Morgunblaðið - 28.11.2003, Side 63
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2003 63
KEFLVÍKINGAR eiga tvo stiga-
hæstu leikmennina í Vesturdeild
Evrópubikarsins í körfuknattleik,
bandarísku leikmennina Nick
Bradford og Derrick Allen. Brad-
ford hefur skorað 24,7 stig að
meðaltali í þremur leikjum Kefl-
víkinga í keppninni og Allen 24,3
stig.
Þeir félagar eru líka í fremstu
röð meðal þeirra sem tekið hafa
flest fráköst. Bradford er í 2.-3.
sæti á því sviði með 10 að með-
altali í leik og Allen er fjórði með
9,7.
Keflvíkingar hafa skorað flest
stig allra liða í deildinni, 101 að
meðaltali í leik, þeir hafa líka tek-
ið flest fráköst, 37, og fengið á sig
flestar villur, 24 að meðaltali í
leik.
Magnús Gunnarsson og Falur
Harðarson hafa verið iðnir við að
mata félaga sína á stoðsendingum.
Magnús er með 5,3 í 5. sæti og
Falur með 4,7 í 9. sæti.
Þess ber að geta að Falur er
annar af þjálfurum liðsins.
Í Vesturdeildinni leika átta lið í
tveimur riðlum og koma þau öll
frá Frakklandi og Portúgal, að
Keflvíkingum undanskildum.
Riðlakeppninni lýkur í desember
og í janúar er leikið til úrslita í
deildinni. Sigurliðið leikur síðan í
úrslitakeppni um Evrópubikarinn
við sigurliðin úr Norður-, Mið- og
Suður-Evrópu.
Keflvíkingar með
stigahæstu mennina
BJARNI Þorsteinsson var í byrj-
unarliði norska liðsins Molde sem
tapaði 2:0 á heimavelli gegn Benfica
frá Portúgal í UEFA-keppninni.
Molde tapaði samanlagt 1:5. Ólafur
Stígsson kom inn á sem varamaður á
57. mínútu í liði Molde.
ÞAÐ gekk illa hjá þýsku liðunum í
2. umferð UEFA-keppninnar í knatt-
spyrnu í gær. Þýska liðið Dortmund
beið afhroð á útivelli gegn Sochaux
frá Frakklandi, 4:0, og samanlagt
6:2. Á sama tíma féll Schalke úr
keppninni er liðið tapaði gegn
danska liðinu Bröndby, eftir víta-
spyrnukeppni.
NEWCASTLE komst áfram í 3.
umferð UEFA-keppninnar með því
að leggja Basel frá Sviss, 4:2 sam-
anlagt en sjálfsmark frá Boris Smilj-
anic á 14. mínútu tryggði enska lið-
inu 1:0 sigur á heimavelli í gær.
NORSKA liðið Vålerenga náði að
komast í 3. umferð UEFA-keppninni
með því að leggja pólska liðið Wisla á
útivelli eftir vítaspyrnukeppni. Ekk-
ert mark var skorað í leiknum né í
framlengingunni. Lars Bohinen
tryggði norska liðinu sigur.
MJÖG góður árangur náðist á nóv-
embermóti UFA í frjálsíþróttum
sem haldið var í Boganum á Akur-
eyri hinn 22. nóvember. Tvö aldurs-
flokkamet voru slegin en það gerðu
þeir Aðalbjörn Hannesson, UFA, og
Þorsteinn Ingvarsson HSÞ. Aðal-
björn hljóp 60 m á 7,75 sekúndum og
bætti þar með fyrra met 13–14 ára
pilta um 1 hundraðasta úr sekúndu.
Þorsteinn stökk 6,84 m í langstökki
og bætti fyrra met í flokki 15–16 ára
sveina um 20 cm.
AÐALBJÖRN Hannesson gerði
sér lítið fyrir og bætti aftur Íslands-
metið í 60 m hlaupi pilta á móti sem
fram fór í Reykjavík daginn eftir að
hann hafði sett metið í Boganum.
Aðalsteinn kom í mark á 7,61 sek. og
bætti með því fyrra metið um 14
hundruðustu úr sekúndu.
