Morgunblaðið - 28.01.2003, Síða 48

Morgunblaðið - 28.01.2003, Síða 48
KVIKMYNDIR 48 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Grettissaga saga Grettis leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt á Grettissögu fim 30. jan kl. 20.00, LOKASÝNING, nokkur sæti Miðasala í síma 555 2222 0g á www.hhh.is og midavefur.is Miðasala er opinn alla virka daga frá 15.00 til 19.00. Nánari upplýsingar um Grettissögu og máltíð á Fjörukránni fyrir sýningu á www.hhh.is "Grettissaga er stórkostleg leikhúsupplifun." rás 2 Stóra svið SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson Fö 31/1 kl 20, Lau 1/2 kl 20,Fi 6/2 kl 20, Fö 7/2 kl 20, Lau 8/2 kl 20, Fö 14/2 kl 20, Lau 15/2 kl 19, Ath. breyttan sýningartíma, Lau 22/2 kl 20 SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller Fi 30/1 kl 20, Su 2/2 kl 20, Su 9/2 kl 20 Su 16/2 kl 20, Fi 20/2 kl 20 Síðustu sýninguar HONK! LJÓTI ANDARUNGINN e. George Stiles og Anthony Drewe Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna Su 2/2 kl 14, Su 9/2 kl 14, Su 16/2 kl 14 Fáar sýningar eftir Nýja svið Þriðja hæðin Litla svið Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Miðasala: 568 8000 SÖNGURINN UM LJÓÐSKÁLDIÐ í samvinnu við Borgarbókasafn og bókaforlagið Bjart Ljóðadagskrá helguð Walt Whitman og William Carlos Williams, Fi 30/1 kl. 20 RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT Fö 31/1 kl 20, UPPSELT , Lau 1/2 kl 20, AUKASÝNING, Fi 6/2 kl 20, Fö 14/2 kl 20 KVETCH eftir Steven Berkoff í samstarfi við Á SENUNNI Fi 30/1 kl 20, UPPSELT, Su 9/2 kl 20, Su 16/2 kl 20 MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS VÆRI HATTUR eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne Frumsýning lau 1/2 kl 20 UPPSELT Su 2/2 kl 20 UPPSELT, Fö 7/2 kl 20, Lau 8/2 kl 20. JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov frekar erótískt leikrit í þrem þáttum Fö 31/1 kl 20, Fi 6/2 kl 20 AUKASÝNING SÍÐASTA SÝNING Leyndarmál rósanna eftir Manuel Puig. Leikstjóri: Halldór E. Laxness. Frumsýning föst. 31. jan. kl. 20. örfá sæti laus Uppistand um jafnréttismál eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur, Guðmund Kr. Oddsson og Hallgrím Oddsson. Leikstjóri: Halldór E. Laxness. Frumsýning lau. 1. feb. kl. 20 örfá sæti laus Hversdagslegt kraftaverk eftir Évgení Schwarz. Leikstjóri: Vladimir Bouchler. Sýn. lau. 8. feb. kl. 19. Sýn. sun. 9. feb. kl. 15. Sýn. föst. 14. feb. kl. 20. Allra síðustu sýningar. Barn fær frítt í Leikhúsið í fylgd með fullorðnum. Miðasölusími sími 462 1400 www.leikfelag.is Kvöldverður fyrir og eftir sýningar Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga, kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýningardaga. Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir sýningar. Sími 562 9700 Fös 31/1 kl 21 Örfá sæti Fös 7/2 kl 21 Lau 8/2 kl 21 Aukasýning Fös 14/2 kl 21 2. feb. kl. 14. laus sæti 9. feb. kl. 14. örfá sæti 16. feb. kl. 14. örfá sæti 23. feb. kl. 14. laus sæti föst 31/1 kl. 21, aukasýning, UPPSELT lau1/2 kl. 21, UPPSELT föst 7/2 kl. 21, UPPSELT lau 8/2 kl. 21, Örfá sæti fim 13.2 kl. 21, UPPSELT lau 15.2 kl. 21. Nokkur sæti fim 20/2 kl. 21, Nokkur sæti föst 21.2 kl. 21, laus sæti "Björk er hin nýja Bridget Jones." morgunsjónvarpið FILM-Undur forsýnir í kvöld og næstu daga einhverja umdeild- ustu mynd síðustu ára, frönsku myndina Irréversible eftir Garp- ar Noé. Þessi frumlega og ofbeldis- fulla mynd er sögð í öfugri tímaröð og hefst á hrottafengnu hefndarverki sem síðan kemur á daginn að er framið vegna nauðgunar fyrr sama kvöld. Það er ekki einasta frásagn- armátinn sem er djarfur og ný- stárlegur