Morgunblaðið - 28.11.2003, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 28.11.2003, Blaðsíða 46
MINNINGAR 46 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Auður KristínSigurðardóttir, Syðri-Úlfsstöðum í Austur-Landeyjum, fæddist á Kúfhóli í sömu sveit 6. janúar 1935. Hún lést á Líknardeild Land- spítalans í Kópavogi 20. nóvember síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Guðríð- ur Ólafsdóttir og Sig- urður Þorsteinsson á Kúfhóli. Systkini Auðar eru: Iðunn Ingibjörg, látin, Þor- steinn, Ólafur, Bergþór, Ingunn Sesselja, Soffía, Guðrún Lára og Hjördís. Eftirlifandi maki Auðar er Ósk- ar Halldórsson. Dóttir þeirra er Kristín Hulda. Börn hennar eru Auður Ósk og Halldór Vil- hjálmsbörn. Auk Kristínar eignuðust þau Auður og Óskar dreng sem lést skömmu eftir fæð- ingu og Jóhannes Arnar sem lést níu ára gamall. Útför Auðar verð- ur gerð frá Kross- kirkju í Austur- Landeyjum í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku frænka, það er sárt að kveðja þig. Það er erfitt að trúa því að þú sért farin. Mér er orða vant. Ég trúði því að þú værir að ná þér á strik og fengir að njóta nýju íbúðarinnar sem þið hjónin voruð að kaupa og þið hlökkuðuð til að flytja í, þó ekki væri nema einhverja mánuði og fengir að eiga jólin með fjölskyldunni. Þér var ætlað annað. Það sefar sorgina að vita að þér líð- ur vel núna, þarft ekki að kveljast meir, vita að á móti þér hefur verið vel tekið bæði af sonum þínum, syst- ur og foreldrum. Þú ert komin í ljósið þar sem þér er ætlað eitthvað meira og stærra. Stundum finnst okkur lífið svo óréttlátt. Þegar hjartahlý og góð manneskja eins og þú sem varst alltaf boðin og búin ef eitthvað var að ein- hvers staðar er tekin frá okkur allt of fljótt eigum við erfitt með að skilja tilganginn en einhver hlýtur hann að vera. Öllum er okkur ætlað eitthvert hlutvert, bæði hér á jörðu og á öðrum tilverustigum, það er mín trú og ég veit að þín bíður stórt og mikið hlut- verk á æðri stað. Elsku frænka, þakka þér fyrir hvað þú varst alltaf yndisleg og góð, bæði við mig og börnin mín. Í hjarta mínu man ég þig sem fallegu, góðu og yndislegu frænkuna mína sem alltaf áttir útbreiddan faðm handa okkur. Guð og allir góðu englarnir hans veri með þér þar sem þú ert nú. Elsku Óskar, Kristín, Auður Ósk og Halldór, ég votta ykkur mína dýpstu samúð og bið góðan guð að styrkja ykkur í sorginni. Guðríður Sveinbjörnsdóttir (Gurrý). Að missa ástvini getur verið þraut- in þyngri og tekur ávallt á, í sál og hjarta. Mig langar með örfáum orðum að minnast frænku minnar, hennar Auð- ar. Auði kynntist ég barn að aldri þar sem hún er ein af systrum mömmu og strax við fyrstu kynni snerti hún hjarta mitt með hæversku sinn, fram- komu og einstaklega góðri nærveru. Alltaf fylltist ég spenningi og til- hlökkunar þegar heimsækja átti Auði og Óskar í sveitina því friðsældin og hlýjan tóku alltaf á móti okkur á heimili þeirra. Fyrir mér var Auður ekki bara frænka, heldur var hún líka tenging við fjölskyldu sem ég hefði ekki kynnst nema fyrir hennar til- stilli, fjölskyldu sem hefur með tím- anum orðið