Morgunblaðið - 28.01.2003, Page 42
DAGBÓK
42 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Dettifoss kemur í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Brúarfoss og Bay
Bulker komu til
Straumsvíkur í gær,
Ocean Tiger kom í
gær.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun
þriðjudaga kl. 17–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
bað, vinnustofa, leirlist
og jóga, kl. 10 og kl. 11
enska, kl. 11 dans, kl.
13 vinnustofa og postu-
línsmálun kl.14 söng-
stund.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og opin
handavinnustofa, kl. 9–
12.30 bókband og
öskjugerð, kl. 9.30
dans, kl. 10.30 leikfimi,
kl. 13–16.30 opnar
handavinnu og smíða-
stofur.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–13 hárgreiðsla, kl.
8.30–14.30 böðun, kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–12
tréskurður, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 10–
11.30 sund, kl. 13–16
leirlist, kl. 14–15 dans.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 hár-
greiðslustofan opin og
aðstoð við böðun, kl.
10 samverustund, kl.
14 félagsvist.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl.
9–16 vefnaður, kl. 10–
13 opin verslunin, kl.
13.30 myndband.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, tré-
skurður, kl. 10–11 leik-
fimi, kl. 12.40 versl-
unarferð í Bónus, kl.
13.15–13.45 bókabíll-
inn, hárgreiðslustofan
opin kl. 9–14.
Korpúlfar Grafarvogi
samtök eldri borgara.
Vatnsleikfimi er í Graf-
arvogslaug á þriðju-
dögum kl. 9.45. S.
545 4500.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl.
10 hársnyrting, kl. 11
leikfimi, kl. 13 föndur
og handavinna.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Brids og
saumur kl:13.30 pútt í
Hraunseli kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði.
Þriðjudagur: Skák kl.
13 og alkort spilað kl.
13.30. Miðvikudagur:
Göngu-Hrólfar fara kl.
10 frá Ásgarði, kl. 20.45
söngvaka í umsjón Sig-
urbj. S. 588 2111.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. kl. 9–16.30
vinnustofur opnar. Frá
hádegi spilasalur op-
inn. Kl. 13 boccia. S.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 og kl. 9.50 leik-
fimi, kl. 9.30 silki-
málun, handa-
vinnustofan opin, kl.
10–17, kl. 14 boccia og
ganga.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 10 ganga, kl.
13–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 19
gömlu dansarnir, kl. 17
línudans.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulínsmálun og
glerskurður, kl. 10
boccia, kl. 11, leikfimi,
kl. 12.15 verslunaferð,
kl. 13 myndlist og hár-
greiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9 boccia, kl. 13 handa-
vinna, kl. 13.30 helgi-
stund. Fótaaðgerðir
hársnyrting.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa
og tréskurður, kl. 10–
11 boccia, kl. 9–17 hár-
greiðsla.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–16
bútasaumur og postu-
línsmálun, kl. 9.15–
15.30 handavinna.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9.30 glerskurður og
morgunstund, kl. 10
fótaaðgerðir, kl. 13
handmennt og postu-
línsmálning, kl. 14 fé-
lagsvist.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Brids í kvöld kl.
19.
Félag áhugamanna
um íþróttir aldraðra.
Leikfimi í Bláa salnum
kl. 11.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á mið-
vikudögum kl. 20, svar-
að í s. 552 6644 á fund-
artíma.
Þjóðdansafélag
Reykjavíkur. Opið hús
í kvöld kl. 20.30 í sal fé-
lagsins að Álfabakka
14a. Gömlu dansarnir.
Allir velkomnir.
Hana-nú, Kópavogi.
Fundur í hlát-
urklúbbnum í Gull-
smára í kvöld kl. 20.
Allir velkomnir.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, félagsheim-
ilið Hátúni 12. Kl. 20
opið hús.
