Morgunblaðið - 28.01.2003, Síða 22

Morgunblaðið - 28.01.2003, Síða 22
NEYTENDUR 22 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ bílar ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM SMÁAUGLÝSING AÐEINS 995 KR.* Áskrifendum Morgunblaðsins býðst smáauglýsing fyrir aðeins 995 kr.* Pantanafrestur er til kl. 12 á þriðjudögum. * 4 línur og mynd. HAFÐU SAMBAND! Auglýsingadeild Morgunblaðsins sími 569 1111 eða augl@mbl.is SUNDLAUG Seltjarnarness er ódýrasta sundlaugin á suðvestur- horninu, samkvæmt verðkönnun Morgunblaðsins. Þar kostar sund- ferð 30 krónur fyrir barn og 150 krónur fyrir fullorðinn. Í Íþróttamið- stöð Mosfellsbæjar er aðgangseyrir fyrir barn 55 krónur og 180 krónur fyrir fullorðinn. Þriðja lægsta barna- gjaldið er í Íþróttamiðstöðinni í Garði, eða 90 krónur. Algengasta gjaldið fyrir barn er 100 krónur og 200-220 krónur fyrir fullorðinn. Lægsta verð á 10 miða korti fyrir börn er líka í Sundlaug Seltjarnar- ness, 200 krónur, og næstlægst í Íþróttamiðstöð Mosfellsbæjar, eða 300 krónur. Algengt verð á tíu miða barnakorti er 600-900 krónur. Verð á tíu miða korti fyrir full- orðna er ennfremur lægst á Nesinu, 1.100 krónur, en næstlægst í Sund- laug Grindavíkur, 1.200 krónur. Algengasta verðið á tíu miða af- sláttarkorti fyrir fullorðna er 1.500 krónur og fer allt upp í 1.800 krónur. Hvað árskortin varðar er algeng- asta verðið 18.000 krónur. Lægsta gjald fyrir árskort, 12.000 krónur, er innheimt í Sundlaug Seltjarnarness. Einungis er um verðsamanburð að ræða í könnuninni.                           !   "      #      $       $    %&   $      $       $   "' $   $    $  "   $    (  (                                     $    )*)+$,-%.% /                                                                                                  01 2 /    % % % "  % % % % %    %                                    %        %   "       /    - - - - - - - - - - - - - -  -                .                   "       -      , 3   3 &  / / / / / / / / / / / /  .. / / .3 0! .."'! 4 5  Neslaug ódýr- asta sundlaugin UNGT fólk vill súran súrmat og kók er ein súrasta matvara sem við innbyrðum, segir Óli Þór Hilm- arsson kjötiðnaðarmeistari. Starfsmenn Matra, Matvælarann- sókna á Keldnaholti, hafa unnið að rannsóknum á súrsun og gæðum súrmatar síðastliðið ár. Um er að ræða kerfisbundna rannsókn á súrsun og áhrifum hennar á efna- og örveruinnihald matvæla. Óli Þór Hilmarsson kjötiðnaðarmeist- ari, einn liðsmanna í svokölluðum kjötrannsóknahópi innan Matra, segir lokasprettinn fram undan og að niðurstöður „lofi góðu“. Uppistaðan í súrmat er ýmsar sláturafurðir, svo sem svið, inn- matur og kjöt og ráðast gæðin af mörgum þáttum að sögn Óla, svo sem örveruflóru mysunnar, nær- ingarefnainnihaldi, vinnslu- hitastigi, sýrustigi og fleiri þátt- um. Mikil hollustuvara Súrsunarmysa inniheldur mjólkursýruörverur auk ýmissa næringarefna og breytist eftir því hvernig örverurnar dafna. Þess vegna geta gæði súrmatar verið mjög mismunandi, jafnvel hjá sama framleiðanda, að hans sögn. „Súrmatur er mikil hollustu- vara sem við töldum vert að skoða nánar. Þegar aldagamla matar- gerð Íslendinga ber á góma er stundum til siðs að tala um „mis- mikið skemmdan mat“ en því fer víðsfjarri. Súrmatur er virkilega hollur matur,“ segir Óli Þór. Eitt markmiðið með rannsókn- inni er að leita leiða til þess að tryggja meiri og jafnari gæði framleiðslunnar. Mysan er til að mynda mjög mismunandi eftir landshlutum og ein leiðin til þess að það markmið náist er að sýna hvernig hún er best og hvernig á að nota hana. „Unga fólkið kvart- ar yfir því að súrmatur sé ekki nógu súr. Moðsúr súrmatur, það er hálfsúr, er ekki eins góður, oft og tíðum beinlínis vondur. Við skulum ekki gleyma því að kók er ein súrasta matvara sem við leggj- um okkur til munns. Alls kyns heilsudrykkir eru líka súrir, svo súrmatur passar vel við matarhefð dagsins í dag,“ segir Óli Þór. Abt-mysa til skoðunar Mismunandi gæði mysu ráðast af ólíkum verkunaraðferðum á skyri og er verið að kanna fleiri uppsprettur mysu í heimi kúa- mjólkurinnar, svo sem Abt-mjólk, sem hefur komið mjög vel út, segir hann ennfremur. Starfsmenn Matra hafa súrsað slátur, lifrarpylsu, blóðmör og sviðasultu í pylsugörnum til þess að flýta vinnsluferlinu og smökk- uðu 18 tegundir súrmatar síðast- liðinn föstudag. Tíu til 15 manns hafa smakkað 18 sýni einum átta sinnum og því lætur nærri að um 120 manns hafi innbyrt tæplega 150 sýnishorn meðan á rannsókn- inni hefur staðið. „Með meiri fræðilegri þekkingu á súrsun er hugsanlegt að þróa og bæta súrmeti á þann hátt að fram- boð verði mögulegt allt árið um kring. Auk þess er mögulegt að súrsa ýmsar aðrar afurðir, til dæmis kjötpylsur,“ segir Óli Þór Hilmarsson, kjötiðnaðarmeistari og súrfræðingur, að síðustu. Ungt fólk vill súran súrmat Kerfisbundin rannsókn gerð á súrsun og áhrifum hennar Morgunblaðið/Árni Sæberg Óli Þór Hilmarsson, kjötiðnaðarmeistari, súrfræðingur og smakkari.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.