Morgunblaðið - 28.11.2003, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
1
1
0
3
NORÐURBRYGGJA verður ekki að-
eins miðstöð lista, vísinda og menn-
ingar, hún hýsir jafnframt sendiskrif-
stofur Færeyja og Grænlands og
sendiráð Íslands sem voru formlega
opnuð í gær. Þetta pólitíska hlutverk
hússins var undirstrikað með því að
nokkrir af forystumönnum lands-
stjórna Færeyja og Grænlands og
Davíð Oddsson forsætisráðherra
ásamt fleiri íslenskum ráðamönnum
funduðu um samskipti landanna á
Norðurbryggju í gærmorgun.
Davíð Oddsson segir að komin sé
hefð fyrir því að leiðtogar vestnor-
rænu landanna hittist tvisvar til
þrisvar á ári, en að þetta hafi verið í
fyrsta sinn sem fundurinn hafi verið
haldinn í Damörku, og Davíð segir
líklegt að það verði gert oftar. Hvorki
Davíð né öðrum vestnorrænum
stjórnmálamönnum sem rætt var við
fannst nokkur vandi felast í því að
hittast í gamla nýlenduveldinu Dan-
mörku. Høgni Hoydal, varaformaður
færeysku landsstjórnarinnar, sagði
að það væri þvert á móti merki um
styrk og sjálfsöryggi eyjanna þriggja
í Atlantshafi að þau treystu sér til
þess nú.
Davíð og Hoydal voru báðir sam-
mála um það að Norðurbryggja væri
góð fjárfesting, og Davíð benti sér-
staklega á að Danir, bæði danska rík-
isstjórnin og auðmaðurinn Mærsk
McKinney Møller, hefðu veitt veru-
legt framlag til verksins.
Við opnun sendiráðs Íslands sæmdi
Davíð Oddsson forsætisráðherra Kaj
Elkrog, fyrrum skatta- og tollstjóra
Danmerkur, riddarakrossi hinnar ís-
lensku fálkaorðu. Elkrog átti ásamt
Morten Meldgaard, núverandi fram-
kvæmdastjóra Norðurbryggju, hug-
myndina að menningarmiðstöðinni og
hefur síðan unnið að því hörðum
höndum og kauplaust að gera hugsýn
þeirra að veruleika.
„Við vorum svolítið hikandi í fyrstu
við að setja sendiráð Íslands í Kaup-
mannahöfn niður í gamalt pakkhús,
og það þurfti mjög sjarmerandi konu
til að sannfæra okkur um gildi þess,“
sagði Davíð í ræðu sinni við opnun
sendiráðsins, og þakkaði Vigdísi
Finnbogadóttur og öðrum þeim sem
lögðu hönd á plóginn við að gera
Norðurbryggju að veruleika.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Davíð að Norðurbryggja væri ákaf-
lega góð staðsetning fyrir sendiráðið.
Bæði væri það miðsvæðis og í borg-
arhluta sem fengi stöðugt meira vægi,
og jafnframt væri það nálægt danska
utanríkisráðuneytinu.
Togari til fræðslu um atvinnu-
vegi í Norður-Atlantshafi
Morten Meldgaard, framkvæmda-
stjóri Norðurbryggju, sagði frá því í
ræðu við upphaf opnunarhátíðarinnar
í gær að unnið væri að því í samstarfi
við Kaupmannahafnarborg, Kaup-
mannahafnarhöfn og fasteignaum-
sýslu danska ríkisins að skipuleggja
svæðið í kringum húsið sem nú var
opnað og að vonast væri til þess að
þar gæti verið meiri starfsemi sem
tengdist Norður-Atlantshafi. Meðal
annars eru uppi hugmyndir um að
hafa togara liggjandi við bryggju þar
sem hægt verði að veita fræðslu um
atvinnuvegi í Norður-Atlantshafi.
Að sjá hið ósýnilega
Vigdís Finnbogadóttir, formaður
Norðurbryggjusjóðsins, sem á og
rekur Norðurbryggju, vitnaði í ræðu
sinni við opnunarhátíðina í franskt
orðatiltæki: Aðeins þeir sem geta
komið auga á það sem ósýnilegt er
eru færir um að framkvæma hið
óframkvæmanlega. „Allt það sem við
virðum fyrir okkur með mikilli
ánægju nú var fyrir fáum árum ósýni-
legt. Þá var þetta hús á mörkum þess
að vera í niðurníðslu og ráðgert var að
svæðið í kring yrði lagt undir íbúðar-
hús. Það okkur því mikið gleðiefni í
dag að þeir voru til sem gátu séð það
sem ósýnilegt var. Og það er okkur
ekki síður gleðiefni að þeir tóku sér
fyrir hendur að framkvæma hið
óframkvæmanlega.“
Á blaðamannafundi fyrir upphaf
opnunarhátíðarinnar lagði Vigdís
áherslu á að Norðurbryggja ætti að
vera hús fólksins, og ekki síst unga
fólksins. Þar ætti því að ríkja gleði og
stemmning og dans.
