Morgunblaðið - 28.01.2003, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 28.01.2003, Qupperneq 37
HESTAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 37 Fyrir heimsmeistaramótið í Herning Við bjóðum eftirfarandi: Bílaleigubílar á ótrúlega hagstæðu verði. Hafið samband í síma 456 3745 eða á heimasíðu okkar fylkir.is Fylkir • Bílaleiga ehf. ferðaskrifstofa. www.fylkir.is Á mótssvæði •Húsbíla og hjólhýsi, 2ja til 7 manna. • Höfum tryggt stæði fyrir húsbíla og hjólhýsin á besta stað mótssvæðis. Í Herning •Hótelherbergi fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Í nágrenni við Herning • Sumarhús af öllum stærðum og gerðum. •Bjóðum auk þess úrval sumarhúsa fyrir hópa sem vilja vera saman í götu eða hverfi. Reiðfatnaður Náttúrulegur lífsstíll FREMSTIR FYRIR GÆÐI ÁRLEG folaldasýning var haldin í Hestamiðstöðinni í Saltvík um helgina á vegum Hrossaræktar- félags Þingeyinga. Í Saltvík er sýn- ingaraðstaða mjög góð enda fer þar fram mikil starfsemi tengd hestum svo sem reiðskóli, tamningar og margháttuð ferðaþjónustu. Vel var mætt á sýninguna enda veður gott og kom fólk víða að úr héraðinu með folöld sín í kerrum til þess að sýna þau og einnig var nokkuð um aðra áhugasama áhorf- endur. Sýndir voru yfir 20 ungfolar fæddir árið 2002 og þar af voru 7 synir Andvara frá Ey, en aðra feður má nefna Þyrni frá Þóroddsstöðum, Garð frá Litla-Garði, Kolskegg frá Oddhóli, Óskar frá Litladal, Laufa frá Garði, Markús frá Langholts- parti, Nagla frá Þúfu, Dagfara frá Kjarnholtum, Ofsa frá Brún og Hrafn frá Holtsmúla. Þá voru sýndar 10 unghryssur og átti Markús frá Langholtsparti þrjár þeirra en aðra feður má nefna Þokka frá Árgerði, Sæ frá Bakka- koti sem átti tvær, Andvara frá Ey, Glampa frá Vatnsleysu, Nagla frá Þúfu og Galsa frá Sauðárkróki. Á sýningunni voru einnig sýndir þrír afkvæmahópar og var fyrsti hópurinn, sex folöld, undan Þokka frá Árgerði sem er var sýndur á staðnum sem er jarpblesóttur og fæddur árið 1998. Hann er í eigu Þokkafélagsins. Tvö folöldin voru jörp, eitt var jarpblesótt, annað jarpstjörnótt, en hin voru moldótt og bleikblesótt. Annar hópurinn voru folöld Markúsar frá Langholtsparti en það voru fimm folöld, þar af fjögur frá Ræktunarbúinu Torfunesi og eitt frá Hrafnsstöðum. Tvö þeirra voru brún, eitt jarpt, eitt leirljóst og eitt jarpstjörnótt. Síðasti afkvæmahópurinn var undan Andvara frá Ey og voru fjög- ur þeirra brún, þrjú rauðstjörnótt og eitt rautt. Í lok sýningar kusu félagar í Hrossaræktarfélagi Þingeyinga um efnilegustu folöldin og í flokki ung- fola urðu úrslitin þessi: 1. Verðlaun: Baugur frá Torf- unesi Litur: Rauður. F: Óskar frá Litladal. M: Bára frá Oddhóli: Eig- andi: Ræktunarbúið Torfunesi. 2. Verðlaun: Prins frá Garði. Lit- ur: Bleikálóttur. F: Hrafn frá Holts- múla. M: Menja frá Garði. Eigandi: Guðmundur Skarphéðinsson. 3. Verðlaun: Garpur frá Syðra- Fjalli. Litur: Jarpur. F: Garður frá Syðra-Fjalli. M: Kolskör frá Syðra- Fjalli. Eigandi: Arnar Andrésson. Í flokki unghryssna urðu úrslit þessi: 1. Verðlaun: Sigurgyðja frá Húsavík. Litur: Jarpstjörnótt. F: Þokki frá Árgerði. M: Miskunn frá Keldunesi. Eigandi: Vignir Sigur- ólason. 2. Verðlaun: Ópera frá Möðru- felli. Litur: Bleikálótt. F: Nagli frá Þúfu. M: Ósk frá Brún. Eigendur: Vignir, Vilberg og Matthías. 3. Verðlaun. Elding frá Hóli. Lit- ur: Rauðblesótt. F: Glampi frá Vatnsleysu. M: Blúnda frá Hóli. Eigandi: Rúnar Tryggvason. Glæsilegasta folaldið á sýning- unni var Sigurgyðja frá Húsavík og var hún valin með nokkrum yfir- burðum og tók eigandinn Vignir Sigurólason við sigurbikarnum úr hendi Gísla Haraldssonar. Sýning þessi nýtur nokkurra vin- sælda meðal hestamanna og þykir góð tilbreyting um miðjan vetur að skoða þau folöld sem fæddust á ný- liðnu ári. