Morgunblaðið - 28.01.2003, Side 51

Morgunblaðið - 28.01.2003, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 51 www.regnboginn.is Nýr og betri Sýnd kl. 10. B.i.12 ára Sýnd kl. 6, 8 og 10.B.i.14 ára FRÁ FRAMLEIÐENDUM LEON OG LE FEMME NIKITA Hverfisgötu  551 9000 Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i.16 ára Hrikalega flottur spennutryllir með rapparanum Ja Rule og Steven Seagal Sýnd kl. 6, 8 og 10. Suma vini losnar þú ekki við...hvort sem þér líkar betur eða verr Frábær gamanmynd um tvær vinkonur sem hittast aftur eftir 20 ár.Með Óskarsverðlaunaleikkonunum Goldie Hawn og Susan Sarandon ásamt hinum frábæra Óskarsverðlaunahafa Geoffrey Rush. GRÚPPÍURNAR “Besta Brosnan Bond-myndin” GH Kvikmyndir.com i DV RadíóX YFIR 60.000 GESTIR STÆRSTA BONDMYND ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI www.laugarasbio.is SV. MBL ÓHT Rás 2 Kvikmyndir.com 1/2 HK DV Sýnd kl. 5.30, 8 og 9. B.i. 12. YFIR 85.000 GESTIR Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15 B.i. 14. Frábær mynd frá leikstjóra L.A.Confidential þar sem rapparinn EMINEM fer á kostum í sínu fyrsta hlutverki.  Kvikmyndir.com  HJ. MBL  Radio X Kvikmyndir.is ÞÆR myndir sem skara framúr í óháða kvik- myndageiranum í Banda- ríkjunum voru verð- launaðar á Sundance- kvikmyndahátíðinni um helgina. Verðlaunin gefa oftar en ekki til kynna hvaða smærri, óháðu myndir eiga eftir að krafsa sig upp á yf- irborðið og njóta al- mennrar hylli. American Splendor hlaut aðalverðlaun dóm- nefndar, sem besta kvik- myndin. Myndin er byggð á sönnum atburð- um og fléttar saman leiknum atrið- um, heimildarmyndaskotum og teiknuðum senum. Myndin fjallar um teiknimyndahöfundinn Harvey Pekar, sem Paul Giamatti leikur. Capturing the Friedmans fékk aðalverðlaun dómnefndar í flokki heimildarmynda. Myndin fjallar um fjölskyldu úr hópi efri hluta mið- stéttar, eins og það er kallað í út- löndum, en pabbinn og sonurinn í fjölskyldunni, voru handteknir fyr- ir kynferðisglæpi. Í myndinni er einnig blandað saman mismunandi myndefni líkt og í American Splendor. Sýndar eru myndbandsupptökur fjölskyld- unnar frá árinu 1987, þegar atburð- irnir áttu sér stað. „Fólk hefur sagt mér að myndin sé eins og sorgleg útgáfa af Osbourne-fjölskyldunni,“ segir leikstjórinn Andrew Jarecki. The Station Agent hlaut áhorf- endaverðlaunin í leiknum myndum en leikstjóri hennar er Tom McCarthy. Áhorfendaverðlaun í flokki heimildarmynda hlaut síðan myndin My Flesh and Blood, sem fjallar um 11 fötluð börn og uppal- anda þeirra. Myndin Whale Rider frá Nýja- Sjálandi hreppti verðlaunin í flokki alþjóðlegra mynda. Hún fjallar um stúlku, sem keppist við að halda stöðu sinni, sem leiðtogi í litlu þorpi, þar sem karlmenn hafa farið með völdin í gegnum tíðina. Sundance-kvikmyndahátíðinni lokið Bandarískur ljómi Paul Giamatti og Harvey Pekar á Sundance- kvikmyndahátíðinni í Park City í Utah. Randall Michelson/WireImage.com SIGURVEGARAR söngkeppni Samfés 2003, þeir Guðmundur Óskar Guðmundsson og Hjörtur Ingvi Jóhannesson, eru úr fé- lagsmiðstöðinni Hólmaseli. Nám stunda þeir hins vegar í Ölduselsskóla. Þeir félagar djöss- uðu upp lagið „Till there was you“, lag sem Bítlarnir gerðu frægt á annarri breiðskífu sinni, With the Beatles, og uppskáru sig- urlaun fyrir vikið. Lokakeppni söngkeppn- innar, en talsvert var um undankeppnir í fé- lagsmiðstöðvunum, fór fram í Laugardalshöll, frammi fyrir þrjú þúsund manns. Keppendur komu hvaðanæva af landinu, flutt voru 55 at- riði og tók dagskráin rösklega sex klukku- tíma. „Svarið við þeirri spurningu er stutt og lag- gott: Nei,“ segir Hjörtur þegar hinni sígildu spurningu um hvort þeir félagarnir hafi búist við þessu er slengt fram. „Við gerðum okkur vissulega grillur um það,“ segir Guðmundur. „Við tókum áhættu með laginu okkar, við vissum að annaðhvort yrðum við algerlega hunsaðir eða þá að við kæmumst langt. Og það varð úr. Sérstaklega urðum við hissa á góðum viðbrögðum áhorf- enda.