Morgunblaðið - 28.11.2003, Blaðsíða 22
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Þjálfar í elsta klúbbnum | Arnar Már
Ólafsson golfkennari hefur verið ráðinn
sem yfirþjálfari hjá elsta golfklúbbi
Þýskalands, Wannsee,
sem var stofnaður 1894
og er skammt frá Berl-
ín. Arnar Már hefur
verið golfkennari í
Þýskalandi síðustu sjö
árin og segir hann
þetta nýja starf mikla
viðurkenningu fyrir
sig, enda um 1.600 fé-
lagar í golfklúbbnum.
Hann á að sjá alfarið
um þjálfun karla- og
unglingaliðs félagsins.
Arnar Már hefur verið golfkennari hjá
þýska golfklúbbnum Gutduneburg, sem
er með um 400 meðlimi og er skammt
frá bænum Haren.
„Mér hefur líkað afskaplega vel í Har-
en, en nýja starfið leggst mjög vel í mig.
Það er ekki á hverjum degi sem golf-
kennarar fá slík atvinnutilboð og þetta er
mikil áskorun fyrir mig,“ sagði Arnar
Már.
Úr
bæjarlífinu
Arnar Már
Ólafsson
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Kveðja frá Fílaströndinni | Á heimasíðu
Kelduhverfis er að finna bréf heim í sveitina
frá hjónunum Ísak og Noi í Ásbyrgi sem
gerðu garðinn frægan í
heimildamynd Ásthildar
Kjartansdóttur um taí-
lensku konurnar í Keldu-
hverfi, Noi, Pam og
mennirnir þeirra:
„Halló Kelduhverfi.
Af okkur er allt gott að
frétta. Við vorum tvær
vikur í þorpinu hennar
Noi, ýmislegt keypt til
búskapar og haldið heilmikið partý framan
við nýja húsið með hljómsveit og veitingum.
Tilefnið var aðallega að hálfbróðir Noi,
Ched, var vígður sem munkur til skamms
tíma og þetta minnti svolítið á ferming-
arveislu. Síðan var dansað á götunni í
nokkra tíma í steikjandi hita og endað í
klaustrinu þar sem hann ætlar að halda til
næstu vikur.
Við erum nú stödd á Koh Chang (Fílaeyj-
unni), sem er austasti partur sem tilheyrir
Taílandi, rétt sunnan við þar sem landamæri
Kambódíu og Taílands enda. Hér er alger
paradís og gott að vera, enda er eyjan þjóð-
garður og hefur verið vernduð fyrir umferð
ferðafólks að mestu, en nú á að byggja upp
hótel og auka ferðamannastrauminn svo um
munar, “ segir m.a. í bréfinu.
Á fundi náttúru-verndarnefndarAkureyrar nýlega
var lögð fram fundargerð
starfshóps um útivist. Þar
segir m.a. um drög að
stígaskipulagi: „Starfs-
hópur um útivist lýsir
ánægju sinni með þá end-
urskoðun á skipulagi
stíga, sem fyrir liggur.
Hópurinn væntir þess að
framkvæmdir í samræmi
við skipulagið hefjist af
krafti sumarið 2004. Hóp-
urinn telur mikilvægt að á
næsta ári verði a.m.k. 15
millj. kr. varið til stíga-
gerðar í bænum og að
framkvæmdum við stíga, í
samræmi við þau skipu-
lagsdrög sem fyrir liggja,
ljúki á innan við 10 árum.“
Stígagerð
Ólafsvík | Ærin Skriða, eign Bjarna Ólafssonar í
Geirakoti, skilaði sér ekki af fjalli í fyrra með lömb-
in sín tvö. Nú á dögunum fundust svo kindurnar
innarlega á Saxhólsdal, uppundir jökulrótum og
hafði ærin bætt gráu gimbrarlambi í hópinn sinn.
