Morgunblaðið - 28.11.2003, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 28.11.2003, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2003 37 ð þessum tarfsfólk- Allir voru sannfærðir frá fyrstu mínútu um að Þengli Otra myndi farnast vel. Ég fullyrði að drengurinn hefði hvergi getað fengið betri meðferð en hann fékk hér, “ segir Felix Valsson, sérfræðingur. kk í gegnum ótrúlega læknismeðferð Morgunblaðið/Jim Smart a- og lungnavélina á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut, þau Líney Sím- eðsson, sérfræðingar á vélinni, Bjarni Torfason yfirlæknir og Felix Valsson, sérfræð- gæslulækningum. Hafa þau fjölda góðra samstarfsmanna sér við hlið þegar upp koma Ljósmynd/Óskar Gíslason dunarvél, kælingarbúnaður og margvísleg önnur tæki héldu lífinu í Þengli á gjör- ti hans ganga kraftaverki næst og eru allar horfur á að hann nái sér að fullu. bjb@mbl.is Ég man ekkert hvað égvar að gera daginn semslysið varð. Ég átta migheldur ekki alveg á því hvar ég man síðast eftir mér fyrir slysið. Ég hef ekkert hugsað al- mennilega út í það. Ég man ekkert eftir slysinu. Veit aðeins það sem mér hefur verið sagt,“ segir Þeng- ill Otri Óskarsson, 14 ára piltur sem var bjargað frá drukknun í Breiðholtslaug 11. nóvember sl. Hann lá á gjörgæsludeild þar til á mánudag en þá var hann fluttur á barnadeild Barnaspítala Hringsins. Þengill segist oft heimsækja Breið- holtslaug og þá jafnt til að synda og fara í heitu pottana. Daginn sem slysið varð fór hann einn í sund sem svo oft áður. Hann segist ekki gera sér neina grein fyrir því hvað gerðist í lauginni og getur ekki ímyndað sér hvað hafi orðið til þess að hann missti meðvitund. Þess má geta að Þengill er flugsyndur. Ótrúlegt að þetta hafi gerst í sundi „Við höfum talað um það, hvað það er skrýtið að hugsa til þess eft- ir á, að það skyldi koma eitthvað fyrir hann í sundi,“ segir Heimir Ársælsson, fósturfaðir Þengils. „Það er það síðasta sem okkur hefði dottið í hug, því hann er í sundi nærri því á hverjum einasta degi.“ Óskar Gíslason, faðir Þengils, tekur undir þetta. „Við bjuggumst alveg við því að hann myndi brjóta einhver bein eða eitthvað svoleiðis en það hvarflaði ekki að manni að eitthvað gæti komið fyrir hann í sundi.“ Þengill á þrjú systkini sem öll hafa heimsótt hann á spítalann. Auk þess hefur hann fengið heim- sóknir frá öðrum ættingjum og sjúkrastofan er full af blómum og barnateikningum sem honum hafa borist. „Ert þú kraftaverkamaðurinn?“ spyr Magnús Pétursson, forstjóri Landspítala - háskólasjúkrahúss, sem leit inn til Þengils á meðan blaðamaður Morgunblaðsins var þar í heimsókn í gær. Þengill segir Magnúsi frá líðan sinni og að hann sé óðum að ná meiri kröftum. Man fyrst eftir sér fjórum dögum eftir slysið Þengill vaknaði fyrst á fjórða degi eftir slysið og man í fyrstu ekki eftir því þegar faðir hans rifj- ar þann atburð upp fyrir blaða- mann. Óskar segir að hjúkr- unarfræðingur sem var hjá Þengli er hann vaknaði hafi kynnt sig, sagt honum hvar hann væri, tekið í hendur hans og beðið hann að kreista á sér hendurnar. Allt í einu lifnar yfir Þengli er hann heyrir föður sinn segja nákvæmar frá þessum atburði. „Já, ég man eftir þessu! Ég man ég var að kreista, að hún sagði mér að kreista,“ segir Þengill og brosir til viðstaddra. Þengill var þó svæfður aftur eftir þetta en var svo tekinn úr önd- unarvél fyrir rúmri viku. „Ég var mjög slappur til að byrja með,“ segir Þengill um líðan sína fyrst eftir að hann vaknaði eft- ir slysið. „Núna get ég staðið upp og labbað óstuddur. Mig svimar svolítið en ég finn ekki fyrir nein- um verkjum.