Morgunblaðið - 18.09.2003, Qupperneq 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2003 37
Látinn er í Reykja-
vík Árni Guðjónsson,
lögfræðingur og fv. for-
stjóri Innheimtustofn-
unar sveitarfélaga,
tæpra 75 ára að aldri.
Árni var fæddur á Neðri-Þverá í
Fljótshlíð 23. október 1928, næst-
yngstur af sex börnum hjónanna
Guðjóns Árnasonar og Sigríðar
Sigurðardóttur. Árni ólst upp við
venjuleg sveitastörf á heimili sínu og
þótti snemma liðtækur til flestra
starfa. Um tvítugsaldur ók hann bif-
reið bróður síns í vegavinnu nokkur
sumur, og féll sú tilbreytni vel, en að
öðru leyti dvaldist hann að mestu
heima við í námsleyfum. Árni batt
ævarandi tryggð við bernsku- og
æskustöðvar sínar, vitjaði þeirra á
hverju sumri meðan heilsa leyfði og
byggði sér þar sumarbústað í fyll-
ingu tímans, unaðsreit, þar sem hann
dvaldist löngum ásamt fjölskyldu
sinni. Árni var í eðli sínu bóndi þó að
örlögin höguðu því svo að hann ynni
ævistarf sitt í steindri borg innan
grárra skrifstofuveggja. Hann unni
fögrum fjallahring, litadýrð og víð-
sýni Fljótshlíðarinnar, íbúum hennar
og sögu, gróðri og búfénaði og átti
þar sínar sælustu stundir, fjarri
amstri og álagi erfiðra og lýjandi lög-
fræði- og innheimtustarfa.
Þegar barnahópurinn á Neðri-
Þverá náði fullorðinsaldri giftust
dæturnar burt, eins og gerist og
gengur, tveir eldri synirnir, Sigur-
páll og Sigurður Ingi, unnu búi for-
eldra sinna og virtust líklegir til að
taka við búrekstri, en yngri bræð-
urnir, þeir Árni og Magnús, héldu að
heiman til náms. Árni las að mestu
eða öllu leyti utanskóla til stúdents-
prófs undir handarjaðri höfuðklerk-
anna sr. Ragnars Ófeigssonar í Fells-
múla, lærdómsmannsins víðkunna,
og sr. Gunnars Jóhannessonar í
Skarði í Gnúpverjahreppi, og vann
þar fyrir brauði sínu jafnhliða námi.
Þá var alsiða í sveitum að klerkar,
sem fengust við búskap samhliða
embættisstörfum, tækju pilta til und-
irbúnings stúdentsprófi, en piltar
sinntu vinnumannsstörfum til endur-
gjalds. Árni átti góða og minnisstæða
dvöl á báðum þessum prestssetrum,
og minntist þeirra beggja, sr. Ragn-
ars og sr. Gunnars, og fjölskyldna
þeirra með hlýhug og virðingu.
Að loknu stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri vorið
1949 hugðist Árni halda utan til náms
í dýralækningum ásamt góðvini sín-
um og skólafélaga, Sveini Ágústssyni
frá Ásum í Gnúpverjahreppi.
Örlögin höguðu því hins vegar
þannig, að af þeim áformum varð
ekki og réð þar mestu skortur á
námslánum og gjaldeyri á árunum
eftir heimsstyrjöldina síðari, en fjár-
ráð hinna ungu bændasona voru af
skornum skammti. Ákvað Árni þá að
venda sínu kvæði í kross og lét inn-
rita sig í lagadeild Háskóla Íslands,
þar sem hann lauk síðan lagaprófi 26.
janúar 1956, ásamt tveimur góðum
félögum, sómamönnunum Björgvini
Þorlákssyni, síðar fulltrúa hjá Eim-
skipafélagi Íslands, og Þorvaldi Lúð-
víkssyni, síðar hæstaréttarlögmanni
og gjaldheimtustjóra.
