Morgunblaðið - 28.11.2003, Side 51

Morgunblaðið - 28.11.2003, Side 51
Hallgrímskirkja. Eldriborgarastarf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall. Háteigskirkja. Eldriborgarastarf. Brids- aðstoð kl. 13. Kaffi kl. 15. Neskirkja. Kóræfing laugardag kl. 11– 13. Stjórnandi Steingrímur Þórhallsson organisti. Uppl. og skráning í síma 896 8192. Breiðholtskirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10–12. Kaffi og spjall. Lindakirkja í Kópavogi. Kl. 15 yngri- deildarstarf Lindakirkju og KFUM&K í Húsinu á sléttunni, Uppsölum 3. Krakkar á aldrinum 8–12 ára velkomn- ir. Ytri-Njarðvíkurkirkja. Stjörnukórinn; barnakór fyrir 3 til 5 ára gömul börn æf- ir í kirkjunni laugardaginn 29. nóv. kl. 14.15. Kennari Natalía Chow Hewlett og undirleikari Julian Michael Hewlett. Lágafellskirkja. Barnastarf kirkjunnar. Kirkjukrakkar í Lágafellsskóla kl. 13.20–14.30. Kirkjuskólinn í Mýrdal. Munið sam- veruna í Víkurskóla næsta laugardag, 29. nóvember, kl. 11:15–12:00. Rebbi refur kemur í heimsókn ásamt fleirum. Söngur, gleði og gaman. Æfum að- ventu- og jólalögin sem við ætlum að syngja í Víkurkirkju á aðventusamkom- unni. Mætum öll og reynum að fá alla á heimilinu með okkur. Hittumst hress og kát. Starfsfólk kirkjuskólans. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Sam- komur alla laugardaga kl. 11:00. Bænastund alla þriðjudaga kl. 20:00. Biblíufræðsla allan sólarhringinn á Út- varpi Boðun FM 105,5. Allir velkomnir. Fríkirkjan Kefas: Í kvöld er 13–16 ára starf kl. 18. Samvera, fræðsla og fjör. Allir velkomnir. Nánari uppl. á www.kef- as.is. Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 17.30 barnagospel fyrir krakka 4–12 ára. Kl. 10–18 okkar vinsæli flóamark- aður opinn. Safnaðarstarf MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2003 51 INGVAR Ásmundsson (2.321) er einn efstur á heimsmeistaramóti öldunga í Bad Zwischenahn í Þýskalandi þegar þrjár umferðir eru til loka mótsins og hefur auk þess þegar tryggt sér áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Í átt- undu umferð vann hann enn einn sigurinn og að þessu sinni gegn rússneska alþjóðameistaranum Genrikh Chepukaitis (2.428). Ingv- ar hefur unnið allar skákir sínar til þessa fyrir utan eitt jafntefli í sjö- undu umferð og hefur því 7½ vinn- ing. Helsti keppinautur hans er einmitt andstæðingurinn sem hann gerði jafntefli við, rússneski al- þjóðameistarinn Yuri Shabanov (2.422). Hann er nú einn í öðru sæti með 7 vinninga, eða hálfum vinningi á eftir Ingvari. Í níundu umferð mætir Ingvar enn á ný sterkum andstæðingi, þýska al- þjóðlega meistaranum Anatoly Donchenko (2.410). Shabanov mætir hins vegar Chepukaitis og hefur svart líkt og Ingvar. Bar- áttan um toppsætið verður því greinilega hörð fram í síðustu um- ferð