Morgunblaðið - 23.02.2003, Side 18

Morgunblaðið - 23.02.2003, Side 18
Nútímaútgáfan af Yardbirds: F.v. Gypie Mayo, John Idan, Alan Glen, Jim McCarty og Chris Dreja.T HE YARDBIRDS er ein vanmetnasta sveit sem sjöundi áratugurinn gaf af sér. Þótt sveitir eins og Bítlarnir, Rolling Stones, Byrds og jafnvel Small Faces séu þekktari nöfn er Yardbirds kannski ævintýralegasta sveitin af þeim öll- um; uppeldisstöð þriggja gítarhetja sem á sínum tíma vísaði veginn að því hvernig standa beri að tilrauna- mennsku innan popp- og rokk- tónlistar. Sveitin er enn starfandi, og það af miklum krafti. Þeir sem leiða nú eru upprunalegu meðlimirnir Chris Dreja, sem leikur á hryngítar og trymbillinn Jim McCarty en með þeim í nýjustu útgáfu bandsins er gít- arhetjan Gypie Mayo (áður í Dr. Feelgood), John Idan bassaleikari og söngvari og Alan Glen, munnhörpu- leikari. Platan nýja, Birdland, er sú fyrsta síðan Little Games kom út árið 1967 en þar kíkir mikið stjörnustóð í heimsókn, m.a. Jeff „Skunk“ Baxter (sem gerði garðinn frægan áður fyrr með Steely Dan), Steve Lukather, Brian May, Joe Satriani, Slash og Steve Vai. Birdland inniheldur end- urhljóðritanir á átta þekktum Yard- birdslögum auk sjö nýrra laga. Af op- inberri heimasíðu sveitarinnar að dæma eru Dreja, McCarty og félagar innblásnir miklum fítonskrafti um þessar mundir, eitthvað sem Íslend- ingar geta sannreynt eftir mánuð eða svo. I Hinn almenni hlustandi þekkir lík-ast til nafnið Yardbirds, en kannski lítið meira. Poppsögulega er sveitin frægust fyrir að fóstra þrjá frábæra gítarleikara, þá Eric Clapt- on, Jeff Beck og Jimmy Page en tveir þeir síðustu voru saman í sveitinni um hríð. En þegar glöggt er að gáð stendur hljómsveitin fyrir svo miklu, miklu meira. Hún var ein fyrsta rokk- sveit sjöunda áratugarins til að brjót- ast út fyrir form það er vinsældalistar settu sveitum á þeim tíma – eitthvað sem þeir gerðu aukinheldur með glans. Áhrif þeirra hafa teygt sig langt út fyrir það sem þeir komu í verk á sínum tíma; ferillinn var kannski knappur en vigt sköpunar- innar því meiri. Árið 1963 var Lundúnasveitin Metropolis Blues Quartet orðin að The Yardbirds. Um söng sá Keith nokkur Relf, Paul Samwell-Smith plokkaði bassa, Chris Dreja sló hryn- gítarinn, Jim McCarty lamdi húðir og hinn sextán ára gamli Anthony „Top“ Topham sá um einleiksgítarinn. Top- ham hætti fljótlega vegna þrýstings frá fjölskyldu sinni enda vart farið að vaxa grön. Vinur Relfs úr listaskól- anum, kumpáni að nafni Eric Clapt- on, leysti hann af en hann bar þá við- urnefnið „Hæghönd“ („Slowhand“). Um þetta leyti var blúsrokkið að gera allt vitlaust í Bretlandi og Yardbirds urðu fljótlega hin álitlegasta stærð í þeim geira og leystu aðra sveit, svip- aðrar gerðar, af í Crawdaddyklúbbn- um. Sú sveit hét og heitir Rolling Stones en báðar tóku svipaðan pól í hæðina hvað bandarískt blúsrokk varðaði – spilamennskan var hröð, hrá og sveitt. Fyrsta breiðskífan, Five Live Yardbirds, kom út árið 1964 og geymdi hljóðritanir frá tónleikum í Marquee-klúbbnum. Á henni má heyra sveitina renna sér í gegnum blússtaðla, oft á 150 kílómetra hraða, og þykir platan vera ein mikilvægasta heimildin um blúsbylgjuna sem þá var að gerjast í Bretlandi. Þrátt fyrir að vera harðir blúsarar höfðu Yardbirds-limir einnig töluvert innsæi í þá eðlu list að búa til grípandi melódíur. Fyrsta smáskífan sem vakti verulega athygli á sveitinni var því laus við öll harðkjarna-blúsáhrif ef svo mætti segja. Hið frábæra „For Your Love“, þriðja smáskífulagið sem Yardbirds gaf út, er þannig samið af smellasmiðnum mikilhæfa Graham Gouldman („Bus Stop“, „No Milk Today“). Engu að síður er lagið stór- skrýtið ef miðað er við staðla þess tíma. En þetta áræðna skref reyndist of mikið af því „góða“ að mati Clapt- ons, sem vildi rækta blúsinn enn frek- ar. Hann hvarf því á braut og slóst í lið með John Mayall og The Blues- breakers, í ársbyrjun 1965. II Nú hófst því leit að viðunandieftirmanni. Fyrst var Jimmy nokkrum Page boðin staðan, eld- klárum leiguspilara sem var einn sá eftirsóttasti í Bretlandi á þeim tíma. Page hugnaðist staðan hins vegar ekki, enda kominn í fínar álnir á leig- ustarfinu. Hann benti því á annan spilara sem hann þekkti; Jeff Beck, þá meðlimur í The Tridents. Beck átti sannarlega eftir að reyn- ast betri en enginn. Það er skrýtið að hugsa til þess í dag, en á einhvern hátt gerðust hlutirnir með allt öðrum hraða á þessum áratug, sem enn í dag hefur reynst sá frjósamasti hvað framþróun popptónlistar áhrærir. Beck var meðlimur í Yardbirds í u.þ.b. eitt og hálft ár og ólíkt Clapton fagnaði hann tilraunagleðinni sem umlék Yardbirds á þessum tíma. Gít- arinn var í hans huga ekki bara slag- gígja heldur töfrastafur sem hægt væri að sveifla og sveigja í hag list- arinnar eftir hentugleika. Hljómarnir urðu æ brenglaðri í meðförum Beck sem átti eftir að setja mark sitt svo um munaði á sögu sveitarinnar. Strax á fyrstu smáskífunni sem hann tók þátt í að vinna, sem inniheldur hið meistaralega „Heart Full of Soul“ gætir austrænna áhrifa en lagið var og samið af áðurnefndum Gouldman (til er útgáfa af laginu, þar sem gít- arlínan er spiluð á sítar). Árið er 1966 og enn ár í Sgt. Pepp- er. Yardbirds, leidd af hinum enda- laust leitandi Beck, heldur áfram linnulausri tilraunastarfsemi; „Still I’m Sad“, popplag sem styðst við gregorískan munkasöng hafði komið út ári áður en á þessu ári leggja fé- lagarnir grunninn að sýrurokkinu með „Shapes Of Things“ og eru nú einfaldlega eitt helsta flaggskip Breta í framsækinni popptónlist (ásamt Bítlunum og Floyd). Þetta árið kom út önnur „alvöru“ plata Yardbirds, Roger The Engineer, og titillinn einn gefur til kynna hvað þar er í gangi. Sýrurokkið var að fæðast og Roger The Engineer bar sterkan svip af Í litlum, löngum leik Hin fornfræga sveit Yardbirds heldur tónleika hér á landi í mars. Sveitin er nú sprækari sem aldrei fyrr en ný hljóðversplata kemur út í apríl, þeirra fyrsta í yfir 35 ár. Arnar Eggert Thor- oddsen segir frá sögu þessarar áhrifamiklu sveitar. Fyrsta útgáfa Yardbirds. Eric Clapton er annar frá hægri. The Yardbirds, með tvær gítarhetjur innanborðs. Jeff Beck er lengst til vinstri og Jimmy Page er í miðjunni. The Yardbirds leika á Íslandi 27. mars 18 SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.