heldur er kvikmynda- gerðin öll algjörlega á skjön við það sem jafnan sést á hvíta tjald- inu – hérlendis í það minnsta. Myndin skartar stjörnuparinu Monicu Bellucci og Vincent Cass- ell í aðalhlutverkum og hefur vakið verulega athygli að þau hafi fengist til að taka þátt í svo ögrandi mynd, en Bellucci mun næst birtast í Matrix-myndunum tveimur. Kvikmyndin er stranglega bönnuð börnum innan 16 ára og er alls ekki við hæfi viðkvæms fólks en kvikmyndaskoðun hérlend hefur fyrirskipað að hún verði einvörðungu sýnd á kvöldsýningum. Film-Undur forsýnir umdeilda mynd Hefnd og hrotti Monica Bellucci leikur aðal- hlutverkið í Irréversible. FILM-UNDURS-forsýningar fara fram í Háskólabíói í kvöld kl. 22.15, á morgun kl. 20 og fimmtudag kl. 22.15. SPILAFÍKN hefur plagað lands- menn í gegnum tíðina. Lengst höfum við verið viðriðin ýmis peningaspil, þá eru happadrættin og bingókeppnir gamalkunn fyrirbrigði og síðari árin hafa getraunir og lottó bæst í hópinn. Ekki fer mörgum sögum af því að menn hafi ánetjast þessu fyrirbrigði að peningaspilunum undanteknum, heldur tekið þátt í lottóinu og get- raununum sér til ánægju og keypt sér happadrættismiða til að styrkja gott málefni og eygja örlitla gróðavon. Á síðari hluta síðustu aldar fór að bera á svokölluðum spilakössum sem settir voru upp í sjoppum, kaffistofum o.þ.h. áningarstöðum þéttbýlisfólks. Fyrst voru þetta meinleysislegir skiptimyntarkassar, en strax varð ljóst að kominn var vargur í vé og fréttir fóru að berast af gjaldþrotum einstaklinga vegna þessara fyrstu og mjög afkastalitlu peningamaskína í sögu lýðveldisins. Þá fyrst tók steininn úr þegar spila- stofurnar, sem eigendurnir skírðu m.a. „Gullnámur“, spruttu upp einsog gorkúlur og nú fór róðurinn að þyngj- ast því fjöldi manns ánetjaðist þess- um sakleysislegu ræningjum. Heim- ildarmyndin Skemmtilegir leikir (nafnið dregið af útskýringu hugtaks- ins frá hendi eigendanna) fjallar um fyrirbrigðið. Þar kemur m.a. fram að sakleysislegar vélarnar eru vísinda- lega forritaðar til að koma mönnum á bragðið. Vitaskuld græðir enginn á spilakössunum þegar til lengri tíma er litið en hugbúnaðurinn sér til þess að halda mönnum við efnið með „næstum því“ vinningum. Sá þáttur vegur þungt á metum þegar leitað er skýringa á hinum alvarlega fylgifiski „Gullnámanna“, sem eru spilafíklarn- ir. Meðal þess sem upplýsist í Skemmtilegum leikjum er að forfalln- ir fársjúkir spilasjúklingar eru hátt í tvöþúsund, að slepptu margföldunar- hlutfallinu. Bölvun fíknarinnar snert- ir því miklum mun stærri hóp Íslend- inga. Myndin vekur athygli á fjölmörgum öðrum hörmungarstað- reyndum sem sprottnar eru af þess- um „skemmtilegheitum“ og koma glöggt fram í viðtölum við fíklana sjálfa og aðstandendur þeirra. Sál- fræðingar, meðferðarfulltrúar o.fl., sem þekkja málið frá fyrstu hendi, vara við hættunni og útskýra hvernig hún magnast. Það er sláandi til þess að vita að spilafíklarnir eru engu bet- ur staddir en eiturlyfjaneytendur og alkóhólistar. Spilafíkillinn svíkur, stelur, lýgur, falsar; gerir allt til þess að komast yfir fé til að sólunda í „Gull- námunni“. Það er kaldhæðnislegt að þeir sem standa á bak við lögleg spilavíti lands- manna eru góðgerðar- og mennta- stofnanir, aukinheldur er málsvörn talsmanna þeirra í Skemmtilegum leikjum síður en svo sannfærandi. Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir sá eini sem hafði vissan ýmigust á upp- tökum þess gífurlega peningaflæðis sem rennur m.a. til RKÍ, Landsbjarg- ar, Háskólans og SÁÁ úr þessum ógæfulega farvegi. Vitaskuld kemur eitthvað af fénu frá fólki sem lítur á kassana sem stundargaman og er að styrkja gott málefni, það er því knýjandi for- gangsverkefni að rannsaka hvaðan milljónirnar streyma áður en lengra er haldið. Boð og bönn eru vondir kostir en geta verið nauðsynleg. Kvik- myndagerðarmennirnir eiga þakkir skildar fyrir að vekja athygli á alvar- legu vandamáli í athyglisverðri mynd sem hefði með smávegis snyrtingu og styttingu orðið enn markvissari. Dauðinn í gullnámunum SJÓNVARP RÚV Heimildarmynd eftir Jónas Jónasson. Framleiðendur: Björn Þór Vilhjálmsson og Jónas Jónasson. Kvikmyndataka, hljóð, klipping og grafík: Herbert Svein- björnsson. 50 mín. Erdison lifandi ljós- myndir. Sjónvarpið, janúar 2003. Skemmtilegir leikir Sæbjörn Valdimarsson Grátt gaman: Aðstandendur heimildarmyndarinnar Skemmti- legra leikja hafa hrint af stað þarfri umræðu. KVIKMYNDIR Háskólabíó ONCE UPON A TIME IN THE MIDLANDS Leikstjórn: Shane Meadows. Handrit: Shane Meadows og Paul Fraser. Kvik- myndataka: Brian Tufano. Aðalhlutverk: Robert Carlyle, Rhys Ifans, Shirley Hend- erson, Kathy Burke, Rick Tomlinson og Finn Atkins. 104 mín. Bretland. Film Fo- ur 2002. ÞETTA ævintýri úr hjarta Eng- lands virkar ekki fyrir mig. Og furðulegast af öllu þykir mér að í þvílíku úrvali frábærra leikara er það 12 ára stelpa, Finn Atkins, sem stendur sig langbest og var eini trú- verðugi karakterinn. Finn leikur Marlene, dóttur hennar Shirley (Shirley Hender- son). Búðarkonan Shirley býr með bifreiðaverkstæðiseigandanum Dek (Rhys Ifans) og er Marlene ánægð með það. En klaufinn Dek tekur það feilspor að biðja Shirley í beinni útsendingu. Þetta sér Jimmy (Ro- bert Carlyle), pabbi Marlene, og ákveður hann að nú vilji hann fá þær mæðgur aftur og ræðst inn í líf þeirra að nýju. Mörgum til ar- mæðu. Verst er að persónurnar eru ekki trúverðugar. Þær eru á mörkunum að vera ruslararalýður, og þannig skrifaðar að maður hefur litla sam- úð með þeim. Þetta eru ýktar ster- íótýpur, ósköp vitlausar, skugginn af alvöru persónum. Ég fékk aldrei tilfinningu fyrir þeim, heldur fannst ég vera að horfa á góða leikara vera leika þessar persónur án þess að taka þær alvarlega. Ástæðan fyrir því að Finn stend- ur sig best er að hún fær eina al- mennilega hlutverkið. Að vissu leyti er hún eina manneskajn með viti. Hún og Shirley eiga líka nokkur góð augnablik saman. Þannig var hvorugur aðalgaur- anna spennandi, og þar með spenna myndarinnar farin. Þótt að Dek sé góði gæinn, langaði mig ekki að Shirley væri með honum, því hann er of mikill auli. Ég vildi ekki held- ur að hún væri með vonda gaurnum Jimmy, þannig að mér var í raun orðið alveg sama um hvað gerast. Það er ekki fyrr en undir lok mynd- arinnar, á afmælisdegi Marlene, að hið rétta eðli Jimmys kemur í ljós, og þá vil ég allt í einu að Dek vinni. Of seint. Handritið er of laust í reipunum. Stefnan er einhvern veginn skýr, og þar af leiðandi nokkur atriði sem mér fannst óþörf og tefja framvind- una. Að blanda saman drama og gríni getur verið sérlega áhrifaríkt, en hér er verður sú blanda býsna kekkjótt. Kannski myndin sé bara ekki nógu fyndin, eða persónurnar of miklir aular til að hægt sé að byggja drama í kringum þær? Myndin á að vera í vestrastíl, en sú nálgun hittir ekki í mark. Vissu- lega kemur nýr maður í bæinn og spillir friðnum. Tónlistin er líka skemmtilega mikið í Morricone stílnum. Hins vegar hefði mátt nýta kvikmyndatökuna mun meira til að skapa stílinn. Og hvorki er per- sónusköpunin né aðrar samfélags- legar tilvísanir í anda vestranna. Ég hló nokkrum sinnum, og fann til með Marlene í lokin. En það er ekki nóg til að gera góða bíómynd. Volgt gaman Hildur Loftsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.