Morgunblaðið - 23.02.2003, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Kvöldið örlagaríka
Næstu daga gerðust hlutirnir hratt eins og
yfirleitt er þegar um yfirtökur er að ræða. Tav-
eta Investments Limited lagði aðfaranótt
fimmtudags, 29. ágúst, fram lokatillögu fyrir
stjórn Arcadia Group um yfirtökutilboð í hluta-
bréf í Arcadia. Á sama tíma var tilkynning
send til Kauphallarinnar í London um tilboðið.
Tillagan hljóðaði upp á að Taveta greiddi hlut-
höfum Arcadia, öðrum en Baugi, 408 pens fyrir
hvern hlut í félaginu. Samkvæmt því var Ar-
cadia metið á 772 milljónir punda og virði hlut-
ar Baugs í félaginu var því 155 milljónir punda.
Tillagan um 408 pensa kauptilboð var lögð
fram í kjölfar fundar stjórnar Taveta með
stjórn Arcadia en hún var háð nokkrum skil-
yrðum. Eitt var að stjórn Arcadia mælti með
því við hluthafa félagsins að þeir tækju tilboði
Taveta, en slíkt er í samræmi við breskar við-
skiptavenjur. Annað skilyrði snéri að ráðstöf-
unum gagnvart Baugi sem fólu í sér yfirtöku
hlutar Baugs og sölu ákveðinna eigna Arcadia
til félagsins. Jafnframt var skilyrði sett um frá-
gang fjámögnunar kauptilboðsins. Það sem
hins vegar fáir vissu, þar á meðal hvorki Philip
Green né Stuart Rose, var að á sama tíma og
lokahönd var lögð á tilboðið á skrifstofu Philips
Green var framkvæmd húsleit í höfuðstöðvum
Baugs Group hf. í Reykjavík af starfsmönnum
efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra.
Ástæðan fyrir húsleitinni voru ásakanir for-
svarsmanns bandaríska heildsölufyrirtækisins
Nordica Inc., Jóns Geralds Sullenbergers, um
meint auðgunarbrot forstjóra og stjórnarfor-
manns Baugs.
Ósáttir við þögn Jóns Ásgeirs
Þegar Reuters fréttastofan birti á fimmtu-
dagsmorgninum frétt um að lögreglan hefði
gert húsleit í höfuðstöðvum Baugs á Íslandi
hafði Stuart Rose strax samband við Philip
Green. Í fyrstu hélt Green að Rose væri að
ljúga að sér. Það gæti ekki verið rétt að á sama
tíma og hann og Jón Ásgeir hefðu setið ásamt
ráðgjöfum við að smíða tilboðið hafi Jón Ásgeir
vitað af því að lögreglan væri að gera húsleit í
fyrirtæki hans á Íslandi. Á meðan þeir sátu við
samningsgerðina hafi sími Jóns Ásgeirs hringt
og hann hafi átt langt samtal við Ísland. Green
segist hafa spurt hann að því hvort eitthvað
væri að en Jón svaraði því neitandi, það væri
bara smávandamál heima við – ekkert sem
skipti máli. Bæði Green og Rose gagnrýna Jón
Ásgeir fyrir það að hafa látið þá frétta þetta í
gegnum fjölmiðla og það hafi átt sinn þátt í að
Green hafi ekki viljað hafa Baug með í kaup-
unum á Arcadia. Eða eins og Stuart Rose orð-
aði það í samtali við Morgunblaðið: „það getur
verið að þið á Íslandi stundið viðskipti með
þessum hætti en svona gerum við ekki í Bret-
landi.“
Eitthvað sem skiptir ekki máli!