Árni réðst til starfa sem lögmaður
og fulltrúi bæjarstjórans á Ísafirði,
Jóns Guðjónssonar, að loknu emb-
ættisprófi og starfaði þar í þrjú ár,
eða til ársins 1959. Sveitapilturinn
Árni undi hag sínum vel í sjávar-
plássinu og eignaðist þar marga vini
og góðkunningja. Á Ísafirði kynntist
hann ungri ágætisstúlku, Steinunni
Finnborgu Gunnlaugsdóttur, og
gengu þau að eigast 3. maí 1959.
Lifðu þau síðan í góðu og farsælu
ÁRNI
GUÐJÓNSSON
✝ Árni Guðjónssonfæddist á Neðri-
Þverá í Fljótshlíð 23.
október 1928. Hann
lést á hjúkrunar-
heimilinu Skógarbæ
í Reykjavík 1. sept-
ember síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Seljakirkju
10. september.
hjónabandi allt til þess
er Árni lést og eignuð-
ust fimm mannvænleg
börn, er öll bera for-
eldrum sínum fagurt
vitni.
Þau Árni og Stein-
unn fluttust suður til
Reykjavíkur, nýgift ár-
ið 1959, en þá hafði Árni
fengið atvinnu sem lög-
fræðingur hjá Trygg-
ingastofnun ríkisins.
Fyrstu árin starfaði
hann sem fulltrúi á líf-
eyrisdeild stofnunar-
innar, en árið 1963 tók
hann við starfi deildarstjóra lána-
deildar sömu stofnunar. Hjá Trygg-
ingastofnuninni starfaði Árni svo
samfleytt til ársins 1971, er hann tók
við starfi forstöðumanns Innheimtu-
stofnunar sveitarfélaga. Mun það
mest hafa verið fyrir tilstilli Hjálm-
ars Vilhjálmssonar, þáverandi ráðu-
neytisstjóra í félagsmálaráðu-
neytinu, að Árni tók við
forstöðumannsstarfi hjá hinni ný-
stofnuðu innheimtustofnun, en þeir
Hjálmar höfðu starfað saman hjá At-
vinnuleysistryggingasjóði sem þá
var til húsa í Tryggingastofnun rík-
isins.
Árni lét af störfum hjá Trygginga-
stofnun ríkisins þegar Sverrir Þor-
björnsson, hagfræðingur og for-
stjóri, féll skyndilega frá, en með
þeim Árna hafði tekist gott samstarf
og vinátta, og kærði Árni sig ekki um
að starfa þar undir handarjaðri
stjórnmálamanna. Hjá Trygginga-
stofnun varð Árna að vonum vel til
vina og enn þann dag minnast gamlir
vinnufélagar hans með þökk og virð-
ingu.
Árni var ekki mikill félagsmála-
frömuður, hlédrægur maður og lítt
framagjarn, en féllst samt á að taka
sæti í stjórn Byggingasamvinnu-
félags starfsmanna ríkisins á árunum
1972–1980, þar sem hann gegndi for-
mannsstörfum árin 1977–1980.
Hjá Innheimtustofnun sveitarfé-
laga starfaði Árni síðan, uns hann
varð að láta af störfum sakir heilsu-
brests meira en hálfsjötugur að aldri.
Hann mótaði stefnu stofnunarinnar á
frumbýlingsárum hennar í samráði
við stjórn og stjórnarformenn og átti
sinn þátt í að vel tókst til við erfiðar
aðstæður, því að innheimta barna-
meðlaga er ekkert áhlaupaverk.
Honum tókst vel að sigla á milli skers
og báru í erfiðu og vandasömu starfi
og vinna hylli viðskiptavina og sam-
starfsmanna. Hætt er þó við að álag
það og áhyggjur, er starfinu fylgdi,
hafi gengið nær heilsu hans en menn
gerðu sér grein fyrir, en vinnuharka
og samviskusemi voru í senn veik-
leiki hans og styrkur.
