Morgunblaðið - 28.11.2003, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 28.11.2003, Blaðsíða 27
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2003 27 Reykjanesbær | Karlakór Kefla- víkur og Íslandsbanki í Keflavík fengu afhent menningarverðlaun Reykjanesbæjar 2003 við hátíð- lega athöfn í sal Listasafns Reykjanesbæjar í gær. Fyrir til- viljun kom það í hlut feðgina, Steins Erlingssonar formanns karlakórsins og Unu Steinsdóttur útibússtjóra Íslandsbanka að veita viðurkenningum viðtöku á sama tíma úr hendi Bjarkar Guðjóns- dóttur, forseta bæjarstjórnar. „Nei, þetta er engin tilviljun. Þau koma úr svo sterkri menning- arfjölskyldu,“ skaut Valgerður Guðmundsdóttir menningar- fulltrúi inn í spjall blaðamanns við feðginin Stein og Unu eftir af- hendinguna í gær. „Nei, þetta hlýtur að vera alger tilviljun, pabbi fær enga styrki, við tölum að minnsta kosti ekki hátt um það,“ sagði Una en Steinn sagði að það væri skemmtilegt að svona skyldi hafa hist á í þetta skipti, að þau væru þarna bæði stödd í þessum tilgangi. Menningarverðlaun Reykjanes- bæjar voru veitt í sjöunda skipti. Annars vegar er veitt viðurkenn- ing til einstaklings eða hóps sem unnið hefur vel að menningar- málum í bæjarfélaginu. Sú við- urkenning kom nú í hlut Karlakórs Keflavíkur sem starfað hefur með miklum þrótti í fimmtíu ár. Hins vegar er um að ræða viðurkenn- ingu til fyrirtækis sem stutt hefur við menninguna á annan hátt, til dæmis með fjárstuðningi. Sú við- urkenning kom að þessu sinni í hlut Íslandsbanka í Keflavík sem meðal annars hefur stutt starf Listasafns Reykjanesbæjar. Til staðfestingar á þessari við- urkenningu fengu kórinn og bank- inn afhenta sérstaka verðlauna- styttu, Súluna eftir Karl Olsen. „Þetta er hvatning til kórsins að halda sínu striki næstu fimmtíu ár- in. Við vitum hvað við höfum og hvað við þurfum til að halda þessu gangandi,“ sagði Steinn um þýð- ingu viðurkenningarinnar fyrir Karlakórinn. Hann bætti því við að þegar Reykjanesbær hóaði í kór- inn væru menn klárir í bátana og það vissu menn þar á bæ. Una sagði að það væri skemmtilegt og hefði komið á óvart að fá þetta hrós fyrir þá viðleitni bankans að styðja við menningu og listir í bænum. „Við teljum það raunar hluta af samfélagslegum skyldum þessa fyrirtækis,“ sagði Una Steinsdóttir útibússtjóri. „Hlýtur að vera tilviljun“ Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Söngur og fjármagn: Feðginin Steinn og Una tóku við menningarverðlaunum Reykjanesbæjar 2003. Feðgin tóku við menningarverðlaunum Reykjanesbæjar fyrir árið 2003 Keflavíkurflugvöllur | Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. og sam- keppnisráð hafa verið sýknuð af kröfum Íslensks markaðar um ógildingu úrskurðar áfrýjunar- nefndar samkeppnismála varðandi forval vegna úthlutunar á verslun- arplássi í flugstöðinni. Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. hóf á síðasta ári forval rekstrar- aðila vegna verslunar og þjónustu í flugstöðinni. Íslenskur markaður rak mál fyrir samkeppnisyfirvöld- um, meðal annars á þeim forsend- um að Flugstöðin hefði misnotað markaðsráðandi aðstöðu sína og að starfsemin hefði skaðleg áhrif á samkeppni. Niðurstaða áfrýjunar- nefndar samkeppnismála var sú að Flugstöðin gæti sem húseigandi ráðstafað verslunarplássi og vöru- flokkum í flugstöðinni. Héraðs- dómur hefur nú staðfest þessa nið- urstöðu. „Það er staðfest með þessum dómi að forval um val á rekstrarað- ilum í flugstöðinni, forsendur þess og umfang hafi verið lögmætt,“ segir í fréttatilkynningu frá Flug- stöð Leifs Eiríkssonar. Flugstöðin hefur heimild til forvalsKeflavík | Þjóðleikhúsið sýnir Græna landið í síðasta skipti í Frumleikhús- inu í Keflavík í kvöld. Er þetta auka- sýning vegna þess að uppselt hefur verið á flestir sýningarnar. Leikritið, sem er nýtt verk eftir Ólaf Hauk Símonarson, verður tekið til sýninga á litla sviði Þjóðleikhúss- ins eftir áramót. Miðasala er í miðasölu