Morgunblaðið - 28.11.2003, Blaðsíða 28
AUSTURLAND
28 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Fæðingardeild lokað | Fæðingardeildin
á Egilsstöðum verður ekki opnuð aftur.
Deildinni var tímabundið lokað fyrir rúmu
ári vegna námsleyfis ljósmóður en óger-
legt reyndist að fá afleysingu fyrir hana,
þrátt fyrir ítrekaðar auglýsingar, jafnvel
erlendis. Leita konur nú til Fjórðungs-
sjúkrahússins í Neskaupstað, eða sjúkra-
stofnana á Akureyri og í Reykjavík vegna
fæðinga. Mæðraeftirlit er með eðlilegum
hætti á Héraði þrátt fyrir lokun fæðing-
ardeildar.
Hallormsstaður | Í gær var svo-
kallaður grenndarskógur opnaður
við Hallormsstaðarskóla og er það
liður í nýju skólaþróunarverkefni
Skógræktar ríkisins, Kenn-
arasambands Íslands, Kennarahá-
skóla Íslands og Námsgagna-
stofnunar.
Tilgangur verkefnisins sem
nefnist „Lesið í skóginn – með
skólum“ er að safna reynslu og
þekkingu um skipulega fræðslu
um skóga og skógarnytjar í
grunnskólum. Það verður m.a.
gert með því að efla útinám sem
nær til allra námsgreina og ald-
ursstiga í skólum. Nemendur eiga
að fræðast um vistfræði skógarins
og skógarnytjar og einnig á að
samtvinna aðrar námsgreinar úti-
náminu svo sem kostur er.
Risastór útikennslustofa
Nemendur og kennarar Hall-
ormsstaðarskóla, ásamt aðstand-
endum verkefnisins og gestum,
gengu skógarstíga upp frá skól-
anum og inn að gamalli skilarétt.
Sú stendur í skógarrjóðri með
slútandi björkum yfir og markar
innganginn í grenndarskóginn eða
útikennslustofuna.
Skógarvörður Hallormsstað-
arskógar, Þór Þorfinnsson, bauð
gesti velkomna og var verkefnið
svo kynnt viðstöddum. Að því
búnu var undirritaður samningur
um þátttöku Hallormsstaðarskóla
í „Lesið í skóginn – með skólum“
og skólanum afhentur reiturinn
sem skólaskógur.
Ólafur Oddsson, fræðslufulltrúi
Skógræktarinnar, sagði það sér-
lega ánægjulegt að taka þátt í
stundinni. „Lesið í skóginn“ er
skólaþróunarverkefni sem fjallar
um skóginn og skógarnytjar,“
sagði Ólafur í ávarpi.
„Það er meiningin að færa
skólastarfið út í skóg og gera hann
að risastórri skólastofu þar sem
allar námsgreinar skólans eru
fléttaðar saman í virku útinámi.
Við viljum með þessu sýna þeim
sem voru svo forsjálir að friða
þessa skóga og rækta virðingu og
gera skóginn að skólastofu fyrir
börnin. Við álítum að það sé full
ástæða og mikil þörf fyrir verkefni
af þessu tagi vegna þess að við er-
um kannski örlítið að fjarlægjast
náttúruna og þurfum að spóla til
baka og tengja okkur betur.“ Ólaf-
ur sagði frá námskeiði sem haldið
var í skólaskóginum í fyrradag og
tóku þá kennarar þátt í ýmsum
verkefnum og fjallað var um leiðir
til að stunda útinám í náttúrunni.
Skógarupplifun sem
líður ekki úr minni
Sif Vígþórsdóttir, skólastjóri
Hallormsstaðarskóla, sagði við at-
höfnina að megintilgangur verk-
efnisins væri að nemendur nytu
kennslu, helst í öllum náms-
greinum, úti í skóginum og næðu
að hafa með sér í veganesti við lok
skólagöngu sinnar skógar-
upplifun, sem liði þeim ekki úr
minni.
Hún hvatti foreldra til að vera
duglegir við að heimsækja hinn
nýja hluta skólans og taka þátt í
því sem þar yrði gert.
Í lok stundarinnar gengu nem-
endur umhverfis skólaskóg sinn
með logandi kyndla og helguðu
sér á þann hátt skógarsvæðið þar
sem þeir eiga eftir að verja drjúg-
um tíma sér til uppfræðslu.
Námsefni og vefur
unnin í kjölfar verkefnis
Verkefnið stendur til ársins
2005 og að því loknu er vonast til
að byggst hafi upp þekking á því
hvernig best sé að standa að
skipulegu útinámi í grennd-
arskógi. Hallormsstaðaskóli er
annar skólinn sem gengur frá
samningi um þátttöku í „Lesið í
skóginn – með skólum“ en
Hrafnagilsskóli í Eyjafirði gekk
frá sínum samningi sl. vor. Fimm
aðrir skólar munu koma að verk-
efninu; Andakílsskóli, Varma-
landsskóli, Kleppjárnsreykjaskóli,
Laugarnesskóli og Flúðaskóli.
Námsgagnastofnun hyggst nýta
sér afraksturinn til námsefn-
isgerðar, Kennaraháskóli Íslands
mun meta starf skólanna sjö
kennslufræðilega og Kenn-
arasamband Íslands veitir fagleg-
an stuðning við verkefnið.
