Morgunblaðið - 06.07.2003, Page 42
42 SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÞAÐ verður að segjast eins og er,
að við Íslendingar erum greindar
manneskjur og einstaklega duglegir
við að fá hingað til lands hæfileika-
fólk á ótal sviðum, til að segja álit
sitt á víðtækum sviðum mannlífsins,
hvað varðar land okkar og þjóð og
samskipti okkar við umheiminn.
Þetta er flest lærdómsfólk á sviði
stjórnmála og annarra umsvifa í
heiminum. Allt þekkt og frægt fólk,
sem gefur okkur tækifæri til að
meta stöðu okkar í heimsmálum og
segir okkur hvar við stöndum. Og
það kemur í ljós, að við erum á flest-
um sviðum jafningjar annarra þjóða
í flestum tilfellum, og það er okkur
mikils virði að fá álit þessa fólks á
heimsmálum og almennum velfarn-
aði eða ógn þjóðanna. Og eins og ég
segi hér að framan þá erum við
greindir vel og menntaðir og býsna
lífshæfir þegar á allt er litið, í lífsins
ólgusjó. Það má því segja að við
séum vel settir að flestu leyti, enda
þótt nú gefi á bátinn í bili í varn-
armálum. Meira að segja skörum
við fram úr í mörgum viðfangsefn-
um mannlífsins. Þetta eigum við að
vita meö sjálfum okkur og ekki þó
að miklast af. Við erum liprir í
samningum við aðrar þjóðir, og
komum víða við í mannlegum sam-
skiptum um víða veröld, og megum
vera stoltir af því. Og forráðamenn
þjóðarinnar eru afreksmenn, hver á
sínu sviði. Og í íþróttum erum við
einnig liðtækir. Þetta er nú orðin
dágóð lofræða um landann, en við
eigum þetta skilið; verum minnug
þess að endingu – um hrósið.
Við eigum góða og volduga
bandamenn og samherja í veraldar
valdinu, enda þótt Kaninn vilji alls
staðar vera í stríði; í Írak, við Íran
og Norður-Kóreu; og að gyðingar
séu þeirra helstu samherjar, sem
öllu ráða í fjármálum Bandaríkj-
anna, og sem mega helst einir eiga
gjöreyðingarvopn – ásamt þeim. Nú
eru það ekki gyðingar sem eru
drepnir í milljónatali, eins og í síð-
ustu styrjöld, heldur drepa þeir nú
Palestínumenn unnvörpum – og
reyndar gera þeir það á báða bóga.
Ég hefi þó persónulega allt gott um
gyðinga að segja, því einn besti vin-
ur minn, hermaður í Vestmannaeyj-
um á stríðsárunum, var gyðingur,
sem starfaði með mér í hafnareft-
irliti; blaðamaður að mennt; úrvals-
maður það. Ég myndi þó ekki kæra
mig um að þeir stjórnuðu einir
heiminum ásamt Kananum. Að
sjálfsögðu eru aðrar þjóðir við völd
og með áhrif í álfunni – sem ég nefni
ekki hér. Líta ber á það einnig, hvað
Kanann varðar, þá hefur honum
ekki ennþá tekist að hafa uppi á bin
Laden né Saddam Íraksforseta og
tveim sonum hans, þegar þetta er
skrifað.
PÁLL HANNESSON,
Ægisíðu 86,
107 Reykjavík.
Úr einu í annað
um landann
og heimsmálin
Frá Páli Hannessyni:
BJÖRGVIN Guðmundsson fyrr-
verandi borgarfulltrúi krata og for-
stjóri BÚR skrifar hugvekju í
Mogga og kemur víða við. Hann
minnist á borgarstjórakosningar
þar sem Björn hafi tapað fyrir
Ingibjörgu Sólrúnu og að hann sé
farinn aftur í ráðherrastól þó hann
hafi sagt að hann væri að láta
kjósa sig til 4 ára. En hann minnist
ekki einu orði á að Ingibjörg Sól-
rún hafi sagt þó hvað eftir annað í
sjónvarpi, sem allir landsmenn sáu,
að hún ætlaði að vera borgarstjóri
næstu 4 ár ef hún yrði kosin en
hún var þó hlaupin út á Granda á
jólaföstu 8 mánuðum síðar og þá
sem forsætisráðherraefni krata.
Sjálfur fór Björgvin Guðmundsson
úr borgarstjórn Reykjavíkur áður
en kjörtímabilið var á enda vegna
þess að þá vantaði góðan mann til
að gegna embætti forstjóra BÚR
og að sjálfsögðu var enginn betri
en hann í það embætti. Síðan segir
hann að sendiherrar eigi ekki að
vera stjórnmálamenn eða ráð-
herrar sem enginn dugur er í. Það
má vera að ég sé farinn að gleyma
en mig minnir að nokkrir þing-
menn og ráðherrar úr flokki Björg-
vins hafi gegnt sendiherra stöðum.
Var ekki Stefán Jóhann sendiherra
og Guðmundur I. og Haraldur
Guðmundsson og var ekki Bene-
dikt Gröndal sendiherra, svo og
Eiður Guðnason og var ekki Kjart-
an Jóhannsson sérlegur sendiherra
í ESB og víðar og var ekki Jón
Baldvin sendiherra? Miðað við
stærð flokksins þá er þetta örugg-
lega Íslandsmet. Það kemur því úr
hörðustu átt þegar maður eins og
Björgvin Guðmundsson og úr al-
þýðuflokknum fer að skrifa ráð-
leggingar til flokkanna hvernig
þeir eigi að vera. Hann ætti að
tölusetja bréfin sín eins og Páll
postuli. Það verður aðgengilegra
fyrir menn að vitna í í framtíðinni.
Eins og Björgvin sagði í bréfi sínu,
( nr. ? ) „svona góðar hugvekjur
mega ekki glatast“.
GUÐMUNDUR BERGSSON,
Sogavegi 178, Reykjavík.
Grjótkast
úr glerhúsi
Frá Guðmundi Bergssyni: