Morgunblaðið - 23.02.2003, Side 44
MINNINGAR
44 SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Útfararþjónustan ehf.
Stofnuð 1990
Rúnar Geirmundsson
útfararstjóri
Sími 893 8638
Komum heim til aðstoðar
við undirbúning
útfarar sé þess óskað
Sími 567 9110
www.utfararstofan.is
Sími 551 3485 • Fax 551 3645
Áratuga reynsla í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 896 8284
Eyþór Eðvarðsson
útfararstjóri
Sími 892 5057
Vaktsími allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
✝ Jón Hreiðar Eg-ilsson fæddist í
Geitagerði í Skaga-
firði hinn 2. septem-
ber 1933. Hann lést á
Sjúkrahúsinu á Seyð-
isfirði 3. febrúar síð-
astliðinn. Hann var
þriðji í röð fimm
barna þeirra hjóna
Egils Jónssonar og
Þórdísar Gunnars-
dóttur, sem bæði
voru Skagfirðingar.
Önnur börn þeirra
voru Hulda, sem er
látin, Gunnar, Björn
og Erlendur. Jón ólst upp í for-
eldrahúsum. Fluttist með þeim úr
Geitagerði að Þröm, sem báðar
voru jarðir út úr Reynistaðalandi,
og síðan út á Sauðárkrók að
Lundargötu 13.
Um tvítugt eignaðist Jón sitt
fyrsta barn, soninn Hreiðar Þór,
sem býr í Noregi. Sonur Rögnu
Magnúsdóttur. Þá
kvæntist Jón Valdísi
Helgadóttur árið
1956 og áttu þau
saman dótturina
Hrönn. Upp úr
þeirra hjónabandi
slitnaði árið 1963.
Dótturina Þorbjörgu
Erlu átti Jón síðan
með Aðalheiði
Karlsdóttur. Þá
kvæntist Jón Sjöfn
Kristínardóttur í
mars 1971 og eign-
uðust þau saman
börnin: Sigmar Óð-
in, Pálma Þór Laxdal, Huldu,
Jónu Hrund og Egil. Upp úr
þeirra sambandi slitnaði síðar. Þá
eignaðist Jón dótturina Elínu
Hörpu með Guðríði Þórarinsdótt-
ur. Með afa- og langafabörnunum
er hópurinn orðinn stór.
Útför Jóns var gerð frá Reyð-
arfjarðarkirkju 15. febrúar.
Samferðafólkið heima á Reyðar-
firði hverfur af sviði eitt af öðru og
hinzta kallið hrærir einhvern sakn-
aðarstreng í brjósti manns og minn-
ingar mætar sækja heim munans
borg. Það voru ávallt tíðindi í litlu
þorpi þegar nýtt fólk kom og settist
að og þannig var það, þegar þau
sómahjón Egill Jónsson vegaverk-
stjóri og Þórdís Gunnarsdóttir kona
hans settust að heima á sjötta áratug
síðustu aldar og áttu þar farsæla og
góða sögu allt til æviloka. Vinsæl og
vinmörg, enda góðir eiginleikar með í
för og ljóst að þessi skagfirzku hjón
undu hag sínum vel heima. Agli
kynntist ég er hann átti um skeið
sæti í hreppsnefnd Reyðarfjarðar,
tillögugóður var hann og vildi hafa
sátt í hverju máli, ef þess væri nokk-
ur kostur. Það var alltaf gott að hitta
þau hjónin, glaðleg og hlýleg hið
bezta. En þau komu ekki ein, því fjór-
ir synir þeirra urðu heimamenn, hinir
nýtustu þegnar og einn þeirra ein-
mitt kvaddur nú í dag hinztu kveðju.
Síðustu ár ævinnar urðu Jóni örð-
ug utan alls efa, þar sem óminnið
sótti á í sívaxandi mæli og hvíldin því
ugglaust kærkomin þeim sem hafði
svo mikils misst.
Jón Egilsson var maður hinnar líð-
andi stundar, röskleikamaður að
hverju sem gengið var, gleðimaður
um leið og hlýr í lund, gjarnan með
spaugsyrði á vör, vel látinn sem verk-
maður og starfsfélagi í hvívetna.