Þjóðleik- hússins og einnig er unnt að kaupa miða í Frumleikhúsinu klukkutíma fyrir sýningu. Síðasta sýning á Græna landinu Reykjanesbraut | Verktakarnir sem vinna að tvöföldun Reykjanesbraut- arinnar eru tilbúnir til að hraða vinnunni í vetur og skila hraðbraut- inni af sér í júní, fimm til sex mán- uðum fyrr en samningar þeirra kveða á um. Áhugahópur þrýstir á um að framkvæmdum verði haldið áfram og mun hópurinn koma saman við minn- isvarðann í Kúagerði á sunnudag. Háfell, Jarðvélar og Eykt tóku að sér tvöföldun Reykjanesbrautarinn- ar frá bæjarmörkum Hafnarfjarðar og hálfa leiðina til Njarðvíkur. Samið var um að verkinu ætti að skila 1. des- ember á næsta ári en forsvarsmenn verktakanna lýstu því yfir að þeir hygðust skila af sér að fullu 1. sept- ember og fá þá ákveðna uppbót, svo- kallað flýtifé, frá Vegagerðinni. Verkið er komið vel á veg. Verk- takarnir hafa nú fyrir milligöngu áhugahóps um tvöföldun Reykjanes- brautarinnar, lýst þeim vilja að skila akstursbrautunum af sér enn fyrr, eða þannig að hægt yrði að taka hrað- brautina í notkun að fullu í júní á næsta ári. Eiður Haraldsson, eigandi Háfells ehf., segir að þeir séu til reiðu búnir að keyra verkið áfram á fullum afköstum í vetur til að ná þessu mark- miði. Þá yrði hægt að ljúka malbikun á vordögum og taka veginn þá í notk- un, þótt einhver frágangsvinna yrði hugsanlega eftir. Eiður segir að ein- hver kostnaður fylgi því að vinna meira í vetur en áformað var og myndu þeir vilja fá hluta þess kostn- aðar til baka með auknu flýtifé. Framkvæmdin stöðvast Steinþór Jónsson, talsmaður áhugahópsins, fagnar því að unnt sé að flýta verkinu og vonast til að yf- irvöld samgöngumála taki vel í tillög- ur verktakanna. Hann segir að margt af því sem áhugahópurinn hafi haldið fram sé að koma fram, meðal annars að unnt væri að vinna verkið á mun skemmri tíma en upphaflega var áformað og að það myndi kosta minna en talað var um. Varðandi það síðarnefnda vísar hann til þeirra hag- stæðu tilboða sem komu í verkið. Áhugahópurinn hefur verið að vinna að því að verkinu verði haldið áfram, Reykjanesbrautin verði tvö- földuð alla leið til Njarðvíkur og hafa meðal annars átt fundi með sam- gönguráðherra vegna þess. Eins og staðan er núna eru ekki neinar fjár- veitingar til framhaldsins. Talað hef- ur verið um að unnt yrði að bjóða þá framkvæmd út í loks árs 2005, í fyrsta lagi. Steinþór segir skelfilegt til þess að hugsa að nú sé útlit fyrir að framkvæmdirnar stöðvist á næsta ári og ekki vitað hvenær þráðurinn verði tekinn upp að nýju. Hann segir að bú- ið sé að hanna veginn alla leið og telur góðar líkur á að hagstæð tilboð fengj- ust í nýju útboði og vísar þar meðal annars til þess tilboðs núverandi verktaka að taka framhaldið að sér á sama einingaverði og þeir vinna núna á. Steinþór rifjar upp að sex banaslys hafi orðið á Reykjanesbrautinni á þessu ári. „Þetta er eitt ljótasta árið á brautinni og við finnum nú áþreifan- lega fyrir þörfinni á umbótum. Þetta stöðvast ekki fyrr en verkefninu verður lokið,“ segir hann. Forsvarsmenn áhugahópsins boða til athafnar við minnisvarðann við Kúagerði klukkan 18 næstkomandi sunnudag og Steinþór segir að ef framhaldið fari ekki að skýrast verði efnt til nýs borgarafundar 11. janúar næstkomandi. Þá verður liðið ár frá því fyrsta skóflustunga var tekin að framkvæmdinni sem nú stendur yfir og þrjú ár síðan haldinn var fjöl- mennur borgarafundur í Reykja- nesbæ um málefni Reykjanesbraut- arinnar. Verktakarnir reiðubúnir að hraða framkvæmdum í vetur Gætu opnað hrað- brautina í júní Keflavík | „Þetta er óð- ur til landsins okkar,“ segir Hjördís Árna- dóttir sem í dag opnar myndlistarsýningu að Hafnargötu 22 í Kefla- vík. Sýninguna nefnir hún Bláa landið en myndefnið sækir hún í eigin undirmeðvitund og leitast við að lýsa þeim hughrifum sem íslenskt landslag hef- ur á hana. Hjördís segist hafa ferðast mikið um land- ið á undanförnum ár- um, meðal annars Austfirði