Morgunblaðið - 28.01.2003, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 28.01.2003, Qupperneq 53
Renée Zellweger og Richard Gere hlutu bæði Golden Globe-verðlaun fyrir hlutverk sín í Chicago. EFTIR hoppandi gleði um síðustu bíóhelgi vestanhafs skall svarta- myrkur á nú um þessa helgi. Hrollvekjunni Darkness Falls tókst þá með naumindum að velta keng- úrumyndinni niður í annað sæti. Um fremur daufa bíóhelgi voru það þó einkum verðlaunamynd- irnar sem áberandi voru og þá helst Chicago, sigurmynd Golden Globe-hátíðarinnar. Myndin hlaut langmesta aðsókn sé tekið mið af fjölda sýningarsala en hún var sýnd í meira en þrefalt færri söl- um en toppmyndin t.a.m. Allt verður svo keyrt á fullt 7. febrúar en þá verður sýningarsölum fjölg- að til muna. Aðstandendur mynd- arinnar hjá Miramax segjast eng- an veginn hafa búist við svo sterkum viðbrögðum við myndinni enda hafi dans- og söngvamyndir átt heldur erfitt uppdráttar síð- ustu árin og áratugi. Frumraun George Clooney í leikstjórastólnum, Confession of a Dangerous Mind skipar sér meðal tíu tekjuhæstu mynda en hún er líkt og Chicago enn sýnd í til- tölulega fáum sölum. Aðrir líkleg- ir Óskarskandídatar, About Schmidt og The Hour, gera og fína hluti. Ein aðalástæðan fyrir dræmri heildaraðsókn um helgina er Sup- er Bowl-ruðningsleikurinn. Segja mætti að Darkness Falls, sem er draugamynd, helst við hæfi ungra bíógesta, hagnist svolítið á deyfð- inni en hrollvekjur gera iðulega góða hluti í fyrstu viku og falla svo hratt. Myrk bíóhelgi                                                                                   !"           #  $  %               &'() &&(* +() ,() ,(- .(* .(. .(/ )() -(/ &'() 0)() -/(. --(0 '.(& 0/*(& &-)(& .() 0,(* &0(* MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 53 25.01. 2003 23 0 0 4 4 6 4 8 0 5 9 26 32 33 35 9 22.01. 2003 4 11 12 26 27 41 22 34 KVIKMYND Dags Kára Péturs- sonar, Nói albínói, hlaut tvenn verð- laun á Premiers Plans, kvik- myndahátíð í Angers í Frakklandi, sem fór fram síðustu helgi. Nói albínói hlaut fyrstu verðlaun í flokknum besta kvikmynd í fullri lengd og fyrir bestu tónlist í kvik- mynd. Hljómsveit leikstjórans Dags Kára, Slowblow, samdi og spilaði alla tónlistina í myndinni. Í fréttatilkynningu frá kvik- myndafyrirtækinu og framleiðand- anum Zik Zak, segir að myndinni hafi verið vel fagnað af áhorfendum, „með dynjandi lófaklappi, fagn- aðarhrópum og jafnvel tárum á hvörmum“. Umrædd kvikmyndahátíð leggur áherslu á myndir ungra og upprenn- andi evrópskra leikstjóra og þykir góður mælikvarði á þá sem skara fram úr í þeim hópi. Kvikmyndir eru valdar inn á há- tíðina og var Nói albínói valin ásamt níu öðrum myndum úr um 200 að- sendum myndum í keppnina besta mynd í fullri lengd. Franskir fjölmiðlar sýndu mynd- inni áhuga og munu viðtöl við Dag Kára birtast meðal annars í dagblöð- unum Le Monde og Le Figaro, segir í tilkynningunni. Þess má geta að formaður dóm- nefndar að þessu sinni var hin þekkta franska leikkona, Jeanne Moreau. Hátíðin var nú haldin í 15. sinn og var verðlaunað fyrir stutt- myndir, heimildamyndir og kvik- myndir í fullri lengd. Þetta er í annað sinn sem Dagur Kári vinnur til verðlauna á þessari kvikmyndahátíð. Hann vann þar fyrstu verðlaun á sínum tíma fyrir stuttmyndina Lost Weekend. Dagur Kári er staddur úti í Rotterdam en Nói albínói er sýnd á kvikmyndahátíðinni