Morgunblaðið - 28.01.2003, Qupperneq 47
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 47
ÍSLENSKA dómaraparið, Stefán
Arnaldsson og Gunnar Viðarsson,
komust í gegnum niðurskurðinn
sem gerður var á hópi dómara að
lokinni riðlakeppni HM í hand-
knattleik. Þeir félagar hafa verið
settir á leiki í öðrum milliriðli sem
fram fer í Póvoa De Varzim en þar
leika Júgóslavar, Portúgalar, Tún-
isbúar og Þjóðverjar. Auk þeirra
dæmir pólskt par í riðliðnum og
dómarapar frá Úkraínu. Þá verður
Kjartan K. Steinbach, formaður
dómaranefndar Alþjóða handknatt-
leikssambandsins, umsjónarmaður
með leikjunum í Póvoa De Varzim.
Leikirnir í riðli Íslands sem háðir
verða í bænum Caminha verða
dæmdir af þýsku pari, Suður-
Kóreumönnum og Portúgölum.
Milliriðill þrjú fer fram í Rio Mai-
or en í honum eru Danir, Egyptar,
Króatar og Rússar. Viðureignir
fjórða milliriðils verða háðar í
Espinho og þar kljást Frakkar,
Slóvenar, Svíar og Ungverjar. Þess
má geta að þeir félagar dæmdu
saman í heimsmeistarakeppninni í
Frakklandi 2001 og stóðu sig vel.
Stefán dæmdi einnig á HM í
Kumamoto í Japan 1997 – þá með
Rögnvaldi Erlingssyni.
Gunnar og Stefán
halda áfram að
dæma á HM
LEIKMENN grænlenska liðsins
eru afar óhressir með að hafa
ekki komist í 16-liða úrslitin. Þeir
skella skuldinni alfarið á danska
þjálfara liðsins, Sören Hilde-
brandt, og segja að hann hafi ekki
lesið rétt í gang mála á HM. Hilde-
brandt lét Grænlendinga leika af
fullum krafti í þremur fyrstu
leikjunum – gegn Þýskalandi, Ís-
landi og Portúgal. Hann lét sína
sterkustu menn leika alla leikina
án hvíldar, þannig að þeir voru
hreinlega sprungnir þegar leikið
var gegn Ástralíu og Katar, þjóð-
um sem Grænlendingar, að öllu
eðlilegu, hefðu átt að leggja
örugglega að velli.
Grænlendingar eru afar óhressir
ÍSLENSKA landsliðið leikur fyrri
leik sinn í milliriðli í Caminha gegn
Pólverjum á morgun. Leikurinn
hefst kl. 18.30, en síðan verður leik-
ið gegn Spánverjum á fimmtudag
og hefst sá leikur kl. 20.30. Eftir
upphaflegu plani átti að leika gegn
Póllandi kl. 20.30 og Spáni kl.
18.30. Spánverjar óskuðu eftir að
þeir lékju báða leiki sína kl. 20.30,
sem er hentugur tími fyrir sjón-
varpsútsendingu á Spáni – kl. 21.30
að staðartíma þar.
Spánverjar
réðu
ferðinni
ÞEGAR síðustu fréttamennirnir
gengu út úr íþróttahúsinu í Viseu
á sunnudagskvöldið – fjórum tím-
um eftir að síðasti leikurinn fór
fram, var keppnissalurinn orðinn
fokheldur. Búið var að fjarlægja
keppnisgólfið, áhorfendabekkina,
hátalarakerfið, mörk og marka-
töfluna. Þessum hlutum var kom-
ið fyrir á vöruflutningabíla og
farið með þá á næsta keppnisstað
– einn staðanna, sem leikið verður
á í milliriðli. Það getur því verið
að íslenska liðið leiki á sama gólf-
inu og það lék á í Viseu, í milli-
riðli í bænum Caminha, nyrst í
Portúgal.
Fokhelt
í Viseu
Svíar sem unnu fjóra leiki en töp-uðu einum halda áfram í næstu
umferð án stiga á sama tíma og Slóv-
enar sem unnu tvo leiki en töpuðu
þremur viðureignum komast í næstu
umferð með tvö stig.
„Staða okkar er afar erfið því það
er ljóst að við verðum bæði að vinna
heimsmeistara Frakka og Ungverja
til þess að eiga hreinlega möguleika
á að komast á Ólympíuleikana í
Aþenu,“ segir Bengt Johansson,
landsliðsþjálfari Svía, sem er allt
annað en sáttur við leikjafyrirkomu-
lagið á heimsmeistaramótinu og þá
staðreynd að það skuli kom liðum í
koll að vinna leiki. „Fyrirkomulagið
á ekki að vera svona eins og það er,
það á aldrei að þurfa að koma mönn-
um í koll að vinna leiki,“ segir Jo-
hansson.
Í milliriðli Svíana hefja þeir
keppni án stiga eins og Ungverjar en
Slóvenar og Frakkar með tvö stig.
„Við leikum fyrst við Ungverja og
verðum að gæta okkar á því að vinna
þá ekki með of miklum mun. Þeir
verða að eiga einhverja von þegar
þeir mæta Slóvenum á sama tíma og
við leikum við Frakka. Það er öruggt
að við þurfum á hjálp að halda frá
Ungverjum, þeir verða að vinna
Slóvena til þess að fá möguleika á að
ná öðru sæti milliriðilsins sem gefur
okkur kost á að keppa um farseðilinn
á Ólympíuleikana í Aþenu,“ sagði
Johansson og líst illa á stöðuna eins
og hún er nú.
