Morgunblaðið - 28.01.2003, Qupperneq 44
ÍÞRÓTTIR
44 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ borgaði sig svo sannarlega fyrir ruðningslið Tampa
Bay Buccaneers að greiða Oakland Raiders átta milljónir
dala til að fá John Gruden, þjálfara Raiders til sín. Honum
tókst að vekja upp veikt sóknarlið Buccaneers og í 37. of-
urskálarleiknum á Qualcomm-vellinum vissi hann upp á
hár hvað Rich Gannon, leikstjórnandi Raiders, ætlaði sér
að gera í hvert sinn. Frábær varnarleikur Tampa Bay
lagði grunninn að stórsigri á Oakland, 48:21 – og fyrsti
meistaratitill Tampa var í höfn. Leikmenn Oakland náðu
aldrei að finna veikleika í vörn Buccaneers, sem gerði út
um leikinn með hverju snertimarkinu á fætur öðru, eftir
að hafa stolið sendingum. „Ég ber mikla virðingu fyrir
Gannon – lét leikmenn mína vita hvernig hann hugsar í
sóknarleiknum. Fyrrverandi aðstoðarþjálfarar mínir hjá
Raiders þekkja mig jafnvel og vissu því hvað ég myndi
gera,“ sagði Gruden. Varnarmenn Tampa komust inn í
fimm sendingar Gannons og skoruðu þeir jafnmörg stig
og Raiders liðið allt til samans. Dexter Jackson komst inn
í tvær þeirra og fyrir það var hann kosinn maður leiksins.
Sjóræningjarnir
stálu sendingum
AP
Dexter Jackson hjá Tampa Bay var útnefnd-
ur maður leiksins í fyrrinótt.
STJÓRN spænska knattspyrnu-
félagsins Barcelona ákvað í gær-
kvöld að segja þjálfaranum hol-
lenska, Louis Van Gaal, upp
störfum. Liðinu hefur gengið afleit-
lega í spænsku 1. deildinni í vetur
og er í 12. sæti, aðeins þremur stig-
um frá fallsæti. Í meistaradeild
Evrópu hefur hinsvegar allt gengið
í haginn hjá Barcelona í vetur.
Van Gaal er þó ekki hættur því
samkomulag var gert við hann um
að halda áfram þar til formlega
hefur verið gengið frá starfsloka-
samningi sem báðir aðilar eru sátt-
ir við. Van Gaal stýrði Barcelona á
árunum 1997 til 2000 og tók aftur
við liðinu sumarið 2002.
Van Gaal
sagt upp hjá
Barcelona
CHRIS Kirkland, markvörður
Liverpool, mun ekki leika meira með
liðinu á keppnistímabilinu í ensku
knattspyrnunni. Liðbönd í hné
sködduðust er hann lenti í samstuði
við leikmann Crystal Palace í bik-
arviðureign um helgina, 0:0.
JERZY Dudek, pólski landsliðs-
markvörðurinn, fær því tækifæri til
að sanna sig á ný. Dudek var settur
út úr liði Liverpool fyrr í vetur eftir
að hafa fengið á sig nokkur ódýr
mörk.
JÓHANNES Karl Guðjónsson
fékk í gær leikheimild með Aston
Villa og getur því leikið með liðinu
gegn Middlesbrough í ensku úrvals-
deildinni í kvöld.
JÓHANNES fer beint í leikmanna-
hóp Aston Villa, samkvæmt heima-
síðu félagsins, og ekki er ólíklegt að
hann komi við sögu í leiknum.
EIÐUR Smári Guðjohnsen og
Guðni Bergsson verða væntanlega á
ferðinni í kvöld en lið þeirra leika
bæði á heimavelli í úrvalsdeildinni.
Chelsea fær Leeds í heimsókn á
Stamford Bridge og Bolton tekur á
móti Everton á Reebok Stadium.
SAM Allardyce, knattspyrnustjóri
Bolton, hefur mikinn hug á að fá
Salva Ballesta, sóknarleikmann hjá
Valencia á Spáni, að láni út þetta
keppnistímabil. Allardyce vonast til
að geta gengið frá málinu fyrir föstu-
dag, en þá lokast á kaup og sölur liða
í Englandi, sem víðar.
STEVE McClaren, knattspyrnu-
stjóri Middlesbrough, er ekki búinn
að gefa upp vonina að fá miðjumann-
inn Seth Johnson, 23 ára, til River-
side Stadium. Búið var að bjóða
Leeds fjórar milljónir punda í John-
son, en málið fór í biðstöðu við lækn-
isskoðun – þá komu í ljós meiðsli á
hné, sem þarf að kanna betur.