þar. Þvínæst heldur myndin áfram för sinni og tekur þátt í Gautaborgarhátíðinni, sem stendur yfir 24. janúar til 3. febrúar, og fer svo á kvikmynda- messu í Berlín. Verður gaman að fylgjast með gengi myndarinnar á hátíðunum sem fram undan eru. Morgunblaðið náði tali af Degi Kára þrátt fyrir annir. „Ég skrapp til Angers í tvo daga og var við- staddur sýninguna. Svo fór ég beint hingað til Rotterdam,“ segir Dagur Kári. Hann gat þó ekki verið viðstaddur verðlaunaafhendinguna í Frakk- landi, þar sem hún var á laugardag- inn, á sama tíma og Nói albínói var frumsýnd í Hollandi. „Ég hef einu sinni áður farið á þessa hátíð með Lost Weekend, sem vann tvenn verðlaun. Hátíðin er til- einkuð fyrstu myndum leikstjóra. Þetta er mjög skemmtileg hátíð,“ segir Dagur Kári um Premiers Plans. Góð viðbrögð í Rotterdam „Það eru búnar tvær sýningar á myndinni. Hún virðist leggjast vel í fólk. Öll viðbrögð sem við höfum fengið hingað til eru mjög jákvæð,“ segir leikstjórinn hæfileikaríki um gengið í Hollandi. Kvikmyndahátíðin í Rotterdam er umfangsmikil, „meiri bransahátíð“ eins og Dagur Kári orðar það. Hann ætlar að vera í Rotterdam fram á föstudag en þá verða Tiger- verðlaunin veitt, en Nói albínói er þar tilnefnd ásamt 13 öðrum mynd- um. Verðlaunin eru tileinkuð leik- stjórum sem eru búnir að gera eina til tvær kvikmyndir, útskýrir Dagur Kári, sem hefur haft nóg að gera frá því að hann kom til Rotterdam. „Ég er búinn að vera í viðtölum al- veg síðan ég kom. Það fer að hægj- ast um. Kannski maður geti þá farið í bíó. Það er það fáránlegasta við þetta að maður fær eiginlega aldrei tækifæri til þess á svona hátíðum. Það er það eina sem maður gerir ekki, að fara í bíó,“ segir hann. „Ég ætla að reyna að kíkja við í Gautaborg,“ segir Dagur Kári, sem er búsettur í Danmörku. „En þetta er mjög skrýtin staða. Myndin er í þremur keppnum á rétt rúmlega viku. Þetta er dálítið stíft prógramm þessa vikuna,“ segir Dagur Kári, sem væntir þess að Íslendingar fái tækifæri til að sjá myndina á vor- mánuðum. „Ég býst við að hún verði frumsýnd í kringum páskana.“ Nói albínói með tvenn verðlaun á franskri kvikmyndahátíð Þrjár hátíðir á rúmri viku Íris (Elín Hansdóttir) er ást- in í lífi Nóa albínóa. Myndin verður væntanlega frum- sýnd hérlendis í kringum páskana. TENGLAR ..................................................... www.filmfestivalrotterdam.com VÁKORT Eftirlýst kort nr. 4741-5200-0002-4854 4548-9000-0059-0291 4539-8500-0008-6066 Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA Íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000 VISA ÍSLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Sími 525 2000. ÁLFABAKKI ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8 og 10 Sýnd kl. 8 og 10 Sýnd kl. 8 og 10 KEFLAVÍK / Sýnd kl. 5. ísl. tal. / Sýnd kl. 8. Enskt. tal. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. / Sýnd kl. 5 og 7. / Sýnd kl. 6, síðustu sýningingar. ÁLFABAKKI KRINGLAN AKUREYRIÁLFABAKKI KRINGLAN AKUREYRI Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 14. / Sýnd kl. 5, 7, 8, 9 og 10. B. i. 14. / Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 14. Inni held ur e fni s em þú h efði r ald rei feng ið a ð sj á í sjón varp i. Sjúklegasta grínmynd ársins er komin í bíó. Kvikmyndir.is Radíó X AKUREYRI KEFLAVÍK

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.