Morgunblaðið - 06.07.2003, Page 32
FRÉTTIR
32 SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Einbýli
Hæðir
3ja herbergja
Brekkutún - fallegt einbýli
Mjög fallegt og vel viðhaldið þrílyft 270 fm
einbýlishús með innbyggðum bílskúr á mjög
eftirsóttum og rólegum stað í Kópavoginum,
Fossvogsmegin. Garðurinn er glæsilegur.
Eignin skiptist m.a. í hol, snyrtingu, eldhús,
búr, borðstofu, stofu og herbergi á aðalhæð-
inni. Á efri hæðinni er sjónvarpshol, þrjú her-
bergi og baðherbergi. Á neðstu hæðinni er
þvottahús, bílskúrog gott geymslurými. V.
29,9 m. 3461
Rauðlækur - m. bílskúr
4ra herb. hæð í fjórbýlishúsi ásamt bílskúr.
Hæðin skiptist í hol, tvö herbergi, tvær sam-
liggjandi stofur, eldhús og bað. Nýtt eldhús
og nýl. bað. Laus strax. V. 14,7 m. 3391
Birkimelur - frábær staðsetning
Falleg 3ja herb. 80 fm íbúð á 2. hæð í fjölbýl-
ishúsi, sem hefur verið stand-sett á glæsi-
legan hátt. Íbúðin skiptist í stofu, tvö her-
bergi, hol, eldhús, bað, geymslu og suðursval-
ir. Gott skipulag. Falleg íbúð. V. 12,4 m. 3470
2ja herbergja
Selvogsgrunn
Falleg og mikið endurnýjuð íbúð á 2. hæð.
Íbúðin er óvenju rúmgóð og skiptist í hol,
herbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og g-
eymslu. Nýjar innihurðir og búið að endur-
nýja rafmagn. Nýtt parket og eldhúsinnrétt-
ing. Húsið er í góðu ástandi, m.a. nýlega
klætt að utan með Steni. V. 11,2 m. 3462
Eskihlíð - 3ja á 1. hæð
Falleg og björt 74 fm íbúð á 1. hæð, er skipt-
ist í hol, tvö herbergi, stofu, eldhús og bað-
herbergi. Sv-svalir. Rúmgott eldhús með fal-
legri eldri innréttingu. Í kjallara fylgir sér-
geymsla. V. 11,2 m. 3469
Hátún - útsýni
Opin og björt 73 fm íbúð á 4. hæð í nýlega
viðgerðu lyftuhúsi með glæsilegu útsýni. Íbúð-
in skiptist í samliggjandi stofu, borðstofu, eld-
hús og hol. Tvö svefnherbergi og baðherbergi.
Ný endurnýjað baðherbergi og parket á gólf-
um. V. 11,6 m. 3468
Snorrabraut 56 - með bílskúr
Vorum að fá í einkasölu glæsilega 90 fm íbúð
á 6. hæð í lyfthúsi. Íbúðinni fylgir auk þess
26 fm bílskúr. Stórglæsilegt útsýni. Sérstak-
lega fallega innréttuð íbúð. Tvennar svalir á
hæðinni. Íbúðin fæst einnig keypt án bílskúrs
og er verðið þá 16,2 m. Nánari upplýsingar
veitir Magnea Sverrisdóttir í síma 861 8511.
V. 18,2 m. 3336
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði Nýkomið í einkasölu sérl. gott húsnæði á efstu hæð í lyftuhúsi
(penthouse), samtals ca 170 fm. Húsnæðið skiptist í 3-4 skrif-
stofur, snyrtingu, eldhús o.fl. Rúmgóðar svalir. Stórt herbergi í
risi fylgir. Parket. Frábær staðsetn. í borginni. Áhv. hagst. lán.
Verðtilboð. 98783
Magnús Emilsson löggiltur fasteignasala
Austurstræti - Rvík - skrifsth.