og hálendið og í sumar hafi hún farið um Vestfirði. „Ég verð alltaf jafn gagntekin af ís- lensku landslagi,“ segir Hjördís. Flestar myndirnar málaði hún á dögunum þegar hún dvaldi á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði. Segir að þegar stund gafst frá lík- amlegum æfingum hafi hún farið inn í sitt litla herbergi og málað til að byggja sig upp andlega. „Ég kallaði fram minningar um staði sem mér voru hugstæðir og túlkaði þá á minn hátt,“ segir Hjördís. Á sýningunni eru um þrjátíu myndir, flestar unnar með akríl á striga enda segist Hjördís ekki hafa getað notað olíuliti í herberginu sínu í Hveragerði. Hún segist ekki hafa fengist áður við að mála landslag en lítur á þessa tilraun sem lið í því að þróa sig áfram. „Ég hef haft mest gaman af óhlutbundnum myndum en hef prófað flest enda tel ég það nauð- synlegt fyrir alþýðulistamann sem er í fullri vinnu við annað,“ segir Hjördís en hún starfar sem félags- málastjóri Reykjanesbæjar. Hún hefur verið á námskeiðum í myndlist samfellt í átta ár og hefur haldið þrjár einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga. Sýningin opnar klukkan 17 í dag. Hún verður opin á laugadag kl. 10 til 16 og á sunnudag 14 til 17. Hjör- dís stefnir að því að hafa sýninguna opna eitthvað áfram. Bláa landið: Hjördís Árnadóttir er heilluð af ís- lensku landslagi og sýnir nú túlkun sína á því. „Óður til landsins“ Morgunblaðið/Helgi Bjarnason SIGURÐUR Sævarsson tónskáld og Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur fengu hæstu styrki einstaklinga úr menningarhluta Mann- gildissjóðs Reykjanesbæjar fyrir árið 2003 og Leikfélag Keflavíkur fékk hæstu fjárhæð list- hópa. Styrkir voru afhentir við athöfn í sal Listasafns Reykjanesbæjar í gær og um leið voru undirritaðir rekstrar- og þjónustusamn- ingar við nokkra listahópa. Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð Reykjanesbæjar hafði þrjár milljónir til út- hlutunar úr Manngildissjóði. Var þeim fjár- munum úthlutað til ellefu umsækjenda. Sigurður og Steinunn fengu 300 þúsund króna styrki hvort um sig. Siguður er að ljúka við Hallgrímspassíu, tónverk við texta upp úr Passíusálmum Hallgríms Péturs- sonar. Steinunn vinnur að ritun síðara bindis ævisögu Guðríðar Símonardóttur. Brynja Magnúsdóttir fær 150 þúsund króna styrk til að vinna að merkingum á merkum stöðum í bæjarfélaginu og Siguringi Sigurjónsson fær sömu fjárhæð til að setja upp leikritið Ráðalausa menn í Reykjanesbæ. Þá fengu Ólöf Guðmundsdóttir og starfsfólk leikskólans Heiðarsels 100 þúsund kr. styrk til að vinna sögu og spil um útilistaverk í bæj- arfélaginu og Ísmedía og Kristlaug M. Sig- urðardóttir sömu fjárhæð til að gera heimild- armynd um Reykjanesbrautina. Leikfélag Keflavíkur fékk hæsta styrk list- hópanna, 460 þúsund krónur, til að greiða laun leikstjóra. Félagi myndlistarmanna var úthlutað 300 þúsund kr. styrkur vegna nám- skeiðahalds í Svarta pakkhúsinu. Karlakór Keflavíkur og Kvennakór Suð- urnesja fengu 300 þúsund króna styrk hvor kór, auk þess sem Karlakórnum var afhent 300 þúsund króna afmælisgjöf í tilefni 50 ára afmælis. Þá fékk Tónlistarfélag Reykjanes- bæjar 200 þúsund kr. til tónleikahalds. Um leið voru undirritaðir samningar við listhópana þar sem þeim er tryggður sami stuðningur í þrjú ár. Þrjár milljónir til ellefu listamanna og hópa Hljómar í kirkjunni | Hljómsveitin Hljómar leikur á Jólasveiflu í Kefla- víkurkirkju næstu tvo sunnudaga, fyrsta og annan sunnudag í jóla- föstu, báða dagana klukkan 20.30. Þeir koma fram ásamt kór og barna- kór Keflavíkurkirkju sem syngja undir stjórn Hákonar Leifssonar, organista og kórstjóra. Í fréttatilkynningu kemur fram að Hljómar séu eitt dæmið um áhrif keflvískra tónlistarmanna. Sérstök ástæða sé til að þakka þeim fyrir hversu jákvæð áhrif tónlist þeirra hafi haft á uppvaxandi kynslóð. Og með endurkomu sinni nú eyði þeir aldursfordómum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.