Hefðu átt að skora í eigið mark
Magnus Wislander, hinn þraut-
reyndi leikmaður sænska landsliðs-
ins, tók undir með þjálfara sínum að
fyrirkomulag keppninnar væri ekki
sanngjarnt og hann sæi eftir því að
hafa ekki gert jafntefli við Dani í stað
þess að leggja þá.
„Við hefðum átt að skora nokkrum
sinnum í eigið mark á lokakaflanum
og jafna leikinn. Þá hefði leikurinn
endað með jafntefli, við farið áfram
með tvö stig eins og Danir. Um leið
hefði líka verið sýnt fram á hversu
dæmalaust þetta keppnisfyrirkomu-
lag er,“ sagði Wislander.
Svíar mæta Ungverjum á morgun
og síðan glíma þeir við heimsmeist-
ara Frakka á fimmtudaginn.
Sigur kom Svíum í koll
SVÍAR eru farnir að naga sig í handarbökin yfir því að hafa unnið
Dani í uppgjöri þjóðanna í D-riðli á HM handknattleik. Sigurinn
þýddi að þeir unnu riðilinn og tóku Slóvena með sér í milliriði og þar
af leiðandi um leið úrslit í leik þjóðanna, en það var eini leikurinn
sem Svíar töpuðu í riðlakeppninni. Hefðu Svíar tapað eða gert jafn-
tefli í leiknum við Dani hefðu Danir unnið riðilinn og Svíar hafnað í
öðru sæti. Þá hefðu Svíar haldið áfram keppni með Egyptum sem
urðu í fjórða, en Svíar unnu Egypta örugglega.
JAKOB Larsen, markahrókur
grænlenska liðsins, vakti nokkra at-
hygli á HM. Meðal annars fékk hann
boð frá Katarbúum um að koma til
þeirra og leika handknattleik í þrjá
mánuði í vor. Larsen segist hafa af-
þakkað boðið, hann vilji einbeita sér
að því að leika fyrir GOG í Dan-
mörku. „Það væri vissulega spenn-
andi að fara til Katar, alltént í fjár-
hagslegu tilliti. Katarbúarnir sögðu
mér að peningar væru ekkert vanda-
mál, þeir ættu nóg af þeim,“ sagði
Larsen við dönsk blöð.
MAGNUS Wislander sýndi það að
lengi lifir í gömlum glæðum þegar
hann skoraði tíu mörk fyrir Svía
gegn Dönum á sunnudag. Til að
skora mörkin tíu notaði Wislander
tólf skottilraunir. „Við erum greini-
lega komnir í gang á HM,“ sagði
Wislander í samtali við Aftonbaldet í
gærmorgun. Wislander var veikur í
byrjun keppninnar og missti m.a.
meira og minna af hinum mikilvæga
leik við Slóvena sem Svíar töpuðu.
LEIKMENN sænska landsliðsins
fóru allir á spilavíti í Sao Joao Da
Madeira eftir að riðlakeppni HM var
lokið þar á sunnudagskvöldið. Eng-
um sögum fer af heppni þeirra eða
óheppni við spilaborðið. Í gærmorg-
uninn hélt sænska liðið frá Sao Joao
Da Madeira til Espinho þar þeir
leika í milliriðlum í vikunni.
MARKUS Baur, leikstjórnandi
Lemgo og þýska landsliðsins, hefur
verið valinn besti þýski handknatt-
leiksmaðurinn af vikuritinu Hand-
ball-Woche. Þetta er í annað sinn
sem Baur verður fyrir valinu í kjör-
inu en hann var einnig hlutskarpast-
ur fyrir þremur árum. Annar varð
félagi hans hjá Lemgo og landslið-
inu, Christian Schwarzer og horna-
maðurinn Stefan Kretzschmar hjá
SC Magdeburg varð þriðji.
JÚGÓSLAVAR voru með bestu
markvörsluna í undanriðlunum á
HM. Markverðir þeirra, Arpad
Sterbik og Dejan Peric, vörðu tæp-
lega 50 prósent skota sem komu á
júgóslavneska markið í A-riðlinum.
Næstir komu þeir Henning Fritz og
Christian Ramota sem vörðu um 43
prósent skota á þýska markið.
CARCIA Cuesta, þjálfari Portú-
gals, segir að ef sínir menn leiki af
sama baráttuandanum og gegn Ís-
landi í undanriðlinum, geti þeir sigr-
að Júgóslavíu á morgun. Cuesta var
mjög ánægður með leikinn gegn Ís-
landi þrátt fyrir ósigur, 28:29.
SPÁNVERJAR eiga von á miklum
stuðningi þegar þeir mæta Íslend-
ingum í Caminha á fimmtudag en
César Argilés, þjálfari þeirra, segir
að sá leikur sé lykillinn að því að
spila um verðlaunasæti á mótinu.
Caminha er nyrsti bær í Portúgal,
við spænsku landamærin, og er ör-
skammt frá spænsku borginni Vigo.
FÓLK
Morgunblaðið/Günter Schröder
Dagur Sigurðsson, fyrirliði landsliðsins, í leik gegn Portúgal – Silva til varnar. Dagur hefur ekki
náð sér á strik á HM, eins og nokkrir aðrir leikmenn íslenska liðsins.