PAUL Gascoigne hefur gert eins
árs samning við kínverska 2. deild-
arliðið Gansu Tianma um að leika
með því og þjálfa samhliða. Félagið
stendur höllum fæti í deildinni og
ætlar að leggja allt i sölurnar til þess
að halda sæti sínu á lokasprettinum.
Hermt er að Gascoigne fái í sinn hlut
rúmar 50 milljónir króna, standi
hann við sinn hlut og leiki með
Gansu Tianma næsta árið.
SERGEI Rebrov stóðst læknis-
skoðun hjá tyrkneska félaginu Fen-
erbahce í gær og því á ekkert að
vera því til fyrirstöðu að hann gangi
frá samningi við félagið og losni þar
með úr prísundinni hjá Tottenham.
GUILLERMO Amor, fyrrum leik-
maður Barcelona og spænska lands-
liðsins í knattspyrnu, er genginn til
liðs við skoska úrvalsdeildarliðið Liv-
ingston. Amor, sem er 35 ára miðju-
maður og lék 37 landsleiki fyrir
Spán, hefur ekki leikið frá lokum síð-
asta tímabils en þá spilaði hann með
Villarreal á Spáni.
FÓLK
Þessi frásögn af vígi ÞorsteinsÞorgrímssonar í Kjalnesinga
sögu kom upp í hugann þegar fylgst
var með Manchester
United leggja West
Ham að velli í bik-
arkeppni enska
knattspyrnusam-
bandsins um liðna helgi. Svo ójafn
var leikurinn. Þegar sá gállinn er á
liði United tekur það andstæðing
sinn engum vettlingatökum – frekar
en Búi Andríðsson. Aðeins má skilja
þessa framgöngu á einn hátt: Risinn
er rumskaður.
Lið Sir Alex Fergusons hefur
nefnilega ekki leikið eins vel og oft
áður á þessum vetri, sérstaklega í
úrvalsdeildinni – um það eru flestir
sammála. Það hefur þó harðneitað
að sleppa meisturum Arsenal úr
augsýn. Í þremur síðustu deildar-
leikjum hefur United lent undir en
unnið þá alla, þar af tvo, gegn Sund-
erland og Chelsea, á síðustu sek-
úndunum. Það er bragur á því. Þar
skila þær systur sér, reynslan og
seiglan – og svo auðvitað óbilandi
vilji til að vinna.
Skora minna en áður
Það er góð stemning í liðinu þessa
dagana og gleðin sem braust út í
kjölfar sigurmarks Diego Forlans
gegn Chelsea var fölskvalaus. Enn
sneri United svo blaðinu við í und-
anúrslitum deildabikarsins gegn
Blackburn Rovers í síðustu viku.
Veturinn hefur samt um margt
verið óvenjulegur hjá þessu marg-
falda meistaraliði. Sóknin hefur
ekki verið eins þung og oft áður og
margt bendir til þess að þetta verði
í fyrsta sinn í átta ár að United ger-
ir ekki flest mörk allra liða í úrvals-
deildinni.
Arsenal hefur gert tólf mörkum
meira á þessu stigi móts. Ekkert er
þó útilokað í þessu efni, allra síst ef
Rauðu djöflarnir halda áfram að
misþyrma liðum með sama hætti og
West Ham.
Það er þó tímanna tákn að bestu
menn United í vetur hafa líklega
verið markvörðurinn, Fabien
Barthez, og varnarmaðurinn Mikaël
Silvestre, sem hefur heldur betur
sprungið út. Að vísu er Paul Scholes
allur að færast í aukana. Eins David
Beckham. Ruud van Nistelrooy hef-
ur hins vegar sparað sig fyrir Meist-
aradeildina og bikarinn. Af 24
mörkum sem kappinn hefur gert í
vetur eru aðeins níu í deildinni. Það
er rýr uppskera á þeim akri.
Menn hafa legið Sir Alex á hálsi í
vetur, meðal annars fyrir liðsval og
innáskiptingar. Sumum þykir farið
að slá út í fyrir karlinum. Hvað er
þetta til dæmis með Phil Neville og
miðjuna? Eflaust hefur líka einhver
yppt öxlum þegar hann skipti Forl-
an inn fyrir van Nistelrooy í stöð-
unni 1:1 gegn Chelsea. Tekur maður
marksæknasta mann liðsins af velli
undir þeim kringumstæðum? Forl-
an var hins vegar ekkert að velta
því fyrir sér. Gerði bara út um leik-
inn. Sir Alex er sérvitur maður og
auðvitað köstóttur á köflum en hitt
verður ekki af honum tekið – hann
er sigurvegari af Guðs náð.