og ómögulegt að segja hver hreppir heimsmeistaratitilinn. Hins vegar er óhætt að segja að miðað við gang mála fram til þessa, taflmennsku og baráttugleði Ingvars á hann ekki minni mögu- leika en keppinautarnir á efsta sætinu, en frammistaða hans svar- ar til 2.734 skákstiga. Það er að miklu að keppa í þessu móti. Sigurvegarinn verður ekki einungis heimsmeistari, held- ur hlýtur hann einnig stórmeist- aratitil. Það væri ekki amalegt fyr- ir Ingvar að fagna sjötugsafmæ- linu næsta sumar bæði sem heimsmeistari og stórmeistari! Annað sætið á mótinu er einnig mikils virði, en því fylgir alþjóð- legur meistaratitill. Staða efstu manna á mótinu: 1. Ingvar Ásmundsson 7½ v. 2. Yuri Shabanov (Rússl., 2.422) 6 v. 3.–9. Genrikh Chepukaitis (Rússl., 2.428), Peter Rahls (Þýskal., 2.341), Manfred Boe- hnisch (Þýskal., 2.375), Janis Klov- ans (Lettl., 2.462), Oleg Chernikov (Rússl., 2.453), Anatoly Donchenko (Þýskal., 2.410), Vladimir Litvinov (Hv.-Rússl., 2.352) 6½ v. o.s.frv. Meðal þekktra stór- meistara sem eru með færri vinn- inga má nefna þá Mark Taimanov, Wolfgang Uhlmann og Hans Joachim-Hecht. Keppendur eru 272 og Ingvar í 22. sæti í styrk- leikaröðinni skv. FIDE-stigum. Samhliða fer fram keppni í kvennaflokki og þar eru kvenna- stórmeistararnir Tamara Khmiad- ashvili (2.195) frá Georgíu og Marta Litinskaja (2.348) frá Úkra- ínu efstar eftir átta umferðir með 6½ vinning. Sigurskák Ingvars úr áttundu umferð: Hvítt: Ingvar Ásmundsson Svart: Genrikh Chepukaitis Nútímavörn 1. e4 g6 2. d4 Bg7 3. Rc3 d6 4. f4 a6 5. Rf3 b5 6. Bd3 Rd7 7. e5 f5!? Nýr leikur. Þekkt er t.d. 7 … e6 8. 0–0 Re7 9. De1 Bb7 10. a4 b4 11. Re4 d5 12. Rc5 Rxc5 13. dxc5 a5 14. Be3 0–0 15. Rd4 Dd7 16. Dh4 f6 17. Dh3 Rf5 18. Rxf5 exf5 19. Bd4 fxe5 20. fxe5 Hae8 21. Dg3 He6 22. Hfe1 De7 23. c3 bxc3 24. bxc3 f4 25. Dg4 Bxe5 26. Dxe6+ Dxe6 27. Hxe5 Dg4 28. He7 Hf7 29. He8+ Hf8 30. He7 Hb8 31. Hf1 Bc6 32. g3 g5 33. Hg7+ Kf8 34. Hxf4+ og svartur gafst upp (Ponomarjov-Barejev, Moskvu 2001). 8. a4 – Til greina kemur 8. Bxf5!? Rxe5 (8. – gxf5 9. Rg5 Rf8 10. Dh5+ Kd7 11. Df7 Bh6 12. e6+ Kc6 13. Dxf5 o.s.frv.) 9. Bxc8 Rxf3+ 10. Dxf3 Dxc8 11. Dc6+ Kf8 og hvítur á betra tafl. 8 … b4 9. Re2 e6 10. c3 Hb8 11. a5 Re7 12. 0–0 h6 Eftir 12… 0–0? 13. Rg5! getur svartur ekki valdað peðið á e6 og staðan hrynur hjá honum. 13. Rg3 0–0 14. De2 dxe5 15. Rxe5 – Eða 15. fxe5 bxc3 16. bxc3 Rd5 17. Bd2 Ha8 (17 … Hb2 18. Bxa6 Rxc3 19. Dc4 Rd5 20. Bxc8 Dxc8 21. Dc1 Db8 22. Bxh6) 18. c4 og hvítur stendur betur. 15. – Rxe5 16. dxe5 bxc3 17. bxc3 Rd5 18. Bxa6 Rxc3 19. Dc4 – 19 Bxa6? Betra virðist að leika 19 … Dd5, t.d. 20. Dxc3 Bxa6 21. Hf2 Hfd8 22. Hd2 Dc4 23. Dxc4 Bxc4 24. a6 Hxd2 25. Bxd2 Bf8 26. Be3 Ha8 27. a7 c5 28. h4 h5 og hvítur virðist lenda í erfiðleikum með að komast í gegnum varnir svarts. 