Morgunblaðið - 23.02.2003, Page 29

Morgunblaðið - 23.02.2003, Page 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2003 29 INGÓLFUR Vilhjálmsson klarin- ettuleikari og Stephan Heber selló- leikari halda tónleika í Norræna húsinu á sunnudag kl. 17. Þeir nema báðir við Tónlistarháskólann í Amst- erdam og koma til landsins sér- staklega til að spila á tónleikunum. „Við höfum unnið saman í tvö ár og smellum mjög vel saman í spila- mennskunni. Við þekkjum verkin og hvor annan vel og ákváðum því að skella saman þessum tónleikum,“ segir Ingólfur, en þeir Stephan kynntust í náminu. Báðir eru þeir sérstakir áhugamenn um nútíma- tónlist eins og fram kemur í efnis- skrá tónleikanna. Þar frumflytja þeir á Íslandi verk eftir Ítalann Giacinto Scelsi og Finnann Magnus Lindberg, auk þess að leika m.a. verk eftir hina tékknesku Iris Szeghny, Bretann Benjamin Britten og Grikkjann Xenakis. Yfirskrift tónleikanna er „Vofan fór ymjandi niður í jörðina svo sem reykur“ og tengist síðastnefnda verkinu, dúóinu Charisma fyrir selló og klarinett eftir Xenakis. „Þetta er tilvitnun í Illíonskviðu eftir Hómer, tekin úr íslenskri þýðingu Svein- björns Egilssonar, en Illíonskviða varð Xenakis að innblæstri við þessa tónsmíð,“ útskýrir Ingólfur. Auk dúósins skiptast þeir félagar á um að flytja einleiksverk sem þeir hafa áður flutt á tónleikum ytra. Ingólfur segir verkin gefa innsýn í ýmislegt sem verið hefur í gerjun í samtímatónlist síðustu áratugi og þau ættu því að höfða til margra. „Yngri tóneyru eru vissulega van- ari nýjum hljóðmyndum, en það ætti alls ekki að letja aðra til þess að koma og hlusta. Sólóstykkin eru til dæmis fjölbreytt, ekki síst ef litið er til þess hvernig þau eru samin. Ítal- inn Scelsi semur sitt verk á 6. ára- tugnum og er undir austrænum áhrifum. Um miðjan aldur lagðist hann í veikindi og þunglyndi sem hann rakti meðal annars til þess hvernig hann hafði áður samið tón- list. Svo fór hann að semja á þennan nýja hátt og sneri þar með aftur, ef svo má segja. Í þessum nýja hætti er hann að rannsaka kraftinn í einni nótu, rými hverrar nótu, en síðar varð hann einmitt einn af helstu áhrifavöldum svonefndrar spektral- tónlistar.“ Ingólfur nefnir einnig sérstaklega Magnus Lindberg, sem sé einn af þekktari tónsmiðum Finna, en hann er höfundur verksins Ablauf fyrir klarínett/bassaklarínett og bassa- trommur frá 1988, sem Ingólfur leikur með slagverksleikurunum Frank Aarnink og Árna Áskelssyni. „Þetta er mjög kraftmikið eins og samsetning hljóðfæranna gefur til kynna – líklega með allra ýktustu stykkjum sem ég hef heyrt. Það er samið á stuttum tíma og sjálf tón- smíðin er mjög hiklaus,“ útskýrir Ingólfur að endingu, en auk hinna nýju tónsmíða kemur við sögu á tón- leikunum efni eftir J.S. Bach. Ingólfur Vilhjálmsson er fæddur 1976 og lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1998, BMus.