilvægt að fá svo ágætan starfs- mann sem Maríu þar sem áríðandi væri að vel gengi í upphafi svo halda mætti áfram á sömu braut að reynslutíma liðnum. Að lokinni ræðu formanns þágu gestir veitingar en síðan tók María Reykdal til máls og gerði grein fyrir þeirri starfsemi sem farið hefur fram á vegum félags- ins og einnig sagði hún frá auk- inni og nýrri starfsemi á svæðinu, svo sem því að árið 2000 var stofnað félag krabbameinssjúkra og aðstandenda þeirra, og hlaut það nafnið Dugur, og hefur starf- að af mikilum krafti allt frá stofn- un, haldið fundi um það bil mán- aðarlega og reynt að auka verulega þjónustu við þann hóp sem að félaginu stendur, en það eru nú um fimmtíu manns. Þá hefur Dugur tekið upp sam- vinnu við endurhæfingarteymi Heilbrigðisstofnunarinnar og náðst hefur um það samvinna að bæta við teymið sálfræðingi, fé- lagsráðgjafa og presti auk tveggja hjúkrunarfræðinga sem annast heimahlynninu. Sótt var um styrk til Krabba- meinsfélags Íslands vegna þessa verkefnis sem fékkst og verður verkefnið rekið í eitt ár til reynslu. Talið er að þetta verkefni geti orðið öðrum landsbyggðar- félögum fyrirmynd ef vel tekst til og því mikilvægt að vel verði að verki staðið. Að lokum skoðuðu gestir alla aðstöðu félagsins, sem er hin glæsilegasta. Krabbameinsfélag Skaga- fjarðar ræður starfsmann Morgunblaðið/Björn Björnsson María Reykdal, starfsmaður Krabbameinsfélags Skagafjarðar. Sauðárkrókur FRÁ því snemma í haust hefur Morgunblaðið verið flutt um helg- ar frá Bakkaflugvelli í Landeyjum til lesenda í Vestmannaeyjum. Þegar vetraráætlun Íslandsflugs hófst var ekkert flogið frá Reykja- vík til Vestmannaeyja á laugar- dags- eða sunnudagsmorgnum. Lesendum Morgunblaðsins í Vest- mannaeyjum til mikillar ánægju var þá farið að flytja blaðið þessa leið. Um helgar fer Vestmannaeyja- blaðið með blöðum á Selfoss, Hellu og Hvolsvöll en þaðan er Eyja- blöðunum ekið á Bakka og þau flutt yfir til Eyja um tíuleytið með flugvél Flugfélags Vestmannaeyja. Að undanförnu hefur verið mik- ill vöxtur í flugi milli Eyja og Bakka. Morgunblaðið/Sigurgeir Arnór Páll Valdimarsson, eigandi FV, og Magnús Sigurjónsson flugmaður. Morgun- blaðið flutt um Bakka- flugvöll Vestmannaeyjar EITT mikilvægasta félagið í Grímsey er björgunarsveitin Sæ- þór. Til nokkurra ára hefur hún verið starfrækt innan Kiwanis- klúbbsins Gríms sem hefur stutt við hana á allan máta. Byrjað var á að kaupa gám til að hýsa björgunarbát og fleiri nauð- synlega hluti tilheyrandi sveitinni. Á síðasta ári var ákveðið að Sæ- þór myndi starfa sjálfstætt á ný. Fjórir ungir, öflugir menn völdust í stjórn björgunarsveitarinnar, þeir Bjarni og Svafar Gylfasynir, Þór Vilhjálmsson og Brynjólfur Árnason. Þessir ungu eldhugar innréttuðu og endurbættu björg- unarsveitargáminn. Síðan var haf- ist handa við að efla búnaðinn. Keyptir voru 4 björgunarflotgallar, 4 VHF handstöðvar, 4 öryggis- hjálmar, hand GPS-staðsetningar- tæki og NHT-farsími. Fyrir átti Sæþór flugvélatalstöð, viðmiðunarstöð, CB-stöð, fluglínu- tæki og sjúkrabörur. Segja má að Kíwanismenn og Sæþórsmenn hafi fjárfest í björg- unartækjum fyrir hátt í 3 milljónir á síðustu 3 árum. Erindreki Landsbjargar sem kom til Grímseyjar, lýsti því yfir að hann væri mjög ánægður með allan útbúnað björgunarsveitarinn- ar. Flugmálastjórn hefur óskað eftir samstarfi við Sæþór vegna ör- yggismála á flugvellinum. Nú vildu Grímsfélagar styðja myndarlega við bakið á björgunar- sveitinni Sæþóri með stórum styrk. Það gerðu þeir líka svo um munaði, með því að eftirláta flug- eldasöluna sem Kiwanisklúbburinn Grímur