mér kærir og góðir vinir, þá sérstaklega Kristín dóttir þeirra Auðar og Óskars sem fyrir mér er eins og stóra systir sem alltaf er hægt að leita til. Með tímanum sá maður hvað Auður var mikil og að mér virð- ist lifði fyrir alla og gaf af sér mikinn kærleika og krafðist einskis til baka. Aldrei hafði mig órað fyrir því að þegar Auður og Kristín komu að heimsækja mig á Njálsgötuna síðast- liðið sumar að það væri í síðasta skipti sem ég sæi Auði á ferðinni og að örfáum vikum seinna yrði hún komin á spítala með sjúkdóm sem ekki var hægt að lækna. Alltaf bar hún sig vel og kvartaði aldrei allan þann tíma sem ég heimsótti hana á spítalann þótt þjáð væri og allt undir það síðasta, er hún lá á líknardeild- inni, hélt hún reisn sinni, tíguleika og þeirri ró sem auðkenndi persónu hennar. Elsku Óskar, Kristín, Auður Ósk og Halli, mikill er missir ykkar og skarð er í ykkar litlu fjölskyldu, þá trúi ég og veit fyrir víst að Auður er ekki farin langt því hún mun vera hjá okkur í anda og vaka yfir ykkur þrátt fyrir ný heimkynni í ríki Guðs. Bið ég algóðan Guð að styrkja ykkur og blessa í sorg. Að lokum vildi ég tileinka Auði frænku minni ljóð sem ég orti og veit fyrir víst að gæti verið ferðasaga hennar á nýjar slóðir. Hvítir vængir bera mig, skýjum ofar á hærra stig. Bylgjur breiðar berast mér, kærleikinn ég finn hjá þér. Himnavera, hrein og blá, ásýnd þína nýt að sjá. Hugurinn svo hreinn og tær, stjarna þín svo hrein og skær. Þú fyllir hjarta ástúð þinni, þú bjargað hefur sálu minni. Ó, himnavera leyfðu mér, að svífa um og fylgja þér. Ljósið, ljósið er lífið, ljósið er eilíft. Láttu ljósið lýsa sálu hjarta þíns. Lifðu fyrir ljósið það er lífið. Óli Geir. AUÐUR KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR ✝ Alfred EugenAnderson fædd- ist í Frösö í Jentland í Östersund í Svíþjóð 4. september 1909. Hann lést á heimili sínu 20. nóvember síðastliðinn. For- eldrar hans voru Alf- red Matthias Ander- sen steinsmiður og Cristina Pred Frid- rika Pallien húsmóð- ir. Alfred kvæntist Sigríði Ragnheiði Ólafsdóttur hjúkrun- arfræðingi 26. janúar 1957 og eiga þau þrjú börn. Börn þeirra eru: 1) Hendrikka Jónína Alfreðsdóttir, f. 11. janúar 1958, maki Pétur Ás- geirsson, f. 21. sept. 1960. Börn þeirra eru Ásgeir, f. 17 maí 1984, október 1991, Ólöf Birna, f. 23. apríl 1993, og Sara Lind, f. 25. júlí 1996. Alfred fæddist í Svíþjóð og var næstyngstur níu systkina, tveir bræður og sjö systur. Um tveggja og hálfs árs aldur flytur hann til Noregs. Um þriggja ára aldur er hann tekinn í fóstur hjá stórbónda á Bae. Hann dvelst þar til fimmtán ára aldurs þar til hann flytur til Signýjar systur sinnar, en hún bjó í Kristiansund, og dvelur þar um tveggja ára skeið þar til hann flyt- ur til móður sinnar, sem bjó í Esk- ilstuna í Svíþjóð. Hann kynnist Sigríði Ragnheiði Ólafsdóttur þegar hann er í sumarfríi hjá syst- ur sinni í Ósló í Noregi árið 1954 og þau flytja til Íslands með Gull- fossi 1956. Eftir að hann flutti til Íslands starfaði hann í Ofnasmiðjunni í Reykjavík, Rafha í Hafnarfirði en lengst af sem sundlaugarvörður í Sundhöll Hafnarfjarðar. Útför Alfreds verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Alfreð Ingvar, f. 25. nóv. 1986, Pétur Óli, f. 23. apríl 1990, og Linda Þórey, f. 18. apríl 1992. 