Morgunblaðið - 28.01.2003, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 29
UPPI eru hugmyndir umað nýta gömul og úr-elt skip til uppbygg-ingar tómstunda-
byggðar á Hvítanesi í Kjósar-
hreppi. Vinna við deiliskipulag
svæðisins er þegar hafin.
Eins og greint hefur verið frá
í Morgunblaðinu hefur mikill
fjöldi svokallaðra óreiðuskipa
safnast fyrir í höfnum landsins,
með tilheyrandi kostnaði,
mengunarhættu og óprýði. Sam-
kvæmt lauslegri athugun um-
hverfisnefndar Hafnarsambands
sveitarfélaga fyrir tveimur árum
eru um 160 skip í reiðileysi í
höfnum landsins.
Mikill kostnaður fylgir förgun
þessara skipa og í mörgum til-
vikum er eignarhald þeirra á
reiki.
Í þingsályktunartillögu sem
Katrín Fjeldsted, þingmaður,
lagði fram í annað sinn á yf-
irstandandi Alþingi, er umhverf-
isráðherra falið að kanna fjölda
óhreyfðra og úreltra skipa í
höfnum landsins og hvort unnt
sé að nýta þessi skip á einhvern
hátt en ella hvað það kosti að
flytja þau burt og farga þeim.
Tillagan bíður nú umfjöllun um-
hverfisnefndar en meðal þeirra
sem veittu henni umsögn var
einkahlutafélagið Hvítanes, sem
er í eigu landeigenda jarð-
arinnar Hvítaness í Kjós-
arhreppi.
Forsvarsmaður Hvítaness er
Björn Kristinsson, prófessor í
verkfræði, en hann hefur, ásamt
bróður sínum Jóni, prófessor í
umhverfisfræðum og arkitekt í
Hollandi, uppi hugmyndir um að
nýta sérstaklega legu landsins
að sjó og er félagið um þessar
mundir að vinna að deiliskipu-
lagi að nýstárlegri nýrri tækni
við tómstundabyggð. „Þar sem
óreiðuskipavandinn á Íslandi er
tengdur skipum sem mörg hver
eru verkefnalaus er auðvitað
eðlileg hugmynd að nýta slík
skip sem bústaði á landi í um-
hverfi sem er sérstaklega skipu-
lagt í þessum tilgangi.“
Ótal möguleikar
Björn segir hugmyndina
byggjast á því að skip og bátar
sem séu í þokkalegu ástandi
verði tekin upp á land á stór-
straumsflóði um sérhannaðan
skurð eða braut, skipunum sé
komið fyrir á landi, þau skorðuð
og fái tengingu við landkerfi svo
sem rafmagn, vatn, hita og frá-
rennsli. Í landi megi tæknilega
séð nýta skipin á margvíslegan
annan hátt en á sjó. „Möguleik-
arnir eru nánast óteljandi. Lest-
ina má til dæmis innrétta eða
nýta í ýmsum tilgangi. Vél og
kjölfestu má fjarlægja til þess að
fá aukið rými. Inngang má jafn-
vel setja á skipssíðuna, tjalda
eða byggja yfir dekkið og brúin
er tilvalin til útsýnis yfir sól-
ríkan Hvalfjörðinn.
Skipulag bátabyggðanna
mætti samræma þannig, að skip
af svipaðri stærð og gerð, til
dæmis skip sem eru nálægt 15
metrum, 20 metrum og 25 metr-
um, væru hópuð saman. Skipin
væru lagfærð og máluð og um-
hverfið lífgað með gróðri og
skjólbeltum. Stór skip kæmu á
nesoddann og mynduðu þar
miðbæ og þjónustumiðstöð.“
Þekkist ekki annars staðar
Björn segir nú unnið að þess-
ari skipulagsvinnu. Frumdrög að
deiliskipulagi svæðisins hafi þeg-
ar verið send Kjósarhreppi og
telur Björn að þarna geti skap-
ast margvísleg starfsemi í sveit-
arfélaginu. „Þetta er ný og um-
hverfisvæn aðgerð sem ekki er
þekkt annars staðar frá. Með
góðri hönnun og réttri kynn-
ingar- og sölustarfsemi gæti
þetta orðið vinsælt dvalarsvæði
enda í aðeins 50 kílómetra fjar-
lægð eða um 45 mínútna akstri
frá Reykjavík. Ef vel verður að
verki staðið er líklegt að stað-
urinn dragi að sér ferðamenn,
auk þess sem skipabyggð af
þessu tagi samræmist vel sögu
og menningu þjóðarinnar.“
Björn vill síður nota orðið
sumarbústaður yfir skipin í
þessu sambandi, segir að orðið
tómstundaathvarf eigi betur við
og bendir á að í nágrenni Hvíta-
ness sé í boði hverskonar af-
þreying, m.a. ótal gönguleiðir,
hægt sé að róa til fiskjar í Hval-
firði og í fjörunni sé nokkur
kræklingatekja. Þá sé í boði sil-
ungs- og laxveiði, hestaleiga,
sund og golf í nágrenninu, auk
þess sem við Hvítanes er aðdjúpt
og þar sé því gott lægi fyrir
báta og skútur svo sem frá
Reykjavík.
