Morgunblaðið - 28.01.2003, Qupperneq 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 4, og 8. B.i. 12.
kl. 5.30 og 9.30.
Sýnd kl. 5 og 10. B.i.12.
„Turnarnir gnæfa yfir
bestu myndir ársins“
SV. MBL
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
1/2HK DV
„Besta mynd ársins“
FBL
YFIR 85.000 GESTIR
Sýnd kl. 8. B.i.14 ára
Sýnd kl. 6, 8 og 10.30.
Suma vini losnar þú ekki við...hvort
sem þér líkar betur eða verr
Frábær gamanmynd um tvær vinkonur sem
hittast aftur eftir 20 ár.Með
Óskarsverðlaunaleikkonunum Goldie Hawn
og Susan Sarandon ásamt hinum
frábæra Óskarsverðlaunahafa Geoffrey Rush.
GRÚPPÍURNAR
STEVEN SEGAL MORRIS CNESTNOT AND JA RULE
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15. B.i.16 ára
Hrikalega flottur
spennutryllir
með
rapparanum Ja
Rule og
Steven Seagal
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. B.i. 14.
Frábær mynd frá leikstjóra
L.A.Confidential þar sem rapparinn
EMINEM fer á kostum í sínu fyrsta
hlutverki.
Kvikmyndir.com
HJ. MBL
Radio X
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i.16 ára
Hrikalega flottur
spennutryllir
með
rapparanum Ja
Rule og
Steven Seagal
EFTIR að bandarísku kapalsjónvarps-
stöðvarnar fóru að leggja aukinn metn-
að í gerð kvikmynda fjölgaði tækifær-
um fyrir kunna leikara til að reyna
fyrir sér á nýrri braut, taka að sér
öðruvísi hlutverk, eða spreyta sig í leik-
stjórastólnum eða í handritsgerð.
Vöðvabúntið Arnold Schwarzenegg-
er tók sig þannig til og leikstýrði jóla-
sjónvarpsmyndinni Christmas in
Connecticut fyrir allnokkru og nú í
mánuðinum kom út á myndbandi sjón-
varpsmyndin Door To Door þar sem
William Macy leikur ekki einasta aðal-
hlutverk heldur skrifaði einnig handrit.
Á fimmtudag kemur síðan út á
myndbandi athyglisverð mynd sem
heitir On the Edge, en hún saman-
stendur af þremur tengdum stutt-
myndum, sem leikstýrt er af jafnmörg-
um konum sem allar eru kunnari sem
leikkonur. Þetta eru þær Anne Heche,
Mary Stuart Masterson og Helen
Mirren. Allar eru myndirnar með vís-
indalegu ívafi og gerast á mörkum
draums og veruleik og fjallar fyrsta um
vísindamann sem klónar sig í þeim til-
gangi að reyna að lækna sig af krabba-
meini, önnur um hrygga húsmóðir og
skyggna systur hennar og sú þriðja um
háskólanema sem beitir brögðum til að
fá hærri einkunnir.
Þríleikurinn er smekkfullur af kunn-
um leikurum og nægir þar að nefna
Andie MacDowell, John Goodman,
David Hyde Pierce, Anthony La-
Paglia, Christopher Lloyd og Helen
Mirren.
Önnur athyglisverð vísindaskáld-
saga kemur út á myndbandi á
þriðjudag en hún heitir Possible
Worlds og skartar Tildu Swinton í að-
alhlutverki, mynd sem hampað var
mjög í heimalandinu Kanada.
Svo má nefna að á miðvikudag verð-
ur frumsýnd á myndbandi mynd með
Tim Allen í aðalhlutverki sem heitir
Joe Somebody. Eins og jafnan þegar
þessi fyrrverandi handlagni heimilis-
faðir er annars vegar þá er hér um
gamanmynd að ræða, um lánlausan
náunga, sem fær sig fullsaddan og tek-
ur til sinna ráða eftir að hafa látið
traðka á sér allt sitt líf.
„Veistu hver ég er? Ég er Jói einhver.“
Tim Allen les gínu pistilinn í Joe Somebody.
Kjarnakonur
á jaðrinum
!"!#$ %
&
!
%
!"!#$
!"!#$ %
'()
"
!"!#$ %
!"!#$
!"!#$ *
%
&
!
!"!#$
!"!#$ &
!
%
*
%
%
+
'
!
'
!
+
+
+
'
!
'
!
'
!
'
!
'
!
'
!
'
!
+
'
!
,
!
'
!
+
+
+
! "#"
$
#"%
&'''( #
)
$
!
*"
"
$
Varðliðar Texasfylkis
(Texas Rangers)
Vestri
Bandaríkin 2001. Skífan. VHS (91
mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leik-
stjóri: Steve Miner. Aðalleikendur:
James Van Der Beek, Ashton
Kutcher, Dylan McDermott, Tom
Skerritt.
VESTRAR eru nánast í út-
rýmingarhættu. Síðustu tals-
menn þessarar fyrrum feikivin-
sælu kvik-
myndagreinar,
líkt og Clint
Eastwood,
komnir á
gamalsaldur
og ekki lengur
til stórræð-
anna.