“ „Fyrir hann að ganga í gegnum þetta er eins og að hlaupa mörg þúsund kílómetra í einni lotu,“ seg- ir faðir hans. „Hann er því auðvitað gjörsamlega úrvinda.“ Þengill áttar sig ekki á því hve- nær hann man fyrst eftir sér, fyrir utan fyrrgreint tilvik, eftir slysið. „Ég hef reyndar ekkert verið að velta því fyrir mér,“ útskýrir hann. Hlakkar til að hitta félagana Þengill er nemandi í 9. bekk í Hólabrekkuskóla og segir að þótt hann hafi það mjög gott á barna- spítalanum hlakki hann vissulega til að hitta félaga sína. Hann segist ekkert hafa verið að opna skóla- bækurnar en að það muni breytast bráðlega. Nú þurfi hann að ein- beita sér að því að safna kröftum og byggja sig upp. Hann verður nú í sjúkraþjálfun á sjúkrahúsinu en óvíst er hvenær hann verður út- skrifaður, að sögn föður hans. Þengill segist hafa það gott á sjúkrahúsinu, faðir hans vill meina að starfsfólkið bókstaflega dekri við hann. „Ég horfi bara mjög mik- ið á sjónvarpið,“ segir Þengill að- spurður um hvernig hann drepi tímann. Fjölskylda Þengils hefur skrifað dagbók um líðan hans, bata og alla atburðarásina frá því hann kom á sjúkrahúsið. „Þannig að sjúkrasag- an er mjög ítarleg,“ segir Óskar. Skrýtin tilfinning Óskar segir læknana og annað starfsfólk sem sinnti Þengli hafa staðið sig með ólíkindum, sér- staklega starfsfólk gjörgæslunnar. „Þarna var hárrétt fólk á hár- réttum tíma sem tók hárréttar ákvarðanir,“ segir hann. Þengli finnst ótrúlegt til þess að hugsa að hann hafi verið í lífs- hættu. „Það er mjög skrýtin til- finning. Pabbi var að lesa fyrir mig um það sem var gert fyrir mig á spítalanum og ég bara ... vá.“ Þengill og fjölskyldur hans vilja koma á framfæri innilegu þakklæti til allra þeirra sem hafa hjálpað Þengli að ná bata eftir slysið í Breiðholtslauginni; starfsfólki Landspítalans og Breiðholtslaugar, lögreglunni og öðrum sem komu að fyrstu hjálp. Þá segir Óskar skiln- ing og stuðning þeirra fyrirtækja sem aðstandendur Þengils vinna hjá ómetanlegan og beri að þakka. Ótrúleg tilhugsun að hafa verið í lífshættu Þengill Otri Ósk- arsson er þekktur sem „kraftaverka- maðurinn“ á Barna- spítalanum. Hinn 11. nóvember var hann nær drukknaður í Breiðholtslaug og tví- sýnt var um líf hans næstu daga. Sunna Ósk Logadóttir heimsótti Þengil sem hefur náð undraverð- um bata og er óðum að ná fyrri kröftum. Morgunblaðið/Jim Smart Þengill er smám saman að endurheimta fyrri krafta. Örið á hálsinum er eftir slöngur lungnavélarinnar sem m.a. bjargaði lífi hans. sunna@mbl.is Ljósmynd/Óskar Gíslason Þengill Otri var tengdur flóknum tækjabúnaði á gjörgæsludeild Land- spítalans þá daga sem hann lá þar meðvitundarlaus. n ásamt Þengli í Felix til nig irkar. slöngu sjúk- átt otuð til num. m gervi- áttu sér r inn í úr blóð- kilað aft- um aðra óra blá- Með manum þrátt ætu ekki viðhalda st lungun ð bólgna öskun jafnvel nni, sem síðan leiðir til lágs blóðþrýstings og jafnvel hjartastopps. Felix segir að í venjulegum tilvikum sé barkarenna sett í barka sjúk- lings og hann þannig tengdur við öndunarvél sem oftast dugi sem meðferð. Hjá Þengli hafi það ekki dugað þar sem lungun gátu lítið eða ekki starfað fyrst eftir drukknunina. Loftskiptin um lungu Þengils voru mjög tak- mörkuð í marga daga og því hefði hann ekki lifað af án hjarta- og lungnavélarinnar. n sem hélt Þengli á lífi          ! "                 
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.