Hjallabrekka -
Glæsilegt atvinnuhúsnæði
Glæsilegt 820 fm atvinnuhúsnæði á götuhæð með mikilli lofthæð
(5 m), góðum gluggafrontum og tvennum innkeyrsludyrum. Mikill
fjöldi bílastæða er á lóð. Eignin hentar vel fyrir ýmiss konar starf-
semi s.s. sérverslanir, lager og heildsölur. Til greina kemur að
selja eða leigja eignina. Laus strax. 3465
BÍLAR slökkviliðs Akraness fóru
í „lest“ frá gömlu slökkvistöðinni
við Laugarbraut fyrir helgi og
kvöddu gömlu stöðina með tákn-
rænum hætti og miklum hávaða,
sírenuvæli og blikkandi ljósum.
Var ekki laust við að margir bæj-
arbúar hafi hrokkið í kút er
„lestin“ fór af stað líkt og um
stórbruna væri að ræða. Hins
vegar var aðeins um táknræna
athöfn að ræða þar sem slökkvi-
liðið hefur fengið nýtt aðsetur við
Kalmanvelli en þar er einnig að-
setur björgunarsveitar Akraness,
og allur sá útbúnaður sem þeirri
starfsemi fylgir.
Nýja slökkvistöðin er um 670
fermetrar að flatarmáli og mun
stærri en sú gamla við Laug-
arbraut.
Jóhannes Engilbertsson
slökkviliðsstjóri segir á heima-
síðu Akraneskaupstaðar að að-
staðan sé nú öll hin besta. Gamla
slökkvistöðin hafi verið orðin of
lítil og þjónaði engan veginn
þörfum nútíma slökkviliðs. Auk
þess er staðsetning nýju stöðv-
arinnar miðsvæðis fyrir þjón-
ustusvæði slökkviliðsins og vax-
andi bæjarfélag.
Auk Akraness sinnir slökkvilið-
ið brunavörnum í hreppunum
sunnan Skarðsheiðar allt frá
Botni og að Borgarfjarðarbrú
auk Hvalfjarðarganganna í sam-
starfi við Slökkvilið höfuðborg-
arsvæðisins.
Jóhannes er eini fastráðni
starfsmaður slökkviliðsins en að
auki eru 29 slökkviliðsmenn sem
svara kallinu þegar til þeirra er
leitað.
Morgunblaðið/Sigurður ElvarBílafloti Slökkviliðs Akraness kveður gömlu stöðina við Laugarbraut.
Slökkvistöðin kvödd
með sírenuvæli
Akranesi. Morgunblaðið.
FRAMKVÆMDASTJÓRN sam-
bands ungra framsóknarmanna hef-
ur sent frá sér ályktun um húsnæð-
ismál. Í henni er algjörlega hafnað
hugmyndum um einkavæðingu hús-
næðislána. „Sú ríkisábyrgð sem
Íbúðalánasjóður hefur á að skipa,
en viðskiptabankarnar í landinu
ekki, gerir honum kleift að bjóða
upp á afar hagstæða vexti fyrir all-
an almenning. Háir vextir bank-
anna á viðskiptalánum eru ekki til
þess fallnir að auka trú manna á því
að þeir muni halda jafn litlum
vaxtamun og Íbúðalánasjóður ger-
ir.“
Í ályktuninni er jafnframt mót-
mælt ályktun Sambands ungra
sjálfstæðismanna um húsnæðislán
og Íbúðalánasjóð. „Í ályktun SUS
kemur fram að með hækkun láns-
hlutfalls og hámarksupphæðar hús-
næðislána muni fasteignaverð
hækka.
Jafnframt er í ályktuninni gert
ráð fyrir því að algjör stöðnun verði
í framleiðslu íbúðarhúsnæðis. Verð
á íbúðarhúsnæði þarf þvert á móti
ekki að hækka þótt lánshlutfall
hækki, því með aukinni kaupgetu á
húsnæðismarkaðinum ætti fram-
leiðsla íbúðarhúsnæðis að aukast,
sem myndi vega á móti hækkun
húsnæðisverðs vegna hækkunar há-
markslána. Af því leiðir að mark-
aðsöflin myndu skapa nýtt og hag-
stæðara jafnvægi á
húsnæðismarkaðinum.“
Hafnar einkavæð-
ingu húsnæðislána
LÖGREGLAN í Reykjavík lýs-
ir eftir vitnum að umferðar-
óhappi er varð á gatnamótum
Höfðabakka/Strengs, föstudag-
inn 4. júlí kl.18:16. Þarna varð
árekstur með blárri Toyota
Corolla fólksbifreið, sem ekið
var norður Höfðabakka og
beygt til vesturs á gatnamótun-
um, og rauðri Toyota Avensis
fólksbifreið, sem ekið var suður
Höfðabakka inn á gatnamótin.
