Morgunblaðið - 28.11.2003, Blaðsíða 58
DAGBÓK
58 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Bjarni Ólafsson, Peter
Ronna, Goðafoss, Há-
kon, Björn og Arn-
arfell fara í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og
jóga, kl. 14 bingó, sýnd
verður mynd frá eld-
gosinu í Surstey í kaffi-
tímanum. Hársnyrting,
fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 13–
16.30 smíðar. Bingó
spilað 2. og 4. föstudag
í mánuði.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–12.30 bað, kl. 9–12
vefnaður, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
vefnaður og spilað í sal,
kl. 13.30 félagsvist.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað
og hárgreiðslustofan
opin, kl. 14 söngstund.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, kl.
10–13 verslunin opin.
Félagsstarfið Furu-
gerði 1. Kl. 9, aðstoð
við böðun, smíðar og
útskurður. Kl. 14,
messa, prestur sr.
Ólafur Jóhannsson,
Furugerðiskórinn
syngur undir stjórn
Ingunnar Guðmunds-
dóttur.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
vinnustofa, myndlist
o.fl., kl. 9.30 gönguhóp-
ur, kl. 14 spilað.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13 opið hús,
spilað á spil.
Félag eldri boragara í
Garðabæ. Harm-
onikkuball í Kirkju-
hvoli í dag kl 14.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Tréút-
skurður kl. 9 og kl. 13,
Leikfimi í Bjarkarhúsi
kl. 11.30, brids kl. 13.
Dansleikur í kvöld kl.
20.30–24 Caprí Tríóið
leikur fyrir dansi.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Útvarp Saga
99,4 í dag kl. 12.20.
Þáttur um málefni
eldri borgara.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 9–16.30
vinnnustofur opnar,
m.a. kortagerð og fjöl-
breytt föndur kl. 10
„gleðin léttir limina“
létt ganga og fleira, frá
hádegi spilasalur op-
inn. Kl. 13.30 leggja
kórfélagar af stað í
heimsókn í Vídalíns-
kirkju í Garðabæ. S.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 myndvefnaður,
kl. 9.30 málm- og
silfursmíði, kl. 13 bók-
band.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin frá kl. 9–17 virka
daga, kl. 14–15 bingó.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, út-
skurður, baðþjónusta,
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 11 spurt og
spjallað, kl. 14 bingó.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
9–12 postulínsmálning,
kl. 14.30 spænska,
framh. Fótaaðgerðir
virka daga, hársnyrt-
ing þriðju- og föstu-
daga.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
17 hárgreiðsla, kl. 10–
11 boccia, kl. 14 leik-
fimi.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
handavinna, kl.10–11
kántrýdans, kl.13.30
sungið við flygilinn,
kl.14.30 dansað í kaffi-
tímanum.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla
og myndlist, kl. 9.30
bókband og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og leikfimi, kl.
12.30 leir.
Félag eldri borgara í
Gjábakka. Spilað brids
kl. 19 þriðjud. og kl.
13.15 föstud.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laug-
ardögum.
Félag einhleypra.
Fundur á morgun kl.
21 í Konnakoti Hverfis-
götu 105, Nýir félagar
velkomnir. Heitt á
könnunni. Munið göng-
una mánu- og fimmtu-
daga.
Minningarkort
Minningarkort Barna-
heilla til stuðnings
málefnum barna fást
afgreidd á skrifstofu
samtakanna á Lauga-
vegi 7 eða í s. 561 0545.
Gíróþjónusta.
Barnaspítali Hrings-
ins. Upplýsingar um
minningarkort Barna-
spítalasjóðs Hringsins
fást hjá Kvenfélagi
Hringsins í s. 551 4080.
Kortin fást í flestum
apótekum á höfuðborg-
arsvæðinu.
Í dag er föstudagur 28. nóv-
ember, 332. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: „Á því munu allir
þekkja, að þér eruð mínir
lærisveinar, ef þér berið elsku
hver til annars.“
(Jh.. 13, 35.)
