Morgunblaðið - 28.11.2003, Page 35
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2003 35
E
r
e
k
k
i r
é
tt
a
ð
e
n
d
u
rn
ýj
a
?
Skíðafatnaður
Skautar
H
ön
nu
n:
G
un
na
r
S
te
in
þó
rs
so
n
/ M
ar
ki
ð
/ 1
1.
20
03
Skíðaútsala
10-90%afslátturl
SÓLVEIG Unnur Ragnarsdóttir
sópransöngkona og Ólafur Vignir Al-
bertsson píanóleikari halda einsöngs-
tónleika í Gerðubergi kl. 15 á morgun,
laugardag. Tón-
leikarnir eru loka-
áfangi burtfarar-
prófs Sólveigar
frá Söngskólanum
í Reykjavík. Á
efnisskránni er
m.a. Sígauna-
ljóðaflokkur eftir
Antonin Dvorák,
ljóðasöngvar eftir
Brahms, Mahler,
Richard Strauss
og Alban Berg, íslensk sönglög eftir
Jórunni Viðar, aríur úr söngverkum
eftir G.F. Handel, Johann Strauss og
W.A. Mozart, þar sem Sólveig Unnur
fær til liðs við sig Grétu Hergils sópr-
an og Jón Leifsson barítón í flutningi
tríós úr Cosi fan tutte.
Sólveig Unnur Ragnarsdóttir hóf
tónlistarnám sitt 5 ára gömul, lærði
fyrst á fiðlu og síðar píanó en hóf
söngnám við Söngskólann í Reykja-
vík árið 1996 þá 17 ára gömul. Aðal-
kennarar hennar þar hafa verið Íris
Erlingsdóttir, Már Magnússon og pí-
anóleikararnir Iwona Ösp Jagla og
Ólafur Vignir Albertsson. Sólveig
hefur tekið þátt í uppfærslum Nem-
endaóperu Söngskólans undanfarin
ár; Gondólagæjunum, Tíu ástríðu-
þrungnum óperudropum og Brúð-
kaupi Fígarós Hún hefur sungið í Kór
Íslensku óperunnar undir stjórn
Garðars Cortes frá 2001 og meðal
annars tekið þátt í uppfærslu Ís-
lensku óperunnar á Macbeth eftir
Verdi og sungið í Draumi Gerontínus-
ar eftir Elgar, War Requiem eftir
Britten og nú síðast í Elijah eftir
Mendelssohn í tónleikaför til Noregs
í okt. sl. Nú í haust tók Sólveig þátt í
námskeiði á vegum Söngskólans hjá
prof. Kurt Widmer. Hún hefur komið
fram sem einsöngvari við ýmis tæki-
færi m. a. með Kammerkór Reykja-
víkur. Sólveig stundar nú nám við
kennaradeild Söngskólans í Reykja-
vík.
Burtfararpróf
Sólveigar
Unnar
Sólveig Unnur
Ragnarsdóttir
RÉTTINDASTOFA Eddu – útgáfu
hefur gengið frá samningum um út-
gáfu á Mýrinni eftir Arnald Indriða-
son í Frakklandi og á Ítalíu. Það er
Longanesi sem gefur bókina út á
Ítalíu og Editions
Métailé í Frakk-
landi. Longanesi
er eitt öflugasta
forlag Ítalíu og
gefur út höfunda
á borð við J.K.
Rowling (Harry
Potter), Arund-
hati Roy (Guð
hins smáa) og
Irvine Welsh
(Trainspotting).
Editions Métailé gefur út franskar
bækur almenns efnis og þýdd skáld-
verk. Þá hefur Signature í Hollandi
tryggt sér réttinn á Röddinni eftir
Arnald en það forlag hefur áður gef-
ið út Mýrina, auk þess sem Grafar-
þögn er væntanleg hjá forlaginu á
næsta ári.
Mýrin hefur nú verið seld til fjór-
tán landa. Hún kom út í Þýskalandi í
upphafi árs og hefur selst í yfir
140.000 eintökum þar í landi. Þá er
hún tilnefnd sem besta þýdda glæpa-
sagan á þessu ári í Svíþjóð en úrslit
verða kunngerð á morgun, laugar-
dag.
Mýrin til
Frakklands
og Ítalíu
Arnaldur
Indriðason
ÖRN Karlsson opnar myndlist-
arsýninguna Skippt og skorið í hús-
næði ReykjavíkurAkademíunnar,
að Hringbraut 121, kl.17 í dag,
föstudag. Um er að ræða yfirlits-
sýningu á verkum listamannsins frá
því um 1970 fram til dagsins í dag.
Örn vinnur mest með teikningar og
samklippsmyndir (collage) en einn-
ig texta sem hann beitir „orða-
skurði“. „Verkin hafa sterka skír-
skotun í „and-menningarstrauma“
7. og 8. áratuga liðinnar aldar og
endurspegla eins konar „neð-
anjarðar-hugmyndafræði“ sem á
e.t.v. rætur að rekja til fram-
úrstefnulistar síðustu aldar og sér-
staklega dada. Meðal áhrifavalda
mætti nefna Kurt Schwitters í
myndlistinni en William S. Burr-
oughs í textagerðinni. Örn vinnur
annars á mörkum myndlistar og
texta,“ segir í fréttatilkynningu.
Sýningin stendur til 1. febrúar og
er aðgangur ókeypis.
Verk eftir Örn Karlsson.
Yfirlitssýn-
ing Arnar
Karlssonar
Fáðu úrslitin
send í símann þinn