Morgunblaðið - 28.01.2003, Side 24

Morgunblaðið - 28.01.2003, Side 24
LISTIR 24 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ENN á ný blés Tríó Reykjavíkur til nýárstónleika, annað árið í röð, og fékk aftur til liðs við sig óperu- söngvarana Sigrúnu Hjálmtýsdótt- ur og Bergþór Pálsson. Þessi nýárs- smellur fimmmenninganna í fyrra vakti þvílíka hrifningu að endur- taka þurfti tónleikana fjórum sinn- um svo það var ekki að undra að uppselt væri í Hafnarborg á sunnu- dagskvöldið og stemmningin mikil. Tríó Reykjavíkur hóf tónleikana með Ungverskum dansi nr. 6 eftir Johannes Brahms. Brahms samdi ungversku dansana sína upphaflega til að leika fjórhent á píanó, síðar útsetti hann þá fyrir tvær hendur og einnig hafa þeir verið útsettir fyrir ýmsa hljóðfæraskipan. Hér var dansinn í útsetningu eftir W. E. Ambrosio. Brahms fellur hér í þá gildru (eins og raunar Liszt líka) að rugla saman sígaunalögum og ung- verskum lögum. Dansar Brahms eru í raun sígaunatónlist. Þá sungu þau Sigrún og Bergþór hinn sívin- sæla dúett Papagenu og Papageno úr Töfraflautu Mozarts. Tríóið lék síðan kafla úr Dunky tríói Antons Dvoráks op. 90 og var það hugsað sem tenging milli gamla heimsins (Evrópu) og nýja heimsins (Amer- íku). Ragtime Dance eftir S. Joplin var fyrsta lagið úr nýja heiminum síðan fylgdi á eftir sönglagasyrpa úr ýmsum söngleikjum. Úr South Pacific eftir Richard Rodgers sungu þau Sigrún og Bergþór Some Enchanted Evening, síðan söng Sigrún Till There Was You úr The Music Man eftir Wilson. Saman sungu þau Anything You Can Do, gáskafullan dúett úr Annie Get your Gun eftir Irving Berlin. Úr Lady Be Good eftir George Gershwin söng Bergþór lagið Fasc- inating Rythm. Síðast fyrir hlé var síðan fimm laga syrpa úr West Side Story eftir Leonard Bernstein, Am- erica (bæði), I Feel Pretty (Sigrún), Maria (Bergþór), Somewhere (bæði) og Tonight (bæði). Eftir hlé léku þeir Gunnar og Peter Elegie, lítið fallega syngjandi verk eftir Gabriel Fauré og gáskafullan og glæsilega fluttan Tarantellu dans eftir Squire. Síðan léku þau Guðný og Peter ungdómsverkið Schön Rosmarin eftir Fritz Kreisler. Óperettutónskáldið Franz Lehár átti næstu þrjú lög, úr Kátu ekkj- unni söng Bergþór Ég arka á Max- im og ásamt Sigrúnu sáttadúett ósátta parsins Varir þegja. Úr Brosandi land sungu þau dúettinn Hjarta mitt átt þú ein, öll 3 lögin voru glæsilega flutt. Þá var komið að Pizzikato polkanum eftir valsa- kónginn Johann Strauss sem hér var fluttur í útsetningu fyrir tríó eftir K. Stent. Því næst léku Guðný og Peter glæsilega Zigeunerweisen Op. 20 nr. 1 eftir Pablo Sarasate en þaðan er lagið Til eru fræ komið. Síðast á efnisskránni voru arían Heyri ég í sígaunafiðlu úr Maríu greifafrú en þar áttu þær Sigrún og Guðný skemmtilegan samleik og dúettinn Ég vil dansa úr Sardas- furstynjunni, hvoru tveggja eftir Ungverjann Emmerich Kálmán. Ekki vildu áheyrendur sleppa flytj- endunum alveg við svo búið og fengu tvo aukadúetta, Vín, borg minna drauma eftir austurríska lögfræðinginn og tónskáldið Rudol Sieczynski og hið fræga ástarlag ameríska söngleikja- tónskáldsins Cole Porter, True Love. Ekki er ástæða til að fjalla sérstaklega um flutning hvers lags eða verks fyrir sig enda eru flytjendurnir allir í fremstu línu framvarðarsveitar ís- lenskra tónlistar- manna og flutningur- inn í samræmi við það. Mest mæddi á píanó- leikaranum Peter Máté sem lék á flyg- ilinn í öllum verkum á efnisskránni og sýndi enn einu sinni hve frábær og mús- ikalskur píanóleikari hann er. Þau Guðný og Gunnar léku einnig með í nokkrum sönglaganna eftir hlé. Samvinna allra listamannanna var sérlega góð og samtaka og hljóð- færaleikararnir sýndu á sér nýjar og óvæntar hliðar sem vöktu kátínu áheyrenda. Ekki þarf að fjölyrða um leikhæfileika þeirra Bergþórs og Sigrúnar, hann er eins og