Morgunblaðið - 23.02.2003, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2003 51
DAGBÓK
SÚ var tíðin að Alþjóða-
samband bridsblaðamanna
efndi til árlegrar heil-
ræðakeppni meðal bestu
spilara heims, þar sem hug-
myndin var að koma á fram-
færi einföldum og auð-
skildum boðskap sem kæmi
að gagni við spilaborðið. Því
miður hefur þessi siður ver-
ið aflagður, en hluti heilræð-
anna hefur komið út á bók
(Bridge Tips From The
Masters – 1980).
Eitt er það heilræði sem
dálkahöfundur hefur hvergi
séð á prenti: „Ekki dobla
með gosann fimmta í
trompi!“ Fyrir þessu eru
margar ástæður: Ein er sú
að sagnhafi er varaður við
slæmri legu og það hefur oft
afgerandi áhrif á þá leið sem
hann velur. Í öðru lagi fer
oft lítið fyrir því að vörnin
fái slag á slíkt tromp ef
sagnhafi getur víxltrompað.
Í þriðja lagi er hugsanlegt
að sóknin breyti sögninni
sér í hag. Það gerðist í þessu
spili Flugleiðamótsins:
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ 95
♥ ÁD
♦ ÁK106
♣KD1042
Vestur Austur
♠ 4 ♠ ÁDG632
♥ G7643 ♥ 8
♦ DG984 ♦ 753
♣G5 ♣963
Suður
♠ K1087
♥ K10952
♦ 2
♣Á87
Vbridsest-
ur
Norður Austur Suður
Pass 1 lauf 1 spaði 2 hjörtu
Pass 3 tíglar Pass 3 grönd
Pass 4 hjörtu Pass 5 lauf
Pass 5 hjörtu Dobl !? Pass
Pass 5 grönd Dobl Allir pass
Í NS voru Zia Mahmood
og Boye Brogeland. Sagnir
eru nokkuð blátt áfram
fram að fimm laufum Zia í
suður, sem hann meinti sem
eðilega sögn, en Boye taldi
að um fyrirstöðu væri að
ræða með hjartaslemmu í
huga. Frá hans bæjardyrum
séð vantaði því ÁK í spaða
og hann hugðist stansa í
fimm hjörtum. Sá samn-
ingur lekur einn niður.
Vörnin fær á spaðaás og
eina stungu, og síðan fær
vestur þriðja slaginn á gos-
ann í lokin. Í slíkum spilum
skiptir afskaplega litlu máli
hvort samningurinn er dobl-
aður eða ekki, því ef sveitar-
félagarnir vinna geimsögn
sín megin vinnast 12–13
IMPar hvort sem er.
En hér varð doblið þess
valdandi að Boye breytti í
fimm grönd þar sem 11
slagir standa á borðinu.
Sóma síns vegna varð vest-
ur að dobla þann samning
líka. Zia og Boye fengu 870
fyrir spilið í stað þess að
tapa 100. Ef gert er ráð fyr-
ir að NS fái til dæmis 620 á
hinu borðinu þá er gróði Zia
og félaga 6 IMPar, en tapið
hefði verið 12 IMPar. Doblið
kostaði AV því 18 IMPa.
Þetta hlýtur að vera gott
heilræði.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú stendur óvenju föstum
fótum í fortíð þinni og
átt því erfitt með að ákveða
nokkuð í skyndi.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Samræður þínar við fólk snú-
ast ekki endilega um hagnýta
hluti, heldur einkum um
framtíðarmarkmið, dag-
drauma og langanir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þegar mál geta farið á hvorn
veginn sem er verður maður
bara að taka sína ákvörðun
og láta slag standa. Að hika
er sama og að tapa.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Bilanir og tafir í vinnunni
valda þér erfiðleikum en þú
verður að læra að sætta þig
við óhöpp af þessu tagi, þau
eru óhjákvæmileg.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það virðist eiga vel við þig að
hafa mörg járn í eldinum.
