Morgunblaðið - 19.09.2003, Side 26

Morgunblaðið - 19.09.2003, Side 26
MENNTUN 26 FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ dugar ekki að hlaupaeftir tískuhugmyndum,það verður að rannsakahvort aðferðirnar virka áð- ur en þær eru teknar í notkun,“ sagði dr. Hermundur Sigmundsson, prófessor við norska tækni- og vís- indaháskólann, á ráðstefnu Íslensku menntasamtakanna Menntun á 21. öldinni. Hann sagði mjög brýnt að Íslend- ingar legðu meira fé í rannsóknir á námi og þroska barna. Sér kæmi verulega á óvart að á Íslandi væri engin rannsóknarmiðstöð um nám og þroska barna, þar sem t.d. erf- iðleikar barna í lestri, stærðfræði og í hegðun eru rannsakaðir. Í Noregi eru slíkar miðstöðvar um lestur, stærðfræði og hegðunarvanda. Vísindagreinar Hermundur hefur verið öflugur á sviði rannsókna í Noregi og fengið það rannsóknarfé sem til þarf. Nið- urstöður hans og samstarfsmanna hafa vakið athygli. Í 175. hefti af New Scientist, 2358 – 31. ágúst 2002 bls. 24 er vitnað í rannsóknir Her- mundar: „Klaufsk börn eiga ekki að- eins í erfiðleikum með fínhreyfingu. Heilinn á einnig í vandræðum með að vinna úr sjónrænni skynjun.“ Sagt er þar frá rannsóknum Her- mundar og rannsóknarhóps í Þránd- heimi á þessu sviði. Tímaritið gefur lesendum sínum fyrirheit um að skýra bráðlega frá niðurstöðum þeirra um samband á milli aksturshæfni og dyslexíu. Hermundur hefur nýlokið við að þróa nýtt próf til að mæla líkamlegt ástand einstaklinga. Prófið spannar aldurinn 4ra til 70 ára, og fékk 10 milljóna króna styrk frá norska heil- brigðisráðuneytinu. Sex greinar eftir Hermund birt- ast á þessu ári í virtum vísindatíma- ritum eins og þessi: Sigmundsson, H., Hansen, P.C., Talcott, J. (2003). Do ’clumsy’ children have visual deficit? Behavioural Brain Re- search, 139, 123-129. Önnur í Ex- perimental Brain Research. Sú þriðja í Scandinavian Journal of Educational Research. Enginn snarvegur í námi Hann er núna að vinna að kenn- ingu um færninám – eða hvernig færni í lestri, skrift, stærðfræði og hreyfingu lærist með börnum. Hún byggist á nýjum kenningum um nám og þroska barna, og gæti haft mikil áhrif á störf þeirra sem vinna á þessu sviði eins og kennara, sér- kennara og sjúkraþjálfara. Fyrsti hluti kenningarinnar kom fram í vís- indagrein árið 1998 og síðan í bók árið 2000 og hefur hún selst vel í Noregi. „Það finnst enginn snarvegur til að efla nám og þroska barna,“ segir Hermundur, „þetta er linnulaus þjálfun, og Íslendingar þurfa að stunda rannsóknir á þessu sviði grimmt.“ Hann leggur áherslu á að íslenskir fræðimenn á þessu sviði fái verk sín ritrýnd og birt í virtum er- lendum tímaritum. „Hver sem er getur skrifað og gefið út bækur á sviði náms og þroska barna,“ segir hann, „en að áreiðanlegri mæli- kvarði á gæði rannsókna sé að fá þær metnar á alþjóðlegum vett- vangi. Þá kemur í ljós hvort það sé löngu búið að sanna það sem þar á að sanna eða hvort alvarlega að- ferðafræðileg villa hafi verið gerð.“ Hermundur stundar rannsóknir sínar í Noregi og hann hefur einnig starfað í Bretlandi. Sárlega vantar rannsóknir hér á landi, að hans mati, og að ekki eigi að fara út í hlutina fyrr en búið sé að rannsaka þá. „Fjölmargar goðsagnir eru á lofti um hvernig börn læri og þroskist,“ segir hann og nefnir dæmi um tölvur og nám sem Íslendingar hafa verið ginnkeyptir fyrir. „Hvaða rannsókn- ir hafa sýnt fram á kostina við að kenna börnum með tölvum eða hvernig eigi að gera það?