Morgunblaðið - 28.11.2003, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 28.11.2003, Blaðsíða 21
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2003 21 Bertini sportvagn m/beygjuhjólum 25% afmælis- afsláttur Nú 36.000 Fullt verð 46.900 Systkinasæti m/vagninum Nú 2.500 Fullt verð 4.900 OPNUNARHÁTÍÐ Föstudag kl. 14-19 • Laugardag kl. 10-18 • Sunnudag kl. 12-18 Við flytjum í Húsgagnahöllina Bíldshöfða 20 í dag kl. 14 20% afsláttur af Lamaze leikföngum 15% afsláttur af öllum ungbarnafatnaði 50% afsláttur af skiptitöskum m/vagni Ný sending af 2004 vögnum Á SÍÐUSTU tíu árum hefur morðingi eða morðingjagengi leikið lausum hala í borginni Ciudad Juarez í Chihuahua-héraði í Mexíkó og haldið íbúunum í sannkölluðum heljargreipum. Hafa lík a.m.k. 263 kvenna fundist frá því að fyrsta morðið átti sér stað, í janúar 1993. Mæður hinna myrtu eru óánægðar með fram- göngu yfirvalda á staðnum í leitinni að morð- ingjanum eða morðingjunum og á þriðjudag áttu þær fund með Vicente Fox, forseta Mexíkó. Fundurinn með Fox forseta er hápunkturinn í baráttu mæðra hinna myrtu stúlkna fyrir því að fá yfirvöld til að beita sér meira í málinu. „Eftir alla okkar baráttu þá er þetta sigur,“ sagði Norma Ledesma, ein mæðranna sem funduðu með Fox í Mexíkóborg. „Fox lofaði því að yfirvöld myndu komast til botns í þessu máli,“ sagði Norma Andrade en sautján ára dóttir hennar, Lilia Alejandra, var myrt í hitt- eðfyrra. En fundurinn með forsetanum og öll sú at- hygli sem morðaldan í Ciudad Juarez hefur fengið breytir þó ekki þeirri staðreynd að lög- reglan virðist engu nær því en áður að finna morðingja stúlknanna sem myrtar hafa verið síðustu tíu árin. Verði dæmdir fyrir afglöp Mörg fórnarlamba morðingjans voru verka- konur sem rænt var á leið sinni til og frá vinnu. Mörgum var nauðgað eða þeim mis- þyrmt, þær síðan kyrktar og lík þeirra skilin eftir í eyðimörkinni í nágrenni Ciudad Juarez. Alríkisyfirvöld í Mexíkó hafa tekið yfir rannsókn á sumum morðanna og í október skipaði Fox forseti sérstakan fulltrúa sem á að einbeita sér að lausn málsins. Yfirvöld í Chihuahua þykja hins vegar hafa staðið svo illa að málum í gegnum tíðina að mæður fórnarlambanna kröfðust þess af Fox að hann sæi til þess að saksóknarar og lögreglumenn, sem komið hafa að rannsókn morðmálanna í Ciudad Juarez, yrðu sóttir til saka fyrir afglöp í starfi og fyrir að hafa átt við sönnunargögn. „Saklausir á bak við lás og slá“ „Í Chihuahua hafa þeir sett saklausa menn á bak við lás og slá […] en þeir sem mesta ábyrgðina bera á þessum glæpum eru yfirmenn löggæslunnar,“ sagði Norma Ledesma við blaðamenn á þriðjudag en sextán ára gömul dóttir hennar, Paloma, var myrt í fyrra. Er tekið undir sumar af ásökunum mæðr- anna í nýrri skýrslu sem Mannréttindanefnd stjórnvalda í Mexíkó sendi nýlega frá sér en þar kemur fram að ýmislegt bendi til að emb- ættismenn í Chihuahua hafi falsað sönn- unargögn, beitt grunaða menn pyntingum og að oft hafi vafasömum brögðum verið beitt við yfirheyrslur. Nokkrir menn hafa verið handteknir í tengslum við morðin en svo virðist sem oftast nær hafi lögreglan neytt viðkomandi til að játa á sig aðild. Aðeins einn maður hefur verið sak- felldur og situr hann á bak við lás og slá fyrir eitt morðanna. Yfirvöld vita þó í raun ekki hvort raðmorðingi eða raðmorðingjar bera ábyrgð á dauða allra kvennanna, eða hvort glæpagengi hafa verið hér á ferð. 263 konur hafa verið myrtar í Ciudad Juarez í Mexíkó frá því í janúar 1993 Mæður fórnarlambanna gagnrýna lögregluna Reuters Aðstandendur fórnarlamba morðingjans eða morðingjanna í Ciudad Juarez gengu fylktu liði um Mexíkóborg til að vekja menn til vitundar um að hinn seki gengi enn laus. Segja Fox forseta hafa heitið því að morðmálin verði upplýst Mexíkóborg. AP. RÁÐHERRAR vísindamála Evrópusambandsríkjanna ákváðu á miðvikudag að bær- inn Cadarache í Suður- Frakklandi keppi fyrir hönd Evrópu um að hýsa 5,3 millj- arða evru alþjóðlegt rann- sóknaverkefni, sem miðar að því að smíða kjarna- samrunaofn, þ.e. þróa tækni sem „hermir eftir“ kjarna- samruna í sólinni, sem leysir þá gríðarlegu orku úr læðingi sem sólin geislar frá sér. Cadarache keppir við japanskan bæ Með ákvörðun ráðherranna varð bærinn Vandellos í Katalóníu á Spáni undir í samkeppninni um það hvaða staður í Evrópu keppi um að hýsa verkefnið, sem kallað er ITER (eftir ensku skamm- stöfuninni International Themonuclear Experimental Reactor). Byggðist ákvörð- unin á því mati sérfræðinga, að Cadarache væri betur í sveit sett til að sinna verk- efninu. Nú munu Cadarache og japanskur bær keppa um að fá verkefnið til sín, en til stendur að ákveða það fyrir árslok. Að verkefninu standa Evr- ópusambandið, Japan, Banda- ríkin, Kanada, Kína, Rúss- land og Suður-Kórea. Keppt um smíði kjarnasam- runaofns Brussel, Madríd. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.