“ Guðmundur segir að hann hafi tekið ákvörðun um að keppa í söngkeppninni með einum eða öðrum hætti. „Ég er í tíunda bekk (eins og Hjörtur) og þetta árið er ég búinn að vera mjög „virkur“. Tók þátt í Skrekk ásamt Hirti t.d. og við er- um báðir í ræðuliðinu líka. En mig langaði til að gera þetta einhvern veginn öðruvísi, og þessi útgáfa af „Till there was you“ var nið- urstaðan.“ Þeir fóstbræður eru báðir á því að keppnin hafi verið nokkuð misjöfn, enda fjöldi atriða gríðarlegur. Sammælst er um það að ákveðin þróun sé að eiga sér stað í keppninni; frum- samið efni og lifandi hljóðfæraleikur sé að færast í aukana, á kostnað karókí-atriða. „Það sem þetta er að færa okkur persónu- lega er reynsla, t.d. fólst mikill innblástur í því að koma fram fyrir 3.000 manns. Svo fengum við líka hljóðsverstíma í laun frá Geimsteini. Svo er þetta bara frábært!“ Þeir segja að starfsfólkið í Hólmaseli hafi reynst þeim einkar vel, t.a.m. hafi einn starfs- maðurinn nánast gengið þeim í föðurstað, daginn sem úrslitin voru. Að lokum eru þeir spurðir hvort þeir eigi von á því að kvenhyllin færist í aukana í kjöl- farið á þessari velgengni. „Við vonum það besta í þeim málum auðvit- að,“ svara þeir og brosa kankvíslega. Sigurvegarar söngkeppni Samfés 2003 „Við tókum áhættu“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Guðmundur Óskar Guðmundsson og Hjörtur Ingvi Jóhannesson. FRANCESCO Trussardi, 29 ára gamall stjórnandi sam- nefnds tísku- húss, lést í bíl- slysi á sunnudag á Ítalíu. Slysið átti sér stað snemma morg- uns nærri bænum Bergamo í norð- urhluta Ítalíu, ekki langt frá Míl- anó. Francesco missti stjórn á Ferrari-bíl sínum og rakst bíllinn á staur. Hann lést samstundis. Faðir hans, Nicola, sem breytti Truss- ardi úr hanskaframleiðanda í stór- fyrirtæki í tískuiðnaði, lést einnig í bílslysi, árið 1999. Francesco tók við stjórn fjölskyldufyrirtækisins eftir að faðir hans lést, ásamt syst- ur sinni, Beatrice, sem búist er við að haldi áfram daglegri stjórn Trussardi … Robbie Williams ætlar ekki að koma fram á Brit- verðlaunahátíðinni vegna þess að hann ætlar að einbeita sér að frama sínum í Bandaríkjunum. Robbie ætlar að sniðganga verðlaunin en hann átti að syngja dúett með Just- in Timberlake. Þess í stað tekur hann þátt í góðgerðartónleikunum „Rock the Vote“ í New York. Tón- leikarnir eru aðeins tveimur dögum fyrir Grammy-verðlaunahátíðina og er búist við því að æðstuprestar margra útgáfufyrirtækja mæti á staðinn til að líta á Robbie. „Robbie langaði til að koma fram á Brit- hátíðinni vegna þess að hann missti af henni síðast og þetta er uppá- haldshátíðin hans. En góðgerð- artónleikarnir í Bandaríkjunum eru mikilvægari fyrir feril hans,“ sagði heimildarmaður frá EMI í samtali við The Sun. Þrátt fyrir að Robbie mæti ekki á staðinn ætla Avril Lavigne, Pink, Coldplay og Nelly að koma fram á hátíðinni … Fleiri stjörnur hafa lent í bíl- slysum að und- anförnu nema hvað Billy Joel slapp lifandi úr sínu. Hálka var á veginum og missti söngv- arinn stjórn á Mercedes-bifreið sinni og lenti á tré. Hann var einn í bílnum en at- vikið átti sér stað í Hamptons í New York, þar sem milljónamær- ingurinn á hús. Hann er marinn og skorinn en slasaðist ekki alvarlega. Hann var fluttur á sjúkrahús en búið er að útskrifa hann. Þrátt fyr- ir að Billy hafi átt í vandræðum með drykkjuna að undanförnu, seg- ir lögregla að áfengi hafi ekki kom- ið við sögu í slysinu. Billy er eins og margir vita þekktur fyrir lög á borð við „Uptown Girl“ og ætlaði hann að fara í tónleikaferðalag um Bandaríkin með Elton John í febr- úar. „Elton vonast til þess að Billy jafni sig sem fyrst. Honum er mjög brugðið. Það er ekki ljóst hvort verður af tónleikaferðalaginu,“ sagði aðstoðarmaður Eltons. FÓLK Ífréttum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.