FORRÁÐAMENN NBA-liðsins
Chicago Bulls hafa ráðið fyrrum
þjálfara Phoenix Suns, Scott Skiles
til liðsins og mun hann þjálfa liðið í
stað Bill Cartwright sem var sagt
upp sl. mánudag. Skiles lék lengi
með Orlando Magic í NBA-deildinni
og á enn met í flestum stoðsending-
um í einum leik, 30 alls.
EIGENDUR NBA-liðsins New
Jersey Nets eru í talsverðum vanda
eftir að ljóst var að Alonzo Mourn-
ing myndi ekki getað leikið framar í
deildinni vegna nýrnasjúkdóms. Nú
er það ljóst að tryggingafélög munu
ekki greiða laun leikmannsins næstu
fjögur árin en ekkert tryggingafélag
vildi semja um slíkt við félagið er
Mourning gekk til liðs við félagið í
sumar. Hann hafði glímt við sjúk-
dóminn þá þegar í tvö ár og þarf
Nets því að greiða honum samtals
um 1,6 milljarða ísl. kr. á næstu fjór-
um árum.
FÓLK
LIVERPOOL þurfti að hafa
mikið fyrir hlutunum gegn
rúmenska liðinu Steua frá
Búkarest í 2. umferð UFEA-
keppninnar í knattspyrnu í
gær. Fyrri leik liðana lauk
með jafntefli 1:1 en á Anfield
í gær var það Ástralinn
Harry Kewell sem skoraði
eina mark leiksins. Kewell
stökk hæst allra í vítat-
eignum á 49. mínútu og
skallaði í fjærhornið – glæsi-
legt mark.
Gerard Houllier hrósaði
liði Steua eftir leikinn. „Við
lögðum gott lið að velli og
áttum í erfiðleikum gegn
þeim. Þeir áttu fín færi í
upphafi leiks en þegar á
heildina er litið áttum við
sigurinn skilið,“ sagði Houll-
ier og bætti því við að Mich-
ael Owen væri ekki alvar-
lega meiddur en hann fór
útaf undir lok leiksins.
Njarðvíkingar eru með mjög há-vaxið lið og byrjunarlið þeirra
er ekki árennilegt; Egill Jónasson,
Friðrik Steánsson
og Páll Kristinsson
auk þeirra Brentons
Birminghams og
Brandons Woudstra.
Haukarnir eru ekki með nærri eins
sterkt lið á pappírnum en þeir hafa
barist vel og það hefur skilað þeim
ágætum stigum. Baráttuandinn var
hins vegar ekki nægilegur í gær og
eins lék liðið ekki sem heild, allt of
mikið um að leikmenn reyndu að
gera hlutina einir. Slíkt gengur ekki
upp til lengdar.
Njarðvíkingar náðu átta stiga for-
ystu í fyrsta leikhluta og snemma í
öðrum hluta var staðan 25:32 þegar
Haukar skiptu í svæðisvörn. Hún
gekk alveg ljómandi, byrjaði reynd-
ar ekki vel því Guðmundur Jónsson
setti niður tvö þriggja stiga skot en
svo lokuðu Haukar og gerðu 13 stig í
röð, staðan orðin 38:38 og 43:48 í
leikhléi eftir þriggja stiga körfu
Brentons um leið og flautan gall.
Einhverra hluta vegna reyndu
Haukar ekki svæðisvörnina á ný, ef
til vill vegna þess að Njarðvíkingar
eru með góðar skyttur, en þær nýtt-
ust ekki í öðrum leikhlutanum gegn
svæðisvörninni. Njarðvíkingar
breyttu stöðunni úr 47:51 í 49:65 og
eftir það var ekki spurning hvar sig-
urinn lenti, aðeins hversu stór hann
yrði. Heimamenn minnkuðu þó
muninn en aldrei þannig að sigur
gestanna væri í hættu.