-gráðu í klarínettuleik við Tónlistarháskólann í Utrecht 2000 og Postgraduate-gráðu frá Tónlistarháskólanum í Amsterdam 2002, þar sem hann fullnemur sig nú í bassaklarínettuleik hjá Eric van Deuren. Þetta eru fyrstu opinberu tónleikar Ingólfs hér á landi. Stephan Heber er fæddur 1977. Hann lauk nýlega BMus-gráðu með láði frá Tónlistarháskólanum í Amsterdam. Morgunblaðið/Jim Smart Stephan Heber og Ingólfur Vil- hjálmsson bassaklarinettuleikari. Nútímatónlist fyrir alla MBA nám Háskólans í Reykjavík er ætlað einstaklingum með háskólapróf sem vilja styrkja stjórnunar- og leiðtogahæfileika sína. Námið byggir á sterkum tengslum við virta háskóla í Evrópu og Bandaríkjunum og kemur um þriðjungur kennara frá samstarfsskólunum. Námið tekur 22 mánuði og á seinna árinu gefst nemendum kostur á að sérhæfa sig í fjármálum, mannauðsstjórnun eða Global eManagement - eða blanda saman valnámskeiðum af þessum sviðum. MBA nám Háskólinn í Reykjavík Fyrirtæki eins og Össur byggir framtíð sína á frumkvæði og nýsköpun auk þess að kunna fótum sínum forráð í alþjóðlegu samstarfi. Áframhaldandi velgengni okkar sem og annarra fyrirtækja byggir á hæfileikum starfsmanna til að greina og skapa tækifæri. MBA nám byggt á alþjóðlegum grunni undirbýr fólk til að taka ákvarðanir af meira öryggi og sjá þá þætti sem hafa áhrif á heildarmyndina. Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar Opinn kynningarfundur fimmtudaginn 27. febrúar í Háskólanum í Reykjavík Nánari upplýsingar veitir Kristrún Auður Viðarsdóttir, MBA, verkefnastjóri MBA náms HR, sími 510 6262, kristrunv@ru.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F/ SI A .I S H IR 2 03 16 0 2. 20 03 Fyrri umsóknarfrestur er til 15. apríl. Síðari umsóknarfrestur er 28. maí. Námið hefst í ágúst 2003. www.ru.is/mba MBA útskriftarhópur 2002 í Mexíkó Vertu velkomin(n) á fundinn og fáðu svör hjá nemendum í MBA náminu og forsvarsmönnum námsins við spurningunni - af hverju þú átt að velja MBA nám við Háskólann í Reykjavík. Listasafn Reykjavíkur – Hafn- arhús Kynning á verkefninu Loud & Clear verður 15. Umræðufundur um leikhúsmál verður í forsal Borgarleikhússins kl. 20.05. Útgangspunktur umræðu- fundarins verður sú „bylgja,“ sem segja má að Píkusögur hafi ýtt úr vör vorið 2001 og Sellófón, Beygl- urnar og hin Smyrjandi jómfrú. Frummælendur eru Hlín Agnars- dóttir, leikskáld og leikstjóri, Kristín Eysteinsdóttir, dramatúrg, Magnús Þór Þorbergsson, dramatúrg við LHÍ, Þorgerður Einarsdóttir, lektor og umsjónamaður námsbrautar í kynjafræði við HÍ. Að erindum loknum eru frjálsar um- ræður. Samræður í Nýlistasafninu með yfirskriftinni Afstaða í myndlist? verða kl. 14. Finnur Arnar Arn- arson, Ósk Vilhjálmsdóttir, Hlynur Hallsson og Ragna Sigurðardóttir ræða um hlutverk myndlistar og myndlistarmanna, m.a. meðvísun til yfirstandandi sýninga. Fundarstjóri er Þóroddur Bjarnason. Hjallakirkja í Kópavogi Guðmundur Sigurðsson, organisti Bústaðakirkju, leikur orgelverk eftir Oskar Lindberg, Buxtehude, Bach, de Grigny, Duke Ellington kl. 17. Aðgangur er ókeypis. Bíósalur MÍR, Vatnsstíg 10 Síðari hluti kvikmyndar Sergejs Eisen- stein um Ívan grimma verður sýnd kl. 15. Þessi síðari hluti myndarinnar vakti miklar deilur og féll ekki yf- irvöldum í geð. Enskur texti. Aðgangur ókeypis. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is Moggabúðin Músarmotta, aðeins 450 kr. Nýr listi www.freemans.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.