Morgunblaðið - 06.07.2003, Side 6

Morgunblaðið - 06.07.2003, Side 6
FRÉTTIR 6 SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ ER pollamót á Akureyri. Og enginn pollanna undir þrí-tugu. Pollarnir mæta í drullugalla; hópar af pollum í eins lit-um stuttbuxum og bol. Einn af pollunum er blaðamaður í Ufsatreyju. Hafþór Kolbeinsson og Mark Duffield heilsa honum á miðjunni fyrir fyrsta leikinn. – Sælir, segir blaðamaður kumpánlega. – Þekki ég þig, spyr Hafþór undrandi. – Ég er gamall KA-maður, svarar blaðamaður, sem fylgdist með þeim úr stúkunni á Akureyrarvelli sem strákur. Þá spiluðu þeir fyrir KA. Aldrei hefði hann trúað að þeir ættu eftir að mætast. Hafþór skoraði mörkin. Duffield var múrbrjóturinn. Hann var svo öflugur að hann bæði tók markspyrnurnar og vann skallaeinvígin þegar boltinn barst út á völlinn. – Mér líst ekkert á þetta, segir lítt kjarkaður fram- herji Ufsans. Og bætir við: Ég er skíthræddur. – Það þýðir ekkert að vera hræddur, segir hákarl- inn í vörninni. Þá erum við bara dauðir. Svo tapast leikurinn. Í sjoppunni byrjuðu Þórsararnir að smyrja sam- lokur sex um morguninn. Í salnum situr ungur strák- ur hjá föður sínum. – Ert þú að spila, spyr blaðamaður strákinn. Ekki ert þú orðinn þrí- tugur? – Nei, svarar stráksi. – Ertu þá að hvetja pabba? – Já, svarar hann. – Er hann bestur? – Já. – Er hann búinn að skora? – Ég veit það ekki, segir strákurinn og sneiðir hjá því að svara spurningunni neitandi. – Þetta var óþverraspurning, segir faðirinn og kímir. Á KA-vellinum er Esso-mótið haldið. Þar keppa yngri flokkar drengja. Hópur hrópandi foreldra stendur á hliðarlínunni og fylgist með. – Hvernig er staðan, spyr blaðamaður forvitinn. – 2-1 fyrir ekki ÍR, svarar raunamædd móðir. – Fyrir hitt liðið, bætir faðirinn við. Og nóg komið af rausi. Þau taka aftur til við að hrópa. – Allir fram! – Magnús, þú verður að fara fram! – Þetta er brot! – Nota kantana! – Og skjóta svo! – Pressa, ÍR-ingar! Leikurinn er flautaður af. Foreldrarnir taka ósigrinum vel; aðal- atriðið er jú að vera með. Ólympíuandinn. Á pollamótinu keppir Friðrik Steingrímsson frá Mývatnssveit með UMFB ásamt fleiri hagyrðingum. Þeir töpuðu fyrsta leiknum. – Við kölluðum okkur kviðlingana í fyrra, segir hann og fer með vísu: Hópurinn þó virðist veill víst þó snúist getur; fall er jafnan fararheill, nú fer að ganga betur. Einn strákanna meðal áhorfenda segir að pabbi sinn haldi með Fram, Tottenham, Breiðablik og Íslandi. – Heldur þú með Íslandi? spyr hann blaðamann. Þannig geta menn verið ákveðnir í skoðunum sínum á fótbolta, ekki síður en stjórnmálaskoðunum. Gallharður KA-maður segist líta svo á að Þórsvöllurinn tilheyri Dalvík. Akureyri sé hinumegin við Glerá. Hann hefur barnalæsinguna á vinstra megin og hleypir farþegum að- eins út hægra megin. – Eruð þið hérna? kallar blaðamaður á leið í búningsklefann og er að leita að félögum sínum úr Ufsanum. – Við erum naktar! heyrist hrópað úr klefanum. Eins og það sé til þess fallið að stöðva blaðamann. Hann rýnir betur í klefanúmerið og sér skrifað með smáu letri undir númerinu sex: „kvennaklefi“. Það rennur upp fyrir honum að hann skipti um föt í kvennaklefanum um morguninn. Og nú eru fötin í gíslingu. Þær sjá aumar á honum, sveipa sig handklæðum og leyfa honum að sækja fötin. Það er laugardagsmorgunn. Nú eru 32 liða úrslitin að byrja. Þar mætir Ufsanum Draumurinn. Hvað dreymir Ufsa? Segir svo ekki meira af ævintýrum Ufsans. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Pabbi er bestur SKISSA Pétur Blöndal tók þátt í pollamótinu í knattspyrnu PETER Katzenstein segir stærð ríkja ekki alltaf skipta mestu máli fyrir áhrif þeirra og velgengni. Lítil ríki og stór ríki geti átt það sameig- inlegt að hafa vitlausa ráðamenn og afraksturinn verði eftir því. Katzen- stein var á fimmtudag viðstaddur opnunarhátíð Rannsóknaseturs um smáríki en hann er einn virtasti og þekktasti fræðimaður í smáríkja- rannsóknum í heiminum. Katzenstein er fæddur í Þýska- landi en flutti til Bandaríkjanna eftir menntaskóla og er nú prófessor við Cornell-háskóla. Bækur Katzen- steins eru kenndar í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og hefur fjöldi námsmanna stuðst við kenningar hans um hegðun smáríkja í alþjóða- kerfinu í lokaverkefnum. Katzenstein segir að í heildina hafi smáríki í reynd staðið sig vel allt frá því á þriðja eða fjórða áratugnum þegar ákveðin uppstokkun varð í al- þjóðamálum vegna kreppunnar miklu. „Þau endurskipulögðu öll sín mál og við nýjar aðstæður eftir 1945 stóðu þau sig mun betur.“ Segir Katzenstein að aðstæður í Austur-Evrópu eftir fall kommún- ismans 1989 séu að sumu leyti svip- aðar. Austantjaldsþjóðirnar hafi hins vegar utanaðkomandi aðila, Evrópusambandið, sem sífellt skipi þeim fyrir verkum. „Þau vildu ganga í ESB hvort eð var en við þessar að- stæður hafa þau ekki átt neinn val- kost.“ Það er á hinn bóginn skoðun Katz- ensteins að smáríki muni standa vel að vígi í Evrópusambandi framtíð- arinnar. „Ég hef engar áhyggjur af þeim,“ segir hann. „En auðvitað skiptir máli hvaða augum þú lítur Evrópu. Ég lít á ESB sem nýtt stig stefnumörkunar og ákvarðanatöku, sem viðbót við þá sjálfsmynd [sem íbúarnir búa yfir]; ég lít ekki á það sem arftaka þeirra stofnana sem fram að þessu hafa tekið stefnumót- andi ákvarðanir [fyrir íbúa Evrópu, þ.e. ríkisstjórnir einstakra landa] eða að það komi í staðinn fyrir þá sjálfsmynd sem er fyrir. Þetta er þróun sem á sér stað og menn taka þátt í.“ Katzenstein nefnir Portúgal og Ír- land sem dæmi um smáríki sem hafa grætt verulega á aðild að ESB. Er hann þá spurður hvort hér þurfi ekki að skil- greina hvað sé smáríki og hvað ekki; Portúgal sé hugsanlega smá- ríki við hliðina á Þýskalandi og Frakklandi en Íslendingar líti það varla þeim aug- um. Þessu svarar Katzenstein svona: „Þeir líta sjálfir á sig sem smáríki og það skiptir auðvitað miklu máli. Portúgal hefur síðan líka verið afar fátækt ríki sem skiptir máli í þessu samhengi. Ábendingin er þó rétt, það skiptir alltaf máli hvernig ríki og þjóðir skil- greina sjálf sig.“ Erum ekki ein á báti Katzenstein segir mörg örríki í heiminum, Ísland sé alls ekkert ör- ríki. Mörg örríkjanna hafi það hins vegar fínt. Skýringin felist þó að hluta til vissulega í því að ríki taki höndum saman þegar það skiptir máli og sömuleiðis að þau geri samn- inga við önnur ríki. „Hitt skiptir líka máli hvers konar stjórnarfar er á hverjum stað,“ segir Katzenstein. „Þú getur verið smáríki sem aðhyll- ist einangrunarhyggju og verndar- tollastefnu, eins og t.d. Albanía og Norður-Kórea. En það er ekki gáfu- legt, þú verður að hagnýta þér aukið frelsi í alþjóðaviðskiptum. Spurning- in er kannski hvernig þú opnar hag- kerfi þitt án þess að verða algerlega háður ytri öflum. Stefna þín í þessum efnum lýtur lögmálum markaðarins en þú getur samt áfram ráðið hver stefnan er. Og hún ræðst af stjórn- málum hvers ríkis fyrir sig og sjálfs- mynd þjóðar. Svo er það nú líka þannig að ríkj- um getur verið illa stjórnað af því að þeim stýra misgáfaðir menn. Stærð skiptir ekki alltaf öllu máli.