Ódeigur til verka og óvílinn, en
hann starfaði hjá Vegagerð ríkisins
heima starfstíð sína, oft við hinar erf-
iðustu aðstæður á vetrum, en farn-
aðist mætavel í verkum sínum.
Áhugamál hans mest var hestum
tengt, enda löngum verið sagt að
Skagfirðingar séu miklir hestamenn.
Það var gaman að fylgjast með Jóni
og félögum hans byggja sér hesthús
og hlöðu heima og verða sér úti um
tún sem dygði hrossaeign þeirra. Þá
var Jón í essinu sínu og gaman að sjá
ákafa hans og allt að barnslega gleði
við heyhirðingu á sumrin og ekki var
gleðin síðri, þegar setinn var góður
gæðingur og honum hleypt á skeið
eða stökk. Og alkunnu ljóðlínurnar
hans Einars Ben. áttu þarna vel við:
Knapinn á hestbaki er kóngur um stund,
kórónulaus á hann ríki og álfur.
Lífsgleði og hressileiki koma fyrst
í hug þegar Jóns Egilssonar er
minnzt nú við leiðarlok. Glaður hlátur
og glettin tilsvör hans óma við eyrum
í ágætri minning.
Samfylgdin þekk er þökkuð í dag,
þegar Jón Egilsson er kvaddur, hann
var ævinlega gott að hitta á góðum
degi, glaðbeittan og snarpan í öllu
fasi.
Börnum hans sendum við Hanna
einlægar samúðarkveðjur.
Og nú mun skellt á skeið á gæðingi
góðum á grænum völlum eilífðarinn-
ar og vísast enginn þar glaðari og
reifari en hann Jón minn Egilsson.
Blessuð sé minning hans.
Helgi Seljan.
Mörgum er minnisstætt er Jón
Egilsson fluttist á Reyðarfjörð árið
1955 með foreldrum sínum og systk-
inum úr Skagafirði. Egill Jónsson,
faðir Jóns. hafði þá verið skipaður yf-
irverkstjóri hjá Vegagerðinni á
Reyðarfirði.
Jón ólst upp við sumarvinnu í
vegagerð þar sem faðir hans var
verkstjóri víða, meðal annars í
Skagafirði, Norður-Þingeyjarsýslu
og Langanesströnd, áður en sest var
að á Reyðarfirði. Jón byrjaði fljótlega
að aka dráttarbíl Vegagerðarinnar
U-2 og var þekktur bílstjóri víða um
land eftir margar svaðilfarir í mis-
jöfnum veðrum og á erfiðum vegum
fyrri ára.
Hestamennska var Jóni í blóð bor-
in sem sönnum Skagfirðingi. Ásamt
öðrum stóð hann að byggingu fyrsta
hesthússins í hesthúsahverfinu inni á
Nesi. Sérstaklega var vandað til
hússins sem brátt fylltist af hestum.
Jón var þar flestum stundum í frí-
tíma sínum og sýndi hestum sínum
mikla natni. Margir fórum við í út-
reiðartúra með Jóni og minnisstæð-
astar eru ferðirnar yfir Þórdalsheiði
sem reynt var að fara á hverju sumri
og gjarnan gist í Skriðdalnum.
Eftir áralangt starf við slítandi
akstur dráttarbíla og erfiðan snjó-
mokstur missti Jón heilsuna fyrir
fjórum árum og lét þá af störfum. Við
minnumst Jóns fyrir langt og
ánægjulegt samstarf og góð kynni og
vottum aðstandendum hans innilega
samúð við fráfall hans.
Vegagerðarmenn
á Austurlandi.
JÓN
EGILSSON
Með fráfalli Ársæls Pálma, eða
Palla frænda eins og við systrabörn-
in kölluðum hann alltaf, er horfið sjö-
unda og síðasta barnabarn Ólafs
Jónssonar, f. 1832, d. 1919, og Guð-
rúnar Bjarnadóttur, f. 1848, d. 1912,
sem byggðu fyrst Ólafsvelli á Akra-
nesi.
