Morgunblaðið - 28.11.2003, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.11.2003, Blaðsíða 26
Landsmót | Bæjarráð Akureyrar styður umsókn Ungmennafélags Akureyrar og Ungmennasambands Eyjafjarðar til Ung- mennafélags Íslands um að halda Lands- mót á Akureyri árið 2009. Fyrsta Landsmót ungmennafélaganna var einmitt haldið á Ak- ureyri árið 1909. Félögin sendu erindi til íþrótta- og tómstundaráðs þar sem óskað er eftir því að Akureyrarbær verði aðili að umsókn til UMFÍ um að halda Landsmót árið 2007 eða 2009. ÍTA tók jákvætt í erindið og vísaði því til umfjöllunar bæjarráðs sem nú hefur lýst yfir stuðningi við umsóknina 2009. Margt bendir til að landsmótið 2007 verði haldið sunnan heiða og bæjarráð Árborgar sam- þykkti nýlega að standa að umsókn um að Landsmót Ungmennafélags Íslands verði haldið í Árborg á vegum Héraðssambands- ins Skarphéðins árið 2007 og tryggja nauð- synlega uppbyggingu mannvirkja. FRAMKVÆMDUM við byggingu 9. og 10. áfanga Verkmenntaskól- ans á Akureyri er að mestu lokið og nú er unnið að samningi um síðustu áfangana við skólann og von er á drögum að hönnun frá mennta- málaráðuneyti. Þetta kemur fram í skýrslu Hólmgeirs Karlssonar, oddvita Héraðsnefndar Eyjafjarð- ar, sem lögð var fram á vetrarfundi nefndarinnar í vikunni. Gerður var þríhliða samningur Héraðsnefnd- ar, fjármálaráðuneytis og mennta- málaráðuneytis um byggingu 9. og 10. áfanga og kom fram í máli Hólmgeirs að leita þyrfti leiðrétt- ingar á samningnum, enda liggi fyrir að greiðslur sveitarfélaganna eru mun hærri en umsamin 40%, ef svokallaður normkostnaður verður talist til best búnu framhaldsskóla landsins, að mati Hólmgeirs. Gert er ráð fyrir að miðrýmið verði rúmir 1.100 fermetrar að stærð, stjórnunarálmann um 200 fermetrar og heildarbyggingar- kostnaður um 240 milljónir króna. Fastir kennarar við VMA eru um 90 talsins en nú hafa aðeins um 30 þeirra skrifstofur eða vinnuaðstöðu í tengslum við verknámsdeildir eða vegna kennslustjórnar í stjórnuna- rálmu. Haustið 2003 voru nemen- daígildi í dagskóla 915 og 180 í fjar- kennslu en á haustönn 1999 voru nemendaígildi 828 í dagskóla og 130 í fjarnámi. Virkir nemendur við upphaf skólastarfs í haust voru 1.156, segir ennfremur í skýrslu oddvita héraðsnefndar. ekki leiðréttur. Í raun sé kostnað- arskiptingin nú nærri því að vera til helmninga á milli ríkis og sveitarfé- laga. Nokkur óánægja kom fram í máli fulltrúa sveitarfélaga á fundi héraðsnefndar með þessa þróun mála. Hólmgeir sagði að koma þurfi ríkinu í skilning um að þetta gangi ekki lengur. Síðustu áfangar VMA eru í raun tvær framkvæmdir sem þó verða væntanlega boðnar út í einu lagi. Annars vegar bygging seinni hluta svokallaðs miðrýmis og hins vegar stækkun á stjórnunarálmu. Báðar þessar einingar eru mikilvægar fyrir starfsemi skólans og með þeim næði heildarhugmynd hönn- uða og skólastjórnenda fram að ganga og VMA gæti áreiðanlega Unnið að samningi um síðustu byggingaáfanga VMA Vilja leiðréttingu á kostnaðarskiptingu AKUREYRI 26 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ 10 www.islandia.is/~heilsuhorn PÓSTSENDUM Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889 Fæst m.a. í Árnesapóteki, Selfossi, Lífsins lind í Hagkaupum og , Kárastíg 1. Betri einbeiting. 10 ára Fullkomin fæðubót. Nærandi og styrkjandi. Fyrir fólk undir miklu álagi. Róandi og jafnvægisgefandi. Gott fyrir próflesturinn Krónunni, 2. hæð, sími 462 3505, Hafnarstræti 97, 600 Akureyri. Vatteraðir jakkar Stuttkápur Pallíettutoppar Síð pils og kjólar NEMENDUR Menntaskólans á Akureyri hafa lagt nótt við dag við að undirbúa árshátíð sem verður haldin í kvöld, föstudagskvöldið 28. nóvember í Íþróttahöllinni. „Það er heilmikil stemmning hérna,“ sagði Kristjana Pálsdóttir, varaformaður skólafélagsins Hugins, en fjöldi nemenda var að störfum þar í gær við að búa Höllina sem best undir hátíðina. „Það er mikil tilhlökkun meðal nema, eins og reyndar alltaf fyrir árshá- tíð,“ sagði hún. Um 800 manns sækja hátíðina, nemendur, kennarar og annað starfsfólk. Elstu nemendurnir, fjórðubekkingar, mæta