Green segist hafa sagt við lögfræðing Baugs
í London þegar hann sá fyrirsagnirnar í dag-
blöðum um húsleitina. „Er þetta eitthvað sem
skiptir ekki máli? Það er þrennt sem skiptir
máli á þessu stigi málsins. Númer eitt áreið-
anleiki mannsins sem þú ert að eiga viðskipti
með. Hvort sem glæpurinn var framinn eður
ei. Númer tvö skaðinn var skeður. Að selja ein-
hverjum vörumerki sem liggur undir jafn-
þungum ásökunum og raun ber vitni er ekki
hægt sama þótt fjármagnið sé fyrir hendi. Í
þriðja lagi er þetta ekki eitthvað sem hverfur
og mun alltaf fylgja Baugi hér.“
Green segir eftir á að hyggja að það hafi ver-
ið fáránlegt af Jóni Ásgeiri að halda að hann
gæti tekið þátt í kaupunum eftir þetta. Segir
hann jafnframt að ekki komi til greina að selja
Baugi nein vörumerki út úr Arcadia líkt og
rætt var um á sínum tíma.
Eftir að lögreglurannsóknin var gerð opin-
ber gekk á ýmsu í samskiptum Íslendinganna
og Philips Green. Í Bretlandi er litið á lög-
reglurannsóknir sem þessar alvarlegum aug-
um og talið nánast öruggt að glæpur hafi verið
framinn. Stuart Rose segir að þrátt fyrir að
menn hafi rætt saman áfram þá var loku fyrir
það skotið að Green gæti haft Baug áfram með
í kaupunum þar sem aðilar á breskum fjár-
málamarkaði sem og breskir fjölmiðlar, sem
oft hafa litið Green hornauga, hefðu aldrei sætt
sig við að hann eignaðist stórfyrirtæki á við Ar-
cadia með stuðningi Baugs. Skipti þar engu
hvort forsvarsmenn Baugs væru saklausir eða
sekir. Segir Rose að Green hafi ekki átt aðra
kosti í stöðunni en að losa sig við Baug og
kaupa þeirra hlut einnig. Sem hann og gerði.
Þolinmæði Greens á þrotum
Stjórn Arcadia tók sér frest til að íhuga til-
boð Green um kaup á öllum hlutum í Arcadia
fyrir utan hlut Baugs. Taldi stjórnin að ekki
væri hægt að leggja mat á tilboðið fyrr en
óvissu varðandi Baug hefði verið aflétt.
Miðvikudaginn 4. september eftir marga
svefnlausa sólarhringa var þolinmæði Greens á
þrotum. Hann barði í borðið og sagði við Jón
Ásgeir og félaga: „Þið seljið mér bréfin í Ar-
cadia. Að öðrum kosti verður ekkert af við-
skiptunum.“
Að sögn Greens var ekkert annað í stöðunni
ef af kaupunum átti að verða. Hann vissi sem
var að hvorki stjórn Arcadia né breski fjár-
málamarkaðurinn myndu samþykkja að Baug-
ur væri með í kaupunum.
Í samtali við Morgunblaðið sagði Green að
ekki væri hægt að segja til um hvort Baugur
hefði getað átt hlut að samningnum þrátt fyrir
að lögreglurannsóknin hefði ekki komið upp.
Það var eitthvað sem aldrei reyndi á. Hann
segir að það hafi einnig háð íslensku aðilunum
hvað þeir þekktu lítið til á breskum verslunar-
markaði. „Til þess að kaupa jafnstórt fyrirtæki
og Arcadia er nauðsynlegt að hafa innlendan
aðila með í ráðum. Þar sem Jón Ásgeir var ekki
innanbúðarmaður í bresku samfélagi þá þurfti
hann að treysta of mikið á ráðgjafa sem ekki
kann góðri lukku að stýra. Því það er einu sinni
þannig að þú þarft að segja lögfræðingum og
fjármálasérfræðingum til. Segja hvað þú vilt í
stað þess að þurfa að láta þá segja þér hvað eigi
að gera líkt og var í tilviki Baugs í samninga-
viðræðunum um Arcadia, að sögn Greens.