2) Ólöf Petrína Alfreðsdóttir, f. 26. des. 1958, maki Friðrik Z. Hilmars- son, f. 30. júní 1961. Börn þeirra eru Sveinn Einar Z., f. 19. október 1982, Sigríð- ur Ásta Z., f. 10. októ- ber 1984, Jóhanna María Z., f. 15. nóv. 1986, Hendrikka Ólöf Z., f. 14. maí 1989, Friðrik Hilmar Z., f. 26. mars 1992, og Ingibjörg Lóreley Z., f. 12. jan. 1996. 3) Sveinn Alfreðsson, f. 10. mars 1960, maki Valdís Ólöf Jónsdóttir, f. 13. sept 1968. Börn þeirra eru Sigurður Jón, f. 24. Elsku Alfreð minn, takk fyrir allar ánægjulegu stundirnar sem við átt- um saman. Okkur var ætlað að deila ævinni saman. Ég var að vinna á sjúkrahúsi í Osló þegar við kynntumst fyrst. Þú komst með systur þinni yfir Dofra- fjöllin, þá stoppaði bíllinn þinn og þú fórst út en fyrir framan hann lá hes- taskeifa. Þú tókst skeifuna upp og hún hangir uppi á vegg hjá okkur enn þann dag í dag. Bíllinn var ræst- ur að nýju og það var ekki neitt að honum. Þú varst viss um að þessi ferð yrði þér til gæfu og blessunar. Þú varst svo duglegur að smíða og allt lék í höndunum á þér. Hand- smíðaða styttan af hjúkrunarkon- unni sem þú renndir handa mér af mikilli leikni og gafst mér í afmæl- isgjöf í sumar mun ætíð minna mig á þig, elsku vinurinn minn. Þakka þér fyrir allar góðu minningarnar um þig. Það var alltaf jafn gott að geta sest niður, beðið saman og lesið í Biblíunni, þú í þinni norsku og ég í minni íslensku. Þannig enduðum við daginn nokkrum mínútum áður en þú kvaddir þennan heim. Guð hefur svo sannarlega blessað okkur og séð um allar okkar þarfir. Við áttum sameiginlega trú á Drott- in okkar og frelsara. Bænin var okk- ur kær. Sameiginlega gátum við lagt allt í Guðs hendur. Beðið Guð fyrir börnunum okkar, tengdasonum, tengdadóttur og þrettán barnabörn- um. Þér þótti gott að lesa úr Jóhannes- arguðspjalli og það veitti þér oft huggun. Við drógum okkur alltaf á hverju kvöldi vers úr Biblíunni. Versið sem þú fékkst rétt áður en Guð kallaði þig til sín var úr Jóh. 14,1: Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á Guð og trúið á mig. Í húsi föður míns eru margar vistarverur. Væri ekki svo, hefði ég þá sagt yður, að ég færi burt að búa yður stað? Þegar ég er farinn burt og hef búið yður stað, kem ég aftur og tek yður til mín, svo að þér séuð einnig þar sem ég er. Þessi orð hugga mig og ég veit að þú ert kominn í eilífa sælu hjá Guði. Guð gaf okkur þrjú yndisleg börn, tvo tengdasyni, tengdadóttur og þrettán barnabörn sem okkur þykir svo vænt um og hafa reynst okkur svo vel í lífinu. Ættingjar og vinir í Noregi og Sví- þjóð báðu fyrir ástar- og saknaðar- kveðjur. Þakka þér, elsku vinur, fyrir öll árin sem við höfum fengið að búa saman. Ég hlakka til að hitta þig hjá Jesú. Þín ástkær eiginkona Sigríður R. Ólafsdóttir. Pabbi var einstakur maður. Hann hafði ekki hátt og sagði kannski ekki margt en með sinni ljúfu framkomu og mikla kærleika hafði hann mikil áhrif á fullorðna sem