Morgunblaðið - 28.11.2003, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2003 59
DAGBÓK
2
4
6
57
R
Æ
S
IR
Við erum hér
BORGART
ÚN
S
K
Ú
LA
T
Ú
N
SKÚLAGATA
Opið 10-17 -
laugard. 11-16Húsgögn Listmunir
Antiksalan
Skúlatúni 6 • Sími 553 0755 • www.antiksalan.is
Kertastjakar, lampar, hand-
unnir dúkar og jólaskraut
Nýkomin fágæt
hátíðarkerti og
úrval gjafavöru
www.lyfja.is
Skrefi framar
Sokkar, sokkabuxur, undirföt
www.sokkar.is
Kynnum vetrartískuna
frá OROBLU
í dag
kl. 14-18 í Lyfju Lágmúla
og kl. 13-17 í
Lyfju Smáralind,
á morgun
kl. 13-17 í Smáralind.
20% afsláttur
af öllum
Oroblu vörum
Handklæði & flíshúfur
.
Fáið sendan
myndalista
Myndsaumur
Reykjavíkurvegur 62
220 Hafnarfjörður
Sími 565 0488
www.myndsaumur.is
Jólatilboð
Flíspeysur,
& flísteppi
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert óvenjuleg/ur og vilt
gera hlutina eftir þínu eigin
höfði sama hvað þú tekur
þér fyrir hendur.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það skiptir þig miklu máli að
eiga öruggan og þægilegan
samastað á þessum tíma í lífi
þínu. Þú ættir því að gera allt
sem þú getur til að gera heimili
þitt að þeim griðarstað sem þú
þarft á að halda.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það eru miklar líkur á að þú
flytjir eða skiptir um vinnu á
næsta ári. Þetta má sennilega
rekja til mikilla breytinga sem
urðu árið 1999.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú lést fyrst að þér kveða árið
1986. Þú náðir góðum árangri
um miðjan síðasta áratug. Nú
er kominn tími til að þú gerir
upp við þig hvað þú viljir verða.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Líf þitt hefur tekið nýja stefnu
frá því á síðasta ári. Bjartsýni
þín er endurvakin. Það verða
fleiri jákvæðar breytingar í
einkalífi þínu eftir um það bil
ár.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ástarmálin eru í brennidepli
hjá þér þessa dagana. Þú nýtur
einnig listsköpunar og samvista
við börn. Þú ættir að þiggja öll
boð sem þér berast.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þetta er góður tími til að huga
að umbótum á heimilinu. Þér
mun einnig ganga vel að bæta
samskiptin innan fjölskyld-
unnar og að ýta gömlum deilu-
málum úr vegi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Haltu áfram að leggja hart að
þér í vinnunni því atvinnumálin
munu ganga vel hjá þér næstu
árin. Þetta er rétti tíminn fyrir
þig til að sanna þig fyrir um-
heiminum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Haltu áfram að einbeita þér að
tekjum þínum og fjárhagslegri
afkomu. Þetta er undirbúnings-
tími sem mun skila árangri á
árunum 2005 og 2006.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Frá árinu 1994 hefurðu unnið
að því að eignast þitt eigið
heimili. Árið 1999 steigstu fram
í sviðsljósið. Nú mæðir mikið á
þér vegna breytinga hjá maka
þínum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Fólk hefur virkilega tekið eftir
þér á þessu ári. Þú hefur öðlast
völd og virðingu í þeirra aug-
um.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þetta er tími mikillar vinnu hjá
þér. Jafnvel þótt vinnan sé
stundum yfirþyrmandi verð-
urðu að halda áfram að settu
marki.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Flestöll sambönd þín eru
óvenju kærleiksrík eins og
stendur. Alvarleg ástarsam-
bönd verða óvenju gefandi allt
næsta ár og vinasambönd verða
sérstaklega gefandi næsta
mánuðinn.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
GEÐFRÓ
Faðir, sonur og friðarins andi,
fyrst ég beiði þig.