“ Katzenstein segir það rétt að stór- þjóðir geti haft tilhneigingu til að líta svo á að tiltekin smáþjóð skipti litlu máli. Þá beri að huga að því að ekki séu nema sex til átta mjög stór ríki í heiminum, flest hinna 160–170 ríkjanna í heiminum séu lítil. „Það er því ekki eins og þið Íslendingar séuð einir á báti. Stundum er menn mun meira einmana ef þeir eru stórir.“ Rannsóknasetur um smáríki opnað í Reykjavík „Stærð skiptir ekki alltaf öllu máli“ Peter Katzenstein Morgunblaðið/Sverrir Ólafur Ragnar Grímsson forseti heilsar Lennart Meri, fyrrverandi forseta Eistlands, á setningarathöfn Rannsóknaseturs um smáríki sl. fimmtudag. „VIÐ erum of lítil ein okkar liðs til að rödd okkar heyrist,“ segir Tuil- oma Neroni Slade, sendiherra Sam- óa-eyja hjá Sameinuðu þjóðunum, um mikilvægi Sambands smárra eyríkja (AOSIS) en Slade hefur lengi gegnt trúnaðarstörfum fyrir samtökin. „Það er auðvelt að gleymast ef maður er úti í jaðr- inum. Það er því ljóst að samstarf gefur okkur betri möguleika á að koma áhersluatriðum okkar á fram- færi, eykur líkurnar á því að okkur takist að fá aðrar þjóðir til að hlusta og taka mark á okkur.“ Slade var meðal heiðursgesta á opnunarhátíð Rannsóknaseturs um smáríki í Reykjavík á fimmtudag- inn. Hann lætur senn af embætti sendiherra Samóa hjá SÞ en hann hefur verið kjörinn einn af dóm- urum Alþjóðasakamáladómstólsins nýja sem tók til starfa í Haag í Hol- landi í fyrra. Fjörutíu og þrjú ríki tilheyra AOSIS og koma þau úr öllum heimshornum. Aðspurður segir Slade að þar sé einkum að finna þróunarríki, Ísland sé ekki aðili að sambandinu, enda skilgreint sem eitt af þróaðri ríkjum heimsins. Meðal meðlima eru hins vegar ríki eins og Kúba, Jamaíka, Singa- pore, Malta, Kýpur og síðan fjöldi smárra ey- ríkja í Kyrrahafi og Suður-Atl- antshafi. Á bilinu 170 og 180 þúsund manns búa á Samóa-eyjum og Slade segir eyjarskeggjana hafa áhyggjur af mörgum sömu málun- um og Íslendingar þó að fjarlægðin sé mikil. „Við höfum eins og þið Ís- lendingar haft miklar áhyggjur af ástandi sjávarins og lífríkis í haf- inu,“ segir hann. Þá hafi eyjarskeggjar miklar áhyggjur af afdrifum kóralrifja sem eru ferðamannaiðnaðinum mikilvæg í þessum heimshluta. Sömuleiðis skapi hækkandi yfirborð sjávar hættu fyrir margar eyjanna er til- heyra Samóa. Slade bendir einnig á að loftlags- breytingar snerti allar þjóðir heimsins og þar sé um málaflokk að ræða sem íbúar Samóa og aðilar að AOSIS setji mjög á oddinn. Losun gróðurhúsalofttegunda frá stórum ríkjum hafi slæm áhrif á lífsskilyrði þeirra minni, „sem ekki eru í reynd ábyrg fyrir þessum alheimsvanda“. „Markmið okkar er þó ekki að kvarta og kveina sem smáríki held- ur leita leiða til að taka á vandamál- unum. Það skiptir mestu þegar til lengri tíma er litið. Í raun er það tilgangur samstarfsins, að undir- strika að um vanda sé að ræða sem snerti alla jarðarbúa,“ segir Slade. Þurfum að leggja hart að okkur Slade tekur undir að það kunni að einkenna litlar eyþjóðir að þær líti betur í kringum sig en stórþjóð- irnar, þekki umheiminn betur. „Ástæðan er sú að við þurfum að leggja harðar að okkur. Vegna ým- issa þeirra vankanta sem tilheyra því að vera svo lítill eru eyríki sem okkar oft algerlega háð stærri lönd- um. Þú þarft því að vinna þig upp úr því hugarfari að lifa á ölmusu annarra, þú þarft að styrkja sjálfs- mynd þína og tækifæri til að standa á eigin fótum. Það fylgir semsé því að vera lítill að þú þarft að leggja harðar að þér; horfa í kringum þig, vera opinn fyrir umheiminum,“ seg- ir hann. Samstarf eykur líkur á því að í okkur heyrist Tuiloma Neroni Slade

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.