Steinþór Heiðarssonfjallar um mál póli-
tískra flóttamanna á vef-
ritinu Múrnum og bendir
á að einungis ein umsókn
um hæli hafi verið sam-
þykkt á síðustu árum en
315 hælisleitendur hafi
hins vegar fengið synjun.
Það er efalaust satt aðÚtlendingastofnunin
hefur rétt samkvæmt al-
þjóðlegum samningum til
að senda hvern þann til
baka sem ekki kemur
hingað beint frá sínu
heimalandi,“ segir Stein-
þór. „En heimild er eitt
og skylda annað – það er
ekki eins og íslensk
stjórnvöld hafi skuld-
bundið sig til að neita öll-
um umsóknum sem
mögulegt er að neita
með lagatúlkunum. Ef
það er ekki stefna ríkis-
stjórnarinnar þá er það
stefna sem viðkomandi
embættismenn hafa
markað í sínu litla kóngs-
ríki. Og það ætti ekki að
þurfa að spyrja um sið-
ferði þessa háttalags.
Höfuðið bítur Útlend-ingastofnunin af
skömminni þegar hún
ber það fyrir sig að
heimalönd hælisleitenda
séu hreint ekki svo slæm
og þar að auki á hraðri
leið til hins betra. Rök-
stuðningurinn er á köfl-
um þannig að hann gæfi
refsistig í ræðukeppni
grunnskólanna. Þannig
taldi Útlendingastofnun
ólíklegt að Rómar (sem
margir kalla sígauna)
ættu tiltakanlega erfitt
uppdráttar í Rúmeníu
þar sem hún væri bæði á
leiðinni inn í ESB og
NATO þegar fram liðu
stundir. Nú hefur Afgan-
istan reyndar ekki sótt
um aðild að NATO svo
ekki var hægt að vísa til
þess þegar Ramin Sana
var synjað um hæli á Ís-
landi. En þar með voru
menn langt í frá uppi-
skroppa með aularökin
og bentu sigri hrósandi á
að talibana-stjórnin væri
fallin.
Til að nýfætt barn
Ramin og Jönu Sana fái
vegabréf þurfa þau að
tilkynna barnsburðinn til
annaðhvort Afganistan
eða Úsbekistan. Varla
þarf að fjölyrða um
ástandið í fyrrnefnda
landinu þótt Útlend-
ingastofnun virðist
ókunnugt um þá skálm-
öld sem þar ríkir. Í Ús-
bekistan er meðferðin á
stjórnarandstæðingum
með því viðbjóðslegasta
sem gerist í samtímanum
og sérlega vinsælt að
dýfa þeim í sjóðandi vatn
til að leiða þá á heilla-
vænlegri braut í pólitík-
inni.
Æðstudómarar Útlend-ingastofnunar ættu
að velta því fyrir sér
hvort líklegt sé að fólk
verði álitið sérstakir
stuðningsmenn stjórn-
valda í Úsbekistan eftir
að hafa flúið landið og
sótt um hæli. Við hin get-
um velt því fyrir okkur
hvort mönnum, sem bera
á borð annan eins þvætt-
ing um Afganistan, sé
hreinlega sjálfrátt,“ seg-
ir Steinþór.
STAKSTEINAR
Hörð stefna í flótta-
mannamálum
Orð í belg
– athugasemd
MIG langar bara til að
koma á framfæri athuga-
semd við grein, sem birtist í
Morgunblaðinu 13. nóvem-
ber sl., þar sem fyrirsögnin
er Orð í belg á bls. 49.
Ég held ég hafi aldrei,
hvorki fyrr né síðar séð
jafnljótt orðbragð á síðum
Morgunblaðsins, sem ég
hef þó lesið í áratugi. Mig
furðar að Mbl. skuli birta
annað eins. Að ákveðnir
þjóðfélagshópar séu kallað-
ir aumingjar og réttast
væri að skjóta það pakk.