Texas Rang-
ers er nýjasta
tilraun til alvöru vestragerðar,
Steve Miner fenginn til að leik-
stýra nokkrum ungum smá-
stjörnum í bland við reynda
jaxla og myndin sýnd í kvik-
myndahúsum vestra. Miner á að
baki vinsælar hrollvekjur og
a.m.k. eitt athyglisvert verk,
Wild Hearts Can’t Be Broken
(’91). Hann stjórnar að þessu
sinni á hefðbundnum nótum og
kemst vel frá sínu, Texas Rang-
ers lítur prýðilega út en at-
burðarásina skortir kjöt á bein-
ið.
Það er nóg um að vera en fátt
um bitastæð átök eða drama-
tíska hápunkta. Handritið er
byggt á heimildum og aðalper-
sónurnar sögufrægar hetjur og
skúrkar.
Myndin segir frá hópi Suð-
urríkjamanna, sem taka að sér
að koma á fót hinum nafntoguðu
„Texas Rangers“, löggæslu á
landamærum Texas og Mexíkó
að Þrælastríðinu loknu, og lenda
í átökum við ribbalda.Van Der
Beek (Dawson Creek) og Kutch-
er (Dude, Where’s My Car?;
Just Married) komast skamm-
laust frá sínu og aðlagast reynd-
ari mönnum einsog Skerritt,
Molina og þjóðlagasöngvaranum
fræga Randy Travis. Úr verður
forvitnilegur leikhópur og ætti
útkoman að hugnast velflestum
vestraunnendum. Sæbjörn Valdimarsson
Myndbönd
Varðliðar
og voða-
menni
Stormur í aðsigi /
Gathering Storm Djörf en jarðbundin sjónvarpsmynd
um stórmennið Churchill. Albert
Finney óaðfinnanlegur í hlutverki
hans.
Aðdragandi stríðsins /
Paths To War Vönduð sjónvarpsmynd um aðdrag-
andann að Víetnam-stríðinu og þá
einkum þátt Lyndons B. Johnsons for-
seta í býsna sannfærandi túlkun Bret-
ans Michael Gambons.
James Dean Fín sjónvarpsmynd um sárkvalda
goðsögn, James Dean, sem túlkaður er
af stakri snilld af hinum unga og efni-
lega James Franco. Næsti Dean? Nei,
trúlega ekki nógu kvalinn.
Loforðið /
The Hard Word Svolítið reffilegur ástralskur
krimmi með hinum mjög svo dæmi-
gerða ruddalega ástralska húmor. Guy
Pierce góður.
Amerísk rapsódía /
An American Rhapsody Heilmikil saga, brokkgeng á köflum,
en á heildina litið vönduð og áhugaverð
kvikmynd um menningarleg umskipti
innflytjendafjölskyldu til Ameríku.
Smoochy skal deyja /
Death to Smoochy Lofandi hugmynd, fínt leikaralið en
útkoman þó rétt yfir meðallagi góð
mynd, skondin, á stundum beitt en
hamagangurinn þó fullmikill. Sökin er
Robins Williams – ekki í fyrsta sinn.
Þegar Kermit bjó í mýrinni /
Kermit’s Swamp Years Ekki eins fyndin og gömlu góðu
Prúðuleikararnir en fjölskylduvænni
ef eitthvað er. Óvænt skemmtun.
Móðursýkisblinda /
Hystercal Blindness Ofurraunsæ lýsing á ólánsömum
konum í leit að lífsförunauti. Vel leikin
en svolítið ýkt, einkum vegna ofleiks
Umu Thurman.
Samskipti ókunnugra / The
Business of Strangers Skyggnst inn í veröld farandsölu-
manna samtímans. Óvenju hnitmiðuð
orrahríð á milli vel skrifaðra kvenper-
sónanna sem eru óaðfinnanlega leikn-
ar af Stockard Channing og Juliu Stil-
es. Endahnykkurinn losaralegur þó.
(S.V.)
Frá húsi til húss /
Door to Door William H. Macy frábær í sannri
sögu um þroskaheftan farandsölu-
mann. Vönduð og yndisleg mynd.
(S.V.)
Klappað með einni /
At klappe med een hånd/
One hand clapping Ein af þessum mannlegu og þægi-
legu dönsku myndum. Fjallar um rík-
isbubba sem kemst að því að hann á
dóttur sem hann vissi ekki um. (S.G.)
Krókódílamaðurinn /
Crocodile Hunter Bráðskemmtileg en umfram allt
fróðleg dýragrínmynd fyrir alla fjöl-
skylduna. Þær eru ekki á hverju strái.
(S.G.)
GÓÐ MYNDBÖND
Heiða Jóhannsdóttir/Skarphéðinn
Guðmundsson
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn
Albert Finney og Vanessa Redgrave
fara á kostum í The Gathering
Storm sem vann Golden Globe-
verðlaunin sem besta sjónvarps-
myndin á dögunum.