Í dag er þriðjudagur 28. janúar,
28. dagur ársins 2003. Orð dags-
ins: Jesús sagði við þá: „Ef þér
væruð blindir, væruð þér án sak-
ar. En nú segist þér vera sjáandi,
því varir sök yðar.“
(Jóh. 9, 41.)
Það er heimskulegt aðhópur fólks fari á
veitingahús ef það er að-
eins til að fylgjast með
öðru fólki borða,“ skrif-
ar Muammar Gaddafi
Líbýuleiðtogi í Grænu
bókina, en hún lýsir
kenningakerfinu sem
stjórnviska hans er
grunduð á. Með þessari
líkingu er hann að sýna
fram á hversu heimsku-
legt það er að sækja
íþróttaviðburði til þess
eins að horfa á aðra iðka
íþróttir.
Það kemur því á óvart
að Gaddafi skuli sækjast
eftir að halda Afríku-
meistarakeppnina í
knattspyrnu árið 2006
og Heimsmeistarakeppn-
ina árið 2010. Varla ætl-
ar hann áhorfendum að
taka virkan þátt í leikj-
unum sem þar fara fram.
Ekki fremur en hann
ætlar þegnum Líbýu að
velja sér leiðtoga.
Gaddafi rær að því öll-um árum að öðlast
trúverðugleika á al-
þjóðavettvangi. Í síðustu
viku tókst honum að
fylkja Afríkjuríkjunum á
bak við sig með þeim ár-
angri að sendiherra Líb-
ýu var kosinn formaður
mannréttindanefndar
Sameinuðu þjóðanna.
Þetta var harðlega gagn-
rýnt af fulltrúa Banda-
ríkjanna og mannrétt-
indasamtökum víða um
heim. Sem vitaskuld er
ekkert annað en grunn-
hyggni. Hvaða þjóð er
betur til þess fallin að
meta stöðu mannrétt-
inda í heiminum, en þjóð
sem alræmd er fyrir að
fótumtroða mannrétt-
indi? Ef að líkum lætur
ætti sendiherra Líbýu að
geta upplýst nefndina
um gerræðislegar hand-
tökur og pyntingar,
sýndarréttarhöld yfir
stjórnarandstæðingum
og hvernig ríki styðja og
skjóta skjólshúsi yfir
starfsemi hryðjuverka-
hópa.
Og fyrst einræðisherr-anum Hitler gafst
vel að halda stóran
íþróttaviðburð yrði það
eflaust vegsauki fyrir
einræðisherrann
Gaddafi. Þó efast megi
um að heimavöllurinn
dugi til að sonur hans, El
Saadi, komist í úrslita-
leikinn, en hann er fyr-
irliði líbýska landsliðs-
ins.
El Saadi fer líka fyrir
fjárfestingararmi fjöl-
skyldunnar, sem m.a. á
7,5% í Juventus. Því fór
úrslitaleikur Juventus
og Parma um meistara
meistaranna í haust
fram í Trípólí í Líbýu af
öllum stöðum.
Það er þó jákvætt aðnýr formaður ætlar
að reiða sig á saman-
safnaða visku þeirra sem
sitja í mannréttinda-
nefnd Sameinuðu þjóð-
anna og forðast „eins og
kostur er“ að taka
ákvarðanir á eigin for-
sendum. Hver hefði búist
við því af fulltrúa Líbýu?
STAKSTEINAR
Líbýa tekur forystu í
mannréttindamálum
ÉG er með uppástungu til
þeirra manna sem öllu ráða
í þessu þjóðfélagi og mig
langar að koma á framfæri.
Allir vita að offita er gífur-
legt vandamál sem ég og
fleiri þurfum að glíma við.
Ég er öryrki vegna þess að
fæturnir bera mig ekki
lengur. Ég er ekki ein um
það. Það eru hinir og þessir
á bótum vegna offitu.