Anders Fogh Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur, sagði að
staðsetning Norðurbryggju væri
ákaflega góð, bæði væri húsið í hjarta
Kaupmannahafnar, og svo stæði það
við höfnina, sem hefði verið miðstöð
samskipta við Norður-Atlantshaf.
Hann lagði áherslu á að bæði Danir
og erlendir gestir ættu að geta heim-
sótt húsið og notið þess sem þar væri
boðið upp á.
Josef Motzfeldt, varaformaður
landsstjórnar Grænlands, sagði að
það væri merki nýrra tíma að Græn-
lendingar hefðu nú eignast send-
iskrifstofu í Kaupmannahöfn, en áður
hefðu þessi stjórnsýsla verið nefnd
Danmerkurskrifstofan.
Hráefni úr norðrinu
Þrjár sýningar voru opnaðar á
Norðurbryggju í gær, og danskir, ís-
lenskir, færeyskir og grænlenskir
tónlistarmenn komu fram á mismun-
andi stöðum í húsinu. Jafnframt var
veitingastaður hússins, sem nefnist
Noma, kynntur. Einn af forsvar-
mönnum hans er einn af þekktustu
matreiðslumeisturum Dana, Claus
Meyer. Þar verður einkum notast við
hráefni frá eyjunum í Norður-Atl-
antshafi, en við matreiðsluna verða
sóttar hugmyndir bæði þaðan og úr
fjarlægum heimshornum.
Afrakstur
sjö ára erf-
iðrar undir-
búningsvinnu
Ljósmynd/Helgi Þorsteinsson
Davíð Oddsson forsætisráðherra og Ástríður Thorarensen, eiginkona hans, ræða við danska athafnamanninn
Mærsk McKinney Møller við opnun Norðurbryggju. Møller gaf um 240 milljónir íslenskra króna til verkefnisins.
Margrét Þórhildur Danadrottning og Vigdís Finnbogadóttir, formaður
stjórnar Norðurbryggjusjóðsins, skoða málverk á sýningunni Kolonialen.
Davíð Oddsson forsætisráðherra opnaði formlega sendiráð Íslands á Norð-
urbryggju. Við hlið hans er Þorsteinn Pálsson sendiherra.
Sjö ára löngu undirbúningstímabili lauk í
gær þegar Vigdís Finnbogadóttir opnaði
formlega menningar- og rannsóknarmið-
stöðina Norðurbryggju í Kaupmannahöfn.
Helgi Þorsteinsson fylgdist með hátíðlegri
og fjölmennri opnunarhátíðinni.
GESTUR Jónsson, stjórnarfor-
maður Skeljungs hf. , segir það
mikil tíðindi ef Samkeppnisstofnun
hafi gert samkomulag við Olíufé-
lagið að hreyfa ekki við fyrirkomu-
lagi olíudreifingar hér á landi í
tengslum við rannsókn á meintu
samráði olíufyrirtækjanna.
Í fréttum hefur komið fram að í
staðinn myndu forsvarsmenn Olíu-
félagsins vinna með starfsmönnum
Samkeppnisstofnunar að rann-
sókninni.
Gestur segir einmitt víðtækustu
samvinnuna eiga sér stað á vett-
vangi olíudreifingar. „Okkur finnst
mjög einkennilegt að sá þáttur
starfseminnar, sem felur í sér
mestu hættuna á samráði, skuli
vera undanskilinn þeirri rann-
sókn.“
Eins og fyrirkomulagið er í dag
reka Olíufélagið Esso og Olís Olíu-
dreifingu ehf. Esso á 60% hlut í því
félagi en Olís 40%.
Samstarf fór ekki leynt
„Meginverkefni Olíudreifingar
er dreifing og birgðahald á fljót-
andi eldsneyti fyrir móðurfélög sín
sem og sérfræði- og viðhaldsþjón-
usta við þjónustustöðvar þeirra,“
segir á heimasíðu fyrirtækisins.
Gestur segir þetta samstarf ekki
hafa farið leynt og fyrirtækin rekið
saman bensínstöðvar víða um land.
„Svoleiðis starfsemi hefur marga
kosti sem eru fyrst og fremst hag-
kvæmni. Jafnframt býður það auð-
vitað hættunni heim, því til þess að
geta rekið eitthvað sameiginlega
þurfa starfsmenn félaganna að
hittast til að taka ákvarðanir varð-
andi starfsemina. Þess vegna eru
menn vakandi yfir því að það sé
hætta á samráði, sem felst í því að
leyfa félögunum að vera með sam-
eiginlegan rekstur,“ segir Gestur.
Olíudreifingin sé mjög mikilvægur
þáttur í starfsemi olíufélaganna og
kalli á mjög víðtæka samvinnu.
Einkennilegt ef olíu-
dreifing er undanskilin
Gestur Jónsson, stjórnarformaður Skeljungs hf.