Og nú þegar stóðið er fullskipað
að nýju, eftir erfiða hrinu meiðsla,
er ljóst að United mun ekki tala
neina tæpitungu.
Hafa skorað í 62 af síðustu
63 deildarleikjum
En enski meistaratitillinn verður
ekki auðsóttur fyrir Manchester
United. Þar standa Englands- og
bikarmeistarar Arsenal í vegi.
Sú sveit á allt eins auðvelt með að
bregða mótherjum á loft. Ef þannig
liggur á henni. Með þeim hætti af-
greiddi Arsenal til að mynda hvert
liðið á fætur öðru í haust. Síðan dró
af drjúgum. Lýjandi þessi loftbrögð,
hlýtur að vera. Fjórum sinnum í röð
lutu Skytturnar í gras og lýðurinn
leit dagsljósið: Við fáum þá mót eft-
ir allt saman! En Arsène Wenger er
eldri en tvævetur í faginu, bar
smyrsl á sárin og liðið rétti fljótt úr
kútnum. Raunar hefur það ekki
gengið fram af slíkum ofstopa nema
endrum og sinnum síðan. Stigin
skila sér eigi að síður í hús. Sautján
stig af 21 mögulegu hefur liðið
fengið eftir vængstýfinguna á Old
Trafford í desember. Það er eini
leikurinn af síðustu 63 í deildinni
þar sem Arsenal hefur ekki gert
mark. Það segir meira en öll orð um
sóknarþunga liðsins.
Arsenal hefur nú 52 stig á toppi
deildarinnar, fimm stigum meira en
á sama tíma í fyrra, og fimm stiga
forskot á Manchester United.
Og það er til mikils að vinna fyrir
leikmennina, Arsenal hefur ekki
varið meistaratitil frá árinu 1935.
Og ef liðið gerir það ekki nú með
Patrick Vieira, Robert Pires, Sol
Campbell og Dennis Bergkamp inn-
anborðs, hvenær þá? Allir eru þeir í
hópi bestu leikmanna sem klæðst
hafa búningi félagsins. Að ekki sé
talað um Thierry Henry, sem hlýtur
að vera hættulegasti sóknarmaður
heims um þessar mundir. Og ekki
hefur Brasilíumaðurinn Gilberto
veikt liðið.
Af undansögðu er ljóst að eitt-
hvað verður undan að láta. Og ekki
dró það úr spennunni í gær þegar
United og Arsenal drógust saman í
fimmtu umferð bikarkeppninnar.
Það er eins gott að eiga réttu stíl-
ana!
Svarthvítur stormsveipur
Ólseigur öldungur, Sir Bobby
Robson, fer fyrir svarthvíta hernum
í norðri, Newcastle United, sem
vermir þriðja sætið, sjö stigum á
eftir Arsenal. Verður hann fyrsti
Hörð orrusta framundan um Englandsmeistaratitilinn
Brugðið á loft
Reuters
Thierry Henry fagnar marki fyrir Arsenal. Á góðum degi heldur
honum enginn mannlegur máttur.
„Búi gekk þá inn í hofið. Hann sá að Þor-
steinn lá á grúfu fyrir Þór. Búi fór þá hljóð-
lega þar til er hann kom að Þorsteini. Hann
greip þá til Þorsteins með því móti að hann
tók annarri hendi undir knésbætur honum
en annarri undir herðar honum. Með þeim
hætti brá hann Þorsteini á loft og keyrði
höfuð hans niður við stein svo fast að heilinn
hraut um gólfið. Var hann þegar dauður.“
Orri Páll
Ormarsson
skrifar
PÓLVERJAR höfnuðu í gær
beiðni fararstjóra íslenska
landsliðsins í handknattleik að
skipta á myndbandsupptökum
af leikjum liðanna í undanriðl-
unum í Portúgal. Jóhann Ingi
Gunnarsson, formaður lands-
liðsnefndar, sagði að Pólverj-
um hefðu verið boðin skiptin
en þeir hefðu harðneitað.
Ástæðan er talin sú að einn
lykilmanna þeirra, skyttan
Marcin Lijewski sem leikur
með Flensburg í Þýskalandi,
lék ekki gegn Íslandi á æf-
ingamótinu í Danmörku fyrr í
þessum mánuði og Pólverjar
hafa væntanlega ekki áhuga á
að hann verði „kortlagður.“
Þeir pólsku
sögðu nei