Náð þín yfir mér stöðugt standi,
styrk þú, drottinn, mig.
Náðugi guð, í nafni þínu,
neyð so verði kvitt,
nú skal varpa út neti mínu
í náðardjúpið þitt.
Fyrst þú hefur einn fyrir alla
angurs þolað pín,
aum manneskja, eg því kalla
upp í dýrð til þín.
- - -
Sigga skálda.
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
80 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 28. nóv-
ember, er áttræð Sig-
urbjörg Guðmundsdóttir
frá Fáskrúðsfirði, Selja-
braut 18, Reykjavík. Sig-
urbjörg tekur á móti vinum
og vandamönnum á morgun,
laugardaginn 29. nóvember,
milli kl. 15–19 í Félags- og
þjónustumiðstöðinni, Ár-
skógum 4. (Við hliðina á háu
blokkunum í Mjóddinni.)
Deildar meiningar eru um
það meðal keppnismanna
hversu góð spil þurfi til að
krefja með vendingu, eða
„reverse“ eins og það heitir
á ensku. Lítum á þetta
dæmi:
Norður
♠ –
♥ KD84
♦ D986
♣ÁKD108
Norður vekur á Standard-
laufi og makker svarar með
einum spaða. Hvað á norður
að segja næst – róleg tvö
lauf eða á hann að venda sér
í tvö hjörtu?
„Reverse“ hefur stundum
verið þýtt sem „öfug“ agn-
röð. „Eðlileg“ sagnröð er þá
að byrja á hærri litnum og
segja þann lægri næst.
Dæmi: Opnun á einu hjarta,
svar á einum spaða og end-
ursögn opnara á tveimur
tíglum. Með veik spil getur
svarhönd nú valið á milli lita
opnara á sama þrepi – pass-
að tvo tígla eða breytt í tvö
hjörtu. Þegar byrjað er á
lægri litnum og sá hærri
sagður næst verður svar-
hönd að fara þrepinu hærra
til að velja fyrri litinn.
Dæmi: Opnun á einum tígli,
svar á einum spaða og end-
ursögn á tveimur hjörtum.
Ef svarhönd vill tígulinn
frekar en hjartað verður að
fara upp á næsta þrep –
segja þrjá tígla. Það er nán-
ast sjálfgefin ályktun af
þessu að ekki er hægt að
beita öfugri sagnröð – vend-
ingu – nema með góð spil.
En hversu góð þurfa spil-
in að vera? Það er spurn-
ingin sem deilt er um.
Suður gefur; NS á hættu.
(Áttum snúið.)
Norður
♠ –
♥ KD84
♦ D986
♣ÁKD108
Vestur Austur
♠ KG75432 ♠ 96
♥ 76 ♥ ÁG93
♦ Á3 ♦ G10
♣74 ♣G9632
Suður
♠ ÁD108
♥ 1052
♦ K7542
♣5
Spilið að ofan er frá leik
Ítala og Norðmanna í und-
anúrslitum HM og í sögnum
kom fram mismunandi
skilningur á „reverse“.
Vestur Norður Austur Suður
Nunes Helgemo Fantoni Helness
– 1 lauf Pass 1 spaði
Pass 2 lauf Pass Pass
Pass
Norðmaðurinn Geir
Helgemo leit svo á að hann
ætti ekki fyrir tveimur
hjörtum og lét nægja að
segja laufið aftur. Tor Hel-
ness sá að samlegan var
slæm og ákvað að passa.
Helgemo fékk átta slagi og
90 fyrir spilið.
Á hinu borðinu var annar
stíll á sögnum:
Vestur Norður Austur Suður
Erik Duboin Boye Bocchi
– 1 lauf Pass 1 hjarta *
Pass 2 hjörtu Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Bocchi og Duboin nota yf-
irfærslur við laufopnun, svo
svar Bocchi á einu hjarta
sýndi einfaldlega spaðalit.