jafnan prúð- búnir, í íslenskum búningi. Skemmtiatriði eru öll í höndum nemenda, leikin verður tónlist, Kór MA syngur, leikfélagið frumflytur leikþátt sem hlaut fyrstu verðlaun í samkeppni fyrr í haust og þá verða flutt ávörp, m.a. minni karla og kvenna. Árshátíð MA er fjölmennasta vímulaus samkoma ungs fólks á Ís- landi. Morgunblaðið/Kristján Hátíðin undirbúin: Elín, Katrín og Svava Hlín þræða snjókorn í spotta, en reiknað er með að um 800 manns sæki árshátíðina. Fjöldi að störfum og mikil stemmning FIÐRINGUR er verk sem einungis er ætlað til að fá fólk til að hlæja of- urlítið eina kvöldstund. Þessi Fiðr- ingur er nýr revíufarsi eftir Aðalstein Bergdal leikara og verður frum- sýndur að Melum í Hörgárdal í kvöld, 28. nóvember kl. 20.30. Aðalsteinn leikstýrir líka þessu verki sem gerist í hádegisverðarhléi hjá sorphreins- unarmönnum. Eins og títt er með farsa kemur upp misskilningur og stefnir í að upp komi meiriháttar vandamál, enda ekki allt sem sýnist. Leikarar eru þeir Jónsteinn Að- alsteinsson, Stefán Guðlaugsson, Haukur Steinbergsson, Hjálmar Arnibjarnarson, Aðalsteinn Bergdal og Haukur Harðarson, sem einnig leikur á harmoniku. Haraldur Ingi Haraldsson myndlistamaður hannar leikmynd og lýsingu og ljósameistari er Örn Þórisson. Önnur sýning verður á laugardags- kvöld og sú þriðja á sunnudagskvöld. Miða er hægt að panta hjá Aðalsteini og eins er miðasala að Melum opin klukkustund fyrir sýningu. Morgunblaðið/Kristján Jónsteinn Aðalsteinsson og Stefán Guðlaugsson, leikarar í Fiðringi. Fiðringur frumsýndur Kvennaferð til Kenýa | Kynning á æv- intýraferð kvenna til Kenýa verður í dag, föstudaginn 28. nóvember kl. 18 í húsa- kynnum Ferðaskrifstofu Akureyrar við Ráðhústorg 3 á Akureyri. Elín Þorgeirs- dóttir og Linda Björk Hilmarsdóttir far- arstýrur halda kynninguna. Um er að ræða 16 daga ferð í febrúar á næsta ári og tak- markast hópurinn við 20 konur. Leitast verður við að sameina útiveru, skemmtun, hvíld og dekur segir í frétt um ferðina.Ferðin hefst í höfuðborg landsins, Nairobi, þar sem farið verður að fyrrum heimili Karenar Blixen. Síðan verður ferðast um þjóðgarða, þ.á m. Masaii Mara sem er Kenýa-hluti Serengetti-þjóðgarðs- ins sem margir kannast við. Farið verður að stöndum Indlandshafs þar sem upplifunin beinist að fólkinu í land- inu og farið verður í þorp þar sem kynnst verður lífi innfæddra. Gistiaðstaða verður fyrsta flokks, segir ennfremur. Jólasögur Júlla | Jóladiskurinn Jólasög- ur Júlla kemur út í dag, föstudaginn 28. nóvember. Á honum eru fjórar jólasögur fyrir jólabörn á öllum aldri eftir Júlíus Júl- íusson frá Dalvík í flutningi höfundar. Þetta eru kærleiksríkar jólasögur með ljúfum jólatónum í bakgrunni segir í frétt um disk- inn. Júlíus hefur haldið úti Jólavef Júlla á Netinu í 5 ár og hafa um 140 þúsund manns heimsótt hann á þeim tíma. Í tilefni af útgáfu disksins verður út- gáfuhátíð á Jólavef Júlla í dag frá kl. 10 til 15 þar sem ýmislegt verður um að vera, getraun og fleira. Útgefendur eru Júlíus Júlíusson og Magnús Ólafsson hjá Mogomusic í Ólafs- firði sem annaðist upptökur og fjölföldun. Herstöðvamálið | Norðurlandsdeild Sam- taka herstöðvaandstæðinga heldur opinn fund á Kaffi Amor, efri hæð, á laugardag, 29. nóvember, kl. 15. Aðalræðumaður er Stefán Pálsson sagn- fræðingur og fjallar um „Herstöðvamálið í íslensku og arabísku ljósi“. Valgerður Bjarnadóttir flytur hugleiðingu um fyrsta stríðið. Einnig verður upplestur og söngur. LJÓSIN verða tendruð á jólatrénu á Randers nú á laugardag, 29. nóv- ember, en tréð er gjöf frá Randers, vinabæ Akureyrar í Danmörku. At- höfnin hefst með leik Lúðrasveitar Akureyrar kl. 14.45, þá tekur Leik- félag Akureyrar við og flytur leik- þátt, Stúlknakór Akureyrarkirkju syngur og Helgi Jóhannesson ræð- ismaður Dana á Akureyri flytur ávarp sem og Þóra Ákadóttir forseti bæjarstjórnar Akureyrar. Ljósin verða svo kveikt á trénu kl. 15.30. Jólasveinar verða á kreiki og taka lagið og loks verður gengið kringum jólatréð. Kveikt á jólaljósum         
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.