Árni var nær daglegur gestur á
heimili foreldra minna, Elínar og Al-
berts, á háskólaárum sínum, því að
móðir mín var elst þeirra systkina og
frændrækin og vinföst með afbrigð-
um. Var sérlega kært með þeim El-
ínu og Árna, enda hygg ég að þau
hafi verið líkust systkinanna frá
Neðri-Þverá að skapgerð – og jafnvel
útliti líka, bæði nokkuð skaprík en
trygg og traust. Og allt til fullorðins-
ára barnanna var fjölskylda Árna og
Steinunnar fastagestir í jólaboðum á
heimili foreldra minna, þar sem
margt var spjallað yfir góðum veit-
ingum og ávallt tekið í spil við mikinn
fögnuð að hefðbundnum hætti. Á ég
undirritaður margar og góðar endur-
minningar frá þeim árum.
Ég kveð Árna frænda minn með
söknuði og þakklæti og bið honum
blessunar í nýjum heimkynnum. Eig-
inkonu hans og fjölskyldu flyt ég
samúðarkveðjur við fráfall góðs og
vandaðs manns sem í engu mátti
vamm sitt vita.
Guðjón Albertsson.
Síðla á sjötta áratugnum réðst
ungur lögfræðingur til starfa hjá Ísa-
fjarðarbæ. Þar var Árni Guðjónsson,
borinn og barnfæddur Fljóts-
hlíðingurinn, kominn til hinna harð-
býlu Vestfjarða og þeirra sérkenni-
legu persónuleika sem þennan
landshluta byggðu.
Vafalítið hafa það verið mikil um-
skipti frá sunnlenskri sveit sólskríkj-
unnar, en aðalfugl Ísfirðinga var
hrafninn á turni slökkvistöðvarinnar.
Nefni ég þetta sérstaklega þar
sem hann hafði ætíð gaman af að rifja
upp sögur og sagnir af fólkinu sem
bjó þarna út við yzta haf. Ekki leið á
löngu þar til Árni fór að venja komur
sínar í Mjógötu 7. Lyktir urðu þær að
Árni og elsta systirin í Mjógötunni
rugluðu saman reytum. Eftir það hét
hann Árni mágur. Og Árni stóð undir
nafni sem slíkur. Ung að árum misst-
um við föður okkar og Árni var í senn
ráðhollur vinur og styrk stoð okkar
allra systkinanna og þá ekki síður
mömmu sem nú sér á eftir góðum
tengdasyni og vini.
Margs er að minnast af góðum og
gleðiríkum stundum, hátíðarstund-
um og þeim tíma í lífinu þegar maður
uppgötvar að sorgin gleymir engum.
Árni var samur og jafn, ævinlega til
staðar. Hann var mikill fjölskyldu-
maður og lét sig ekki muna um að
taka til hendinni á heimilinu eða að
sinna litlu barni. Þar var sama ár-
veknin og í kröfuhörðu starfi. Í mörg
ár áttu þau hjón sumarbústað í
Fljótshlíðinni sem þau kölluðu Niku.
Þar nutu þau sín vel og ræktuðu
garðinn sinn. Oftar en ekki var lítill
vinnumaður eða vinnukona með í för,
gjarnan að aðstoða afa og ömmu í
sveitinni.
Árni naut þess að fara í heyskap
með bræðrum sínum að Neðri-Þverá
á sumrin. Steinunn systir mín og
Árni voru góð hjón, stóðu saman í
blíðu og stríðu og þegar veikindin
sóttu hann heim hin síðari ár var hún
stoðin hans unz yfir lauk. Árni lá
rúmfastur vegna veikinda sl. sex ár,
lengst af á Sjúkrahúsinu á Ísafirði en
þangað fluttu þau Steinunn og
bjuggu um skeið. Á Ísafirði leið Árna
vel og hann hlaut einstaka umönnun
allra og eiga þeir sem hugsuðu um
hann þar miklar þakkir skildar, svo
og starfsfólk Skógarbæjar þar sem
hann dvaldi síðustu mánuði.
