Morgunblaðið - 28.11.2003, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 28.11.2003, Blaðsíða 60
ÍÞRÓTTIR 60 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ERLA Steinunn Arnardóttir, tví- tug knattspyrnukona sem leikur með sænska úrvalsdeildarliðinu Stattena, hefur að undanförnu æft með Evrópumeisturum fé- lagsliða, Umeå í Svíþjóð, sem hefur áhuga á að fá hana í sínar raðir. Erla er ættuð frá Vestmanna- eyjum en fæddist í Helsingborg í Svíþjóð. Hún kom til Íslands og lék með Breiðabliki sumarið 2002 og skoraði þá 7 mörk í 12 leikjum fyrir Kópavogsliðið í úr- valsdeildinni. Hún lék þá enn- fremur einn leik með 21 árs landsliðinu. Síðasta vetur gekk hún til liðs við Stattena, nýliða í sænsku úr- valsdeildinni, og var í lykilhlutverki hjá lið- inu sem kom nokkuð á óvart með því að halda sér í deildinni. „Við verð- um áfram í sambandi við Erlu, sem er mjög efnilegur leikmaður og svo sjáum við til. Við munum ekki gera miklar breytingar á okkar leikmannahópi,“ sagði Roland Arnqvist, forsvarsmaður Umeå, við Helsingborgs Dag- blad, en lið Stattena er frá Hels- ingborg í Svíþjóð. „Umeå er með marga mjög góða leikmenn og það var mikill munur á æfingunum þar og hjá Stattena, meiri gæði og meiri hraði, og þetta var virkilega gaman. Kuldinn var reyndar erf- iður, við æfðum í 10 til 12 stiga frosti og það var ekki hægt að standa kyrr. Framhaldið skýrist nánar þegar ég hef rætt við Stattena um málið,“ sagði Erla við blað- ið en Umeå er í Lapplandi, nyrsta hluta Sví- þjóðar. Helsingborgs Dagblad segir að vel komi til greina að Umeå semji við Stattena um að Erla leiki þar áfram næsta tímabil, fylgist með framgangi hennar og fái hana síðan til sín fyrir tímabilið 2005 ef allt gengur að óskum. Umeå varð UEFA-meistari kvenna á síð- asta tímabili og er komið í undanúrslit keppninnar í ár eftir tvo sigra á Energija Voronezh, 2:1 í Rússlandi og 2:1 í Svíþjóð. Liðið hafnaði í öðru sæti sænsku úrvals- deildarinnar, einu stigi á eftir meisturum Djurgården/Älvsjö og fimm stigum á undan Malmö FF, liði Ásthildar Helgadóttur, og tapaði aðeins einu sinni í 22 leikjum. Statt- ena, lið Erlu, endaði í tíunda sæti af tólf lið- um, sjö stigum fyrir ofan liðin tvö sem féllu úr úrvalsdeildinni. Íslensk knattspyrnukona í raðir Evrópumeistaraliðs Umeå í Svíþjóð? Erla Steinunn Arnardóttir EINAR Örn Aðalsteinsson körfuknattleiksmaður er hættur hjá Tindastóli og geng- inn til liðs við sitt gamla félag, Þór á Akureyri. Einar Örn gekk til liðs við Tindastól síð- asta haust þegar Þórsarar drógu lið sitt úr keppni í úr- valsdeildinni. Á heimasíðu körfuknattleiksdeildar Tinda- stóls kemur fram að Einar hætti hjá félaginu af persónu- legum ástæðum og var gengið frá félagaskiptunum í gær. Hann verður löglegur með Þórsurum eftir mánuð. Einar lék með Þórsurum í úrvalsdeildinni frá 1998 til 2002 og skoraði að meðaltali um 10 stig í leik fyrir þá á þeim árum. Í fyrra gerði hann 5,9 stig að meðaltali í 18 leikj- um Tindastóls í deildinni og í vetur hefur hann gert 5,7 að meðaltali í sex leikjum Sauð- krækinga. Endurkoma Einars er mikill styrkur fyrir Þórsara sem eru í sjötta sæti 1. deildar. Einar Örn aftur til Þórsara  UPPSKERUHÁTÍÐ Framfara, hollvinafélags millivegalengda- og langhlaupara, var haldin á dögunum. Þar var veitt viðurkenning til þeirra sem þóttu hafa skarað fram úr á árinu. Eftirtaldir voru heiðraðir fyrir að setja öldungamet í millivega- lengda- og langhlaupum: Í 800 metra hlaupi í 40 ára flokki karla setti Örn Gunnarsson met, 2.07,70 mín.  MARTHA Ernstsdóttir, úr ÍR, setti met í 1.500 m hlaupi í í 35 ára flokki kvenna, 4.43,65. Hún bætti einnig metið í 5.000 m hlaupi í sama flokki, hljóp á 17.07,65 mín.  HELGA Björnsdóttir setti met í 10.000 m hlaupi í 50 ára flokki, 44,01 mín.  STEINAR Friðgeirsson sló metið í hálfmaraþoni í 45 ára flokki þegar hann hljóp vegalengdina á 1 klukku- stund, 16 mínútum og 14 sek. Í sömu vegalengd bætti Sigurður Kr. Jó- hannsson fyrra met þegar hann hljóp á 1 klukkustund, 38 mínútum og 17 sek.  GUÐJÓN Guðmundsson sló metið í maraþonhlaupi í 50 ára flokki, hljóp á 3 klukkustundum, 4 mínútum og 23 sekúndum. Lína Gunnarsdóttir bætti metið í maraþonhlaupi í 55 ára flokki, hljóp vegalengdina á 4 klukkustundum, 53 mínútum og 33 sekúndum.  NEFND skipuð þeim Ágústi Ás- geirssyni, Gunnari Páli Jóakimssyni og Sigurði Pétri Sigmundssyni út- nefndi eftirtalda verðlaunahafa árs- ins á uppskeruhátíðinni; Stefán Guð- mundsson, Breiðabliki sem ungling ársins. Stefán bætti sig verulega á árinu og hljóp m.a. 3.000m hindrun- arhlaup á 10.00,2 mín., og 3.000m hlaup á 9.06,75 mín.  GERÐUR Rún Guðlaugsdóttur var útnefnd af nefndinni fyrir fram- farir ársins í kvennaflokki. Gerður bætti sig vel í 5 km, 10 km og hálf- maraþonhlaupum á árinu og hljóp m.a. hálfmaraþon á 1.20,29 klst og 10km götuhlaup á 35,52 mín. Hálf- maraþontími hennar skipar henni í annað sæti á íslenska afrekalistanum frá upphafi.  ÞÁ var Björn Margeirsson verð- launaður fyrir framfarir ársins í karlaflokki. Hann bætti sig úr 1.54,14 mín., í 1.51,50 í 800m hlaupi og úr 3.53,05 í 3.47,61 mín., í 1.500m hlaupi auk þess sem hann sigraði í síðar- nefndu greininni á Smáþjóðaleikun- um í júní. Tími Björns í 1.500m hlaupi setur hann í fimmta sæti íslenska af- rekslistans í greininni frá upphafi hér á landi. Björn stefnir að því að kom- ast á Ólympíuleikana í Aþenu á næsta sumri og hyggst eingöngu leggja stund á æfingar og keppni í því skyni næstu mánuði. Hann er nú í sex vikna æfingabúðum í Athens í Georgíuríki í Bandaríkjunum. FÓLK Spurður hvað hafi tafið hann mestvið skrifin sagði Ingimar að hann hefði sent fyrirspurnir til for- ráðamanna golf- klúbba víðsvegar um landið til þess að afla upplýsinga um ýmsa hluti en viðbrögðin hefðu verið misjöfn. „Það má segja að mér hafi gengið illa að nálgast upplýsingar um það sem ég var að leita að. Ég sendi fjölmörg bréf, tölvupóst auk fjölmargra símtala en þurfti oft að bíða í mjög langan tíma eftir svari. Í nokkrum tilvikum var mér alls ekki svarað og slíkir hlutir töfðu ferlið mjög mikið. Þegar ég lagði af stað í þetta verkefni taldi ég mig geta skrifað hnitmiðaða bók um golfið á stuttum tíma. Þar ætlaði ég að ná saman á einum stað hugtökum íþróttarinnar sem væru skilgreind með skipulögðum hætti auk þess sem upplýsingar um þekkta íslenska og erlenda kylfinga væri þar að finna. En eins og sjá má í formála bókarinnar tók ritun bókarinnar meira en áratug, sem er allt of lang- ur tími.“ Í bókinni er fjallað um kylfinga, golfklúbba, golfvelli, mót, golfreglur og algengustu hugtök. Ingimar sagði að hann hefði ekki lent í umtalsverðum vandræðum með að rita sjálfa bókina en umfang hennar hefði hinsvegar orðið meira eftir því sem árin liðu. „Ég studdist við ýmsar heimildir og þar á meðal alfræðibók um golf sem gefin var út í Þýskalandi og í samnburði við þá bók er ég viss um fáar þjóðir geta státað af jafn ítarlegri bók og þeirri sem nú er komin út á íslensku,“ seg- ir dr. Ingimar og er óhætt að taka undir þau orð hans. Bókina tileinkar Ingimar sam- býliskonu sinni Lovísu Einarsdótt- ur. „Mér finnsta gaman að tileinka bækurnar sem ég skrifa ákveðnum einstaklingum og hef gert það í síð- ustu þremur bókum sem ég hef skrifað.“ Ingimar slær kúluna hvítu að mestu á heimavelli sínum í Golf- klúbbi Kópavogs og Garðabæjar en hann er með 17 í forgjöf. Eins og áð- ur segir vaknaði áhugi hans á golfinu á ný árið 1991 og var það fyrrver- andi nemandi hans á íþróttakenn- araskólanum á Laugarvatni, Jón H. Karlsson, sem dró hann af stað á ný. „Jón var mikið að æfa sig á Laug- arvatni enda landsliðsmaður á þeim tíma og ég fékk lánaðar kylfur hjá honum. Eftir það varð ekki aftur snúið og ég hef leikið mikið undan- farin ár. Við búum rétt við golfvöll GKG og ef veðrið er skaplegt er mjög líklegt að ég sé þá stundina að leika golf. Jú, það má segja að ég sé með golfbakteríuna svonefndu. Ég hef leikið m.a. á Spáni í tvígang og einnig hef ég farið á nokkra velli víðsvegar um landið. Ekki alla þó en þeim á eftir að fjölga í nánustu fram- tíð.“ Ingimar er hættur að kenna við íþróttakennaraskólann sem er nú hluti af Kennaraháskóla Íslands. „Árin líða og ég er víst kominn á eft- irlaun en hef þó nóg fyrir stafni. Ég var í rannsóknarleyfi síðari hluta ársins í fyrra og byrjaði þá á bók sem heitir átök og deilur um Ólymp- íuleika. Það verður næsta verkefni að klára að skrifa þá bók. Reyndar hef ég verið að safna að mér efni í stóra bók alfræðibók um íþróttir, en ég held að ég leggi ekki í það verk að svo stöddu,“ segir dr. Ingimar Jóns- son. Morgunblaðið/Sverrir Dr. Ingimar Jónsson gluggar í nýjasta „afkvæmið“ á heimili sínu í Garðabæ. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson „Glíman við alfræðibókina hófst fyrir rúmum áratug,“ segir dr. Ingimar Jónsson „Ef vel viðrar er ég úti á golfvelli að spila“ ÉG fór að leika golf á ný eftir langt hlé árið 1991 er ég var kennari við íþróttakennaraskólann á Laugarvatni og þá kviknaði áhugi hjá mér að skrifa alfræðibók um golfíþróttina. Á þeim tíma hafði ég skrifað tvær slíkar bækur, alfræðibók um skák sem kom út 1988 og áður kom út bókin Íþróttir frá a-ö árið 1976. Ég taldi mig því vera í stakk búinn til að skrifa slíka bók um golf en ég gerði ekki ráð fyrir að sú glíma myndi taka rúman áratug,“ sagði dr. Ingimar Jónsson í samtali við Morgunblaðið á dögunum en út er komin vegleg alfræði- bók um golf sem er rúmlega 350 bls. og með yfir 500 ljósmyndum. FINNUR Jóhannsson, liðsstjóri ÍR-inga í handknattleik, hefur verið úrskurðaður í eins leiks bann af aganefnd HSÍ og gert að greiða 10 þúsund krónur í sekt. Finnur fékk rautt spjald að loknum leik HK og ÍR í Digranesi á dögunum, fyrir orðbragð í garð dómaranna, en ÍR-ingar voru óhressir með að fá ekki að byrja á miðju eftir að HK jafnaði metin, 20:20, sex sekúndum fyrir leikslok. Leik- maður HK kom þá í veg fyrir að miðjan væri tekin og á meðan rann leiktíminn út. Finnur var áður leikmaður með ÍR en lék einnig sem línumaður með Val á árum áður. ÍR er sem stendur í efsta sæti s-riðils RE/ MAX deildarinnar í handknattleik með 19 stig að loknum 11 umferðum. Aðeins þrjár umferðir eru eftir af for- keppni RE/MAX deildarinnar og er næsti leikur ÍR gegn botnliði Selfoss. Leikurinn verður í Austurbergi í kvöld. Finnur fékk bann og sekt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.