Að vísu skil ég höfund
þannig að hér sé um öfug-
mæli að ræða. Einhvers
staðar hlýtur þó að verða
að draga mörkin. Allavega
ofbýður mér. Ef þetta er
vísirinn að því sem koma
skal, hljóta einhverjir
áskrifendur að fara að
hugsa sinn gang.
Kveðja,
Kristján S. Baldursson,
Egilsgötu 28, R.
Svik við kaup?
MIG langar að vara fólk við
að kaupa bíla milliliðalaust
eftir auglýsingum í blöðum
eða útvarpi. Þannig var að
ég keypti bíl af manni sem
auglýsti bíl sinn til sölu á
flóamarkaði Útvarps Sögu.
Ég kaupi sem sagt bílinn
á 40.000 kr. Skoðaður bíll
’87 árg með 5 vetrardekkj-
um. „Fínn bíll“, segir selj-
andinn, „rýkur alltaf í gang
og allt það.“ Ég auðvitað
heimska konan trúi þessu
öllu saman og reiði fram fé
mitt og keyri af stað heim
með bílinn.
Vika líður og ég fer að
nota bílinn af alvöru og þá
gerist það að bílinn stöðv-
ast í Ártúnsbrekkunni og
neitar að haldast í gangi.
Ég læt draga hann og
kemst að því að rafgeym-
irinn er tómur! 10.000 kr
þar.
Enn fer bíllinn ekki í
gang og ég kemst að því að
kveikjuheilinn er ónýtur,
20.000 kr. þar. Þá fara að
renna á mig tvær grímur.
Er þetta ekki dæmi um
það þegar fólk er svikið við
kaup? Seljandinn vill ekk-
ert fyrir mig gera og ég sit
uppi með bíl sem ekki borg-
ar sig að gera við, og 50.000
krónum fátækari. Farið
varlega, eru mín ráð.
Tabitha Snyder,
300871-5429.
Strætó sem
ekki stoppar
ÉG var að koma frá
Glæsibæ sl. sunnudags-
kvöld og ætlaði taka vagn
nr. 6 heim. Var ég á mótum
Miklubrautar og Grensás-
vegar og vorum við tveir
sem biðum eftir vagninum.
Þegar vagninn kom að
stoppustöðinni hélt hann
bara áfram án þess að
stoppa.
Það vildi til að vagn nr. 5
kom á eftir og gat ég tekið
hann niður á Hlemm en
varð að taka leigubíl þaðan
og heim.
Farþegi.
Hvar fæst Develop
10 naglaherðir?
Í MÖRG ár notaði ég
naglaherði frá „Develop
10“ og á tímabili flutti ég
hann inn sjálf. Nú virðist
þessi frábæri naglaherðir
ekki vera til hér á landi. Er
einhver sem veit hvað orðið
hefur um þessa vöru?
Rannveig.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Hinn 8. nóvember síðastliðinn, lagði
Boeing 757-200 TF-FIN, vél Icelandair
af stað frá Gautaborg í hnattflug með
190 Svía sem höfðu unnið í Lottó.
Var ferðinni meðal annars heitið til
Höfðaborgar, en þar var þessi mynd
tekin af vélinni 23. nóvember.
Á ferðin að taka 28 daga, flogið verð-
ur 57 þúsund kílómetra, samtals 80 flug-
tíma.
Meðal staða sem lent var á voru:
Dubai, Bangkok, Phuket, Singapúr,
Sydney, Tahiti, Páskaeyjar, Rio de Jan-
eiro og Höfðaborg.
Flugáhugamönnum fannst gaman að
sjá íslenska vél í Höfðaborg sem er frek-
ar sjaldgæf sjón.
Kveðja,
Sigurbjörn
Sigurðsson.
Icelandair í lottóflugi með Svía
LÁRÉTT
1 smánar, 8 hákarlshúð,
9 japla, 10 blása, 11 vagn,
13 hlaupa, 15 kofa, 18
smákorns, 21 erfiði, 22
viljuga, 23 kærleikshót,
24 hagkvæmt.
