Morgunblaðið - 18.09.2003, Page 13
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2003 13
KAMATO Hongo, elsta manneskja í
heimi, varð 116 ára á þriðjudag.
Verður hún að fara um í hjólastól
og heyrnin er farin að bila en að
öðru leyti er hún furðu hraust að
því er Tsuyoshi Kurauchi, tæplega
fimmtugt barnabarn hennar, sagði.
Á myndinni er Hongo að ræða við
dótturina Shizue Kurauchi.
Hongo fæddist 1887 í borginni
Kagoshima og býr þar enn. Efndu
ættingjar hennar og vinir til veislu í
tilefni af þessum tímamótum en
sjálft afmælisbarnið svaf hana
raunar af sér.
Hongo hefur þann háttinn á að
sofa samfleytt í tvo sólarhringa og
vaka í aðra tvo.
Kurauchi sagði, að þótt ömmu
sinni liði vel eftir atvikum, væri hún
vissulega veikburða. Hún hressti
sig stundum á glasi af „shochu“,
víni sem framleitt er í héraðinu.
AP
116 ára
og vel ern
Tókýó. AFP.
YFIRVÖLD í Frakklandi skýrðu frá
því í gær að þrítugur maður hefði
játað á sig morð á fimm manna fjöl-
skyldu sem framið var í Alpafjöllum
11. apríl.
Að sögn franskra saksóknara hef-
ur atvinnulaus bílaviðgerðamaður
játað á sig morð á hjónum og þremur
börnum þeirra, 7, 10 og 11 ára.
Franskir fjölmiðlar segja að maður-
inn hafi myrt þau eftir að hafa deilt
við fjölskylduföðurinn vegna
ógreiddra reikninga fyrir viðgerðir á
bíl fjölskyldunnar.
Myrti fimm
manna
fjölskyldu
Annecy. AFP.
HÓPUR danskra kafara ætlar á
næsta ári að reyna að finna flakið af
Grænlandsfarinu Hans Hedtoft sem
rakst á ísjaka og sökk í jómfrúrferð
sinni árið 1959.
Með skipinu voru 95 manns og fór-
ust allir. Aldrei fannst neitt brak úr
Hans Hedtoft að því undanskildu að
bauju með nafni skipsins rak á land á
Íslandi nokkrum mánuðum eftir
slysið, að því er segir á vefsíðu rits-
ins Boarding.
Leitað verður á svæði um 100 kíló-
metra sunnan við syðsta odda Græn-
lands, Hvarf. Leiðtogi kafaranna,
Thomas de Richelieu, segir ljóst að
svæðið sé mjög erfitt viðureignar
sakir veðurfarsins og ef til vill sé
flakið á allt að 2.000 metra dýpi.
Leita að
flaki Hans
Hedtoft
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111