Ævinlega var gaman að heim-
sækja Árna og spjalla um hin ýmsu
málefni, umræðuefnið spannaði vítt
svið, það gat verið búskapur, skóg-
rækt, sauðfjárrækt og það sem um
var að vera í þjóðfélaginu hverju
sinni. Við skemmtum okkur vel sam-
an er ræddir voru hinir ýmsu mögu-
leikar til lands og sjávar. Þegar mér
verður hugsað til Árna mágs míns og
hvað það var sem einkenndi hann
kemur margt upp í hugann en
stærsti eiginleikinn held ég að hafi
verið ábyrgðartilfinningin og um-
hyggjan, það að sjá um sína í orðsins
fyllstu merkingu. Fram á síðasta dag
hugsaði hann um hvernig börnunum
vegnaði. Einhverju sinni nefndi ég
við hann hvað yngstu börnin í fjöl-
skyldunni væru efnileg og hann ljóm-
aði allur og sagði: „Þau eru öll falleg,
barnabörnin mín.“
Í nafni móður okkar, okkar systk-
inanna og fjölskyldna þeirra þakka
ég liðna tíð og bið honum blessunar.
Við minnumst Árna Guðjónssonar
þegar við heyrum góðs manns getið.
Sigríður Gunnlaugsdóttir.
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, bróðir,
mágur, frændi og afi,
ÞÓRARINN SVEINBJÖRNSSON,
Birkihlíð,
Stokkseyri,
lést á Sjúkrahúsi Selfoss að morgni fimmtu-
dagsins 11. september.
Útför hans verður gerð frá Eyrarbakkakirkju
laugardaginn 20. september og hefst athöfnin kl. 14.00.
Jarðsett verður á Stokkseyri.
Þórgunnur Jónsdóttir,
Matthías Þórarinsson,
Stefán Þórarinsson,
Linda Þórarinsdóttir,
Þórður Sveinbjörnsson, Guðbjörg Kristjánsdóttir,
Gríma Sveinbjörnsdóttir, Stefnir Helgason,
Vilborg Sveinbjarnardóttir, Ken Wilson,
Stefanía Þórdís Sveinbjarnardóttir, Ray Dignum,
Ársæll Jónsson, Gyða Magnúsdóttir,
Svava Kristín Valfells, Sveinn Valfells,
frændsystkin og barnabörn.
Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SOFFÍA GÍSLADÓTTIR
frá Deild í Fljótshlíð,
síðast til heimilis í Litlagerði 12,
Hvolsvelli,
verður jarðsungin frá Stórólfshvolskirkju
föstudaginn 19. september klukkan 16.00.
Þröstur Jónsson, Ragnheiður Skúladóttir,
Hrefna Jónsdóttir, Björn Stefánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR RAFN GUÐMUNDSSON
málarameistari,
Naustahlein 30,
Garðabæ,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi mánu-
daginn 15. september.
Ásdís Guðmundsdóttir, Jón Bjarnarson,
Pétur Guðmundsson, Hólmfríður Lillý Ómarsdóttir,
Guðmundur K. Guðmundsson, Svanlaug Sigurðardóttir
og barnabörn.
Áskær móðir mín og amma okkar,
HELGA JÓHANNSDÓTTIR,
Árskógum 2,
áður til heimilis í Furugerði 1,
er látin.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunar-
heimilinu Skógarbæ.
Hrönn Sveinsdóttir,
Helga Bjarnadóttir, Eiríkur Ellertsson,
Sveinn Frímann Bjarnason,
Berglind Bjarnadóttir, Sigurður Blöndal,
Svava Bjarnadóttir, Guðjón P. Arnarson,
langömmubörn
og langalangömmubarn.
Elskulegur eiginmaður minn, sonur, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ELÍAS BALDVINSSON
slökkviliðsstjóri
í Vestmannaeyjum,
lést þriðjudaginn 16. september.
Útförin verður auglýst síðar.
Halla Guðmundsdóttir,
Baldvin Skæringsson,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.