Palli frændi ólst upp við mikið ást-
ríki foreldra sinna enda eftirlæti
þeirra og einkasonur. Hann lærði
netagerð við Iðnskólann á Akranesi
og stundaði iðn sína hjá Nótastöðinni
hf. sem var í eigu Þorgeirs Jónsson-
ar. Árið 1952 fór Palli til Noregs og
hóf fljótlega störf hjá netaverkstæði
Jóhanns Foss í Spjelkavík, nálægt
Álasundi. Jóhann og kona hans Her-
borg reyndust Ársæli betur en nokk-
ur nákominn ættingi. Hann bjó á
heimili þeirra í áratugi, eða þar til
hann festi kaup á eigin húsnæði á
áttunda áratugnum.
Palli kom reglulega í heimsókn til
Íslands. Við, systrabörn hans, mun-
um eftir skemmtilegum og uppá-
tækjasömum frænda. Hann sýndi
okkur og fjölskyldum okkur áhuga,
ÁRSÆLL PÁLMI
BJARNASON
✝ Ársæll PálmiBjarnason fædd-
ist á Ólafsvöllum á
Akranesi 25. janúar
1922. Hann lést á
heimili sínu í
Spjelkavík (Ála-
sundi) í Noregi 8.
febrúar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Bjarni Ólafsson, sjó-
maður og bóndi frá
Ólafsvöllum, Akra-
nesi, f. 19.12. 1874, d.
24.8. 1963, og kona
hans Guðrún Eyjólfs-
dóttir, húsmóðir, frá
Arnarholtskoti í Stafholtstungum,
f. 6.6. 1881, d. 4.10. 1954. Ársæll
Pálmi var yngstur fjögurra systk-
ina, en eldri voru Ólöf Guðrún, f.
1915, d. 2001, Elín Karitas, f.
1917, d. 1997, og Jóna Þorbjörg, f.
1919, d. 1973. Útför Ársæls Pálma
var gerð í kyrrþey.
þótt frændgarðurinn
yrði fljótt stór. Palli var
góður við börn og átti
auðvelt með að laða þau
að sér. Eins eigum við
mörg góðar minningar
frá heimsókn okkar til
Palla frænda í Noregi.
Spaugsemi hans og
grallaragangi voru
engin takmörk sett.
Það kunni unga fólkið
að meta.
Segja má að Noreg-
ur hafi orðið annað föð-
urland Palla. Hann
fæddist á Íslandi en ber
nú beinin í Noregi, norskur ríkis-
borgari. Hann er afkomandi Norð-
manna sem á sínum tíma þoldu ekki
ófrelsi og fóru til Íslands. Sjálfur
fann hann frelsi sitt í Noregi.
Ættingjar Ársæls Pálma vilja
senda alúðarþakkir til stórfjölskyldu
Jóhanns Foss. Við höfum mörg notið
gestrisni fjölskyldunnar þegar við
heimsóttum Palla frænda. Heim-
kynni hans í um hálfa öld, Spjelka-
vík, mun ætíð vera í huga okkar sér-
stakur staður sem tengir vel saman
Ísland og Noreg.
Við kveðjum Ársæl Pálma með
söknuð í hjarta en geymum margar
góðar minningar um mætan frænda í
huga okkar.
Börn Elínar Karitasar
og Ólafar Guðrúnar
Bjarnadætra.
Afmælis- og minningargreinum má skila í
tölvupósti eða á disklingi (netfangið er
minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um
leið og grein hefur borist). Ef greinin er á
disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð-
synlegt er að símanúmer höfundar og/eða
sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi
með. Þar sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina, enda þótt
þær berist innan hins tiltekna frests. Nán-
ari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern lát-
inn einstakling birtist formáli og ein aðal-
grein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en
aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300
orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50
línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn-
anir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til
þrjú erindi. Einnig er hægt að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 lín-
ur, og votta virðingu án þess að það sé gert
með langri grein. Greinarhöfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.