hefur haft í 25 ár, til Sæ- þórs. Flugeldasalan gekk glimr- andi vel þessi áramót og seldu Sæ- þórsmenn fyrir rúmar 800.000 krónur sem algjört met í eyjunni og hlýtur að vera Íslandsmet mið- að við okkar frægu höfðatölu hér í Grímsey! Íbúarnir hér eru innan við 100 talsins. Grímseyingar segja að aldrei hafi fegurra ljósalistaverk flugelda sindrað á heiðskírum Grímseyjar- himni en áramótin 2003. Búnaður fyrir þrjár milljónir Morgunblaðið/Helga Mattína Félagar í björgunarsveitinni Sæþóri í Grímsey, f.v. Þór Vilhjálmsson, Svaf- ar og Bjarni Gylfasynir og Brynjólfur Árnason. Grímsey Björgunarsveitin Sæþór sjálfstæð á ný Kínversk áramót Föstudaginn 31. janúar nk. mun Íslensk-kínverska viðskipta- ráðið halda upp á kínversk áramót en nú gengur í garð ár kindarinnar samkvæmt kínversku tímatali. Áramótafagnaðurinn verður haldinn á veitingastaðnum Asíu, Laugavegi 10, Reykjavík og hefst kl.19.00. Boðið verður upp á fimm rétta máltíð. Þátttökugjald er 2.800 kr. Ræðumenn kvöldsins verða þeir Einar Guðbjörnsson og Jóhann Xiang og munu þeir fjalla um reynslu af viðskiptum í Kína og um áhrif aðildar Kína að Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO). Félagsmenn eru hvattir til þess að fjölmenna og taka með sér gesti. Vinsamlega tilkynnið þátttöku á skrifstofu ráðsins í síma 588 8910 sem allra fyrst. FAGNAÐURINN ER ÖLLUM OPINN. ÍSLENSK KÍNVERSKA VIÐSKIPTARÁÐIÐ SÖNGUR og leiklist einkenndu þorrablót Tjörnesinga á bónda- dagskvöldið, en að venju var þétt setinn bekkurinn í félagsheimilinu Sólvangi því þar voru saman komn- ir flestir sveitarbúar ásamt vinum og ættingjum. Þema kvöldsins var þátturinn „Spjall hjá Rúnu“ í umsjá Sigrúnar Ingvarsdóttur á Héðinshöfða, en þar bar margt á góma sem gerst hefur í hreppnum á sl. ári og marg- ir komu þar fram í eigin persónu og annarra. Fréttir voru fluttar af ýmsu markverðu svo sem blómlegri bókaútgáfu á árinu hjá íbúunum og bar þar hæst ferðabók Sigtryggs Bjarnasonar í Steindal sem fór til Ameríku og ferðaðist ríki úr ríki. Gerði hann garðinn frægan, hitti bændur og búalið, talaði fjölda tungumála auk þess sem hann fór á fund vinar síns, Bush forseta. Þá gerði bóndasonur einn grein fyrir reynslu sinni af nýlegri för til sólar- landa og því ekki annað að sjá en að Tjörnesingar hafi gert víðreist. Söngpíurnar Katrín og Erla Bjarnadætur ásamt Pálínu Hall- dórsdóttur og Guðlaugu Sveins- dóttur sungu lög frá ýmsum tímum og rifjuðu upp góða daga frá náms- árum sínum. Bar þar margt á góma og hlutu þær mikið klapp fyrir enda kraftur í söngnum mikill. Í þætti Sigrúnar kom Aðalsteinn Guðmundsson fram í margra manna líki og gengu gestir á svið til þess að geta upp á hvaða persónur væri um að ræða. Var þá mikið hlegið enda það spaugi- lega dregið fram hjá nokkrum góðbændum sveitarinnar. Margt fleira var til skemmtunar svo sem auglýsingar og ljóða- lestur en um fjöldasöng sá Halldór Sigurðsson á Sandhólum með dyggri aðstoð þeirra Erlings Bergsveinssonar, Sig- urðar Á. Þórarinssonar og Bjarna Aðalgeirssonar. Undir- leikari var Aðalsteinn Ísfjörð. Hápunktur samkomunnar var þegar hestur eins stórbóndans mætti á svið auk þess sem „Tvær af Tjörnesi“, létu ljós sitt skína, en það voru Björn, bóndi á Hóli, og Svein- björn Guðmundsson í Mýrarkoti sem klæðst höfðu kvenbúningum og sungu mikið. Mikið var sungið á þorrablótinu. Katrín Bjarna- dóttir (lengst til vinstri), Guðlaug Sveinsdóttir, Erla Bjarnadóttir og Pálína Halldórsdóttir. Laxamýri Morgunblaðið/Atli Vigfússon Fjör á þorrablóti Tjörnesinga mbl.is STJÖRNUSPÁ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.