20. Dxe6+ Kh7 21. Dxa6 Dd5 22. Da7 c5 23. Be3 Hfc8 24. a6 Hb2 25. Hf2 Hxf2 26. Bxf2 Rd1 27. Db7 Dd2 28. Df3 – Hinn undarlegi leikur, 28. Rh1, kemur vel til greina, t.d. 28 … Rc3 29. a7 Re2+ 30. Kf1 Dd3 31. h3 He8 32. a8D Hxa8 33. Dxa8 (33. Hxa8? Rg3+ 34. Kg1 Dd1+ 35. Kh2 Rf1+ 36. Kg1 Rg3+, jafnt) 33 … Rxf4+ 34. Kg1 Re2+ 35. Kh2 Bxe5+ 36. Rg3 Bxa1 37. Dxa1 og hvítur á vinningsstöðu. 28 … Rxf2 29. Dxf2 Dd5 30. h4 h5 31. Re2 Bf8 32. g3 c4 33. Dg2 Dd7 34. Kh1 Hc7 35. Rc3 Ha7 Eða 35 … Dd4 36. Ha2 Dxc3 37. a7 Hxa7 38. Hxa7+ og hvítur vinn- ur. 36. Dd5 Dc8 37. Db5 Da8+ 38. Rd5 c3 39. Kh2 c2 40. Rf6+ Kh6 41. Dc4 Bg7 42. Dxc2 Hxa6 43. Hxa6 Dxa6 44. Rd5 – 44 … Bf8 45. Re3 Da3 46. De2 Bc5 47. Rg2 Bb4 48. Re1 Bxe1 Eftir 48 … Kg7 49. Rf3 Db3 50. Rg5 Be7 51. Dd2 á hvítur einnig vinningsstöðu, þótt það geti tekið langan tíma að innbyrða vinning- inn. 49. Dxe1 Da2+ 50. Kg1 De6 51. Dc3 Kg7 52. Kf2 Db6+ 53. Ke2 Kf7 54. Kd3 Ke7 55. Kc4 Dg1 56. Kd5 Dg2+ 57. Kc5 Db7 58. Da3 Ke6 59. Dd3 Dc7+ 60. Kb5 Db7+ 61. Kc5 Dc7+ 62. Kb4 De7+ 63. Kb3 Db7+ 64. Kc3 Db6 65. Dc4+ Kd7 Eftir 65 … Ke7 66. Db4+ nær hvítur drottningakaupum og vinn- ur létt. 66. Df7+ Kc8 67. Dc4+ Kd7 68. Df7 Kd8 Eftir 68. – Kc8 69. Db3 Df2 70. Kc4 Dd2 71. Da3 Dg2 72. Da6+ Kd8 73. Dd6+ Kc8 74. Dc5+ Kb8 75. Db6+ Kc8 76. Dxg6 og hvítur vinnur. 69. Df6+ og svartur gafst upp, því að peðaendataflið er tapað: 69 … Dxf6 70. exf6 Kd7 71. Kd4 Ke6 72. Kc5 Kxf6 73. Kd6 Kf7 74. Kd7 Kf6 75. Ke8 Kg7 (75 … Ke6 76. Kf8 Kd5 77. Kf7 Ke4 78. Kxg6 Kf3 79. Kxh5 Kxg3 80. Kg5) 76. Ke7 Kh7 77. Kf7 Kh6 78. Kg8 g5 79. hxg5+ Kg6 80. Kf8 o.s.frv. Shredder og Fritz efst á HM skákforrita Sjö umferðum er lokið á heims- meistaramóti skákforrita. Fritz og Shredder eru efst á mótinu með 5½ vinning. Tölvubúnaðurinn sem Fritz-forritið var keyrt á í einvíg- inu við Kasparov í New York var fluttur til Graz í Austurríki þar sem heimsmeistaramótið fer fram, en Shredder verður að láta sér nægja tveggja örgjörva PC-tölvu. Deep Junior er í þriðja sæti með 5 vinninga. Öll sterkustu forritin hafa teflt innbyrðis og því er spurningin hvernig þeim tekst upp gegn „minni spámönnunum“ á mótinu. Tívolísyrpa Hróksins og Húsdýragarðsins Þriðja mótið í Tívolísyrpu Hróksins og Húsdýragarðsins verður haldið í Vísindatjaldinu sunnudaginn 30. nóvember. Móta- röðin er fyrir börn í 1.–6. bekk. Átta mót gefa stig og lýkur syrpunni með lokahófi í maí. Þar munu fimm krakkar úr hverjum flokki með besta heildarárangur yfir veturinn, alls tuttugu börn, etja kappi um ferð fyrir tvo í Tív- olí í Kaupmannahöfn. Vegleg verð- laun verða einnig veitt fyrir annað og þriðja sætið sem og fyrir mæt- ingu og framfarir. Þeim sem ekki ná tilsettum ár- angri verður boðið upp á fjöltefli við stórmeistara. Í lokahófinu verður dregið í happdrætti þar sem reiðhjól er í fyrsta vinning ásamt hljómtækjasamstæðu og fleiri vinningum. Boðið verður upp á pylsur og gos og þjóðþekktir ein- staklingar skemmta. Einnig fá þau sem sköruðu fram úr í sínum ald- ursflokkum viðurkenningar. Ókeypis er í garðinn fyrir kepp- endur, en foreldrar og forráða- menn verða að greiða aðgangseyri. Nauðsynlegt er að skrá sig í mótið fyrir kl. 22 á laugardag með því að senda tölvupóst á skak- skoli@hotmail.com eða með því að hringja í 699 2003. Mótið hefst kl. 13:10, en keppendur þurfa að mæta milli kl. 12 og 12:45. Tefldar verða fimm umferðir og umhugs- unartíminn verður sjö mínútur. Skipt verður í stúlkna- og drengja- flokk. Verðlaun og vinningar eru frá Hagkaupum, Húsdýragarðinum, tafl.net og Ísöld. Úrslitaviðureign bikarkeppni Taflfélags Garðabæjar Laugardaginn 29. nóvember fer fram úrslitaviðureign bikarkeppni Taflfélags Garðabæjar í húsnæði Skáksambands Íslands þar sem Taflfélag Vestmannaeyja mætir A- sveit Taflfélags Reykjavíkur. A- sveit TR er núverandi bikarmeist- ari, en Taflfélag Vestmannaeyja er fyrsta liðið utan Reykjavíkur til að komast í úrslit. Heiðursgestir leiksins, þeir Gunnar Örn Erlingsson, íþrótta- fulltrúi Garðabæjar, og Sigurður R. Pétursson, framkvæmdarstjóri Ísspors, heilsa upp á keppendur kl. 18:10 og í framhaldi af því hefst keppnin. Upphitunarhátíð bikarúrslitanna hefst kl. 15:30. Þá verður háð óop- inbert Íslandsmót unglingasveita taflfélaga. Á sama tíma keppa skákklúb- barnir Díonýsus og Heiðrún um Íslandsmeistaratitil skákklúbba í samspilsskák, en það er nýtt form í skákíþróttinni sem Taflfélag Garðabæjar hefur stungið upp á að verði notað meira. Ísspor býður áhorfendum frítt á bikarúrslitin og upphitunarhátíð- ina. Ingvar efstur á HM og hef- ur tryggt sér AM-áfanga SKÁK Þýskaland HM ÖLDUNGA 17.–29. nóv. 2003 Daði Örn Jónsson Bragi Kristjánsson dadi@vks. is Aðventusamkoma í Víkurkirkju í Mýrdal AÐVENTUSAMKOMA verður í Víkurkirkju í Mýrdal sunnudaginn 30. nóv. nk. og hefst kl. 15:00. Þau sem fram koma eru m.a.: Nemendur 1.–4. bekkjar í Grunn- skóla Mýrdalshrepps undir stjórn Önnu Björnsdóttur tónmennta- kennara. Kór Víkurkirkju undir stjórn Kristínar Waage organista. Við fáum að heyra jólasögu og syngjum saman falleg jólalög og sálma. Eftir samveruna í kirkjunni verður kveikt á jólatré Mýrdæl- inga framan við Víkurkirkju. Eft- ir að kveikt hefur verið á jóla- trénu ætla 8. og 9. bekkur Grunnskóla Mýrdalshrepps að vera með kakó og vöfflur til sölu í Leikskálum til styrktar ferðasjóði sínum. Verð fyrir fullorðna er kr. 500. Verð fyrir börn undir grunn- skólaaldri kr. 300. Fjölmennum á aðventusamkom- una í kirkjunni og síðan á kakó- söluna í Leikskálum. Sóknarprestur og aðrir aðstandendur. „Morgunstund