og börn. Allir elskuðu hann. Hann hafði verið hermaður í sænska hernum þegar hann bjó í Svíþjóð. Barnabörnin elskuðu að hlusta á hann segja sögur af her- mennskunni og stoltið leyndi sér ekki að eiga afa sem hafði verið her- maður og átt byssu. Pabbi vann í mörg ár í Sundhöll Hafnarfjarðar og þótti honum mjög vænt um það starf, bæði samstarfsmenn og sund- laugargesti. Við systkinin nutum góðs af vinnu hans í sundlauginni. Mest spennandi fannst okkur að fara ofan í laugina þegar búið var að loka og enginn var í henni, það var ótrú- leg tilfinning fyrir okkur að eiga laugina út af fyrir okkur, meðan pabbi var að hreinsa og ganga frá. Pabbi var stoltur af löndunum sín- um; Svíþjóð þar sem hann fæddist, Noregi þar sem hann ólst upp og Ís- landi þar sem hann eignaðist konuna sína og börnin sín og bjó í 46 ár. Honum fannst Ísland vera heim- ilið sitt en saknaði oft sumranna í hinum löndunum. Hann var mikið náttúrubarn og hafði gaman af að vera úti í náttúrunni, innan um gróð- urinn og trén. Takk fyrir kærleikann þinn. (1. Kor. 13. 1–8.) Hendrikka. Elsku pabbi minn, nú er komið stórt skarð í hópinn, það vantar þig svo mikið. Hugurinn reikar aftur í tímann. Ég á svo margar dýrmætar minningar um þig og það sem við gerðum saman. Þú gafst þér tíma í leik með okkur, t.d. í sumarhúsinu, í Hraununum smíðaðir þú svo margt handa okkur. Þú vaknaðir fyrir allar aldir og fórst að smíða dúkkuhús sem var eins og lítið sumarhús. Við vöknuðum við hamarshöggin í kyrrðinni. Þú smíðaðir rólur, vega- salt og mörg leikföng handa okkur. Það var föst venja að fara í sunnu- dagsbíltúra og þá var iðulega keypt- ur ís handa okkur. Þú keyrðir í poll- ana og gusurnar gengu yfir bílinn og við hlógum öll og skemmtum okkur. Á hverju sumri fórum við til Ak- ureyrar en sá staður var þér kær vegna allra trjánna sem eru þar. Það minnti þig á æskustöðvarnar í Nor- egi. Á unglingsárunum vorum við mik- ið á ferðinni og misstum oft af strætó en þá gátum við alltaf hringt í þig og þú varst fús að ná í okkur. Allt sem bilaði var hægt fara með í viðgerð til þín, þú renndir höldur á potta, handföng á ostahnífa, brýndir skærin o.m.fl. Þegar við fjölskyldan dvöldumst í Bjarkargildi í Húsafelli yfir sumarið þá lifnaði yfir staðnum þegar þið birtust. Það var svo gaman að fá ykkur og alltaf voruð þið með eitt- hvað til að gleðja okkur. Þú varst svo duglegur að keyra og naust þess al- veg fram að níutíu ára aldri. Þið mamma voruð alltaf á ferðinni og þú tókst þátt í öllu með henni af lífi og sál, meira að segja hafðir þú kaffi- brúsann með í bæjarferðunum. Elsku pabbi, það er svo mikill söknuður að hafa þig ekki hjá okkur. Við vitum að þú ert í góðum höndum hjá Guði. Kveðja Ólöf og Friðrik. Elsku pabbi minn, það er erfitt að hugsa framhaldið án þín. Þegar ég geng um íbúðina mína þá eru verk eftir þig í hverju herbergi, útskorin klukka, málaðir englar, jólasveinar, renndar styttur og þannig gæti ég lengi talið upp. Þú varst svo mikill hagleiksmaður og kunnir svo vel til verka. Það var svo margt sem ég lærði af þér. Þegar ég kom til ykkar mömmu á Strandgötuna