Morgunblaðið - 28.11.2003, Síða 4

Morgunblaðið - 28.11.2003, Síða 4
HÆSTIRÉTTUR viðurkenndi með dómi í gær rétt 18 ára stúlku til að leggja bann við því að upplýsingar úr sjúkraskrá látins föður hennar yrðu fluttar í gagnagrunn á heilbrigðis- sviði. Með dómi sínum felldi Hæsti- réttur þar með úr gildi ákvörðun landlæknis sem hafnaði beiðni stúlk- unnar um að heilsufarsupplýsingarn- ar yrðu ekki fluttar í gagnagrunninn. Hnekkti Hæstiréttur þar með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá í mars. Hæstiréttur segir í dómi sínum að í 8. grein laga um gagnagrunninn sé kveðið á um rétt manna til að hafna því, með tilkynningu til landlæknis, að upplýsingar um þá verði færðar í gagnagrunninn. Taldi Hæstiréttur að dóttirin gæti ekki neytt þessa réttar sem stað- göngumaður látins föður síns, en fall- ist var á það að hún gæti, vegna frið- helgi einkalífs síns, haft hagsmuni af því að koma í veg fyrir að heilsufars- upplýsingar um föður hennar yrðu færðar í gagnagrunninn, þar sem ráða mætti af slíkum upplýsingum atriði varðandi arfgenga eiginleika föðurins, sem einnig gætu átt við um hana. Ekki eingöngu kennitalan dulkóðuð Talið var ótvírætt að ákvæði 1. málsgreinar 71. greinar stjórnar- skrárinnar tæki til slíkra upplýsinga og veitti sérhverjum manni friðhelgi um einkalíf sitt að þessu leyti. Hæstiréttur telur að ekki hafi ver- ið hnekkt þeirri ályktun héraðsdóms að svokölluð dulkóðun í eina átt geti verið framkvæmd með slíku öryggi að nánast megi telja útilokað að lesa dulritaðar upplýsingar. Til þess yrði á hinn bóginn að líta að í lögunum um gagnagrunninn – númer 139 frá árinu 1998 – sé hvergi tiltekið nánar hvaða upplýsingar úr sjúkraskrám verði að dulkóða á þennan hátt fyrir flutning þeirra í gagnagrunninn eða hvort tilteknar upplýsingar, sem komi fram í sjúkraskrám, verði ekki fluttar þangað. Segir Hæstiréttur að af gögnum málsins virtist mega ráða að ein- göngu kennitala sjúklings yrði dul- kóðuð í gagnagrunninum, en nöfnum, bæði sjúklings og vandamanna hans, ásamt nákvæmlega tilgreindu heim- ilisfangi yrði sleppt. Bersýnilegt sé að upplýsingar um þessi atriði séu ekki þær einu, sem fram komi í sjúkraskrá og tekið geti af tvímæli, í einstaka tilvikum, um hvaða maður eigi í hlut. Hæstiréttur segir einnig að í lög- um sé kveðið á um heimild rekstr- arleyfishafa til vinnslu á upplýsing- um úr sjúkraskrám sem færðar eru í gagnagrunninn. Komi fram í lögun- um að tilgreindir opinberir aðilar skuli samþykkja verklag og verkferli ásamt því að fylgjast með öllum fyr- irspurnum og vinnslu upplýsinga í grunninum. Ekki sé hins vegar af- markað með nákvæmum hætti hvers konar fyrirspurnum verði beint til gagnagrunnsins eða í hvaða búningi svör við þeim muni birtast. Loks telur Hæstiréttur, að þótt í einstökum ákvæðum laganna um gagnagrunninn sé ítrekað skírskotað til þess að heilsufarsupplýsingar í honum eigi að vera ópersónugrein- anlegar þá skorti mjög á að tryggt sé nægilega, með ákvæðum settra laga, að þessu yfirlýsta markmiði verði náð. Vegna þeirra skyldna sem fyrsta málsgrein 71. greinar stjórnarskrár- innar leggi á löggjafann geti ýmiss konar eftirlit með gerð og starf- rækslu gagnagrunnsins ekki komið hér í staðinn, án þess að við ákveðnar lögmæltar viðmiðanir sé að styðjast. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Guðrún Erlendsdóttir, Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen, Markús Sigurbjörnsson og Pétur Kr. Hafstein. Niðurstaða dómara var einróma. Lögmaður stúlkunnar var Ragnar Aðalsteinsson hrl. Skarphéð- inn Þórisson ríkislögmaður var til varnar. Heilsufarsupplýsingar látins föður fari ekki í gagnagrunn á heilbrigðissviði samkvæmt dómi Hæstaréttar Bann til að vernda friðhelgi einkalífs FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ NÝ stjórn var kjörin á hluthafafundi hjá Norðurljósum samskiptafélagi hf. í gær. Stjórnina skipa sem fyrr Sigurjón Sighvatsson og Sigurður G. Guð- jónsson en nýir í stjórn eru lögmennirnir Ragnar H. Hall hrl., sem er formað- ur stjórnar, Gunnar Jónsson hrl. og Hörður Felix Harðarson hrl. Allir þrír eru frá Lögmönnum Mörkinni ehf. og hafa þeir sinnt lögmannsstörfum fyrir Norðurljós. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er hér um bráðabirgða- stjórn að ræða sem ætlað er að undirbúa hlutafjáraukningu í félaginu. Þess er vænst að tillaga þess efnis verði lögð fyrir hluthafafund á næstunni. Morgunblaðið/ÞÖK Jón Ólafsson sat í gær sinn síðasta stjórnarfund hjá Norðurljósum. Sig- urður G. Guðjónsson og Sigurjón Sighvatsson sitja áfram í stjórn félagsins. Myndin var tekin á hluthafafundi í kjölfar fundar fráfarandi stjórnar. Ný stjórn Norðurljósa KÁRI Stefánsson forstjóri Ís- lenskrar erfðagreiningar leggur á það áherslu að dómur Hæsta- réttar hafi nákvæmlega engin áhrif á starfsemi ÍE. „Þessi dóm- ur fjallar um afmarkaðan hluta af gagnagrunnshugmyndinni,“ sagði Kári í samtali við Morgunblaðið í gær. „Dómurinn er sá að skyldmenni geta krafist þess að upplýsingar séu ekki settar inn í miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði. Ein túlkun á því er að það veiti látnum og lifandi sömu réttindi til þess að draga upplýsingar úr gagnagrunni sem er ekki til. Það má segja að Hæstiréttur hafi leyst úr ákveðnu deilumáli, en hins vegar má segja að líklegt sé að allflestir látnir á Íslandi eigi fleiri en eitt lifandi skyldmenni. Það er ekki ólíklegt að skyld- menni látins fólks hafi mismun- andi skoðanir á hinum ýmsu mál- efnum, þannig að ef eitt skyldmenni vill að upplýsing- arnar séu flutt- ar í burtu, þá eru 92% líkur á því að hvert annað skyld- menni viðkom- andi vilji að upplýsingar séu í gagnagrunn- inum. Það má leiða að því rök að Hæstiréttur hafi kveðið upp úrskurð sem leysi eitt deilumál sem búi til óteljandi önnur. En þessi deilumál fjalla öll um gagnagrunn sem er ekki til og er ekki hluti af starfsemi okk- ar núna og kemur þar af leiðandi ekki til með að hafa nein áhrif á það sem við erum að gera í dag,“ segir Kári og bætir ennfremur við að dómurinn komi til með að hafa hverfandi áhrif á gagna- grunninn þegar hann verður sett- ur saman. Kári Stefánsson Hefur engin áhrif á það sem ÍE er að gera í dag RANNSÓKN fíkniefnadeildar lög- reglunnar í Reykjavík á meintri am- fetamínframleiðslu í heimahúsi í Kópavogi er forgangsmál hjá lög- reglunni, en tveir sakborningar sitja í tveggja vikna gæsluvarðhaldi vegna málsins. Sá þriðji og jafnframt sá yngsti var látinn laus að loknum yfirheyrslum í fyrrakvöld. Sakborn- ingarnir eru frá tvítugu til rúmlega þrítugs. Rannsókn lögreglunnar beinist m.a. að því hversu lengi umrædd starfsemi hefur verið í húsinu og einnig hvort og þá hvaða tengsl séu á milli hennar og amfetamínmarkað- arins hérlendis. Einnig tekur rann- sóknin mið af því hvort fleiri kunni að tengjast málinu en þeir þrír sem þegar eru grunaðir. Rannsóknin er á frumstigi og því er allt á huldu um þessi atriði. Haldlögð efni bíða nánari greiningar Ásgeir Karlsson aðstoðaryfirlög- regluþjónn og yfirmaður fíkniefna- deildar segir fyrir liggja að greina nánar það sem hald var lagt á í hús- leitinni í fyrradag en þar er um að ræða margskonar efni og efnasam- bönd auk framleiðslutækja af ýms- um gerðum. Íbúðin sem ráðist var til inngöngu í, er í húsi í Kópavogi, sem byggt var sem iðnaðarhúsnæði en á seinni ár- um hafa þar verið innréttaðar íbúðir til búsetu, þar á meðal umrædd íbúð. Alls sitja fjórir sakborningar í gæsluvarðhaldi í þágu rannsókna á fíkniefnamálum hjá lögreglunni í Reykjavík, þar af tveir vegna am- fetamínmálsins eins og áður gat. Mál þar sem beitt hefur verið slíkum þvingunarúrræðum njóta forgangs fram yfir önnur mál hjá lögreglunni enda kappkostað að hraða rannsókn- um til að sakborningar þurfi ekki að sitja lengur í varðhaldi en efni standa til, að sögn Ásgeirs Karlssonar. Tveir í gæsluvarðhaldi vegna gruns um umfangsmikla amfetamínframleiðslu Morgunblaðið/Sverrir Meðal sönnunargagna í málinu eru þessi efni og tæki sem lögreglan lagði hald á við húsleitina í Kópavogi síðastliðinn miðvikudag. Rannsókn málsins for- gangsmál hjá fíkniefnadeild FJÖGURRA bíla árekstur varð á mótum Hafnarfjarðarvegar og Nýbýlavegar í Kópavogi á níunda tímanum í gærmorgun, en engin slys urðu á fólki. Tildrögin voru mjög óvenju- leg, en í upphafi var tilkynnt um tveggja bíla árekstur við Nýbýlaveg. Þegar lögregla var rétt ókomin á vettvang var aft- ur hringt og þá hafði þriðji bíll- inn lent á öðrum hinna tveggja. Skömmu eftir að lögreglan kom á staðinn kom síðan fjórði bíllinn á fleygiferð og reyndi að forðast að lenda í kösinni með því að sveigja út fyrir veg þar sem hann hafnaði á hvolfi. Ekki er hægt að segja að rammt hafi kveðið að árekstr- um í Kópavogi í hálkunni sem verið hefur undanfarna daga, fyrr en nú. Í Reykjavík byrjaði vikan illa en síðan hefur jafnt og þétt dregið úr árekstrum. Fjögurra bíla árekstur í Kópavogi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.