Aðstaðan nýtt
til förgunar
Björn segir að með þessum
hætti mætti finna hluta af þeim
skipum sem nú liggja í reiðileysi
í höfnum landsins nýtt hlutverk.
Hann telur að landsvæðið á
Hvítanesi rúmi um 50 skip og
báta. „Þó er nokkur vandi eftir.
Förgun þeirra skipa, sem ekki
yrðu notuð í byggðinni er skylt
verkefni. Hagkvæmt gæti verið
að nýta aðstöðuna í Hvítanesi
tímabundið til þess að skera nið-
ur stálskip og rífa tréskip meðan
á uppbyggingu svæðisins stend-
ur. Uppbygginguna er eðlilegt
að framkvæma í samvinnu við
ýmsa aðila, sem sérþekkingu
hafa.
Það kann að vera að þetta
verkefni taki nokkurn tíma en
verði ákvörðun tekin um fram-
kvæmd þess má fljótlega taka
við minni bátum og setja þá á
land til þess að verja þá frekari
skemmdum.“
Björn segir að öllu þessu verk-
efni fylgi að sjálfsögðu nokkur
kostnaður og fjárhagshliðin
þarfnist vandlegrar athugunar.
„Formlegir eigendur skipanna
og bátanna eru misvel stæðir.
Skipin eru einnig orðin baggi á
ýmsum höfnum, sem gætu viljað
greiða nokkurt fé til þess að
losna við vandann. Þá er þetta
einnig þjóðfélagslegt umhverf-
isvandamál, sem ríkið þarf að
glíma við.
Það er eðlilegt að þessir aðilar
komi að því að fjármagna verk-
efnið. Eigendur verkefnalausra
skipa, hvort sem þau eru á sölu-
skrá eða ekki, viðurkenna ef til
vill ógjarnan að þau séu verð-
laus. Einn möguleiki er sá að
þessir eigendur taki þátt í verk-
efninu og eigi sín skip á landi í
Hvítanesi.
Það er að sjálfsögðu kostn-
aðarsamt að koma upp þeirri al-
mennu þjónustu sem skipabær af
þessu tagi krefst. Lóðir þarf að
lagfæra, koma báti eða skipi fyr-
ir, leggja rafmagn, vatnsveitu og
hugsanlega hitaveitu auk rot-
þróa. Ætla verður að í upphafi
verði tekið stofngjald eða sölu-
gjald og síðan verði goldin leiga
til þess að standa undir rekstri.“
Ríkinu ber að
hreinsa landið
Á hernámsárunum tók breski
herinn Hvítanesjörðina á leigu
og var þar með mikil umsvif.
Jörðinni var skilað til Sölu-
nefndar setuliðseigna árið 1944
en þar eru enn töluverð um-
merki eftir setuliðið, m.a.
braggagrunnar og bryggjur.
Björn segir að þrátt fyrir laga-
ákvæði hafi íslenska ríkið ekki
ennþá séð um þá landlögun sem
fram átti að fara, bryggjan sé til
að mynda ónýt og hrunin að
hluta. Hvítanes hefur farið fram
á það við fjármálaráðuneytið að
landlögun fari fram eða greitt
verði fyrir hana. „Fyrirhuguð
landlögun leiðir til þess að rífa
þarf upp megnið af á Hvítanes-
tanganum og þá er í framhaldi
hægt að hefja framkvæmdir,“
segir Björn.
Unnið að uppbyggingu skipabæjar á Hvítanesi í Kjósarhreppi
Hvítanes er í innanverðum Hvalfirði að sunnanverðu.
Gömul skip
fá nýja sál
Finna má gömlum og úreldum skipum
nýtt hlutverk í sérstökum skipabæ á
þurru landi. Þessi nýstárlega hugmynd
er nú á teikniborðinu og því á enn eftir
að renna mikið vatn til sjávar.
Breski herinn var með töluverð umsvif á Hvítanesi á hernámsárunum.
Mitzna segir einnig að ef ekki takist að fá Pal-
estínumenn til að semja með formlegum hætti
um frið muni hann draga herinn einhliða frá
Vesturbakkanum og láta reisa öflugan múr alls
staðar á landamærum Ísraela og Palest-
ínumanna og tryggja þannig öryggi þjóð-
arinnar. Segist hann viss um að finna megi
málamiðlun um yfirráðin í austurhluta Jerúsal-
em.