Hvernig væri það ef þið sem
öllu ráðið mynduð snúa við
blaðinu og verðlauna þessar
fitubollur með því að borga
öllu þessu fólki peninga fyr-
ir það eitt að léttast? Hvern-
ig væri að hafa einhvers
staðar opið þar sem maður
getur stimplað sig inn og
hoppað upp á vigtina? Ef
maður léttist ekkert, fær
maður ekkert. Ef maður
væri duglegur fengi maður
einhvern glaðning fyrir
hvert kíló sem maður
missti. Þá myndi fólkið taka
sig saman í andlitinu og fara
að hugsa sinn gang. Innan
tíðar mundi þetta fólk létt-
ast, hætta á bótum og fara
út í lífið aftur. Ég er búin að
prófa alla megrunarkúra
sem til eru, fara í leikfimi til
Gauja litla, en ekkert dugir.
Hvernig haldið þið að þjóð-
félagið verði eftir nokkur ár
ef ekkert er að gert? Helm-
ingur þjóðarinnar verður
útivinnandi og hinn helm-
ingurinn verður eintómar
fitubollur og allir á örorku.
Hvað haldið þið að þetta
kosti þjóðina? Við feitaboll-
urnar þurfum stuðning og
félagsskap og okkur er það
öllum nauðsynlegt að kom-
ast út í lífið aftur og fara að
vinna. Feitt fólk þarf á hjálp
að halda.
Hver borgar fyrir fólkið
sem fer inn á Vog? Ef ég
væri í fullri vinnu og ætlaði
mér að fara inn á Reykja-
lund í megrun, þá yrði það
að vera launalaust, en ef þú
ætlar að hætta að drekka þá
standa allir við bakið á þér,
vinnuveitandinn og allir
sem þú umgengst.
Takk fyrir,
Margrét.
Jergens-húðvörur
VARÐANDI fyrirspurn
konu um Jergens-húðvörur
í Velvakanda miðvikudag-
inn 22. janúar sl. er okkur
ánægja að upplýsa að fyr-
irtæki okkar, Effco ehf.
Smiðjuvegi 4a, Kópavogi,
hefur verið umboðsaðili fyr-
ir Jergens-vörur til margra
ára. Húðkremin eru til sölu í
verslunum Hagkaupa og
Fjarðarkaupum ásamt
helstu apótekum.
Kveðja,
Effco ehf.
Rauða húsið
á heimsmælikvarða
ÉG má til með að deila
ánægju minni með öðrum
því ég hef fundið besta mat-
sölustað á Íslandi og þótt
víðar væri leitað. Ég geri
ráð fyrir því að fólk sem ætl-
ar að gera sér dagamun
með því að fara út að borða,
vilji að það sem á borð er
borið standi undir vænting-
um. Því miður vill það
brenna við að umgjörðin er
fín en maturinn og þjónust-
an ekki að sama skapi. Ég
hafði heyrt vel látið af veit-
ingahúsinu Rauða húsið á
Eyrarbakka og afréð að láta
á það reyna. Það er ekki að
orðlengja það að allt var til
fyrirmyndar, staðurinn lát-
laus og notalegur, viðmót
starfsfólks gott og síðast en
ekki síst maturinn, sem var
í einu orði sagt frábær. Ég
hef ferðast víða og neytt
kræsinga í Róm, París, Vín,
Amsterdam og Utrecht, en
aldrei hef ég fengið jafngóð-
an mat og í Rauða húsinu á
Eyrarbakka.
Ánægður gestur.
Tapað/fundið
Nótur á flakki
VINSAMLEG kona sem
fann nótur úti á götu og
reyndi að hafa samband við
eiganda er beðin um að
reyna aftur því eiganda
tekst ekki að hafa upp á
konunni.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Fitubollur
Morgunblaðið/Kristinn
Víkverji skrifar...
BARÁTTAN við aukakílóin er stöð-ugt viðfangsefni margra Íslend-
inga, jafnvel meirihluta þjóðarinnar
ef marka má það mikla rými sem um-
fjöllun um þessi mál færi í fjölmiðlum.