LÓÐRÉTT
2 hinar, 3 kjaga aftur og
fram, 4 víðar, 5 gyðja, 6
saklaus, 7 gefa að borða,
12 magur, 14 fjallsbrún,
15 mikill, 16 óhreinka, 17
eyða litlu, 18 stétt, 19
næstum ný, 20 óbogið.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 píanó, 4 bytta, 7 lydda, 8 rófum, 9 kút, 11 nafn,
13 garn, 14 örvar, 15 hróf, 17 ábót, 20 ugg, 22 ofnar, 23
aftur, 24 iðrun, 25 temja.
Lóðrétt: 1 pílan, 2 andóf, 3 ómak, 4 burt, 5 tefja, 6 amm-
an, 10 útveg, 12 nöf, 13 grá, 15 hroki, 16 ógnar, 18 bæt-
um, 19 torga, 20 urin, 21 galt.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
Það er fastur liður þegar útlend-inga ber að garði að sýna þeim
örlítið meira af landinu heldur en
Reykjavík. Svo virðist sem flestir
þeir sem hingað koma sækist eftir
því að fara í Bláa lónið. Þá er það
nánast skylda að erlendir gestir fái
einnig tækifæri til að berja Gullfoss
og Geysi augum.
Víkverji tók á móti erlendum gest-
um um síðustu helgi og að sjálfsögðu
var farið með þá í hina hefðbundnu
ökuferð yfir Hellisheiðina.
x x x
Hverasvæðið við Geysi stóð undirvæntingum að venju og eftir að
hafa dvalið þar um stund var haldið
áfram að Gullfossi. Þegar Víkverji
átti nokkuð hundruð metra eftir
ófarna að fossinum tók hann eftir því
að vegurinn hafði breyst í svell. Var
greinilegt að úðinn frá fossinum
teygði sig nokkuð langt og því nauð-
synlegt að aka af fyllstu varfærni.
x x x
Það tók hins vegar ekki betra viðþegar út var komið. Ekki nóg
með að bílastæðið hefði getað sómt
sér sem skautasvell heldur voru allir
göngustígar að fossinum einnig ísi
lagðir. Fór svo að Víkverji og gestir
hans treystu sér ekki til að halda að
fossinum heldur létu sér nægja að
feta sig áfram í grasbrekkunni með-
fram göngustígunum og virða foss-
inn síðan fyrir sér í fjarlægð.
Það var ekki mikið um gesti við
Gullfoss þennan sunnudag en þó
komu þarna nokkrir bílar á meðan
Víkverji var á staðnum og virtist í
flestum tilvikum vera um að ræða
erlenda ferðamenn á bílaleigubílum.
Flestir gestanna voru bókstaflega
eins og beljur á svelli þegar út á
göngustígana var komið og voru ef-
laust nokkrir með sára afturenda
miðað við skellina er þeir virtust fá
er þeir misstu fótanna í hálkunni.
x x x
Sumir voru það hugrakkir að þeirlögðu af stað stíginn niður að
fossinum sjálfum og hafði Víkverji
áhyggjur af því hvernig þau ferðalög
gætu endað.
Víkverji er ákafur talsmaður þess
að náttúruperlur landsins fái að
njóta sín án þess að verið sé að raska
umhverfi þeirra. Hins vegar gæti
verið skynsamlegt að setja upp við-
vörunarskilti er vara fólk við þessum
aðstæðum og jafnvel að bera salt á
göngustígana þannig að brotin bein
verði ekki sú minning er gestir okk-
ar fara með heim.
Eftir því sem ferðamönnum fjölg-
ar utan hins hefðbundna ferða-
mannatíma má reikna með að fleiri
sæki náttúruundrin á Suðurlandi
heim við aðstæður sem þessar. Það
hlýtur að vera skylda okkar að
tryggja að þær heimsóknir endi ekki
með ósköpum.
Morgunblaðið/Þorkell
Gullfoss í klakaböndum.