Morgunblaðið - 19.09.2003, Side 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2003 25
GÍFURLEG gróska er í starfsemi
sjálfstæðu leikhúsanna í landinu, en
vetrarstarf þeirra var kynnt í Loft-
kastalanum í gær. Felix Bergsson,
stjórnarformaður Bandalags sjálf-
stæðra leikhúsa, segir að 75 sýn-
ingar séu þegar ráðgerðar og lík-
legt að fleiri eigi eftir að bætast við.
„Staðan er sú, að eftir því sem árin
líða verða sjálfstæðu sviðslistirnar
æ sterkari í íslensku sviðslista-
umhverfi. Okkar statistík sýnir
þetta, og ég held að glæsilegt vetr-
arprógramm sjálfstæðu leikhús-
anna í vetur staðfesti það enn frek-
ar.“ Felix segir gróskuna ekki síst
tilkomna vegna þess að menntuðu
leikhúsfólki fjölgi umfram það sem
stofnanaleikhúsin geti tekið við.
„Þetta fólk er að finna sinn eigin
farveg í leiklistinni, sem er mjög
gleðilegt.“
Felix segir líka ráða miklu að
átak hafi verið gert í að efla fagleg
vinnubrögð innan sjálfstæðu leik-
húsanna og bandalags þeirra.
Af 75 sýningum er 41 ný, og það
vekur líka athygli að á dagskrá
sjálfstæðu leikhúsanna í vetur
verða sýnd um 25 ný íslensk verk.
„Ég nefni bara sem dæmi nýtt
verk Kristínar Ómarsdóttur, Vinur
minn heimsendir, sem var frumsýnt
hjá Hafnarfjarðarleikhúsinu Her-
móði og Háðvör í gærkvöldi og
Ráðalausa menn, eftir Siguringa
Sigurjónsson, sem sýnt er í Tjarn-
arbíói núna. Nýr einleikur eftir
Þorvald Þorsteinsson verður frum-
sýndur í nóvember, en verkið er
samið fyrir Arnar Jónsson í tilefni
af 40 ára leikafmæli hans og Þor-
leifur sonur Arnars leikstýrir.
Hafnarfjarðarleikhúsið verður með
nýja útgáfu af Meistaranum og
Margarítu í samstarfi við Vestur-
port, og Vesturport ætlar svo að
sýna Macbeth hjá sér. Þannig er
þetta ótrúlega fjölbreytt dagskrá og
spannar allt litróf leiklistarinnar.
Barnaleikritin eru ekki síður fjöl-
breytt, og þá eru dansleikhúsin enn
eftir. Dansleikhús með ekka, sem
fékk Grímuverðlaunin í ár, verður
til dæmis með nýtt verk byggt á
Dangerous Liaisons eða Hættuleg-
um kynnum.“
Gott samstarf við
Borgarleikhús
Felix segir sérstaka ástæðu til að
vekja athygli á góðri samvinnu
Borgarleikhússins við sjálfstæðu
leikhúsin, sem hann segir fá gott
rými þar í vetur. „Þessi samvinna
er mikilvæg, og mér finnst fólki
hafa sést svolítið yfir hana í allri
umræðunni um Borgarleikhúsið að
undanförnu. Þessi samstarfsverk-
efni eru orðin stór hluti af pró-
grammi Borgarleikhússins. Mér
sýnist að þetta verði níu sýningar í
vetur, þar af eru tvær þegar búnar,
Nútímadanshátíðin og Sumaróper-
an. Þar verða líka sýnd tvö verk
sem unnin eru í evrópsku samstarfi,
sem sýnir líka hvað við erum virk á
þeim vettvangi. Þá eru sjálfstæðu
leikhúsin líka að sýna erlendis og
þar má nefna bæði danshópana og
Vesturport, sem sýnir Rómeó og
Júlíu í Young Vic í London. Það er
með ólíkindum hvað þetta er allt yf-
irgripsmikið.“
Sjálfstæðu leikhúsin eiga sér
þann draum að í framtíðinni verði
hægt að efna til alþjóðlegrar gras-
rótarleiklistarhátíðar í Reykjavík.
„Þetta er nokkuð sem við horfum
mjög mikið á núna. Það væri gaman
að geta verið með litla Avignon eða
Edinborg í Reykjavík eina viku á
ári, og nýta okkur um leið þau sam-
bönd sem við erum óðum að koma
okkur upp erlendis. Við erum orðin
mjög virk og líka virt í þeirri sam-
vinnu. Við finnum að það er horft til
okkar og Ísland er með í leiknum.“
Bandalag sjálfstæðra leikhúsa
opnaði í gær nýjan vef með upplýs-
ingum um starfsemi leikhúsanna og
lista yfir sýningar ársins. Netfangið
er: http://www.leikhopar.is.
75 sýningar hjá
sjálfstæðu leik-
húsunum í vetur
Morgunblaðið/Jim Smart
Leikritið Kvetch eftir Steven Berkoff, sem sjálfstæði leikhópurinn Á senunni sýndi í Vesturporti og í Borgarleik-
húsinu í fyrravetur og nú í haust, hreppti íslensku leiklistarverðlaunin, Grímuna, sem besta leiksýning ársins.