“ spyr Her- mundur. Yfirfærsla náms lítil Hann segist hafa hitt nokkra kennara og sérkennara hér á landi sem eru að vinna mjög gott starf við þjálfun barna og hvernig megi auka færni þeirra. Þessir kennarar byggja á eigin reynslu, en geta ekki endilega skýrt aðferðirnar með rannsóknarrökum. Reynsla þeirra er iðulega að ganga þurfi veginn all- an á enda og að skemmri leiðin dugi ekki. Önnur goðsögn sem hafi verið lengi við liði er um yfirfærslu náms. Að færni á einu sviði megi yfirfæra á annað svið. Ekkert samband er þarna á milli. Ballettdansari verður t.d. aldrei góður tangódansari nema með linnulausri þjálfun. „Það er lítið samband milli getu á einu sviði og öðru sviði,“ segir Hermundur, „færniþjálfun í lestri er bara þjálfun í lestri. Enginn verður betri í lestri nema með þjálfun í lestri jafnvel þótt hann hlusti á tónlist í leiðinni. Góð þjálfun í lestri skapar ekki góða hæfileika í stærðfræði. Hvort um sig þarf sérhæfða þjálfun.“ Goðsögn um vit og hreyfingu Því hefur oft verið haldið fram að tengsl séu á milli hreyfifærni barna og vitsmunalegs þroska. Erla Gunn- arsdóttir og Róbert Gunnarsson, nemendur við KHÍ, sem Hermund- ur leiðbeindi könnuðu samband hreyfiþroska barna við 6 ára aldur og árangurs í stærðfræði og ís- lensku við 9 ára aldur, og reyndist það sáralítið. En því hefur oft verið haldið fram að sterkt samband sé milli þessara þátta, og er það enn ein goðsögnin: Að líkamleg færni og vitsmunaþroski fylgist að. „Meginmálið er að finna fyrst út hvar börn eru stödd í mismunandi færni og hefja ævinlega þjálfunin út frá því,“ segir Hermundur. Áskor- unin sem barnið fær verður að vera í samræmi við færni þeirra. Ef námsþættir í stærðfræði eru kenndir í rangri röð eða áður en ár- angur næst missa nemendur ein- faldlega áhugann. Færni í að stinga peningi í rauf á boxi verður ekki yf- irfærð á að þræða perlur á band. Hvort um sig er sérhæft. „Spurn- ingin er aðeins hvað við viljum að börnin kunni og séu fær í,“ segir hann. Meginlögmálin fjögur Meginlögmálin í námi og þroska eru fjögur að mati Hermundar, og að þau komi fram í öllum rannsókn- um á hreyfivandamálum sem hann hefur skoðað: 1. Tíðni; að gera hlutina nógu oft. 2. Getustig; áskorun í samræmi við getuna. 3. Viðbrögð; bregðast jákvætt við árangri barna. 4. Sjálfsmat; barnið finni að það geti gert hlutina sjálft. Skoðun Hermundar er að ríkis- valdið eigi að styðja dyggilega við rannsóknir á námi og þroska barna. Það gangi ekki að þessi þýðingar- mikli hagsmunahópur verði undir í baráttunni um fé. Stjórnmálamenn og stjórnendur menntastofnana eigi að sýna ótvíræðan metnað á þessu sviði. Margir vinni vel, en rannsókn- ir og alþjóðlegt samstarf eru skilyrði fyrir réttum farvegi. Hann hefur því lagt fram hugmyndir um rannsókn- armiðstöð á námi og þroska barna. Hugmyndin hefur enn ekki hlotið brautargengi og óljóst hvort svo verði. „Fólk er jákvætt en það þarf fjármagn í slíka starfsemi,“ segir hann, „rannsóknarmiðstöð í lestri sem sett var á fót á ári læsis var t.a.m. lögð niður árið 2002 sökum fjárskorts.