inn- byggður í þeirra framkomu og sam- vinna þeirra með glæsibrag, bæði sönglega og leikrænt. Öll efnisskrá- in var mjög vel flutt og oft glæsi- lega, bæði í hljóðfæraleik og söng, sem áheyrendur þökkuðu fyrir með dúndrandi lófataki. Nýársstemmning í Hafnarborg TÓNLIST Hafnarborg í Hafnarfirði Tríó Reykjavíkur (Guðný Guðmunds- dóttir, fiðluleikari, Gunnar Kvaran, selló- leikari og Peter Máté, píanóleikari), Sig- rún Hjálmtýsdóttir og Bergþór Pálsson. Sunnudagurinn 26. janúar 2003. NÝÁRSTÓNLEIKAR Jón Ólafur Sigurðsson Bergþór Pálsson Sigrún Hjálmtýsdóttir Á SÝNINGUNNI „Þetta vilja börnin sjá!“ sem haldin var í Gerðubergi nýverið gafst börnunum kostur á að velja bestu myndskreytinguna meðan á sýningunni stóð og kusu þau myndskreytingar Sigrúnar Eldjárn í bók- inni Draugasúpan. Alls kusu 600 börn og hlutu myndir Sigrúnar yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. Á sýningunni voru myndskreytingar úr flestum þeim íslensku barnabókum sem komu út árið 2002. Á sýningunni voru myndir úr fjörutíu og fjórum bók- um eftir tuttugu og þrjá myndskreyta. Skipuð var dómnefnd af Gerðubergi, Félagi íslenskra myndlist- armanna og Félagi íslenskra teiknara og valdi dóm- nefndin Höllu Sólveigu Þorgeirsdóttur sem besta myndskreytinn. Var þetta í fyrst sinn sem slík sýning var haldin og voru verðlaunin DIMMALIMM einnig veitt í fyrsta sinn. Börnin völdu Draugasúpuna Sigrún Eldjárn tekur við viðurkenningu sinni. VERKIN tvö á dagskrá Tíbrártón- leika sl. sunnudags áttu vel saman. Bæði voru af tónleikhúslegum toga og samin fyrir nærri því sömu áhöfn, þó að rúm 80 ár skildu á milli. Sagan af dátanum (1918) eftir Ígor Stravinskíj markaði upphaf nýklassíska sköpun- arskeiðsins eftir síðrómantísku ball- ettverkin, þar sem Stravinskíj leitar ýmist langt aftur í tíma (sbr. endur- óminn af langsóttri krómatík endur- reisnarmadrígalistans Gesualdos í „Grand Choral“ þættinum) eða til skemmtitónlistar samtíðar eins og tangó og ragtime. Í stað risaáhafnar Vorblótsins tóku við smærri hljóð- færahópar. Þar með er ekki sagt að verkið sé auðvelt í flutningi. Enn í dag gerir það miklar kröfur um ekki sízt hrynræna nákvæmni og snerpu, sem auðveldast ekki af kammermúsík- ölskum rithætti þar sem hver spilari verður að bjarga sér einn og óstuddur í sinni rödd. Trúlega er verkið vinsælast í svítu- formi án sögumanns. Hér var upp- runalegur texti Ramuz (í þýðingu Þorsteins Valdimarssonar) hins veg- ar lesinn í heild, og leyndi sér ekki að sumir textakaflar voru í lengsta lagi, þrátt fyrir hetjulega en kannski ögn yfirkeyrða viðleitni Felix Bergssonar leikara til að halda athygli hlustenda. Spilamennskan var fagmannlega ná- kvæm undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar, ekki sízt tandurskýrt framlag Auðar Hafsteinsdóttur í krefjandi fiðluhlutverki Skrattans, enda þótt hið klassíska vandamál kammertónlistar á íslenzkum dverg- markaði – takmarkaður samæfingar- tími – drægi nokkuð úr því lýtalausu neistaflugi sem menn þekkja frá ann- ars ósanngjörnum samanburði við fremstu hljómdiskaútgáfur. „Örsögur“ Hafliða Hallgrímssonar, samdar við skringilega smátexta rússneska súrrealistans Daniils Kharms (1905–42) í frábærri þýðingu Árna Bergmann, voru kostuleg skemmtun. Ekki aðeins fyrir eyrun heldur einnig að hluta augun, þar eð tónskáldið, klætt hefðbundum brezk- um miðstéttarfötum og kúluhatti í hlutverki sögumanns, fór með ýmsa lágstemmda en því skoplegri tilburði og fettur. Dálítið í anda músíkleik- húss Mauricios Kagels. Séntilmanns- legt „City“-gervið, ásamt földum hljóðnema, gerði um leið höfundi kleift að tjá og hreyfa sig á lágværum nótum erkibrezks „understate- ments“, og fór það uppákomunni afar vel. Textameðferð Hafliða afhjúpaði reyndar útsmogna tilfinningu fyrir tímasetningu sem gaf sjóuðum skap- gerðarleikurum lítið