Reynt að gera hliðarsamning
Jón Ásgeir var ekki reiðubúinn til að ganga
að þessum afarkostum en Hreiðar Már Sig-
urðsson, aðstoðarforstjóri Kaupþings, sem var
í London með Jóni Ásgeiri, fékk Jón Ásgeir til
að samþykkja þetta með þeim skilyrðum að
gerðir yrðu framvirkir samningar um kaup
Baugs á þeim vörumerkjum sem þeir hefðu
áhuga á síðar. Ráðgjafar Greens töldu hins
vegar mikla annmarka á því að gera slíka fram-
virka samninga og niðurstaðan varð sú að til-
boðið í Arcadia væri ekki háð skilyrðum varð-
andi Baug.
Í tilkynningu sem Philip Green sendi frá sér
fimmtudaginn 5. september um að Baugur hafi
samþykkt sölu á hlut þess í Arcadia kemur
fram að ekki sé neinn samningur, samkomulag
eða skilningur, formlegur eða óformlegur, af
neinu tagi milli Taveta og Baugs sem hafi að
einhverju leyti með eignir Arcadia að gera, að
því undanskildu að Taveta hafi sagt við Baug
að ef félagið geri tilboð og það tilboð gangi eft-
ir, muni það upplýsa Baug þegar búið sé að
skilja vörumerkin, sem voru tilefni samninga-
viðræðna, frá öðrum rekstri Arcadia Group og
að það verði tilbúið á þeim tíma, án nokkurra
skuldbindinga eða fyrirfram gerðra gjörninga,
að ræða við Baug.
Því er bætt við að Taveta staðfesti auk þess
að ef félagið ákveði innan árs að selja einhverja
af umræddum eignum, „muni það gera það
með þeim hætti að aðilum gefist tækifæri til að
bjóða í þær eignir“ eins og segir í tilkynning-
unni.
Fjármögnunin tók Taveta 19 mínútur
Daginn eftir ákvað stjórn Arcadia að mæla
með tilboði Philips Green við hluthafa Arcadia
og um miðjan október sl. var Green kominn
með 89,7% hlutafjár í Arcadia. Alls mun Green
greiða um 857 milljónir punda fyrir Arcadia að
teknu tilliti til greiðslu á aukaarði sem kemur
til greiðslu nú í febrúar til hluthafa sem skráðir
voru í hluthafaskrá félagsins 20. september
2002 og kaupréttarsamningum. Í tilkynningu
Baugs til Kauphallar Íslands 6. september
2002 kemur fram að Taveta Investments kaupi
20,1% hlut Baugs Group í Arcadia plc upp á 408
pens á hvern hlut eða um 21 milljarð íslenskra
króna.
„Ljóst er að ávinningur Baugs Group af
væntanlegri sölu er mikill. Bókfært verð hlut-
arins var 11,6 milljarðar kr. í lok maí sl. Hlut-
deildarhagnaður er um 0,7 milljarðar kr. á
tímabilinu júní–ágúst. Þá hefur mikill kostn-
aður fallið til vegna undirbúnings við sameig-
inlegt tilboð Baugs Group og Taveta Invest-
ments. Má því áætla að hagnaður félagsins
vegna sölu bréfanna verði um 8 milljarðar kr.
eftir skatta og annan kostnað sem bókfærist á
þriðja ársfjórðungi.
Baugur Group hefur fært tveggja milljarða
kr. hagnað í hlutdeildaraðferð frá því að bréfin
voru keypt í Arcadia.
Skuldir vegna bréfanna eru um 3,6 milljarð-
ar kr. og því mun lausafjárstaða Baugs Group
styrkjast verulega eða um 18 milljarða kr. Fé-
lagið hefur ekki tekið ákvörðun um hvernig
þessum fjármunum verður varið á annan hátt
en þann að efla félagið enn frekar í sókn á er-
lendum vettvangi,“ sagði í tilkynningu Baugs.
Í samtali við Morgunblaðið sagði Philip
Green að forsvarsmenn Baugs geti ekki annað
en verið sáttir við þessa niðurstöðu: „Ég gerði
Jón Ásgeir að ríkum manni. Hvað getur hann
beðið um meira.“
Fjármögnun kaupanna reyndist Taveta, fé-
lagi Greens, auðveld og tók það hann 19 mín-
útur að afla þess fjár sem til þurfti. Lýsir það
best stöðu hans á breskum markaði að bæði að-
albankastjóri HBOS og yfirmaður Merril
Lynch í London komu að gerð samningsins og
nú þurfti enga áreiðanleikakönnun um að við-
komandi gæti staðið við fjármögnunina líkt og
Baugur þurfti að sýna fram á og ekki dugði til.