varst þú oft í smíðaverkstæðinu þínu sem tengt var við húsið ykkar. Það var svo gaman að sjá hvað þú vart að útbúa. Verkstæði þitt hafði mikla þýðingu fyrir þig. Þegar þú varst veikur var dagurinn lengi að líða ef þú komst ekki út í „kompu“ eins og þú kallaðir verkstæðið þitt. Að vera með eitt- hvað á milli handanna var þitt líf og yndi. Meira að segja eru til útsaum- uð verk eftir þig. Þegar ég var að vinna í Ósló komst þú einn til mín, annars voruð þið mamma alltaf saman í öllu. Þú sýnd- ir mér verksmiðjuna sem þú starf- aðir við og sagðir mér frá ýmsu sem á daga þína hafði drifið í Noregi. Í Svíþjóð gafstu mér hlutdeild í þínum tíma þar og sýndir mér margt spennandi. Mér þótti svo vænt um þennan tíma sem við áttum saman. Þú varst alltaf svo glaður þegar þú komst í af- mælin hjá okkur því þá fékkstu oft- ast uppáhalds heita réttinn þinn. Það verður tómlegt að hafa þig ekki hjá okkur en við þökkum Guði fyrir öll árin sem þú fékkst að lifa og biðjum Guð að gefa mömmu og okkur öllum styrk og hjálp í sorginni. Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum. (Sálm. 46:2.) Þótt ég fari um dimman dal óttast ég ekkert illt því að þú ert hjá mér. (Sálm. 23:4.) Takk fyrir allt elsku pabbi og tengdapabbi. Við höfum margar góð- ar minningar að ylja okkur við og marga muni sem þú hefur smíðað handa okkur. Guð blessi þig, við hlökkum til að sjá þig á himnum. Kveðja, Sveinn og Valdís. Þú varst svo mikið fyrir okkur barnabörnin þín og okkur þótti svo vænt um þig. Við vorum alltaf jafn- velkomin í heimsókn og þú varst allt- af jafnglaður að sjá okkur. Þú hafðir alltaf tíma fyrir okkur og varst alltaf til staðar. Þú sóttir okkur í skólann og keyrðir okkur það sem við þurft- um. Alltaf áttir þú brjóstsykur í vas- anum sem þú gafst okkur eða réttir að okkur pening til að gleðja okkur. Þegar við eldri börnin fermdumst gafst þú okkur útskornar klukkur sem þú hafðir útbúið af miklum hag- leik, einnig bjóstu til fallega fugla sem skrýddu borðin. Það síðasta sem þú gafst okkur í afmælisgjöf var renndur listmunur með hólfi þar sem þú hafðir vafið peningaseðli inn í. Smíðaverkstæðið þitt var eins og draumaheimur fyrir okkur öll. Við fengum að smíða hjá þér undir þinni leiðsögn, við nutum þess svo vel. Þau voru ófá leikföngin sem þú smíðaðir handa okkur. Það var svo skemmtilegt á sumrin þegar þú varst búinn að smíða teygjubyssu eða boga og örvar fyrir okkur til að við gætum haft bogfimi- keppni í Sléttuhlíðinni og svo kennd- ir þú okkur að skjóta af boganum í skotmark sem þú hafðir útbúið. Þú varst með verðlaun handa öllum sem tóku þátt í keppninni. Við sem erum orðin eldri af barna- börnunum þínum nutum jafnmikillar hlýju og þú skildir svo vel að við átt- um ekki fyrir bensíni á bílana okkar. Þú gaukaðir að okkur smápeningi fyrir bensíni. En Jesús sagði: Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi, því slíkra er Guðs ríki. (Matt. 19.14.) Við elskum þig öll, elsku afi okkar. Takk fyrir englana og allt sem þú gerðir fyrir okkur. Þín barnabörn. ALFRED EUGEN ANDERSON Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.