„Það er orðið dálítið síðan við höf-
um unnið Hauka þannig að þetta var
kærkominn sigur,“ sagði Friðrik
Ragnarsson, þjálfari Njarðvíkinga,
eftir leikinn. „Ég hafði allan tímann
á tilfinningunni að við myndum
vinna, mér fannst við mun sterkari
og það var ágætt að gera það þrátt
fyrir að eiga engan stjörnuleik. Mér
fannst við dálítið með hugann við
leikinn á laugardaginn, en þá mæt-
um við KR-ingum,“ sagði þjálfarinn
sem leyfði sér að hvíla Brenton á
lokakaflanum. „Það verður að spara
hann, tveir leikir í röð er fullmikið
orðið fyrir hann og mér fannst þetta
nokkuð öruggt þannig að ég hvíldi
hann,“ sagði Friðrik.
Flestir í liði Njarðvíkur áttu
ágætan leik, engan stjörnuleik þó en
ágætan. Hjá Haukum var Marel
Guðlaugsson sprækur í fyrri hálfleik
en lék ekkert í þeim síðari. Mike
Manciel var drjúgur við að skora og
tók 12 fráköst, en hann hékk stund-
um fullmikið á boltanum.
KR sleit Þór af sér með
hröðum leik
Það tók KR-inga hálfan leikinn aðslíta Þór frá Þorlákshöfn af sér
þegar liðin mættust í vesturbæ
Reykjavíkur í gær-
kvöldi. Þá keyrðu
KR-ingar upp hrað-
ann og á rúmum tíu
mínútum fór foryst-
an úr 5 stigum í 25 og KR vann
109:88.
Gestirnir úr Þorlákshöfn náðu 9:3
forystu en tókst engan veginn að
fylgja því eftir, þungir og seinir, svo
að KR náði fljótlega yfirhöndinni. Í
lok fyrsta leikhluta leit út fyrir að
heimamenn væri að stinga af en
þess í stað slökuðu þeir á svo að
gestunum tókst að minnka muninn í
4 stig. Þá tók Ólafur Már Ægisson
við sér og eftir þrjár þriggja stiga
körfur náði KR aftur öruggri for-
ystu en Þórsurum tókst þó að halda
forystu KR í kringum tíu stig. Í
byrjun þriðja leikhluta skildu leiðir
þegar KR-ingar hófu loks að leika af
meiri yfirvegun og þreyttu gestina
með góðri vörn. Forystan jókst jafn
og þétt og í fjórða leikhluta fengu
allir á varamannabekk KR að
spreyta sig. Þeim tókst að halda í
horfinu.
„Okkur hefur vantað að gera
rækilega út um leiki en nú gekk
það,“ sagði Ingvaldur M. Hafsteins-
son KR-ingur, sem stóð sig vel með
11 fráköst og 11 varin skot. Chris
Woods var drjúgur með 29 stig og 7
fráköst, Jesper Sörensen átti 7 stoð-
sendingar og Steinar Kaldal 8.
Gestirnir frá Þorlákshöfn virkuðu
frekar þungir enda af þeim dregið
er leið að lokum og þeir töpuðu bolt-
anum í 26 skipti. Þeir treystu svo til
eingöngu á Leon Brisport, sem skil-
aði sínu með 23 fráköstum, skoraði
úr 10 af 17 skotum inni í teig, einu af
sex þriggja skotum og níu af tíu
vítaskotum auk þess að verja 6 skot
og gefa 6 stoðsendingar. „Við spilum
eins og litlar stelpur, sem eru að
byrja æfa körfubolta og svo ráðum
við ekkert við svona hraðan leik,
svona stórir og þungir,“ sagði Guð-
mundur Erlendsson, fyrirliði Þórs,
eftir leikinn.
Morgunblaðið/Sverrir
Guðmundur Jónsson skorar hér fyrir Njarðvíkinga án þess að Þórður Gunnþórsson komi vörnum við
en Halldór Karlsson, samherji Guðmundar, er við öllu búinn og líklegur til þess að taka frákastið.
Loks misstu Haukar
tak sitt á Njarðvík
NJARÐVÍKINGAR halda öðru sætinu í deildinni eftir tiltölulega
átakalítinn sigur á Haukum í gærkvöldi. Haukar, sem hafa haft fín
tök á Njarðvíkingum og unnu þá meðal annars í öllum fjórum við-
ureignum liðanna í fyrra, léku ekki vel og 80:88 sigur Njarðvíkinga
öruggari en tölurnar segja til um.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Stefán
Stefánsson
skrifar
Kewell
bjargaði
Liverpool