Gættu þess þó að þú missir
ekki yfirsýn yfir starfið því
þá fer botninn úr öllu saman.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Láttu ekki fagurgala annarra
villa þér sýn. Farðu heldur
varlega og það mun skila þér
meiru þegar til lengri tíma er
litið.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú hefur hleypt í þig mikilli
þrjósku en veist raunveru-
lega ekki af hverju. Það er í
lagi að vera ákveðinn ef ein-
hver fótur er fyrir því, annars
ekki
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það getur verið erfitt að
standast freistinguna þegar
löngunin til að eignast eitt-
hvað er sterk.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er nauðsynlegt þegar allt
stefnir í að þér takist ætl-
unarverk þitt að búa sig einn-
ig undir vonbrigði því þau
geta alltaf átt sér stað.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Hæfileikar þínir eru ótvíræð-
ir og vekja aðdáun annarra
og stundum öfund. En um-
fram allt skaltu láta hvorugt
á þig fá, heldur halda þínu
striki.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þeir sem leita ráða hjá þér
hafa stundum á orði að þú
ættir að gerast launaður ráð-
gjafi. Líttu á þetta sem hrós
og þakklætisvott en haltu
þínu striki.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það kann að vera að fjár-
málin séu þér þyngri í skauti
en þú vilt vera láta. Eina
lausnin til að komast á réttan
kjöl er að horfast í augu við
hlutina.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Oft getur lítil þúfa velt þungu
hlassi og því er nauðsynlegt
að kynna sér öll mál út í æsar
og sérstaklega að lesa smáa
letrið á öllum pappírum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
TÁRIN
Dýpsta sæla og sorgin þunga
svífa hljóðlaust yfir storð.
Þeirra mál ei talar tunga,
tárin eru beggja orð.
Ólöf Sigurðardóttir
LJÓÐABROT
ÞESSI sagnorð eru al-
þekkt í máli okkar, en eru
gagnstæðrar merkingar.
Bæði OM og hin nýja OE
hafa sömu skýringar um
merkingar þeirra. Lítum
fyrst á so. að eyða. Það er
notað í ýmsum merking-
um: 1 útrýma, tortíma,
eyðileggja. 2 koma í lóg,
gera að engu, sóa, nota
(illa) > eyða peningum í
vitleysu. Sú skýring OM
og OE á so. að spara, sem
hér á við, er sú, að það er
m. a. haft um að eyða litlu,
draga við sig í mat og öðru
fyrir nauðsynja sakir.
Þessi so. komu upp í huga
minn, þegar ég heyrði
auglýsingu frá banka-
stofnun einni, þar sem
upphafsorðin voru þessi:
Eyddu í sparnað. Var þá
verið að hvetja menn til
sparnaðar og kaupa á nýj-
um verðbréfum í stað
bréfa, sem komin voru til
innlausnar. En eru þetta
ekki öfugmæli, þegar
grannt er skoðað og merk-
ingin allt önnur en sú, sem
væntanlegir kaupendur
nýrra verðbréfa áttu að
skilja? Auðvitað áttu þeir
enn að spara við sig og
halda áfram sparnaði sín-
um, sú var hin fróma ósk
bankans, þótt heldur væri
klaufalega komizt að orði
að mínum dómi. Við getum
svo litið á þau no., sem hér
eiga við. Eyðsla merkir
samkv. OM og OE (eyð-
andi ) notkun, sóun – eyði-
legging og sparnaður er
haft um það að spara,
sparsemi, sparneytni
samkv. téðum orðabókum.
Þetta orðalag, sem á
mörgum erlendum málum
mun nefnt slogan, en oft-
ast á íslenzku slagorð, sem
raunar er danskættað, en
einnig vígorð, sem fer
ágætlega í máli okkar.
Þegar það er athugað nán-
ar, sem hér hefur verið
nefnt, má öllum vera ljóst,
að gætilega þarf að fara
við smíði orðasambanda
og vígorða. Að sjálfsögðu
skilja allir, við hvað er átt
með vígorði bankans og
trúlega hafa ekki allir
hnotið um þetta orðalag.
Aftur á móti kemur í ljós,
þegar grunnorðin eru
skoðuð, að merkingin hef-
ur í reynd snúizt við. Sjálf-
sagt er að benda lesendum
á þetta og þá ekki síður
þeim, sem fjalla um aug-
lýsingagerð fyrir stofnanir
og fyrirtæki. – J.A.J.