“ Þjálfun og þróun Séu grunnrannsóknir ekki stund- aðar eru meiri líkur á því að falla í ýmsar órannsakaðar gryfjur eða tískubólur í uppeldismálum. Her- mundur segir einnig hættu á að fest- ast inni í einhvers konar valdabar- áttu á milli fagstétta eins og genarannsóknir séu skýrasta dæmið um. Rannsóknir (GOTTLIEB, 1998) sýni t.d. greinilegt samspil gena og umhverfis, dæmi: Streita hefur áhrif á hormón sem aftur hafa áhrif á DNA. Annað dæmi er að aðeins 20% þeirra sem eru með MS-genið fá sjúkdóminn. Áhrifin eru ekki bara aðra leið heldur og samspil gena og umhverfis óumflýjanlegt. Þróun hvers einstaklings er stöðugt sam- spil á milli starfsemi gena, tauga- kerfis, atferlis- og umhverfisáreita. Áreiti-viðbragð (stimulus-re- sponse) er einfaldasta útskýring á því sem á sér stað milli manns og umhverfis. Áreitið þarf að vera í samræmi við þau viðbrögð sem barnið hefur náð tökum á. Þetta hafa líka nýjar rannsóknir á heil- anum sýnt, áreitið styrkir tauga- frumuhópa og heilinn myndar grein- ar tenginga á því svið sem þjálfað er. Nýjar kenningar á sviðið tauga- sálfræði styðja þetta og það sem Hermundur hefur verið að gera: Sérhæfing taugafrumna er mun meiri en áður var talið og yfirfærsla mun minni. Þannig að niðurstaðan er að þroskast það sem þjálfað er. Þróun er ekki fyrirfram ákveðin, og umhverfið er eini þátturinn sem kennarar, þjálfarar og uppalendur geta haft áhrif á með áreitum. Nám og þroski/ Rannsóknir á námi og þroska barna eru ekki nógu hátt skrifaðar á Ís- landi að mati dr. Hermundar Sigmundssonar, prófessors við Tækni- og vísindaháskólann í Noregi. Gunnar Hersveinn átti samtal við hann um nýjar rannsóknir og mikilvægi þess að setja rannsóknarmiðstöð um nám og þroska barna á fót, og kannaði viðbrögð. Áskorun í samræmi við færni Morgunblaðið/Þorkell Þroski er mjög flókið ferli þar sem margir þættir koma saman, segir Her- mundur sem vill auka grunnrannsóknir á námi og þroska barna.  Fjölmargar goðsagnir eru á lofti um hvernig börn læri og þroskist  Sérhæfing taugafrumna vegna náms og þroska er mjög mikil guhe@mbl.is „HUGMYNDIR um rannsóknar- miðstöð um nám og þroska ís- lenskra barna eru um margt áhuga- verðar. Ég er sam- mála Hermundi hvað varðar brýna þörf á grunnrann- sóknum á þessum sviðum. Vett- vangur fyrir slíkar rannsóknir hef- ur einkum verið þríþættur, þ.e. að sérfræðingar og fræðimenn standa að rannsóknum, nemar í framhalds- námi stunda slíkar rannsóknir og loks hafa ýmiss konar stofnanir staðið að grunnrannsóknum. Eins og málum er nú háttað er erfitt að öðlast yfirsýn yfir hvers konar grunnrannsóknir hafa verið gerðar þar sem enginn virkur gagna- grunnur er til fyrir slíkt efni. Ann- ar annmarki er sá að vettvangur til kynningar á niðurstöðum rann- sókna er takmarkaður. Því má velta fyrir sér hvort stofna eigi eina rannsóknarmiðstöð eða styrkja þær stofnanir sem fyrir hendi eru t.d. Námsmatsstofnun og Greiningarstöð ríkisins, og breyta og víkka starfssvið þeirra. Ef slíkt yrði gert yrði það tvímælalaust kostur ef þessar stofnanir yrðu tengdar háskólastofnunum í land- inu til að auðvelda farveg miðlunar og kennslu. Annar kostur væri sá að t.d. háskólarnir þrír, Háskóli Ís- lands, Háskólinn á Akureyri og Kennaraháskóli Íslands, stæðu hver um sig eða sameiginlega að því að koma á fót og bera ábyrgð á stofnun sem gæti í senn stundað rannsóknir og þróunarstarf á sviðið þroska og náms. Að vissu leyti finnst mér sá kostur vera fýsilegur að hafa tvær til þrjár stofnanir tengdar háskólum sem sinntu rann- sóknum á sviði þroska og náms.