Fátt hefur vakið meiri athygli upp
á síðkastið en kúrinn sem Ásmundur
Stefánsson framkvæmdastjóri lýsir í
bók sem nýlega kom út. Ásmundur
hefur náð undraverðum árangri með
aðferð sinni og kúrnum hefur einnig
verið hælt af fleiri þjóðkunnum ein-
staklingum, s.s. Davíð Oddssyni for-
sætisráðherra.
x x x
Í STUTTU máli gengur kúrinn út áað maður má borða fitu- og eggja-
hvíturíkt fæði að vild en verður að
sniðganga kolvetni. Þetta hljómar
ekki illa en stangast á við flest það
sem hingað til hefur verið talið skyn-
samlegt í þessu efni. Samkvæmt
þessu ætti að vera í lagi að þamba
rjóma en bannað að naga gulrætur.
Víkverji reynir eins og flestir að
halda í við sig þegar matur er annars
vegar, vissulega með misjöfnum
árangri, enda gráðugur að eðlisfari.
Til að halda aftur af kílóunum reynir
hann að stunda líkamsrækt og borða
fjölbreytt fæði. Eitt af því sem Vík-
verji vandi sig á að gera er að reyna
að borða einungis grænmeti, korn-
meti og baunir í hádeginu og jafnvel
ávexti.
Viðtalið við Ásmund kom hins veg-
ar upp í hugann þar sem Víkverji stóð
við salatbar líkamsræktarstöðvarinn-
ar eftir að hafa tekið á því í hádeginu
og skóflaði óhollustunni upp á disk:
kál, salat, tómatar, gulrætur, brokk-
ólí, hýðislaus hrísgrjón og með þessu
sneið af grófkorna brauði. Ekkert
nema kolvetni. Það var því ekki með
góðri samvisku sem Víkverji snæddi
kolvetnin sín. Hann sá eftir því að
hafa ekki farið á steikhús og pantað
sér stóra, fitusprengda nautasteik
með béarnaise-sósu. Hann hefði
vissulega orðið að afþakka boð um að
fá salat eða bakaða kartöflu með en
hefði hins vegar getað þegið smjör-
klípuna sem átti að fara í kartöfluna.
x x x
TALANDI um steikhús fagnar Vík-verji því framtaki Hereford-steik-
húss að bjóða 75 cl karöflu af rauðvíni
á 1.290 krónur. Verðlag á víni á veit-
ingahúsum jaðrar við að vera okur og
tímabært að einhver taki upp sam-
keppni á þessu sviði. Það er ekki hægt
að bjóða fólki að kaupa 990 króna
flöskur af rauðvíni (þar sem um 700
eru raunar skattur og verðmæti víns-
ins því einungis 100–200 krónur þegar
einnig er tekið tillit til álagningar) á
um 4.000 krónur á veitingahúsi. Er
nema von að fólk snæði frekar heima
hjá sér í góðra vina hópi en að láta
bjóða sér slíkt?
KOLVETNIN horfin!
LÁRÉTT
1 ragur, 8 fen, 9 tekur, 10
háð, 11 byggja, 13 fiskar,
15 spaug, 18 sjaldgæft,
21 kjána, 22 fallegur, 23
skattur, 24 ísaumur.
LÓÐRÉTT
2 melhryggur, 3 étast af
ryði, 4 lagvopn, 5 mergð,
6 reiðar, 7 skjótur, 12 af-
komanda, 14 lengdarein-
ing, 15 hæfileiki, 16 ráfa,
17 undirnar, 18 margir,
19 vætlaði, 20 kögur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 umbun, 4 hopar, 7 skott, 8 leður, 9 ask, 11
takt, 13 Erla, 14 ólétt, 15 fjöl, 17 akir, 20 til, 22 suddi, 23
jússa, 24 arðan, 25 ferli.
Lóðrétt: 1 umsát, 2 brokk, 3 nota, 4 hólk, 5 púður, 6
rorra, 10 stéli, 12 tól, 13 eta, 15 fiska, 16 önduð, 18 kæs-
ir, 19 róaði, 20 tign, 21 ljúf.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16