Þeir sem upplýsingar geta veitt
ummál þetta eru vinsamlega
beðnir um að hafa samband við
lögregluna í Reykjavík.
Lýst eftir
vitnum
Grasaferð í nágrenni Reykjavíkur
Náttúrulækningafélag Íslands
stendur fyrir grasaferð í nágrenni
Reykjavíkur þriðjudaginn 8. júlí kl.
17.30. Áætlað er að ferðin taki um 3
klst. Farið verður undir leiðsögn
Ásthildar Einarsdóttur grasalæknis
og fegrunarsérfræðings. Tíndar
verða jurtir til tegerðar og fleira,
ásamt fræðslu um ágæti og eig-
inleika íslenskra jurta. Boðið verður
upp á jurtate og brauð unnið úr líf-
rænt vottuðu hráefni.
Allir eru velkomnir, jafnt börn sem
fullorðnir. Skráning og upplýsingar
eru gefnar á skrifstofu Nátt-
úrulækningafélags Íslands.
Fyrirlestur um hafís
Dr. Bill Emery, prófessor við Color-
ado-háskólann í Boulder, heldur fyr-
irlesturinn „Gervitunglamælingar á
hreyfingum hafíss og breytingum á
aldri heimskautaíssins“ í húsakynn-
um Veðurstofu Íslands, miðvikudag-
inn 9. júlí kl. 14.
Fyrirlesturinn er á vegum IEEE á
Íslandi, Veðurstofu Íslands og raf-
magns- og tölvuverkfræðiskorar
verkfræðideildar Háskóla Íslands.
Allir eru velkomnir.
Eyrbyggjuþing í Stykkishólmi
Stofnun Sigurðar Nordals og Snæ-
fellingar gangast fyrir Eyrbyggju-
þingi í barnaskólanum í Stykk-
ishólmi dagana 30.–31. ágúst nk.
Farið verður á sögustaði í fylgd
heimamanna. Fyrirlesarar verða:
Adolf Friðriksson, Ármann Jak-
obsson, Elín Bára Magnúsdóttir,
Eyþór Benediktsson, Guðrún Ása
Grímsdóttir, Guðrún Nordal, Helgi
Skúli Kjartansson, Helgi Þorláks-
son, Magnús A. Sigurðsson og Vé-
steinn Ólason. Þátttökugjald 1.500
kr. Gjald fyrir söguferð 1.500 kr.
Þátttaka tilkynnist Stofnun Sig-
urðar Nordals fyrir 20. ágúst nk.
Samgönguráðuneytið, Stykk-
ishólmsbær, Eimskipafélag Íslands
og OLÍS styrkja ráðstefnuna.
Ráðstefna/námskeið um rödd
verður haldin í Reykjavík 31. októ-
ber nk. Ráðstefnan er á vegum Fé-
lags íslenskra talkennara og tal-
meinafræðinga (FTT) og norrænna
samtaka talmeinafræðinga (NSLF).
Ráðstefnan er öllum opin.
Fyrirlesarar verða Finnarnir pró-
fessor Erkki Vilkman sérfræðingur í
háls- og raddmeinum, dr. Marketta
Shivo, Svíinn dr. Anita McAllister,
Einar Thoroddsen háls-, nef- og
eyrnalæknir kynnir, Valdís Jóns-
dóttir, talmeinafræðingur, Þóra
Másdóttir og Bryndís Guðmunds-
dóttir, talmeinafræðingar. Einnig
verður boðið upp á námskeið hjá
bæði innlendum og erlendum radd-
þjálfurum í raddbeitingu og radd-
vernd. Sjá má dagskrá á: http://
frontpage.simnet.is/einval/
Á NÆSTUNNI