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Sigurgyðja ber nafn með rentu, undan Þokka frá Árgerði úr ræktun Vignis Sigurólasonar á Húsavík. Laxamýri Sigurgyðjan í sigursæti Folaldasýning hjá Hrossaræktarfélagi Þingeyinga UPPI eru hugmyndir innan FEIF, alþjóðasambands eigenda íslenskra hesta að tímabært sé að breyta vægi tveggja atriða töltkeppninnar í alþjóðlegu keppnisreglunum FIPO. Í reglunum eru öll atriði keppninnar með jafnt vægi það er hægt tölt, hraðabreytingar og yf- irferðartölt. Í íslensku reglunum hefur hægatöltið tvöfalt vægi á við hin tvö atriðin og hefur verið ágreiningur um þetta milli Íslend- inga og annarra aðildarþjóða FEIF. Hefur þessi ásteytingar- steinn leitt til þess ásamt öðru að Íslendingar hafa ekki treyst sér til að tileinka sér FIPO-reglurnar. Á nýafstöðnum fundi sportnefnd- ar FEIF í Svíþjóð var þetta meðal annars til umræðu og sagði fulltrúi Íslands í nefndinni, Sigurður Sæ- mundsson, að sú hugmynd að hægt tölt og hraðabreytingar fengju vægið eða margfeldið 1,5 á meðan yfirferðin væri áfram með 1, ætti vaxandi fylgi að fagna. Sagðist Sig- urður orðinn mjög hallur undir þessa hugmynd og benti á að hraðabreytingar væru í raun vandasamari í útfærslu en hæga- töltið og því mjög eðlilegt að sér- staklega væri umbunað fyrir vel heppnaðar hraðabreytingar með auknu vægi. Taldi hann að ef þess- ar hugmyndir næðu fram að ganga væri mjög líklegt að þessi áður- nefndi ágreiningur væri þar með úr sögunni og myndi það liðka mjög fyrir upptöku FIPO reglna hér á landi sem væri orðið mjög brýnt. Með auknu vægi þessara atriða minnkar um leið vægi yfirferðar- töltsins sem hefur verið hálfgert vandræðabarn á undanförnum heimsmeistaramótum þar sem hestum hefur verið riðið út á ystu mörk hvað varðar úthald og við leg- ið að þeim hafi verið ofgert. Ætti þessi breyting ef af verður að stuðla að því að knapar leggi minna undir á yfirferðinni en leggi þess meiri áherslu á fimi og mýkt hest- anna og hnökralausar sýningar. Sportnefnd FEIF fundar Hugmyndir um aukið vægi hægatölts EKKI er neinum blöðum um að fletta að tilkoma reiðhallarinnar á Andvaravöllum veldur straum- hvörfum í starfi félagsins. Hannes Hjartarson formaður bygginga- nefndar sagði að höllin hefði verið stíft notuð síðustu vikur frá fjögur á daginn og fram á kvöld og sér litist vel á framhaldið. Óhætt er að segja að höllin sé gott dæmi um þann vöxt sem verið hefur í félaginu síðustu árin. Hefur And- vari vaxið úr því að vera litli bróðir hinna félaganna á höfuðborg- arsvæðinu í það að vera jafnoki þeirra og kannski gott betur því ætla má að félagið sé eitt það virk- asta um þessar mundir. Auk ræðuhalda fengu fákar fé- lagsmanna að njóta sín allnokkuð á velli hallarinnar og var til dæmis boðið uppá vel lukkaða skrautreið barna undir stjórn Sigrúnar Sigurð- ardóttur. Þá mættu þrír félags- manna með afrakstur hrossaræktar sinnar og voru þar á ferð áðurnefnd- ur Hannes, Sveinn Gaukur Jónsson og Sigurbjörn Magnússon og með þeim aðstoðarfólk. Kór hefur verið stofnaður innan félagsins og fékk hann að þreyta sína frumraun á opinberum vett- vangi og þótti vel til takast. Þá komu þarna fram verðlauna- hafar frá fyrsta töltmótinu sem haldið var í höllinni kvöldið fyrir vígsluna en úrslit á þessu fyrsta móti ársins á landinu urðu sem hér segir: Unglingar 1. Daníel Gunnarsson og Díana frá Heiði 2. Ólöf Þ. Jóhannesdóttir og Fjöln- ir frá Reykjavík 3. Áslaug A. Sigurbjörnsdóttir og Búi frá Kiðafelli 4. Anna Þorsteinsdóttir og Krummi frá Kálfholti. 5. Anna G. Oddsdóttir og Rauður frá Borgarfirði Opinn flokkur 1. Erling Ó. Sigurðsson og Áll frá Búðardal 2. Bylgja Gauksdóttir og Hnota frá Garðabæ 3. Þórunn Hannesdóttir og Gjöf frá Hvoli 4. Jón Ó. Guðmundsson og Smyrill frá Stokkhólma 5. Katrín Stefánsdóttir og Adam frá Ketilsstöðum Andvaramenn vígja nýja reiðhöll Nýja höllin veldur straumhvörfum Morgunblaðið/Vakri Ræktunarsýning félagsmanna Andvara var eitt af dagskráratriðum vígslu- athafnar og heldur Gunnar Melsteð hér í eitt af ræktunarafrekum Sig- urbjörns Magnússonar, unga hryssu undan Orra frá Þúfu. Það var merkur áfangi í sögu Andvara þegar Andvaramenn vígðu nýja reiðhöll sína á laugardag. Var boðið upp á góða sýn- ingu af þessu tilefni þar sem formenn, bæj- arstjóri, prestur og ráðherra lögðu inn góð orð til hallarinnar. Valdimar Kristinsson leit við á Andvaravöllum. FÁDÆMA góð mæting í vígsluathöfn á Ármótum á dög- unum hefur vakið mikla athygli í röðum hestamanna og raunar langt út fyrir þeirra raðir. Kvaðst Hafliði Halldórsson staðarráðsmaður fyrir sína hönd og meðeigandans Dan Robert Ewerts afar þakklátur öllum þeim sem sáu sér fært að mæta. Hafi þessar undirtektir fært sér heim sanninn um að fólk hafi almennt áhuga á þeirri uppbyggingu sem þarna hefur átt sér stað og væntanlega þeirri starfsemi sem þar verður í framtíðinni. Hafliði þakklátur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.