Grenndarskógur Hallormsstaðarskóla kynntur til sögunnar
Undirritun skólaskógarverkefnis: Þór Þorfinnsson, skógarvörður í
Hallormsstað, Sif Vígþórsdóttir, skólastjóri Hallormsstaðarskóla, og
Ólafur Oddsson, fræðslufulltrúi Skógræktar ríkisins og fulltrúi KHÍ,
KSÍ og Námsgagnastofnunar í verkefnu.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Hátíðleg stund í Hallormsstaðarskógi: Nemendur, kennarar og gestir
innsigluðu við logandi bálið þátttöku Hallormsstaðarskóla í verkefninu
„Lesið í skóginn – með skólum“.
Skógurinn verður
skólastofa barnanna
Gagnagrunnur um skógrækt | Lagt
er til að Héraðsskógar, landshlutabundið
skógræktarverkefni á Fljótsdalshéraði,
fái átta milljóna króna fjárframlag til
gerðar gagnagrunns um skógrækt. Að
því hefur verið unnið sl. tvö ár í sam-
vinnu við fimm önnur landshlutaverkefni
og Skógrækt ríkisins og er verkið hálfn-
að. Tillagan kemur fram í nefndaráliti
meirihluta fjárlaganefndar fyrir aðra
umræðufjárlagafrumvarps næsta árs.
Héraðsskógar hafa þann megintilgang að
stuðla að skóg- og skjólbeltarækt á Hér-
aði og skapa þannig auðlind og efla at-
vinnulíf. Þeir ná yfir allt láglendi Fljóts-
dalshéraðs.
Lerki í Végarð | Endurbætur á félags-
heimilinu Végarði í Fljótsdal eru í fullum
gangi, en Landsvirkjun leigði húsið til tíu
ára undir sýningar- og skrifstofuaðstöðu
vegna Kárahnjúkavirkjunar. Hefur Fljóts-
dalshreppur þar jafnframt skrifstofu sína.
Var orðið brýnt að lagfæra húsið og
stækka og hefur verið unnið að því síðan í
haust. Nú er búið að klæða anddyri húss-
ins með íslensku lerki úr Hallorms-
staðaskógi, en því var plantað árið 1957
og voru trén sem felld voru í klæðninguna
að jafnaði um 14 metra há. Timbrið var
þurrkað í sérstökum þurrkgámi og flett
með bandsög. Sögin er í eigu Félags
skógarbænda á Héraði og Skógrækt-
arinnar og hefur stórlega aukið möguleika
skógareigenda við að fletta trjáboli og
koma afurðum sínum í verð. Fram-
kvæmdum við Végarð á að vera lokið í
febrúar á næsta ári.
RARIK | Eftir að hugmyndir um til-
færslur í yfirstjórn dreifingar, fram-
leiðslu og þjónustu við flutnings- og
dreifikerfið hjá Rafmagnsveitum ríkisins
voru kynntar í vikunni, hafa orðið nokkr-
ar breytingar hjá RARIK á Austurlandi.
Sigurður Eymundsson, sem verið hefur
umdæmisstjóri á Austurlandi, verður
skipaður yfirmaður orkuframleiðslusviðs
RARIK, þar sem undir heyra allar virkj-
anir og aflvélar. Umdæmisstjórastaðan
verður því líklega lögð af. Ekki kemur til
fækkunar starfsfólks eystra en ein-
hverjar tilfærslur munu verða á fólki
milli deilda.
ALLS hafa 11 hreindýr orðið fyrir
bíl á Austurlandi á þessu ári og
drepist. Aldrei hafa fleiri umferð-
aróhöpp orðið af völdum hreindýra,
en flest þessara dýra hafa orðið fyrir
bílum á Háreksstaðaleið. Þar hefur
verið sáð í vegkanta og frameftir
vetri hafa hreindýrin sótt mjög í
grænt grasið í vegköntunum. Þá
hafa nokkur dýr orðið fyrir bílum á
Kárahnjúkaleið, en örfá annars stað-
ar í fjórðungnum. Engin slys hafa
orðið á fólki í þessum óhöppum, en
miklar skemmdir á bílum. Nú eru í
vinnslu sérstök umferðarmerki til
að vara við hreindýrum og er ætl-
unin að setja þau upp þar sem vitað
er að hreindýr halda sig við vegi.
Ljósmynd/Sigurður Aðalsteinsson
Óvenju mörg umferðaróhöpp hafa orðið í ár af völdum hreindýra, flest á Háreksstaðaleið og við Kárahnjúkaveg.
Ellefu hreindýr hafa lent fyrir bíl
TENGLAR
.....................................................
www.vopnafjordur.is.
Egilsstaðir | Út er komin bókin
Huldumál – hugverk austfirskra
kvenna. Hún inniheldur hugverk 160
kvenna á Austurlandi, allt frá
átjándu öld og fram á þennan dag, og
má þar líta bundið mál og óbundið,
frásagnir, draumtexta og sendibréf,
svo nokkuð sé nefnt. Huldumál eru
gefin út í tilefni af 75 ára afmæli
Sambands austfirskra kvenna, en
áður hefur sambærilegt rit komið út
eftir konur í Þingeyjarsýslum. Það
er útgáfan Pjaxi sem gefur bókina út
og hönnun, setningu og umbrot ann-
aðist Björn Hróarsson. Guðborg
Jónsdóttir, formaður Sambands
austfirskra kvenna, er ritstjóri bók-
arinnar.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Huldumál – hugverk austfirskra kvenna: Guðborg Jónsdóttir ritstjóri og
Björn Hróarsson hjá Pjaxa ehf. á útgáfudegi bókarinnar.
Hugverk austfirskra
kvenna á bók