Það var Guðmundur Jörundsson á Hellissandi sem
fann kindurnar en hann er sauðléttur smali þótt
orðinn sé roskinn og jafnvel kallaður Fjalla-Bensi ef
svo ber undir. Kindurnar eru vænar og vel útlítandi
og er hrúturinn samanrekinn bolti og fær líf. Á
þessa fjölskyldumynd vantar gráu gimbrina en eig-
andi hópsins gaf Gudmundi lambið að fund-
arlaunum.
Morgunblaðið/Helgi Kristjánsson
Útigöngufé undir Jökli
Kristjana Vagnsdóttirrifjar það upp að hún
hafi hjálpað Zik Zak-
mönnum við tökur á
myndinni Síðasta bænum í
dalnum. Þar fór hún með
hlutverk líks. Hún orti:
Er ævi mín af reynslu rík
reyndar vex mér kraftur
því nú er ég að leika lík
og lifna síðan aftur.
Jón Sigurbjörnsson lék
eiginmann Kristjönu og
segir hún að hjónabandið
hafi verið stutt og storma-
laust:
Við áttum saman eina stund
ógn var tíminn hraður
þú gætinn varst með góða lund
og góður eiginmaður.
Við jarðarförina var mikill
kuldi í kirkjunni, en Krist-
jana var best sett því það
var hlýjast í kistunni.
Myndataka er mannleg grein
má ei valda tjóni:
Í kistunni ég kúrði ein
en kuldinn sótti að Jóni.
Hlýtt í kistunni
pebl@mbl.is
Hornafjörður | Stefnt er að því
að hefja framleiðslu á loðnu-
hrognum hjá Skinney-Þinganesi
hf. á Höfn á komandi loðnu-
vertíð. Mikið af hreinum sjó
þarf til vinnslunnar og ekki er
hægt að notast við sjóinn úr
firðinum vegna þess hve grugg-
ugur hann er. Því hefur fyr-
irtækið fengið Ræktunarsam-
band Flóa og Skeiða til að bora
nokkrar holur í grennd við fisk-
iðjuverið í von um að finna
nægilegt magn af ferskum sjó.
Að sögn Gunnars Ásgeirs-
sonar, stjórnarformanns Skinn-
eyjar-Þinganess, er búið að bora
fjórar holur en ekki hefur enn
fundist sjór í nægilegu magni.
Gunnar segir að nú muni menn
leggjast yfir niðurstöður bor-
ananna og ákveða næstu skref.
Loðnuhrogn hafa ekki verið
unnin áður hjá fyrirtækinu, en
Borgey hf. framleiddi loðnu-
hrogn á árum áður og Skinney
hf. var sömuleiðis með hrogna-
vinnslu á Reyðarfirði. Skinney-
Þinganes hf. varð til við samein-
ingu þessara félaga og hluti
framleiðslutækjanna er því til
hjá fyrirtækinu. Gunnar segir
að stefnt sé að því að hefja
vinnslu strax á komandi loðnu-
vertíð. Loðnuhrogn eru afar
verðmæt afurð og hafa aðallega
verið seld á Japansmarkað hing-
að til. Vonir standa til þess að
markaður sé að opnast í Rúss-
landi fyrir loðnuhrogn og við
það breikkar markaðssvæðið
fyrir loðnuhrogn verulega.
Morgunblaðið/Sigurður Mar
Borað eftir sjó
Hrognavinnsla
Akranes | Á fundi Bæjarstjórnar Akraness
25. nóvember sl. var samþykkt að verja alls
4.776.000 kr. á árinu 2004 til ýmiss konar há-
tíðarhalda og viðburða á Akranesi. Þar með
eru talin hátíðarhöld vegna 17. júní, írskra
daga, þrettándabrennu og skipulagðra
gönguferða.
Á sama fundi var einnig sett fram tillaga
um að gera ráð fyrir rekstri þriggja stofn-
ana sem tengjast æskulýðsmálum, þ.e. fé-
lagsmiðstöðvarinnar Arnardals, Hvíta húss-
ins sem er menningarhús fyrir ungt fólk og
Bíóhallarinnar.
Bíóhöllin mun að öllu óbreyttu skila rúm-
lega 1 milljónar kr. hagnaði á rekstrarárinu
en tekjur Bíóhallarinnar eru áætlaðar 13,7
millj. kr og rekstrargjöld 12,3 mkr.
