Morgunblaðið - 23.02.2003, Blaðsíða 28
LISTIR
28 SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BESTU MEÐMÆLIfær okkar
„Lykillinn að árangri í okkar rekstri
felst í markvissri vörustjórnun.
Lausnin tryggir fagleg vinnubrögð.
Verkferlar eru vel skilgreindir og
afhendingar bæði nákvæmari og
hraðari. Nýting vöruhússins er auk
þess betri. Þar sem stór hluti af
vörum okkar eru dagstimplaðar
matvörur skiptir miklu að vita aldur
þeirra. Kerfið leiðir okkur alltaf til
þeirrar vöru sem á að fara næst út
úr húsi.
Starfsmenn á lager nota þráðlausar
handtölvur við alla vörumeðhöndlun
og reikningagerð. Upplýsingarnar
eru uppfærðar jafnóðum í Axapta.
Lausnin hefur fyllilega staðið undir
væntingum okkar og starfsmenn
sáu strax ávinning af notkun
hennar. Við gefum Axapta okkar
bestu meðmæli.“
Sverrir Egill Bergmann
framkvæmdastjóri Bergdal ehf.,
heildverslun
Microsoft Business
Solutions–Axapta
Símon Z. Bahraoui, 30 ára,
sölufulltrúi
Ég hef farið á þrjú námskeið og er
alltaf jafn ánægður. Andrúmsloftið í
hópunum hefur verið létt og
hvetjandi. Það er gott að vera hluti
af samstilltum hóp með svipuð
markmið.
Oddur Ólafsson, 45 ára,
lögreglumaður
Námskeiðin eru frábær leið til
að koma sér af stað í líkams-
þjálfunina. Síðan ég byrjaði í
Hreyfingu er ég búinn að léttast
um 27 kíló og hef gert þjálfunina
af föstum lið í mínu lífi.
Egill Örn Einarsson, 32 ára,
deildarstjóri
Frábær félagsskapur, kraftmikil og
markviss þjálfun og góður árangur
er það sem mér finnst lýsa
námskeiðunum í Hreyfingu best.
Góð leið til að koma sér
aftur af stað eftir nokkurt hlé.
Á FIMMTUDAGINN umbreytist
Reykjavík í allt aðra og ævintýralegri
borg. „Styttur bæjarins munu loks fá
tækifæri til að tjá sig, músíkalskar
þvottakonur halda tónleika bæði Ráð-
húsinu og Iðnó og hús fullt af tungls-
ljósi verður reist í Tjarnarhólmanum
– og þetta eru aðeins þrír af um átta-
tíu viðburðum sem eiga sér stað út um
alla borg á Vetrarhátíð í Reykjavík
frá fimmtudegi og fram á sunnudag,“
segir Sif Gunnarsdóttir verkefnis-
stjóri viðburða Höfuðborgarstofu.
„Margar helstu menningar- og
menntastofnanir landsins munu sýna
sig í öðru ljósi en venjulega. Borg-
arleikhúsið býður að upplifa töfra-
heim leikhússins frá sviðinu í stað
áhorfendapalla, Íslenska óperan leið-
ir gesti um alla króka og kima Gamla
bíós og Þjóðleikhúsið og Háskóli Ís-
lands ætla að hlæja saman í dag-
skránni Er vit í hlátri? Í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum verður mikil
fjölskylduhátíð á lokadegi Vetrarhá-
tíðar, sunnudaginn 2. mars og er þar í
mörg horn að líta. Á sunnudagskvöld-
ið verður ein sérstæðasta kvikmynda-
sýning sem sést hefur hér á landi þeg-
ar Orkuveita Reykjavíkur býður
áhugasömum að sjá kvikmyndasýn-
ingu á vatnstjaldi í Elliðaárdal rétt við
Stöðvarstjórabústaðinn. Þetta er að-
eins örlítið brot af því sem verður á
boðstólum fyrir Reykvíkinga og gesti
borgarinnar þessa hátíðisdaga,“ segir
Sif.
Hægt er að fræðast meira um dag-
skrána á á vefslóðinni www.reykja-
vik.is/vetrarhatid.
Morgunblaðið/Ásdís
„Styttur bæjarins fá mál og þvottakonur halda tónleika,“ segir Sif Gunn-
arsdóttir, verkefnisstjóri viðburða á Höfuðborgarstofu.
Allt önnur og ævin-
týralegri borg
Vetrarhátíð í Reykjavík 27.2.–2.3.
TVÖ tónlistarnámskeið eru að hefj-
ast í Listaháskóla Íslands í mars.
Þann 3. mars hefst námskeið þar
sem ýmsir möguleikar í rytma-,
hreyfileikjum og spuna eru kannað-
ir. Lög og textar útfærðir í rytma-
verk og einnig unnið með lítið slag-
verk og trommur. Kennari Kristín
Valsdóttir tónlistarkennari. Nám-
skeiðið er opið öllum en hentar vel
leikskóla- og tónlistarkennurum.
Þá hefst 7. mars námskeið ætlað
tónlistarkennurum sem fjallar um
notkun tölvutækninnar til tónlistar-
kennslu. Æskilegt er að þátttakend-
ur hafi grunnþekkingu á tölvuvinnu.
Kennarar eru Jón Hrólfur Sigur-
jónsson tónlistarkennari og Hilmar
Þórðarson tónskáld.
Námskeið hjá LHÍ
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122
NÁMSKEIÐ Endurmenntunar HÍ
um Macbeth eftir Verdi verður
næstu tvö mánudagskvöld í sam-
starfi við Vinafélag Íslensku óper-
unnar.
Kennari á námskeiðinu er Gunn-
steinn Ólafsson hljómsveitarstjóri.
Óperan er sýnd í Íslensku óper-
unni um þessar mundir. Aðgöngu-
miði er innifalinn í námskeiðsverðinu
á sýninguna föstudaginn 7. mars.
Námskeið
um Macbeth
HEILSUHRINGURINN
VILT ÞÚ FRÆÐAST?
Tímarit um holla næringu og
heilbrigða lífshætti.
Áskriftarsími 568 9933
Síðumúla 27 • 108 Rvík
Veffang: http:www.simnet.is/heilsuhringurinn/
Moggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.
♦ ♦ ♦