Morgunblaðið - 19.09.2003, Side 1
upplýsingum Morgunblaðsins, að
Landsbanki Íslands eignast tæplega
15% hlut fjárfestingarfélagsins
Straums í Eimskip. Eftir þessi við-
skipti á bankinn og tengdir aðilar yfir
30% hlut í félaginu. Á móti selur
Landsbankinn rúmlega þriðjungs-
hlut sinn í fjárfestingarfélaginu
Straumi til Íslandsbanka.
Þá fela viðskiptin það í sér að Burð-
arás, fjárfestingarfélag Eimskips,
selur Straumi allan eignarhlut sinn í
Flugleiðum, sem nemur 31,73%, og
Íslandsbanka eignarhluti sína í
Sjóvá-Almennum, sem nemur 11,4%,
og Íslandsbanka, sem nam 4,9% um
mitt árið í ár. Óljóst var hvernig farið
yrði með 25% eignarhlut Burðaráss í
Steinhólum, sem er eignarhaldsfélag
um olíuverslun Skeljungs, en sér-
ákvæði um forkaupsrétt gilda um það
félag, en auk Burðaráss eiga Sjóvá-
Almennar fjórðungshlut í félaginu og
Kaupþing Búnaðarbanki helmings-
hlut í Steinhólum.
Eimskipafélagið mun hins vegar
áfram eiga Brim, sem er sjávarút-
vegsarmur samstæðunnar sem á
Harald Böðvarsson hf. á Akranesi,
Skagstrending og ÚA á Akureyri að
fullu, flutningahluta fyrirtækisins og
eignarhluti í félögum, sem áfram
verða í eigu Burðaráss, en þar má
helst nefna tæplega þriðjungshlut í
Marel og tæplega fimmtungshlut í
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna.
6,5 milljarðar fyrir
Sjóvá-Almennar
Þá var skýrt frá því í gær að Ís-
landsbanki hefði samið um kaup á
33% eignarhlut í Sjóvá-Almennum
tryggingum hf. og að bankinn stefndi
að því að eignast félagið allt og gera
það að dótturfélagi sínu. Bankinn
greiddi 37 kr. fyrir hlutinn í félaginu.
Heildarhlutafé í Sjóvá-Almennum er
525 milljónir kr. að nafnvirði og því
má gera ráð fyrir að bankinn hafi
þurft að greiða 6,5 milljarða króna
fyrir þriðjungshlutinn.
Meðal seljenda bréfanna eru bræð-
urnir Einar og Benedikt Sveinssynir,
sem fyrr í vikunni juku við eignarhlut
sinn í Sjóvá-Almennum. Íslandsbanki
hyggst bjóða öðrum hluthöfum sama
verð fyrir sína hluti.
Þorsteinn Vilhelmsson, stjórnar-
formaður Afls – fjárfestingarfélags,
sem á tæplega 5% hlut í Sjóvá-Al-
mennum, og Margeir Pétursson,
stjórnarformaður fjárfestingar-
félagsins Atorku hf., sem á 4,5% hlut í
Sjóvá, sendu frá sér yfirlýsingu seint
í gærkvöldi um að þeir hefðu þegar
tryggt stuðning nokkurra annarra
hluthafa til að hindra að Íslandsbanki
gæti komist yfir 90% eignarhlut í
Sjóvá og þar með krafist innlausnar.
