Morgunblaðið - 28.01.2003, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 28.01.2003, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 43 DAGBÓK 20% afsláttur af silfuhúðun á gömlum munum og silfurhúðuðum antikmunum til 20. febrúar Sérfræðingar í gömlum munum síðan 1969 Silfurhúðun, Álfhólsvegi 67, 200 Kópavogi, sími 554 5820. Opið kl. 16-18 þri., mið., fim. • www.silfurhudun.is Bankastræti 11 sími 551 3930 Útsala 20-50% afsláttur HINN 4. desember síð- astliðinn komu krakk- ar í 7. SJ úr Setbergs- skóla í Hafnarfirði í heimsókn á Morgun- blaðið. Koma þeirra á blaðið var liður í verkefninu Dagblöð í skól- um sem bekkurinn vann nýlega í skól- anum. Krakkarnir voru kurteisir og fróð- leiksfúsir. Morgun- blaðið þakkar þeim kærlega fyrir komuna. Morgunblaðið/Golli Ókeypis bridsnámskeið fyrir ungt fólk Bridsáhugamenn eru hér með beðnir um að koma þessum mikil- vægu upplýsingum til ungs fólks: 13–15 ára unglingum er boðið að læra brids í Bridssambandi Íslands, Síðumúla 37, 3. hæð. Kennt verður á fimmtudögum milli kl. 17:00 og 19:00 í tíu vikur. Fjörið byrjar 30. janúar, ekkert þátttökugjald. Í lokin verður haldið bráð- skemmtilegt bridsmót. Skráning og frekari upplýsingar fást í tölvupósti: ljosbra@ismennt.is, eða með því að hringja í síma 864 6358 (Ljósbrá). Framhaldsskólanemar Bridgesamband Íslands er að fara af stað með ókeypis bridgekennslu fyrir framhaldsskólanema. Þeim er boðið að læra bridge í Bridgesam- bandi Íslands, Síðumúla 37, 3. hæð. Kennt verður á miðvikudögum frá kl. 17:00 til 19:30 í tíu vikur. Kennsl- an hefst 29. janúar, ekkert þátttöku- gjald. Í lokin verður haldið bráð- skemmtilegt framhaldsskólamót. Skráning og frekari upplýsingar fást í tölvupósti: ljosbra@ismennt.is, eða með því að hringja í síma 864 6358 (Ljósbrá). Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði Glæsibæ mánud. 20. jan. sl. Spilað var á 12 borðum. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S: Magnús Halldórss. – Guðjón Kristjánss. 274 Sæmundur Björnss. – Olíver Kristóf. 258 Kristján Ólafsson – Ólafur Gíslason 233 Árangur A-V: Bjarni Ásmunds – Þröstur Sveinsson 281 Guðmundur G. Guðm. – Gunnar Hersir 248 Tómas Jóhannsson – Bragi Jónsson 243 Tvímenningskeppni spiluð fimmtu. 23. janúar. Spilað var á 11 borðum. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S: Sæmundur Björnss. – Olíver Kristóf. 278 Albert Þorsteinsson – Bragi Björnsson 257 Magnús Oddsson – Magnús Halldórss. 236 Árangur A-V: Halldór Magnússon – Þórður Björnsson 257 Alda Hansen – Jón Lárusson 249 Ingibjörg Stefánsd. – Þorsteinn Davíðss. 231 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson STJÖRNUSPÁ Frances Drake VATNSBERI Afmælisbörn dagsins: Þú býrð yfir ákveðni og viljastyrk og þér vex fátt í augum. Þér gefst tækifæri til að læra eitthvað mik- ilvægt á árinu sem fram- undan er. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Sýndu öðrum sérstaka nær- gætni í dag því fólk í kring- um þig er niðurdregið. Já- kvæð hugsun er gífurlega mikilvæg. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú fyllist vonleysi í dag. En þú lifðir árið 2002 af og þér mun einnig ganga vel í ár. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Samband við nána vini og félaga verður erfitt í dag og þér líður ekki sérlega vel. En kvíddu engu, sömu sögu er að segja um marga í dag. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Sumir dagar eru auðveldari en aðrir og í dag þarftu að hafa fyrir hlutunum. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Skyndilega virðast ásta- málin erfið og í miðjum marglitum heimi finnst þér allt grátt og hversdagslegt. Það er þó ekki tilfellið og þessi tilfinning mun brátt hverfa. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú finnur fyrir togstreitu milli þeirrar skyldu sem starfið leggur þér á herðar og einkalífsins. Reyndu að draga úr spennu á heimilinu. Fjölskyldan er mikilvæg. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú fyllist andúð í garð ein- hvers og finnst að gerðar séu meiri kröfur til þín en annarra. Reyndu að brosa. Í dag þarftu að vinna, ekki leika þér. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú hefur eytt fé að und- anförnu og nú er upp- sprettan þornuð. Obbo- bobb. Ekki hafa áhyggjur, á næstu tveimur árum munt þú njóta frama í starfi. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú ert áhugalaus og kvíðir framtíðinni í dag. En hafðu hugfast að það ert þú sem byggir veggina í kringum þig, ekki aðrir. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú vilt standa þig vel í vinnunni en efasemdir grípa þig í dag. Leiddu þessar hugsanir hjá þér því þær eru aðeins tímabundnar. Þú verður að trúa á þig. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Samræður við vin munu valda þér vonbrigðum í dag. Ekki örvænta því samband ykkar kemst brátt í samt lag. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú átt erfitt með að átta þig á fólki í dag því margir virð- ast vera úrillir. Reyndu að sinna þínu verki eins og ekk- ert hafi í skorist. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. ÁRNAÐ HEILLA 80 ÁRA afmæli. Í dagþriðjudaginn 28. jan- úar er áttræður Arnfinnur V. Arnfinnsson, fyrrver- andi hótelstjóri, Skarðshlíð 12c, Akureyri. Hann og eig- inkona hans Elín Sumar- liðadóttir verða að heiman á afmælisdaginn. TIL FÁNANS Rís þú, unga Íslands merki, upp með þúsund radda brag. Tengdu í oss að einu verki anda, kraft og hjartalag. Rís þú, Íslands stóri, sterki stofn með nýjan frægðardag. - - Skín þú, fáni, eynni yfir eins og mjöll í fjallahlíð. Fangamarkið fast þú skrifir fólks í hjartað ár og síð. Munist, hvar sem landinn lifir, litir þínir alla tíð. Einar Benediktsson LJÓÐABROT MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk get- ur hringt í síma 569- 1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík SPIL dagsins kom upp í landsliðskeppni í Pól- landi í fyrra og það er Szymanowski sem situr í sagnhafasætinu: Norður ♠ ÁK10852 ♥ D85 ♦ G9 ♣G2 Suður ♠ 63 ♥ ÁKG764 ♦ Á42 ♣95 Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 1 hjarta Pass 1 spaði Pass 2 hjörtu Pass 4 hjörtu Allir pass Fjögur hjörtu er mjög traustur samningur. Sagnhafi á níu slagi beint og getur búið þann tí- unda til með því að stinga tígul í borði eða fría spaðann. En vandinn er sá að vestur kemur út með spaðagosa, sem verður að teljast líklegt einspil. Hvernig myndi lesandinn spila með tilliti til þess? Ekki gengur að dúkka tígul, því þá fær vörnin fjórða slaginn á spaða- stungu ef gosinn er einn á ferð. Það er hugmynd að taka tvisvar tromp, en þá verða þau að falla 2-2. Í reynd var allt spilið þannig: Norður ♠ ÁK10852 ♥ D85 ♦ G9 ♣G2 Vestur Austur ♠ G ♠ D974 ♥ 1092 ♥ 3 ♦ D8653 ♦ K107 ♣KD84 ♣Á10763 Suður ♠ 63 ♥ ÁKG764 ♦ Á42 ♣95 Szymanowski tók á spaðaás, fór heim á há- tromp í öðrum slag og spilaði spaða aftur að blindum. Vestur græðir ekkert á því að trompa svo hann henti tígli og kóngurinn átti slaginn. Þetta var skemmtilegur leikur, en næsti var enn betri. Szymanowski spil- aði spaða og trompaði SMÁTT heima! Ef vest- ur yfirtrompar verður einfalt mál að fría spað- ann og henda niður tveimur tíglum heima. Vestur henti því tígli. Þá var tígli spilað í bláinn og vörnin gat ekki komið í veg fyrir tígultrompun í borði. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson 1. e4 c6 2. d4 d5 3. e5 Bf5 4. Rc3 e6 5. g4 Bg6 6. Rge2 c5 7. Be3 Rc6 8. dxc5 Rxe5 9. Rf4 Re7 10. De2 R7c6 11. O-O-O Be7 Staðan kom upp í A-flokki Corus skákmótsins sem lauk fyrir skömmu í Wijk aan Zee. Sigurvegari mótsins, Viswanathan An- and (2753), hafði svart gegn fórnglöðum Alexey Shirov (2723). 12. Rfxd5?! exd5 13. f4 d4 14. h4 14. fxe5 gekk ekki upp vegna 14...Bg5 og svartur vinnur létt. Í framhaldinu reyndist hvítur ekki hafa næg færi fyrir manninn. 14...Rd3+! 15. cxd3 h5 16. f5 Bh7 17. Bd2 dxc3 18. Bxc3 O-O 19. d4 a5 20. a3 He8 21. Dc4 Bxh4 22. Bd3 hxg4 23. Kb1 Dg5 24. Ka1 Had8 25. Bb1 Re7 26. Bxa5 Bxf5 27. Bxd8 Hxd8 28. Hhf1 g6 29. Db3 Be6 30. Dxb7 Dd5 31. Dxd5 Rxd5 32. Hh1 Bf2 33. c6 Hc8 34. Hc1 g3 35. Be4 Rf6 36. Bg2 Bd5 og hvítur gafst upp. Loka- staða mótsins varð þessi: 1. Viswanathan Anand 8½ vinning af 13 mögulegum. 2. Judit Polgar 8 v. 3. Evg- eny Bareev 7½ v. 4.-8. Loek Van Wely, Vladimir Kramnik, Alexander Grischuk, Vassily Ivansjúk og Alexey Shirov 7 v. 9.-10. Teimour Radjabov og Ves- elin Topalov 6½ v. 11.-12. Ruslan Ponomarjov og Anatoly Karpov 6 v. 13. Michal Krasenkov 4½ v. 14. Jan Timman 2½ v. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Mynd, Hafnarfirði BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 17. janúar sl. í Hafn- arfjarðarkirkju af Guð- mundi Jónssyni þau Stein- unn Marinósdóttir og Pétur Gunnarsson. Heimili þeirra er að Hafnargötu 39, Kefla- vík. MEÐ MORGUNKAFFINU Hann telur sig vera geðlækni, þessi …          FRÉTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.