gefur gull í mund“ í Graf- arvogskirkju ANNAÐ árið í röð verður boðið upp á sérstakar helgistundir alla virka daga aðventunnar í Graf- arvogskirkju kl. 7:00 á morgnana. Um er að ræða sautján skipti. Fyrsta morgunstundin verður mánudaginn 1. desember nk. og sú síðasta að morgni Þorláks- messu. Hver morgunstund sam- anstendur af ritningarlestri, hug- leiðingu og bæn. Að helgihaldi loknu gefst fólki kostur á að snæða morgunverð í safnaðarsal kirkjunnar. Þessar morgunstundir mæltust vel fyrir í fyrra. Þær gefa fólki tækifæri til þess að eiga friðar- og kyrrðarstund í erli aðventunnar, áður en haldið er af stað út í lífið til þess að sinna margvíslegum verkefnum í dagsins önn. Harmonikkuball í Garðasókn HARMONIKKUBALL verður í Kirkjuhvoli í dag, föstudag, kl. 14–17 á vegum Garða- og Bessa- staðasókna, ásamt félögum eldri borgara á Álftanesi og í Garðabæ. Gerðubergskórinn kemur og held- ur uppi fjörinu með söng og Vina- bandið leikur fyrir dansi. Upp- lestur og gamanmál. Vöfflukaffi. Verð kr. 500. Víkurkirkja í Mýrdal. KIRKJUSTARF Í sandinum átti ég eftir ástkæru sporin þín. En regnið grét, uns þau grófust, geisli þar yfir skín. Í sál minni ógleymd á ég að eilífu brosin þín. Þau grafast ei þó ég gráti, – geisli þar yfir skín. (Hulda.) Við systurnar höfum passað Bjartmar og leikið við hann frá því að hann fæddist. Hann kom líka oft í heimsókn til okkar og þá spurði hann hvað hann mætti vera lengi og þegar hann fékk svar í mínútum þá vildi hann vita hvað það væri langt. Þannig kenndi hann okkur að það er ekki hægt að útskýra tíma nema með tíma. Hann kenndi okkur líka margt annað með skemmtilegum spurningum sínum BJARTMAR JÓNASSON ✝ Bjartmar Jónas-son fæddist í Reykjavík 13. mars 1998. Hann lést á heimili sínu 16. nóv- ember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Víðistaða- kirkju 25. nóvember. og athugasemdum. Hann hafði svar við öllu og var góður í að eiga síðasta orðið. Hann var mikill spila- maður og gaf ekkert eftir enda var hann bestur þrátt fyrir ung- an aldur. Bjartmar átti auðvelt með að brosa og með fallega brosinu sínu tókst honum líka að snúa öllum í kringum sig. Hann vildi líka deila öllu sem hann átti og var alltaf að passa að enginn yrði út undan. Hann hafði miklar áhyggjur af okkur þegar hann vissi að við værum að fara að taka bílpróf og sagði um daginn: „Hún getur klessið á,“ þegar hann frétti að Helga væri komin með æf- ingaleyfi á bíl. Bjartmar átti auðvelt með að sýna væntumþykju og blíðu og það var alltaf gaman að passa hann. Nú er litli fjölskylduvinurinn farinn frá okkur en við munum blíðu brosin hans og fallega hláturinn en sökn- um um leið stundanna með honum sem urðu ekki fleiri. Guðbjörg (Gugga) og Helga Jónasdætur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.