Þar með er endursögn
Duboins á tveimur hjörtum
vending sem sýnir hjarta og
lauf og sterk spil. Bocchi
stökk þá í þrjú grönd. Út
kom spaði og skömmu síðar
hafði Bocchi náð í 11 slagi:
660 í NS og 11 IMPar til
Ítala. Það er alltaf óráðlegt
að draga of miklar ályktanir
af einu spili, en hins vegar
er töluvert vit í því að
treysta Ítölum. Og svo má
rifja upp gamalt heilræði:
Skiptingin er meira virði en
punktarnir.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5
Rf6 4. d3 d6 5. c3 g6 6. 0-0
Bg7 7. Rbd2 0-0 8. He1 He8
9. d4 Bd7 10. d5 Re7 11.
Bxd7 Rxd7 12. a4 h6 13. a5
a6 14. b4 f5 15. c4 Rf6 16.
Bb2 Dd7 17. Hb1 g5 18. exf5
Dxf5 19. Rf1 Dh7 20.
R3d2 Rf5 21. Re4
Rxe4 22. Hxe4 h5 23.
Dd3 Hf8 24. Hbe1
Hf7 25. H1e2 g4 26.
Db3 Haf8 27. c5 Dg6
28. cxd6 cxd6 29. b5
axb5 30. Dxb5 Bh6
31. Db6 Kh7 32. Db4
Hg7
Staðan kom upp í
einvígi tölvuforrits-
ins X3D-Fritz og
Garry Kasparov
(2.830) sem lauk fyr-
ir skömmu í New
York. Skrímslið með
þúsund augun lék illa af sér
í síðasta leik og var tölvu-
heilinn ekki lengi að nýta
sér það. 33. Hxe5! dxe5 34.
Dxf8 Rd4 35. Bxd4 exd4 36.
He8 Hg8 37. De7+ Hg7 38.
Dd8 Hg8 39. Dd7+ og svart-
ur gafst upp enda fátt um
fína drætti eftir t.d. 39. ...
Hg7 40. Dc8 Hg8 41.
Dxb7+.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Skugginn – Barbara Birgis
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 16. ágúst sl. í Bessa-
staðakirkju af sr. Karli V.
Matthíassyni þau Elínborg
Kristinsdóttir og Helgi
Bragason.
Skugginn – Barbara Birgis.
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 6. september sl. í Áskirkju
af sr. Árna Bergi Sigurbjörnssyni þau Jóhanna Björk Gísla-
dóttir Aspar og Rögnvaldur Þór Heimisson.
FRÉTTIR
EFTIRFARANDI yfirlýsing hefur
borist frá IMG Gallup:
„Iceland Express átelur það sem
fyrirtækið kallar „óvönduð vinnu-
brögð IMG Gallup“.
Gagnrýnin snýst um auglýsingu
Icelandair, ekki vinnubrögð IMG
Gallup. Í auglýsingunni komu fram
ónákvæmar upplýsingar um hve-
nær verðkönnun IMG Gallup var
gerð. IMG Gallup getur ekki borið
ábyrgð á auglýsingum annarra fyr-
irtækja. Athugasemd við auglýs-
inguna hefur verið send til Ice-
landair.
Sagt er í auglýsingunni að könn-
unin hafi verið gerð 10.–14. nóv-
ember, en hið rétta er að hún var
gerð 12.–17. nóvember. Deginum
áður, hinn 11. nóvember, var til-
kynning um að verðkönnun myndi
hefjast á næstunni send til beggja
flugfélaga. Vitneskju um rétta dag-
setningu könnunar var komið til
stjórnenda Iceland Express á fundi
sl. mánudag, 24. nóvember – tveim-
ur dögum fyrir yfirlýsingu þeirra.
IMG Gallup stendur fullkomlega
við aðferðafræði könnunarinnar
fyrir Icelandair, en getur eins og
fyrr sagði ekki borið ábyrgð á aug-
lýsingu félagsins. Þar með er gagn-
rýni Iceland Express IMG Gallup
óviðkomandi.“
Yfirlýsing IMG Gallup
vegna athugasemdar