Morgunblaðið - 23.02.2003, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 23.02.2003, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2003 37 www.hofdi.is Suðurlandsbraut 20 Sími 533 6050 Vorum að fá í sölu þetta fallega og vel rekna gistiheimili sem staðsett er á frá- bærum stað við smábátahöfnina. Í húsinu, sem er að mestu endurbyggt, er m.a. glæsileg þriggja herbergja ris- íbúð. Í húsinu hefur undanfarin 10 ár verið rekið glæsilegt 11 herbergja gistiheimili á 1. og 2. hæð hússins. Sjón er sögu ríkari. Verð 29,9 millj. Áhv. hagstæð lán. Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur sölumaður á Höfða í síma 565 8000 og gsm 895 3000. Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafræðingur, löggiltur fasteigna- og skipasali Gistiheimilið Hvammur á Höfn Opið hús Kjartansgata 3 3ja herbergja íbúð í kj. ásamt sérinng. Til sýnis og sölu mjög góð og björt 80 fm, 3ja herbergja íbúð í kjallara með sérinngangi á þessum vins- æla stað. Parket og flísar á gólfum. Verð 10,9 m. Áhv. 4,8 m. góð lán. Brunabótamat 8,0 m. Eignin getur verið laus og til afhendingar nú þegar. Auður verður með heitt á könnunni og tekur vel á móti gestum í dag, sunnudag, milli kl. 14.00 og 17.00. Fasteignasala Brynjólfs Jónssonar, sími 511 1555. 3ja herb. íbúð við Eyjabakka, Rvík Höfum til sölu ca 98 fm 3ja herb. íbúð á jarðhæð með sérgarði og verönd. Húsið nýstandsett að utan. Áhv. ca 7,8 m. Greiðslubyrði um 43 þús. á mán. Ekkert greiðslumat. Laus 15. mars nk. Verð 10,5 millj. 3ja herb. íbúð í Sólheimum, Rvík Íbúð á 7. hæð á þessum vinsæla stað. Frábært útsýni. Mikið áhv. Verð 12,5 m. Upplýsingar veitir: Eignaland ehf., Hlíðasmára 9, Kóp. Guðmundur Þórðarson hdl. og lögg fastsali. Símar 568 3040 — 891 6768. Opin hús í dag Um er að ræða gott og vel skipulagt einbýlishús sem er 191 fm, þar af er bílskúrinn 52 fm. Húsið er 3 herb.+stofa, en mjög auðvelt er að bæta við 4 herberginu. Endilega kíkið við í dag til hennar Hafdísar á milli kl. 14 og 16 og skoðið herlegheitin. Seljabraut 22 Brattholti 3 - Mosfellsbæ Þrælgóð 3ja til 4ra herb rúmlega 91 fm íbúð á tveimur hæðum í góðu fjölbýlishúsi. Ásamt stæði í snyrti- legri bílgeymslu. Rúmgóð stofa og svalir í suður. Úr íbúðinni er frábært útsýni yfir borgina. Kíktu við og skoðaðu þessa!!! Hreinn og Guðmunda taka vel á móti þér og þínum milli kl. 14:00 og 16:00 í dag. Verð 11.9m Áhv 8,5 húsbr. Laugavegur 147 FRÁBÆR FYRSTU KAUP!! Snyrtileg rúml 53fm 2ja heb íbúð á 2.hæð flí- salagt baðherbergi með sturtuklefa og parket á gólfi. Íbúðin er laus til af- hendingar nú þegar. Skoðaðu þessa!!! Verð 7,2m áhv 5,3 húsbr. Sigríður tekur á móti þér og þínum á milli kl 14:00-16:00 Skúlagata 17 - Sími 595 9000 Hlíðarsmári 15 - Kópavogur - Sími 595 9090 holl@holl.is - www.holl.is Opið virka daga kl. 9-18 laugard. kl. 12-14 ÞAÐ er sannkallað gleðiefni að sjá hversu öflug náttúruverndar- baráttan er orðin víðs vegar um land og náttúruvernd er í eðli sínu mikið hagsmunamál íslenskra leið- sögumanna. Á fjölmennum baráttu- fundi sem haldinn var fyrir skömmu í Borgarleikhúsi Reykja- víkur komu saman um 1.600 manns til að mótmæla virkjanastefnu stjórnvalda. Þá mættu um 1.000 manns fyrir framan Ráðhús Reykjavíkur á virkum degi, sem er einsdæmi, til að mótmæla fyrirhug- aðri Kárahnjúkavirkjun og hvetja borgarstjórn til að hafna henni. Allt ber þetta vitni um öfluga vakn- ingu meðal þjóðarinnar og aukna meðvitund um þá náttúruauðlind sem felst í ósnortnum víðernum. Þetta er vakning, sem einnig hefur átt sér stað hjá þjóðum bæði aust- an hafs og vestan fyrir fáeinum áratugum meðal annars með þeim árangri að settir hafa verið á fót víðfeðmir þjóðgarðar, þar sem fólk í þúsundatali – og jafnvel hundruð þúsunda tali – streymir að til að njóta ósnortinnar náttúru. Félag leiðsögumanna hefur alltaf tekið einarða afstöðu með náttúruvernd Félag leiðsögumanna hefur í langan tíma barist fyrir náttúru- vernd landsins og mótmælt harð- lega virkjanaframkvæmdum á há- lendisvíðernum Íslands. Haustið 1998 samþykkti FL einróma eft- irfarandi ályktun: „Félagsfundur Félags leiðsögu- manna, haldinn í Reykjavík 18.11. 