“ Rósa Eggertsdóttir er sérfræð- ingur hjá skólaþróunarsviði kenn- aradeildar Háskólans á Akureyri. Rósa Eggertsdóttir „VÍSIR að miðstöð þar sem fengist var við miðlun, kennslu, prófþró- un, rannsóknir og þjónustu við skóla starfaði í 10 ár við Kennaraháskóla Íslands. Hér á ég við Lestrar- miðstöð. Hún var lögð niður og fjárskorti kennt um. Ég er því ekki bjartsýn á að miðstöð með útvíkkað hlutverk verði sett á laggirnar en myndi vissulega fagna því. Spurn- ingar sem stýra rannsóknunum í slíkri miðstöð þurfa að brenna á starfsmönnum skóla og foreldrum. Svörin, hvort sem þau eru í formi tækja, prófa, aðferða eða þekk- ingar eiga að nýtast þeim og hafa hagnýtt gildi. Ég tel jafnframt að rannsóknir á fullorðnum sem greindir hafa verið með nám- og þroskavandamál í æsku ættu heima í miðstöð sem þessari. Með því fæst yfirsýn um horfur og þróun frá bernsku til full- orðinsára. Við fullyrðum stundum ranglega um viðkvæma hluti sem ekki hafa verið rannsakaðir. Því er til dæmis oft haldið fram hér á landi að bæði dyslexía og ofvirkni leiði til afbrota á fullorðinsárum. Hvað höfum við fyrir okkur í því? Það kom sænskum rannsakendum á óvart árið 1999 að alvarleg dyslexía reyndist jafnalgeng meðal afbrota- unglinga og unglinga sem ekki höfðu komist í kast við lögin. Erf- iðara er að rannsaka hvort ein kennsluaðferð virki betur en önnur. Innan menntastofnana á Íslandi er til bæði rannsóknarþekking og reynsla af kennsluaðferðum sem þróaðar eru við íslenskar aðstæður. Það þarf að safna þekkingunni og miðla skipulega. Ég sé það sem eitt af hlutverkum rannsóknarmið- stöðvar um nám og þroska.“ Rannveig Lund er sjálfstætt starfandi fræðimaður í læsi í ReykjavíkurAkademíunni. Rannveig Lund „HUGMYNDIR Hermundar og mínar falla að því leyti saman að við erum sammála um að brýnt sé að Íslend- ingar leggi meira fjármagn í rannsóknir á námi og þroska barna. Hins vegar gæti okkur greint á um leiðir, þar sem Hermundur virðist vilja leggja megináherslu á rann- sóknir á frávikum; hvað börn geti ekki gert – væntanlega til að „laga“ þau. Mínar áherslur snúa aftur á móti að því að rannsaka hvernig börn læra, hve getumikil þau eru – en það virðist hingað til hafa farið að einhverju leyti framhjá þeim full- orðnu, sérstaklega í rannsóknarsamfélaginu. Spyrja má hvort það sé eitt- hvað líkt með rannsakendum og hamrinum sem vís kona lýsti eitt sinn þannig: „ef þú hugsar eins og hamar þá ferðu að sjá allt í líki nagla.“ Rannsóknarmiðstöð getur verið til góðs en hún getur einnig stuðlað að einhliða rannsóknum um nám og þroska barna og þá er illa af stað farið. Ég tel mikilvægt að menn taki höndum saman og að rannsóknir um nám barna verði efldar og það gert á breiðum grundvelli. Gæta verður að því að festast ekki í gömlum hjólförum sem ég tel hugsanlega hættu á ef hug- myndum Hermundar er fylgt.“ Guðrún Alda Harðardóttir er brautarstjóri leikskólabrautar kenn- aradeildar Háskólans á Akureyri. Guðrún Alda Harðardóttir TENGLAR ..................................................... Hermundur.Sigmundsson- @SVT.NTNU.NO

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.