Átján mánaða tilraunum Baugs til að eignast
Arcadia lauk án þess að kaupin yrðu að veru-
leika. En engu að síður var brotið blað í ís-
lenskri viðskiptasögu sem skilaði Baugi sölu-
hagnaði upp á 7,4 milljarða króna samkvæmt
níu mánaða uppgjöri félagsins sem var birt nú í
janúar. Söluhagnaðurinn lagði grunn að 8,8
milljarða hagnaði Baugs, sem er mesti hagn-
aður sem íslenskt félag hefur skilað hluthöfum
sínum.
Baugur er hvergi nærri hættur viðskiptum á
breskum markaði og í frétt sem birtist nýverið
í Daily Telegraph kemur fram að félagið sé bú-
ið að fjárfesta fyrir 50 milljónir punda, rúmlega
6,2 milljarða íslenskra króna, í breska versl-
unargeiranum frá því í haust.
Því þrátt fyrir að Baugur hafi verið óþekkt
stærð í Bretlandi fyrir tveimur árum er félagið
það ekki lengur og vel fylgst með viðskiptum
þess. Hvort félagið á eftir að gera aðra tilraun
til að eignast aftur jafnstóran aðila og Arcadia
er ekki hægt að segja til um en eitt er víst að
stjórnendur Baugs eru reynslunni ríkari og
hagnaður Baugs mikill. Aftur á móti hefur
þessi söluhagnaður haft lítil áhrif á verðþróun
hlutabréfa í Baugi en rekstur félagsins á Ís-
landi er að sögn forstjóra félagsins óviðunandi.
Tæplega 300 milljóna tap varð á rekstri Baugs
Ísland og um 890 milljóna tap hjá Baugi USA,
samkvæmt níu mánaða uppgjöri félagsins sem
var kynnt í janúar sl.
EFTIR STENDUR AÐ HAGNAÐUR BAUGS AF SÖLU Á
20,1% HLUT Í ARCADIA NAM 7,4 MILLJÖRÐUM KRÓNA.
guna@mbl.is
STUART Rose, forstjóri ArcadiaGroup, er meðal þeirra semkomu mjög að samninga-viðræðum Baugs við Arcadia.Rose kom fyrst að Arcadia
keðjunni snemma á tíunda áratugnum eft-
ir sameiningu Burton og Debenhams.
Eftir að fyrirtækinu var skipt upp aftur
í tvö sjálfstæð fyrirtæki, Debenhams og
Arcadia, sagði Rose skilið við samstæðuna
enda ekki sáttur við sundr-
unina.
Á sama tíma bætti Ar-
cadia enn við fleiri vöru-
merkjum og varð rekst-
urinn að sögn Rose of flókinn og komu
upp ýmis vandamál. Það var síðan í nóv-
ember 2000 að Stuart Rose var ráðinn for-
stjóri Arcadia og starfaði sem slíkur þar
til um miðjan desember síðastliðinn.
En Rose fór ekki með tvær hendur tóm-
ar frá Arcadia því samkvæmt Financial
Times gekk hann út með 25 milljónir
punda, sem svarar rúmlega 3,1 milljarði
íslenskra króna, vegna kaupréttarsamn-
inga sem hann gerði við Arcadia þegar
hann var ráðinn forstjóri félagsins.
Það er því ekki að undra að Philip
Green hafi sungið lagið „Ef ég væri
ríkur“ úr Fiðlaranum á þakinu fyrir
Stuart Rose þegar ljóst var að samning-
urinn um kaup Taveta, félags í eigu Phil-
ips Greens og fjölskyldu, á Arcadia var í
höfn.
„EF ÉG VÆRI RÍKUR…“
Stuart
Rose