Morgunblaðið - 23.02.2003, Qupperneq 21
Ýmsir læknar, sem komu að mót-
un Slysavarðstofunnar í öndverðu,
höfðu haft kynni af „Birmingham.
Accident Hospital“ og litu á þetta
„slysalækninga“-sjúkrahús í Birm-
ingham sem fyrirmynd að hlutverki
og starfsemi stofnunarinnar. Var yf-
irlækni þessa merka spítala, Peter
London, boðið til skrafs og ráða-
gerða á fyrstu árum Slysavarðstof-
unnar, sem aftur varð til þess, að
nokkrir læknar deildarinnar fóru til
Birmingham til kynningar og náms.
Og þegar ákvörðun var tekin um,
að deildinni skyldi valið nafnið
„Slysavarðstofan“, hafa menn án efa
haft bráðamóttökuna í Birmingham í
huga. Forráðamönnum var þó ljóst
frá byrjun, að þetta nafn var ekki
nógu lýsandi fyrir starfsemi deildar,
sem ekki átti aðeins að sinna slysum
í þrengstu merkingu þess orðs, held-
ur líka hvers konar bráðum tilvikum,
þar sem þurfti læknishjálpar við.
Annað betra heiti var þá ekki á tak-
teinum og kom heldur ekki að sök,
þar sem öllum, sem hlut áttu að máli,
mátti ljóst vera frá fyrstu dögum
deildarinnar hvers konar starfsemi
var rekin þar.
Þau ár sem deildin var til húsa í
Heilsuverndarstöðinni við Baróns-
stíg, má segja að ýmislegt hafi vant-
að í uppbyggingu og fyrirkomulag
deildarinnar til að starfsemin gæti
notið sín til fullnustu, þar eð legu-
deild vantaði, svæfingarlæknir á
skurðstofu var ekki fyrir hendi og
föst tengsl voru ekki við aðrar sér-
hæfðar spítaladeildir.
Slysadeild Borgarspítalans stofnuð
Þessi mál fóru í eðlilegan farveg,
þegar Borgarspítalinn í Fossvogi tók
til starfa og starfsemi deildarinnar
var flutt þangað vorið 1969. Slysa-
varðstofan fékk nú legudeild til um-
ráða ásamt aðstoð svæfingarlækna.
Sérfræðingum var fjölgað við deild-
ina, en þeir voru jafnframt ráðnir til
starfa á nýrri bæklunarskurðdeild,
sem stofnuð var við Borgarspítal-
ann, og skiptu þessir læknar með sér
vaktþjónustu á bráðamóttökunni.
Jafnframt var komið á nánu sam-
starfi við aðrar deildir spítalans, sem
tengdust þannig beinlínis starfsemi
þessarar nýju deildar.
Ákveðið var að breyta nafni deild-
arinnar, og fékk hún nú heitið „slysa-
deild Borgarspítalans“, sem þótti
henta betur en gamla nafnið. Segja
má að allt hafi gengið starfseminni í
haginn á nýja staðnum, enda var
deildin vel í stakk búin til að sinna
slysameðferð og annarri bráðaþjón-
ustu í hinni ört vaxandi höfuðborg.
Svo undarlega sem það hljómar í
dag, höfðu ýmsir, sem hlut áttu að
máli í heilsugæslugeiranum á þess-
um árum, lítinn áhuga á því að flytja
deildina á Borgarspítalann í Foss-
vogi. Reynslan leiddi þó fljótlega í
ljós að slysadeildin reyndist mjög
nauðsynlegur og hvetjandi þáttur í
starfsemi spítalans.
Höfundur er fyrrverandi yfirlæknir.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2003 21
B Ó K U N A R S T A ‹ A :
Ver›lækkun!
40.000kr.
ód‡rara fyrir fjölskylduna í ár
*m.v. 4ra manna fjölskyldu.
36.000*
*
kr.
afsláttur í rau›ar fer›ir a› auki
Taktu ákvör›un strax!
Aldrei hagstæ›ara a› fer›ast
til útlanda
Sko›a›u stórglæsilega fer›abæklinga okkar.
Far›u á www.urvalutsyn.is fá›u allar
nánari uppl‡singar og bóka›u á Netinu.
fiú sparar flá 1.500 kr. á mann a› auki.
Úrval-Úts‡n
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100
Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600
Selfossi: 482 1666 og hjá umbo›smönnum um land allt. www.urvalutsyn.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
03
17
02
/2
00
3
Páskar:
Portúgal - 2. apríl - Fá sæti laus
Mallorca - 2. apríl - Uppselt/bi›listi
Benidorm - 2. apríl - Örfá sæti laus
Krít - 2. apríl - Uppselt/bi›listi
Kanarí - 2. apríl - Uppselt
Kanarí - 5. apríl - Örfá sæti laus
Rau›ar fer›ir:
Portúgal - 27. maí - Uppselt
Portúgal - 17. júní - Uppselt
Portúgal - 1. júlí - Uppselt
Portúgal - 15. júlí - Uppselt
Mallorca - 29. maí - Uppselt
Mallorca - 19. júní - Uppselt
Krít - 26. maí - Uppselt
Krít - 4. ágúst - Uppselt
Benidorm - 18. júní - Uppselt
Benidorm - 2. júlí - Uppselt
Enn eru laus sæti í
a›rar fer›ir!
Bókunars
ími
í dag kl. 1
3.00-16.0
0
585 4000