Morgunblaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 68
68 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 8 og 10.05. B.i.14 ára. Sýnd kl. 10. B.i.12 ára. Sýnd kl. 3. B.i.14 ára. Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 3, 6 og 8.
Frábær
rómantísk
gamanmynd
sem hefur
allstaðar
slegið í
gegn.
Sýnd kl. 3, 5, 6, 8, 9 og 11. B. i. 12 ára.
The Matrix og The Matrix Reloaded kl. 12 á miðnætti. B. i. 16 ára.
The Matrix og The Matrix Reloaded kl. 12 á miðnætti.
Sýnd kl. 3.15, 5.40, 8 og 10.20.
KEFLAVÍK / ÁLFABAKKI / ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4. / Sýnd kl. 2. Tilboð 500 kr. / Sýnd kl. 2.
Frábær
rómantísk
gamanmynd
sem hefur
allstaðar
slegið í
gegn.
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI
ÁLFABAKKI / ÁLFABAKKI/KRINGLAN / ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára / Sýnd kl. 2 og 3.50./ Sýnd kl. 2 / Sýnd kl. 8. B.i. 14 ára
ÁLFABAKKI / AKUREYRI
Sýnd kl. 2, 4 og 6. / Sýnd kl. 2.
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.20. / Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.20. / Sýnd kl. 4 og 6.
HVAÐ eiga Íslendingur, Norð-
maður, Svíi, sex listamenn og fyr-
irtæki og íslenska sauðkindin sam-
eiginlegt? Svarið er verkefni á
vegum fyrsta árs nema í KaosPilot-
skólanum í Árósum í Danmörku.
Nemendurnir María Rut Reyn-
isdóttir (Íslendingur), Harald Hal-
vorsen (Norðmaður) og Jonas Joel-
son (Svíi) ákváðu að bæta ímynd
sauðkindarinnar á Íslandi.
„Sauðkindin hefur í tímanna rás
gegnt mikilvægu hlutverki í ís-
lensku þjóðfélagi en í dag hefur hún
tapað virðingu sinni og er að miklu
leyti gleymd,“ útskýra þau í til-
kynningu.
Þetta er prófverkefni hjá þeim í
skólanum, sem er frumkvöðla- og
leiðtogaskóli. Leggur hann áherslu
á samstarf lista- og atvinnulífs.
Verkefnið um sauðkindina snýst
einmitt um slíkt samstarf.
„Skólinn byggist á því að maður
eigi að læra með því að gera. Ég lít
á þetta eins og að vera á vernd-
uðum vinnustað í þrjú ár,“ grínast
María Rut.
Hún segir að listamennirnir hafi
tekið þeim opnum örmum. Í upphafi
voru þeir tíu en á endanum tóku sex
fyrirtæki þátt og er María Rut sér-
lega ánægð með þátttöku þeirra.
Verkefnið hefst formlega í dag
og lýkur 16. júní. Eins og áður sagði
eru sex listamenn og sex fyrirtæki
þátttakendur í verkefninu og er
samstarfinu þannig háttað að hver
listamaður vinnur listaverk fyrir
tiltekið fyrirtæki. Listaverkið þarf
bæði að tengjast starfsemi fyr-
irtækisins og sauðkindinni og því
standa listamennirnir frammi fyrir
talsverðri áskorun.
Þess má geta að til viðbótar tekur
Magnús Sigurðarson þátt í verkefn-
inu með verki á forsíðu Lesbók-
arinnar í dag.
Morgunblaðið/Arnaldur
Uppreisn
ærinnar
ingarun@mbl.is
Hekla – Ilmur Stefánsdóttir
Safe Road Sheep
Hvað hefur sauðkindin með
bíla að gera? Jú, hún lendir
gjarnan á grillinu framan á
þeim. Gæti loftpúði komið
þeim til bjargar?
Smáralind ehf. –
Steingrímur Eyfjörð
Heimalingur
Hver vill ættleiða heima-
ling? Eftir 6 mánuði verður
hann að kind og þá eru allar
afurðir hans þínar.
OgVodafon –
Ingibjörg Magnadóttir
Án nafns
Viltu ræða við sauðkindina?
Nýjasta samskiptatækið að-
stoðar þig við það. Einnig
verður ullin teygð og toguð í
verki Ingibjargar.
Lyfja hf. –
Bjargey Ólafsdóttir
Án nafns
Draumastaður flökkuhrúts
sem er lasinn og sólginn í
lyfjagrös er í verslunum Lyfju.
Íslandsbanki –
Þóra Þórisdóttir
Fjárfesting
Skúlptúr sem byggist á
táknmyndum og orðaleikjum
og fjallar um markaðsstöðu
myndlistar í dag og mismun-
andi verðmætamat.
IMG –
Ásmundur Ásmundsson
Án nafns
Á borðum verður íslensk
kjötsúpa. Óvenjulegur fundur
var haldinn í húsakynnum
IMG á föstudag. Fundarefni:
Íslenska sauðkindin.
Á MIÐJUM áttunda áratugnum
réð fönkrokksveitin Júdas lögum
og lofum á ballmarkaðinum um
hríð. Hún var þá langvinsælasta
sveit landsins og enginn þótti
skáka Júdasi í stuði og skemmti-
legheitum á tónleikum. Nú hefur
Magnús Kjartansson, leiðtogi
sveitarinnar, blásið í herlúðra og
ætla félagarnir að trylla lýðinn á
Kringlukránni í kvöld.
„Þegar við byrjuðum á sínum
tíma var mikil gróska í Keflavík,“
útskýrir Magnús, þar sem hann og
blaðamaður fletta í gegnum forláta
úrklippubók. Þetta var í upphafi
sjöunda áratugarins en Magnús og
félagar í Júdas léku í ýmsum bönd-
um áður en umrædd sveit varð að
veruleika árið 1969. „Okkur langaði
einfaldlega meira til að vera uppi á
sviði en úti í sal. Maður lifði fyrir
þetta – algerlega.“ Magnús segir
að Júdas hafi samanstaðið af strák-
unum í hverfinu, allir hafi þeir
þekkst frá blautu barnsbeini eða
svo gott sem. Bassaleikarinn, Finn-
bogi, er t.a.m. bróðir Magnúsar.
„Pétur Kristjáns sagði einhvern
tíma að þegar Pelican kom aftur til
Íslands frá Bandaríkjunum eftir
plötugerð þá hefðu þeir ekki kom-
ist að fyrir einhverri unglinga-
hljómsveit úr Keflavík sem spilaði
ekkert nema bíómynda- og negra-
músík!“
Magnús segir að í dag sé Jagúar
að gera svipaða hluti og Júdas var
að gera á sínum tíma.
„Þeir eru það sem við vildum
alltaf vera. Svona gleði/fönk/grúv-
hljómsveit. Við bara höfðum ekki
efni á blásurum (hlær).“ Magnús
segir loks að það sé hugur í þeim
félögum og vel sé mætt á æfingar.
„Okkur finnst þetta voða gaman.
Þetta snýst auðvitað aðallega um
að hitta vini sína. Við gerum þetta
bara af því að við höfum gaman af
þessu...“
Goðsagnir troða upp á Kringlukránni í kvöld
Heitur Júdasarkoss
Svona var það ’76!
arnart@mbl.is