eftir. Marta Guð- rún Halldórsdóttir var sömuleiðis bráðfyndin í textalausu sönginnslög- um sínum tveimur; hið seinna var smáskrýtin en ekki ólagleg vókalísa um Draum. Meðal áhrifamestu dæma um örmjótt bilið milli hins allsgáða og klikkaða var músíkin við „Hvað þeir selja í búðunum nú til dags“ sem hefði fallið prýðilega að íhugulli ögurstund á lokuðu deildinni í Englum alheims- ins. Margt fleira mætti nefna við þetta kynlega tónleikhúsverk og innlifaða túlkun þess sem skilaði oft glettilega miklu með furðusparneytinni áferð. Þó myndi ofurlítil efnisgrisjun eftir lengdarkvarða e.t.v. ekki saka, enda 58 mínútur þrátt fyrir allt með lengsta móti. Tónlistin bar vott um sérkennilegt skopskyn í samræmi við textann, kryddað póetískri angur- værð undir niðri, sem eftir líflegum undirtektum áheyrenda að dæma féll í góðan jarðveg. Af grótesku gríni og gerzku TÓNLIST Salurinn Stravinskíj: Sagan af dátanum*. Hafliði Hallgrímsson: Örsögur**. Sögumenn: Felix Bergsson*, Hafliði Hallgrímsson**. Marta Guðrún Halldórsdóttir sópran**, Auður Hafsteinsdóttir fiðla*, Zbigniew Dubik fiðla**, Hávarður Tryggvason kontrabassi, Guðni Franzson klarínett, Brjánn Ingason fagott, Eiríkur Örn Páls- son trompet, Steef van Oosterhout slag- verk, Sigurður Þorbergsson básúna*, Þorsteinn Gauti Sigurðsson píanó og tón- gervill**. Stjórnandi*: Guðmundur Óli Gunnarsson. Sunnudaginn 26. janúar kl. 20. KAMMERTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson Morgunblaðið/Golli Caput-hópurinn og Hafliði Hallgrímsson hyllt að tónleikum loknum. ÞJÓÐARBÓKHLAÐA, í samvinnu við Reykjavíkurakademíuna, gengst fyrir rímna- og rappnámskeiði fyrir almenning og hefst það í Þjóð- arbókhlöðu á morgun, miðviku- dag. Steindór Andersen og Jón Magnús Arnars- son leiðbeina og Hilmar Örn Hilmarsson alls- herjargoði mun tengja saman þessar tvær hefðir og benda á ýmsa snertifleti. Hann mun auk þess leit- ast við að greina upphaflegan tilgang rímna og notar tóndæmi til að styðja mál sitt. Rímna- og rappnámskeið Hilmar Örn Hilmarsson FJÖLBREYTT dag- skrá er framundan í Íslensku óperunni á komandi vormisseri. Macbeth eftir Verdi verður frumsýnd á laugardaginn kemur. Þá verður fram hald- ið Hádegistón- leikaröð Óperunnar og er hún að þessu sinni í umsjá Sesselju Kristjánsdóttur mezzósópransöng- konu. Þeir fyrstu í röð fernra hádeg- istónleika verða þriðjudaginn 11. febr- úar. Nýr dagskrárliður hefur göngu sína þriðjudaginn 4. febrúar og hefur hann fengið yfirskriftina Há- degisgestir en þá býður Óperan til sín gestum til tónleikahalds. Í marsbyrjun mun Davíð Ólafs- son bassasöngvari heimsækja grunnskóla Mosfellsbæjar ásamt Tómasi Guðna Egg- ertssyni píanóleikara og flytja dagskrána Rópera – sem fjallar um rappið og óperuna. Dagskráin er sam- starfsverkefni Íslensku óperunnar og Tónlist- ar fyrir alla. Um miðjan mars svífur andi Mozarts yf- ir vötnum en þá flytur Blásaratríóið Chal- umeaux ásamt þremur söngvurum Íslensku óperunnar verk eftir Mozart, undir yf- irskriftinni Mozart fyr- ir sex. Skömmu síðar verða sýndar tvær óperur í samandregnu formi: Madama Butterfly og Ítalska stúlk- an í Alsír, í leikstjórn Ingólfs Níels- ar Árnasonar og flutningi fimm fastráðinna söngvara Óperunnar. Frumsýning verður 22. mars og þegar líður á vorið verður farið með sýninguna út á land. Fjölbreytt dagskrá í Óperunni Sesselja Kristjánsdóttir BANDALAG ÍSLENSKRA LEIKFÉLAGA Vantar þig gervi fyrir grímuballið? Hárkollur • Trúðanef • Gervinef • Tannlakk Gerviskegg • Gerviaugnhár • Lithársprey Leikhúsfarði • Gervitennur • Gervieyru Gerviskallar • Gerviblóð • Gervihor Sendum í póstkröfu! Laugavegi 96 • www.leiklist.is • 551 6974 Góðir skór Skóbúðin Miðbæ Háaleitisbraut 58-60  Sími 553 2300 Ráðgjöf á fimmtud. kl. 15-18 og laugard. kl. 11-15.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.