Morgunblaðið - 28.11.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2003 9
Hlýjar yfirhafnir
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Bankastræti 14, sími 552 1555
Fallegar vörur
Fjölbreytt úrval
Í mjúka pakkann hennar
ullar- og silkipashminur
Margir litir
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Kringlunni, sími 588 1680.
Seltjarnarnesi, sími 561 1680.
tískuverslun
iðunn
Stretch
gallabuxur
Blússur og
peysur í úrvali
Laugavegi 84, sími 551 0756
á horni Skólavörðustígs og Klapparstígs, sími 551 4050
Póstsendum
Úrval af
rúmfatnaði fyrir
alla fjölskylduna
Hverfisgötu 6 sími 562 2862
KAUPVERÐ Landsbanka Íslands
mun lækka um 700 milljónir króna
skv. ákvæði í kaupsamningi ríkisins
við Samson ehf. um takmarkaða verð-
aðlögun ef þróun tiltekinna efnahags-
liða yrði önnur en gengið var út frá í
samkomulaginu. Viðskiptaráðuneytið
gaf út tilkynningu þessa efnis í gær.
Gengið var frá sölu á 45,8% hlut í
Landsbankanum til Samsonar ehf.
fyrir 12,3 milljarða á gamlársdag í
fyrra.
Í tilkynningu framkvæmdanefndar
um einkavæðingu frá 31. desember
2002 um undirritun kaupsamnings
milli íslenska ríkisins og Samsonar
ehf. kom fram að í samningnum væru
ákvæði um takmarkaða verðaðlögun,
allt að 700 milljónir króna, ef þróun
tiltekinna efnahagsliða yrði önnur en
gengið var út frá í samkomulagi aðila.
Þá kom fram að ekki yrði ljóst fyrr en
á síðari hluta ársins 2003 hvort þessi
ákvæði hefðu áhrif á endanlegt kaup-
verð.
Í tilkynningu frá viðskiptaráðu-
neytinu til Kauphallar Íslands segir
að nú liggi fyrir sú niðurstaða að
kaupverð Landsbanka Íslands lækki
um 700 milljónir króna að fengnu
mati tveggja endurskoðunarskrif-
stofa og staðfestingu Ríkisendur-
skoðunar á tilteknum eignum Lands-
banka Íslands þann 30. júní sl. Þar
segir jafnframt að lokagreiðsla kaup-
verðsins verði innt af hendi þann 29.
desember nk.
Kaupverð Landsbankans
lækkar um 700 milljónir
FORMAÐUR samgöngunefnd-
ar Reykjavíkurborgar, Árni Þór
Sigurðsson, sýndi slæmt for-
dæmi að mati Kjartans Magn-
ússonar, borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokks, þegar hann notaði
embættisbifreið forseta borgar-
stjórnar á bíllausa daginn.
Kjartan benti á þá staðreynd, á
fundi samgöngunefndar, að
Árni Þór hafi sjálfur hvatt al-
menning til að nýta sér almenn-
ingssamgöngur og aðra ferða-
máta en einkabílinn, en síðan
notað hann sjálfur. Þetta hafi
valdið neikvæðri fjölmiðlaum-
fjöllun og verið á skjön við boð-
skap bíllausa dagsins. Kjartan
segir Árna Þór, sem var í aðal-
hlutverki við að kynna sam-
gönguvikuna í september, hafa
neitað að svara fyrirspurnum
um þessa breytni þangað til ný-
lega og þá með ómálefnalegum
skætingi. „Við vildum ræða
þessi mál bæði út frá jákvæðri
og neikvæðri fjölmiðlaumfjöllun
og fara almennt yfir málið, en í
stað þess að svara því, brást for-
maðurinn afar illa við og réðst á
mig með stóryrðum og skæt-
ingi,“ segir Kjartan. „Mér sýnist
út frá þeim svörum sem ég fékk
um kostnað samgönguvikunnar
að þar vanti inn vissa kostnaðar-
liði.“
Nýtti fjölbreyttan
ferðamáta
Í svari Árna Þórs til Kjartans
á fundi samgöngunefndar ný-
lega sagði meðal annars: „Í sam-
ræmi við hugmyndafræði Evr-
ópsku samgönguvikunnar nýtti
formaður samgöngunefndar
einmitt hina fjölbreyttu ferða-
máta þá daga sem vikan stóð
eins og endra nær. Í þeim sam-
anburði á borgarfulltrúi Kjartan
Magnússon ekki úr háum söðli
að detta, þó það sé efni þessa
máls óviðkomandi.“
Borgarfulltrúi
sjálfstæðismanna
Árni Þór
sýndi
slæmt
fordæmi