Ljóst er að flestir landnemar gyðinga á Vest-
urbakkanum yrðu fluttir brott ef Mitzna hefði
sigur, einhverjir fengju þó að vera ef samningar
tækjust um landamærabreytingar. En meiri-
hluti ísraelskra kjósenda virðist reiðubúinn að
fórna landnemabyggðunum til að þurfa ekki að
búa við stöðuga ógn hryðjuverkanna. Hvort þeir
ganga svo langt að kjósa Mitzna og flokk hans
er annað mál, kannanir hafa ekki bent til þess.
flokkunum, Herut, nái ekki lág-
marksfylgi sem þarf til að koma að
manni, 1,5% atkvæða. Því gæti farið
svo að tugþúsundir atkvæða stuðn-
ingsmanna hans nýttust ekki
hægrivængnum og gæti það kostað
nokkur þingsæti. En vinstra megin
eru einnig til þeir sem hafa áhyggj-
ur af því að ungt fólk sem vill heim-
ila notkun á hassi ákveði að kjósa
Grænt lauf, flokk sem vill afnema
bann við hassreykingum. Ósenni-
legt er að flokkurinn nái inn manni,
atkvæðin gætu fallið dauð.
Margir hafa bent á undarlega
þversögn. Sharon fer fyrir flokki
sem ekki vill heyra minnst á að
lagðar verði niður ólöglegar byggð-
ir gyðinga á svæðum Palestínu-
manna og lítur á allt tal um sjálf-
stætt Palestínuríki sem rugl.
Sjálfur hefur forsætisráðherrann
að vísu í orði kveðnu samsinnt þeim
sem vilja reyna að koma á friði með
því að heimila Palestínumönnum að
stofna eigið ríki. En Sharon setur í
reynd skilyrði sem hann veit að
hvorki Arafat né aðrir palestínskir
leiðtogar geta gengið að. Og sjálf-
stæða Palestínuríkið sem Sharon
lýsir yrði lítil og tætingsleg ríkis-
nefna undir raunverulegri stjórn
Ísraels í mörgum efnum. En meiri-
hluti Ísraela styður samkvæmt
skoðanakönnunum hugmyndina um
sjálfstætt ríki Palestínumanna og
vill friðarsamninga; samt nefna
flestir Sharon þegar spurt er hver
eigi að stýra landinu.
Eftirmæli friðarhöfðingja
Allt getur víst gerst í pólitík.
Breytist krepptur hnefi Sharons ef
til vill í framrétta sáttahönd eftir að
hann hefur tryggt sér sigurinn?
Sumir heimildarmenn telja það
geta gerst. Þeir segja að hann vilji
nú tryggja sér góð eftirmæli frið-
arhöfðingja með því að semja við
Palestínumenn um land fyrir frið.
Stjórnir undir forystu jafnt Lik-
ud sem Verkamannaflokksins hafa
stækkað landnemabyggðirnar síð-
ustu áratugina. En vandinn er að
Sharon hefur um árabil átt sína
dyggustu liðsmenn meðal landnem-
anna og stuðningsmanna þeirra.
Hann hefur enga áherslu lagt á að
hraða framkvæmdum við víggirð-
ingu á landamærum Ísraels og
svæða Palestínumanna sem verið er
að reisa í áföngum og búið að koma
upp umhverfis Gaza-ströndina.
Girðingin þar hefur borið árangur,
engir sprengjumenn hafa komist
gegnum hana inn í Ísrael frá Gaza.
En því öflugri og lengri sem
landamæragirðingin verður þeim
mun líklegra er að ísraelskur al-
menningur segi að nú sé loksins bú-
ið að marka landinu skýr mörk. Það
muni ekki stækka á kostnað grann-
anna og taka verði skrefið til fulls,
skilja alveg á milli. Þá yrðu land-
nemarnir, vinir Sharons, að hypja
sig burt af, ekki aðeins frá Gaza
heldur einnig af Vesturbakkanum.
engur svo
muninn á
rir lands-
kki koma
aflokkur-
við sam-
ystu hins
Reyndari
eist ekki á
mir þeirra
nnum að
kstaflega.
rgir Mer-
miðlanir í
Arafat og
gðir kjós-
flokknum
m í könn-
n Verka-
ui berst
leiri bók-
oft kom-
á undan-
þvingað í
n. Ýmsar
glegu lífi
tt trúaðir
, eru svo
lýsingar
t lauf
ugu og at-
Likud sé
en Verka-
ssu sinni
að margir
af hægri-
eppti
ahönd?
Reuters
r spjaldi
ag.