Hagnaður af
rekstri Bíó-
hallarinnar
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Hljómsveitin „U2 Project“ kunni vel við
sig í Bíóhöllinni á írskum dögum í sumar.
MÖPPU með íslenskum, grænlenskum og
færeyskum frímerkjum var stolið í Midd-
elfart í Danmörku um síðustu helgi þegar
fyrirtækið R.A. Frimærker í Óðinsvéum
tók þátt í frímerkjamarkaði í bænum. Frí-
merkin voru metin á 50 þúsund danskar
krónur eða um 600 þúsund íslenskar.
Fyrir tveimur árum var frímerkja-
möppu með íslenskum frímerkjum stolið
þegar fulltrúar fyrirtækisins voru í Midd-
elfart, að því er fram kemur í blaðinu
Fyens Stiftstidende. Þau frímerki voru um
2 þúsund danskra króna virði eða um 24
þúsund íslenskra króna.
Preben Albrechtsen, eigandi R.A. Fri-
mærker, og kona hans voru með sölubás á
frímerkjamarkaðnum og allar vörur þeirra
lágu á borðum í básnum. Knud Erik Mad-
sen, formaður frímerkjaklúbbsins í
Middelfart, segir við blaðið, að þeir sem
taki þátt í markaðnum verði að hafa merki
sín sýnileg. Það kunni hins vegar að gera
óheiðarlegum sálum kleift að stela verð-
mætum munum þegar athygli eigendanna
beinist að öðru um stundarsakir.
Íslenskum frí-
merkjum stolið
♦ ♦ ♦
Stykkishólmur | Leikfélagið Grímn-
ir í Stykkishólmi frumsýnir í kvöld,
föstudagskvöldið 28. nóvember leik-
ritið Lukkuriddarann. Svo vill til að
Lukkuriddarinn var fyrsta verkefni
Grímnis þegar það var stofnað árið
1967, og segja má að Lukkuriddarinn
heimsækir Stykkishólm í annað sinn.
Lukkuriddarinn er eftir John
Millinton Synge. Verkið byggist á
kynnum höfundar af fólki, lífs-
viðhorfum og hinu litríka tungumáli
er Synge kynntist er hann fluttist til
Araneyja undan vesturströnd Ír-
lands árið 1889 og gerðist þar bóndi.
Lukkuriddarinn flokkast því undir
gamanleikrit eða réttara sagt gam-
ansöngleik því mikið er sungið í verk-
inu.
Leikritið var frumsýnt í Abbey-
leikhúsinu í Dublin árið 1907 og
þurfti 70 lögregluþjóna til að standa
vörð þegar verkið var sýnt því áhorf-
endur skiptust í tvær andstæðar
fylkingar sem létu sér ekki nægja að
láta í ljós þóknun sína og vanþóknun
með hrópum og köllum, heldur börð-
ust með hnúum og hnefum.
Leikstjóri þessarar uppfærslu er
Jón Svanur Pétursson og taka 12
leikarar þátt í sýningunni fyrir utan
10–15 starfsmenn, svo sem ljósa-
meistara, tónlistarstjóra, leiktjalda-
smiði, hvíslara, förðunar- og hár-
greiðslufólk, búningahönnuð og
fleiri.
Í uppfærslunni 1967 var núverandi
leikstjóri í aðalhlutverkinu og lék
lukkuriddarann en leikstjóri var Gísli
Alfreðsson. Sýningar á Lukkuridd-
aranum verða föstudaginn 28. nóv-
ember kl. 21, laugardaginn 29. nóv-
ember kl. 23 og fimmtudaginn 4.
desember kl. 21 í félagsheimilinu í
Stykkishólmi.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Frá æfingu: Egill V. Benediktsson,
Þórður Magnússon, Alfreð Þórólfs-
son, Árni Valgeirsson og Hólm-
fríður Friðjónsdóttir.
Lukkuriddarinn
aftur í Hólminn