Morgunblaðið - 23.02.2003, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.02.2003, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2003 23 Noregi og ýmsum löndum sem töl- uðu sín tungumál. Úr þeirri blöndu verður smám saman til þjóð sem tal- ar sitt eigið mál, þótt hér hafi jafnan verið töluð önnur tungumál líka í gegnum aldirnar. Landamæri Ís- lands voru líka mismunandi m.a. eft- ir því hvort við tilheyrðum menning- arsvæði Norðmanna eða Dana. Saga Íslendinga er hluti af sögu þeirra og auðvitað allrar Evrópu. Þetta er áhugavert fyrir nútíma Íslendinga að velta fyrir sér – hver erum við og hver er okkar bakgrunnur?“ Þingvellir einstakir og torfbæirnir í húsasafni Þjóðminjasafnsins líka Eigum við Íslendingar merkar minjar? „Ég er ekki viss um að Íslendingar geri sér almennt grein fyrir hve merkar þær minjar eru sem við eig- um. Þjóðminjasafnið varðveitir 60 þúsund einstakar minjar, svo sem hús á 44 stöðum á landinu, listgripi sem eru einstakir í Evrópu, muni, þjóðháttaheimildir, forngripi og tvær milljónir mynda. Um þessar mundir tekur Þjóðminjasafnið t.d. þátt í því mikilvæga verkefni að til- nefna Þingvelli á heimsminjaskrá UNESCO, og sem formaður sam- ráðsnefndar um UNESCO-samn- inginn hef ég verið að benda á hversu einstakir okkar minjastaðir eru í heiminum. Þingvellir eru einstakir í sinni röð og það eru íslensku torfbæ- irnir líka. Þessar minjar eru að sínu leyti ekki ómerkari en t.d. pýramíd- arnir í Egyptalandi. Við Íslendingar höfum „hlaupið svo hratt“ á 20. öldinni að við höfum að mörgu leyti misst sjónar á þessu. Við þurfum að gera okkur gleggri grein fyrir því sem við eigum. Á því byggist okkar sjálfsmynd og þroski. Þjóðminjasafnið vill standa vörð um þennan menningararf og þá verk- kunnáttu og sögu sem fylgir. Það er hins vegar þungur róður að standa að þjóðminjavörslu á Íslandi í víðum skilningi og þarf nokkra hugarfars- breytingu til þess á ýmsum sviðum. Mikilvægt er að sjá samhengi nátt- Á ÞESSU 140 ára af- mælisári Þjóðminja- safns er verið að ljúka mikilli endurbyggingu safnsins sem hefur kostað miklar fram- kvæmdir í húsakosti þess. Í framhaldi af því verður sett upp ný grunnsýning Þjóð- minjasafns, en sú sem hún tekur við af hefur staðið nánast óbreytt í hálfa öld. „Við opnun Safn- húss við Suðurgötu, eftir viðamiklar end- urbætur, verður nán- ast gjörbylting hvað snertir aðstöðu Þjóðminjasafns,“ sagði Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra í sam- tali við Morgunblaðið. „Þessi tímamót í sögu safnsins og endurnýjun á aðstöðu þess eru ekki síst mikilvæg vegna þess að nú beinist athyglin mjög að menning- arsögu Íslendinga. Í þessum efnum eigum við samleið, Sturla Böðv- arsson ráðherra ferðamála, og ég, og höfum ákveðið að taka höndum saman um að efla menningartengda ferðaþjónustu, sem Sturla hefur markað skýra stefnu um. Við telj- um að það eigi að byggja kynningu á Íslandi erlendis á því annars veg- ar að kynna íslenska náttúru og hins vegar að kynna íslenska menn- ingu. Hlutverk safnanna í þessu til- liti verður mjög mikilvægt. Þjóð- minjasafn er flaggskip þeirra og með þessari stefnu verður hlutverk þess því enn mikilvægara en áður var. Við Íslendingar eigum marga gripi frá liðnum tíma en það ein- kennir þó okkar menningararf að við eigum hlutfallslega minna af slíkum þjóðminjum en ýmsar aðrar þjóðir, t.d. eigum við engar bygg- ingar frá miðöldum. Þar á móti kemur að við eigum miklu meira af rituðum heimildum um miðaldir heldur en