1998 leggst eindregið gegn fyrir- huguðum virkjunum, miðlunarlón- um og öðrum mannvirkjum sem þeim fylgja á hálendi Íslands; í Eyjabökkum, Hafrahvammagljúfr- um, Þjórsárverum og öðrum há- lendisperlum. Jafnframt skorar fundurinn á ríkisstjórn og Alþingi Íslendinga að láta Fljótsdalsvirkj- un fara í lögformlegt umhverfis- mat.“ FL hafnar hugmyndum um virkjanaþjóðgarð Á almennum félagsfundi í Félagi leiðsögumanna sem haldinn var þriðjudaginn 5. nóv. 2002 var sam- þykkt eftirfarandi ályktun: „Félag leiðsögumanna mótmælir harðlega hvers konar áformum sem valda óafturkræfum náttúruspjöll- um, t.d. virkjanaframkvæmdum, sem eru andstæð ferðaþjónustunni. Ferðaþjónustan er vaxandi at- vinnugrein á Íslandi og skilar nú um 45 milljörðum á ári til þjóð- arbúsins. Hún byggist á þeirri ímynd sem kynnt hefur verið á er- lendri grundu og miklum fjármun- um hefur verið varið í. Ímynd Ís- lands sem ferðamannastaðar grundvallast á fjölbreyttri og ein- stakri náttúru og víðernum hálend- isins. Hálendisvíðernin eru einstök náttúruauðlind og aðför stjórnvalda að þeim grefur undan ímynd og trúverðugleika landkynningarinnar og rýrir vaxtarmöguleika í ferða- þjónustunni. Stóriðja og náttúru- vernd fara ekki saman. Við mót- mælum því að áratuga kynn- ingarstarf sé skrumskælt á þennan hátt. Við styðjum hugmynd um þjóðgarð norðan Vatnajökuls, þjóð- garð sem stendur undir nafni og höfnum hugmyndum um virkjana- þjóðgarð. Við skorum á stjórnvöld að fórna ekki hagsmunum ört vax- andi starfsgreinar fyrir stundar- gróða og hugsanlega hagsmuni annarra starfsgreina. Við hvetjum stjórnvöld til að hugsa til framtíðar á grundvelli nútíðar og þeirra vaxt- armöguleika sem búa í náttúru- vernd og virðingu fyrir friðlandi og alþjóðasáttmálum.“ Kárahnjúkavirkjun = enginn þjóðgarður! Umhverfisnefnd FL ítrekar að sá einstaki möguleiki sem felst í stofnun þjóðgarðs norðaustan við Vatnajökul hefur alls ekki verið metinn að verðleikum. Mat á fórn- arkostnaði hefur ekki farið fram. Á Egilsstöðum er alþjóðlegur flug- völlur og fyrir Evrópubúa gæti það þýtt um 6–8 stunda ferðalag frá Evrópu að Snæfelli. Eftir aðeins dagsferð gætu Evrópubúar verið staddir inn á hálendi í stærsta þjóðgarði Evrópu! Þessi möguleiki var kannski fjarlægur fyrir 20 ár- um en í dag er hann raunsærri en risavirkjun og risaálver. Þjóðgarðar víða um heim eru dýrmæt tekjulind og dæmi er um allt að 12 ára bið eftir að heim- sækja tiltekna staði innan þjóð- garða í Bandaríkjunum. Eftirspurn eftir ósnortnum náttúruperlum er mikil og fer vaxandi. Nágranna- þjóðir okkar Noregur, Kanada og Bandaríkin meta slíka auðlind dýru verði og sýna það í verki og hafa því hætt við virkjanaframkvæmdir á viðkvæmum svæðum. Mikilvægt er að hafa í huga að samkvæmt alþjóðlegum samþykkt- um um þjóðgarða getur svæðið norðan Vatnajökuls aldrei fengið þennan gæðastimpil ef af virkjun- aráformum ríkisstjórnarinnar verð- ur. Svæðið myndi þá flokkast undir fólkvang sem er í allt öðrum og lægri gæðaflokki. Með Kára- hnjúkavirkjun væri hugmyndin um þjóðgarð því jörðuð og dýrmætur fjársjóður horfinn að eilífu. Við hvetjum alla náttúruverndara að gera hug sinn sýnilegan. Við bend- um á að það var almenningsálitið sem breytti viðhorfum stjórnvalda í Bandaríkjunum gagnvart virkjun- um á náttúrusvæðum á sínum tíma. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Við viljum þjóðgarð – ekki Kára- hnjúkavirkjun. Fjársjóður glatast Eftir Níels R. Vendelbjerg „Virkjun leyfir ekki alþjóðlega viður- kenndan þjóðgarð.“ Höfundur er leiðsögumaður. EITT af þeim málum sem Röskva leggur mesta áherslu á í Stúdentaráðskosningum að þessu sinni eru menntamál. Gæði kennslu eru sameiginlegt hags- munamál allra stúdenta og jafn- framt eitt það mikilvægasta. Í því samkeppnisumhverfi sem Háskóli Íslands býr við er mikilvægt að sú menntun sem þar er boðið upp á sé samkeppnishæf við aðra há- skóla, innlenda sem erlenda. Röskva kallar eftir skýrri menntastefnu Nýverið sendi Röskva frá sér áskorun til allra stjórnmálaflokka þar sem skorað var á þá að móta sér skýra stefnu í menntamálum og setja þau mál á oddinn í kom- andi kosningum. Mikil rekistefna hefur einkennt stefnu núverandi yfirvalda menntamála í málefnum háskóla og því kominn tími til að þessum mikilvæga málaflokki verði sinnt betur. Gæðamat á menntun Í ljósi samkeppni er mikilvægt nú sem aldrei fyrr að samræmt gæðamat eigi sér stað á þeirri menntun sem er í boði. Röskva leggur áherslu á að menntamála- yfirvöld sinni því hlutverki sínu að gera úttekt á gæði menntunar með reglubundnu millibili. Sú úttekt er mælikvarðinn sem við stúdentar notum til að bera okkar menntun saman við menntun annars staðar. Þetta er einnig sá samanburður sem atvinnulífið horfir á og því nauðsynlegt fyrir stúdenta að geta sýnt fram á hvað liggur að baki prófgráðu þeirra. Röskva leggur einnig til að hald- in verði ráðstefna um gæði mennt- unar við Háskóla Íslands saman- borið við innlenda og erlenda háskóla. Sérstaða Háskóla Íslands Í dag gerir Háskóli Íslands tvo samninga við ríkið um fjármögnun skólans. Annar samningurinn snýr að kennslu en hinn að rannsókn- um. Kennsluhlutinn er byggður á sænsku módeli sem engan veginn hentar íslenskum aðstæðum. Þar er lágmarksfjöldi nemenda mun meiri en tíðkast hérlendis. Þetta hefur orðið til þess að fámennar deildir Háskólans standa ekki und- ir sér og taka þarf fjármagn frá þeim fjölmennari til að leiðrétta þetta. Nú stendur yfir endurskoð- un á kennslusamningnum og Röskva leggur áherslu á tekið verði á þessu vandamáli. Háskóli Íslands er í forystu í rannsóknum og gerir sérstakan samning við stjórnvöld um fjármögnun þeirra. Aðrir skólar á háskólastigi hafa lýst áhuga sínum á að styrkja rannsóknir við skólana og gera sams konar samninga við ríkið. Leggja þarf þó áherslu á að tryggð séu gæði þeirra rannsókna og menntunar sem fé er lagt til. Það verður að gera með skýrari löggjöf um skóla á háskólastigi. Miklu meira … Röskva leggur mikla áherslu á menntamál og ber stefnuskrá fylk- ingarinnar fyrir þessar kosningar þess skýr merki. Meðal þess sem lögð er áhersla á að þessu sinni er efling framhaldsnáms. Aldrei hafa fleiri háskólamenntaðir verið á at- vinnuleysisskrá en nú. Því er lík- legt að hluti þess fólks vilji snúa aftur til náms til bæta við mennt- un sína. Mikilvægt er að Háskóli Íslands geti tekið á móti þessum hópi með myndarlegum hætti og boðið upp á öflugt og vandað fram- haldsnám. Samkeppnis- hæfa menntun Eftir Rakel Dögg Óskarsdóttur „Gæði kennslu eru sameig- inlegt hags- munamál allra stúdenta og jafn- framt eitt það mikil- vægasta.“ Höfundur skipar fjórða sæti á lista Röskvu til Stúdentaráðs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.