ORÐABÓKIN
Eyða – spara
ÁRNAÐ HEILLA
90 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag-
inn 24. febrúar, verður ní-
ræður Jón S. Jónsson, sjó-
maður frá Flateyri, til
heimilis á Hrafnistu í Hafn-
arfirði. Hann tekur á móti
gestum í dag, sunnudaginn
23. febrúar, í Gullsmára 13,
Kópavogi, milli kl. 15 og 18.
40 ÁRA afmæli. í dag,sunnudaginn 23.
febrúar, er fertugur Jónas
Erlendsson bóndi og frétta-
ritari Morgunblaðsins í
Fagradal, Mýrdalshreppi.
Laugardaginn 1. mars frá
kl. 19 verður Jónas heima
og tekur á móti gestum.
1. Rf3 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3
c5 4. e4 d6 5. d4 cxd4 6.
Rxd4 a6 7. Bd3 Dc7 8. 0-0
Rc6 9. Rxc6 bxc6 10. f4 e5
11. f5 Bb7 12. Bg5 Be7 13.
De2 h6 14. Bh4 0-0 15.
Hac1 Rh7 16. Bf2 Had8 17.
b4 Db8 18. Hb1 Rf6 19. c5
Dc8 20. cxd6 Bxd6 21. Hfc1
c5 22. Ra4 Dd7 23. bxc5
Be7 24. Rc3 Hc8
Staðan kom upp í sterku
skákmóti sem lauk fyrir
skömmu í Gíbraltar. Darr-
yl Johansen (2.487) hafði
hvítt gegn Ian Thompson
(2.256). 25. Hxb7! Dxb7 26.
Bxa6 Dc6 27. Bxc8 Hxc8
28. Kf1 Bxc5 29. Rd5 Dd6
30. Rxf6+ gxf6 31. Dc4 og
svartur gafst upp enda er
hann að verða manni undir.
Skákdagur fjölskyld-
unnar verður í dag, 23.
febrúar, að Kjarvals-
stöðum.
Mikið verður um að vera
og má búast við mikilli
skemmtun.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Námskeið um meðvirkni, samskipti,
tjáskipti og tilfinningar verður haldið
föstudagskvöldið 28. febrúar og
laugardaginn 1. mars í kórkjallara
Hallgrímskirkju.
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 553 8800.
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið
Meðvirkni
Stefán Jóhannsson,
MA, fjölskylduráðgjafi
Bókamarkaður
Félags íslenskra
bókaútgefenda
h
in
n
e
in
i s
an
ni
bó
kamarkaður
Kópavogi:
Smáralind,
sími 562 9701.
Akureyri:
Hafnarstræti 91-93,
2. hæð,
sími 663 1224.
20. febrúar til 2. mars
Opið 10 til 19
Líka um helgar
bestu
bókakaupin
Indversk grænmetismatargerð
Námskeið í indverskri grænmetis-
matargerð, fæða fyrir sál og líkama
Skemmtilegt eitt kvöld 3. mars, 6. mars
eða 12. mars frá kl. 18–22.30 með Shabönu,
sími 581 1465, 659 3045 og 698 0872.
Indversk matargerð í eldhúsinu þínu.
Shabana Zaman
Ef þú vilt halda veislu
þá kem ég á staðinn og sé um matinn
Hver einasti hlutur í búðinni með 50% afslætti
Húsgögn, ljós, fatnaður og gjafavörur
Opið í dag, sunnudag, kl. 13-16.
Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545.
Okkar árlega rýmingarsala
Hef opnað snyrtistofu
í Rofabæ 9, Árbæ
Pantanir í síma 587 0300
Úrvals þjónusta í boði
20% kynningar afsláttur
mán.-fös. kl. 9-18, lau. 10-16
Enskunám í Englandi
fyrir 12-15 ára
Íslenskir hópstjórar
með í för allan tímann.
Uppl. hjá Enskuskóla
Erlu Ara
sími 891 7576
frá kl. 13-17
alla daga.
Sjá nánar um starfsemi skólans og myndir
frá fyrri ferðum á simnet.is/erlaara