aðrar þjóðir. Þetta þýðir að þær þjóðminjar sem til eru hafa meira vægi fyrir okkur en gerist annars staðar, þar sem til eru mikil söfn fornmuna. Þær gömlu minjar sem til eru varpa ljósi á það mannlíf sem hér þreifst. Við höfum ýms- ar vísbendingar um að hér hafi verið mjög ris- mikið mannlíf sem mik- ilvægt er fyrir okkur Íslendinga að fá sem gleggsta innsýn í. Það er því þýðingarmikið að skapa meðal þjóð- arinnar betri skilning á menningararfi hennar, ekki síst með tilliti til sjálfsmyndar hennar. Ekki er síður mikilvægt að dýpka skilning annarra þjóða á menning- arsögu okkar.“ Hann sagði að samræmdar við- skiptareglur og heimsvæðing við- skipta drægju úr sérkennum þjóða, – en á sama tíma væri menning- arleg sérstaða einmitt eftirsótt og í raun viðskiptavara t.d. í ferðaþjón- ustu. „Ég hef verið í viðræðum við Dani um íslenskar þjóðminjar sem geymdar eru frá gamalli tíð í dönskum söfnum. Þær viðræður hafa skilað árangri og þeim verður haldið áfram. Ég legg áherslu á að fá gamla og verðmæta íslenska gripi hingað frá Danmörku á sýn- ingar, annars vegar í Norður- bryggjuhúsinu í Kaupmannahöfn á þessu ári og hins vegar til sýningar í endurbættu húsnæði Þjóðminja- safns þegar það verður opnað. Við- brögðin við þessari málaleitan hafa verið mjög jákvæð, Danir sjá engar hömlur á að við getum fengið þessa gripi lánaða. Tilgangurinn er að Íslendingar sjái hvers konar gripir það eru sem varðveittir eru í dönskum söfnum. Ég lít svo á að það lögmál gildi að sýning gripanna eigi að vera þar sem sagan og menningin tengjast þeim mest. Langtíma markmið okk- ar er að fá sem flesta þessa gripi hingað til lands, en þeim var safnað áður en Þjóðminjasafn Íslands var stofnað,“ sagði Tómas Ingi Olrich. Hlutverk Þjóðminjasafns enn mikilvægara en áður var Á 140 ára afmæli Þjóðminjasafns segir Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra m.a. í samtali við Guðrúnu Guðlaugsdóttur að sér sé ofarlega í huga þýðing þjóðminja fyrir sjálfsmynd Íslendinga og kynningu á sögu þeirra erlendis. Tómas Ingi Olrich ...í skíðaferðina N O N N I O G M A N N I • 4 8 0 1 / sia .is • Um 50 alsælir golfarar eru n‡komnir heim frá Tailandi. • Jómfrúargolffer›in til Su›ur-Afríku var stórkostleg. Næstu fer›ir til Su›ur-Afríku fyrirhuga›ar 27. okt. 2003 og 26. jan. 2004. 25. apríl - 4. maí á manninn, m.v. tvíb‡li geti› fli› flogi› í beinu leigflugi me› Icelandair til Faro, láti› aka ykkur á fletta stórglæsilega strandhótel, flar sem fli› gisti› í flægilegu herbergi me› úts‡ni yfir hafi› í 9 nætur, spila› ótakmarka› golf í 8 daga á hinum frábæra Donana golfvelli, bor›a› eins miki› og fli› geti› í ykkur láti› af glæsilegu morgun- og kvöldver›arhla›- bor›i og noti› lei›sagnar frábærra, íslenskra fararstjóra og golfkennara. Flugvallarskattur er innifalinn í ver›i. 115.010Fyrir a›eins kr. Uppselt er í flestar golffer›ir okkar í vor en nokkur sæti eru laus til: Islantilla Golfdeild Úrvals-Úts‡nar Hlí›asmára 15, Kópavogi • sími 585 4116 e›a 585 4117 www.urvalutsyn.is • peter@uu.is • signhild@uu.is 2. - 12. apríl Matalascanas/ Quinta da Marinha Páskafer› til Galway á Írlandi 25. apríl. - 4. maí 17. - 21. apríl fiökkum frábærar vi›tökur - ekki missa af sí›ustu sætunum! ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 2 02 95 02 /2 00 3 Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050 Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15 Húsgögn Sérpantanir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.