STOFNAÐ 1913 253. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
FÓLKIÐ | afþreying ungs fólks á öllum aldri á föstudögum:
á hæðina … á breiddina … á lengdina … á dýptina …
ÞÖK rifnuðu af húsum og rafmagnslínur slitnuðu er fellibylurinn Isabel
skall á austurströnd Bandaríkjanna í gær. Yfir milljón heimili urðu raf-
magnslaus í ríkjunum Norður-Karólínu og Virginíu og tugir þúsunda á
Washington-svæðinu. Gestir gistihúss í Norður-Karólínu eru hér á leið í
herbergi sín eftir að þak hússins rifnaði af. Neyðarástand/14
Reuters
Fellibylur veldur eyðileggingu
FUNDAÐ var fram á nótt í Landsbankanum til að
ganga frá samkomulagi á kaupum Landsbankans á
ráðandi hlut í Eimskip. Björgólfur Guðmundsson, for-
maður bankaráðs Landsbankans, og Bjarni Ármanns-
son, forstjóri Íslandsbanka, komu til fundarins á tíunda
tímanum í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Kristinn
Fundað fram á nótt
LANDSBANKI Íslands og tengdir
aðilar eignast ráðandi hlut í Eim-
skipafélagi Íslands og Íslandsbanki
eignast Sjóvá-Almennar tryggingar í
einhverjum mestu og flóknustu við-
skiptum, sem átt hafa sér stað á ís-
lenskum hlutafjármarkaði, en unnið
var að því reka endahnút á viðskiptin
í gærkvöldi á fundum í Landsbanka
Íslands, sem staðið höfðu með hléum
frá því á miðvikudag og var enn ekki
lokið um miðnætti í nótt.
Lokað var fyrir viðskipti í allan
gærdag í Kauphöll Íslands með
hlutabréf í félögum, sem tengjast
þessum viðskiptum. Félögin eru Ís-
landsbanki, Sjóvá-Almennar, Flug-
leiðir, Eimskip, Landsbankinn og
fjárfestingarfélagið Straumur, auk
þess sem lokað var fyrir viðskipti með
Framtak fjárfestingarbanka vegna
yfirtökutilboðs Straums í það félag.
Samanlagt markaðsvirði þessara fyr-
irtækja, að Framtaki undanskildu, er
41,2% af markaðsvirði fyrirtækja í
úrvalsvísitölu Kauphallarinnar.
Viðskiptin fela í sér, samkvæmt
Víðtæk uppstokkun
fyrirtækjasamsteypa
Landsbankinn
eignast ráðandi
hlut í Eimskip
Íslandsbanki
kaupir þriðj-
ungshlut í Sjóvá-
Almennum
Íslandsbanki/28–29
Lokað á viðskipti á verðbréfamarkaði með nokkur stærstu fyrirtækja landsins
FYRSTU DNA-rannsókn á lífsýni úr
manni, sem grunaður er um morðið á
Önnu Lindh, utanríkisráðherra Sví-
þjóðar, lauk í gær en lögreglan í
Stokkhólmi vildi ekki greina frá nið-
urstöðunni.
Saksóknarar þurfa að ákveða fyrir
hádegi í dag að sænskum tíma hvort
leggja eigi fram formlega ákæru á
hendur manninum og krefjast gæslu-
varðhalds.
1.300 gestir við minningarathöfn
Um 1.300 gestir verða við athöfn til
minningar um Lindh í ráðhúsinu í
Stokkhólmi í dag og lögreglan hefur
mikinn öryggisviðbúnað í borginni.
Allt flug yfir borgina verður bannað
og skipaskurði og götum í grennd við
ráðhúsið verður lokað fyrir umferð.
Morðið á Lindh
DNA-rann-
sókn lokið
Verða viðstödd/10
RÁÐIST var á bandaríska herbíla-
lest úr launsátri í íraska bænum
Khaldiyah í gær og vitni sögðu að
mikið mannfall hefði orðið meðal
bandarískra hermanna. Hernámslið-
ið hafði þó ekki staðfest það í gær.
Vitnin sögðust hafa séð allt að átta
lík dregin úr einum bílanna eftir að
kviknaði í honum, en tíu hermenn
hefðu verið í bílnum. Árásin hófst er
einn bílanna ók á sprengju og var
sprengjum skotið á bílalestina.
Khaldiyah er á svæði súnní-músl-
íma vestan við Bagdad og hernáms-
liðið hefur orðið þar fyrir mörgum
árásum undanfarið. Að sögn
fréttavefjar BBC í gærkvöldi biðu
þrír bandarískir hermenn einnig
bana í skotárás nálægt Tikrit,
heimaborg Saddams Husseins.
Mannskæð
árás á her-
bíla í Írak
Khaldiyah. AFP.