Morgunblaðið - 29.11.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
GUÐBJÖRG Þorbjarnardóttir leik-
kona var jarðsungin frá Dómkirkj-
unni í gær. Séra Anna Sigríður Páls-
dóttir jarðsöng. Organisti var
Marteinn H. Friðriksson, einleikari
Guðný Guðmundsdóttir, einsöngvari
Elín Ósk Óskarsdóttir og félagar úr
kór Dómkirkjunnar sungu.
Líkmenn vinstra megin á mynd-
inni eru Gunnar Eyjólfsson, Anna
Kristín Arngrímsdóttir (í hvarfi),
Kristbjörg Kjeld og Baldvin Hall-
dórsson. Hægra megin á myndinni
eru Róbert Arnfinnsson, Þóra Frið-
riksdóttir, Margrét Guðmundsdóttir
og Jón Sigurbjörnsson.
Morgunblaðið/Jim Smart
Útför Guðbjargar Þorbjarnardóttur
ÍSLENDINGAR á Ólympíuleikum
er bók sem Íþrótta- og Ólympíu-
samband Íslands hefur gefið út og
ritar Gísli Halldórsson, heið-
urforseti Íþrótta- og Ólympíusam-
bandsins, verkið sem kom út í gær.
Í bókinni er heildstæð frásögn þar
sem saga Ólympíuleikanna er tekin
saman en meginkaflinn í ritinu er
um þátttöku Íslendinga í leikunum
eftir endurreisn þeirra í lok
nítjándu aldar. Þá er greint frá
störfum Ólympíunefndar Íslands og
þeirra forystumanna er þar koma
við sögu auk þess sem getið er um
störf Alþjóða ólympíunefndarinnar
og viðskipti Ólympíunefndar Ís-
lands við hana.
Fyrstu Ólympíuleikarnir á síðari
tímum voru haldnir í Aþenu í
Grikklandi 1896 en Íslendingar
áttu fyrst fulltrúa á leikunum í
London 1908 þar sem glímukapp-
inn Jóhannes Jósefsson keppti. Í
bók Gísla eru frásagnir af fyrstu
leikunum 1896 og allar götur til
1992 þegar leikarnir fóru fram í
Barcelona á Spáni og þá er sér-
stakur kafli um Smáþjóðaleikana
þar sem Íslendingar hafa í gegnum
árin hafa átt góðu gengi að fagna.
„Kveikjan að því að ég fór út í
þetta verkefni var að ég sat uppi
með alls konar fréttir og frásagnir
af Ólympíuleikunum. Ég hófst
handa við að vinna eitthvað úr
þessu og það endaði með því að
ákveðið var að gefa út þetta rit,“
sagði Gísli við Morgunblaðið í gær
en Íþrótta- og Ólympíusambandið
efndi til útgáfuteitis í tilefni af út-
komu bókarinnar í höfuðstöðvum
sínum í Laugardal í gær.
Gísli segist hafa verið síðustu
fjögur ár samfellt að vinna að gerð
bókarinnar en hann álítur að hann
hafi byrjað að viða að sér efni fyrir
um 20 árum.
Sjálfur hefur Gísli verið við-
staddur sex Ólympíuleika en hann
var um árabil forseti ÍSÍ og formað-
ur Ólympíunefndar Íslands. Gísli
hefur í bókina safnað ýmsum fróð-
leik um Ólympíuleikana en hann er
sá Íslendingur sem er fróðastur er
um þennan stærsta íþróttaviðburð
sem haldinn er fjórða hvert ár.
„Það var ekki létt verk að velja
efni í bókina og hafna öðru en ég
hefði með léttu getað skrifað helm-
ingi stærri bók. Í bókinni er getið
um árangur okkar Íslendinga á 15
leikum. Það er sagt frá öllum þátt-
takendum og afreka þeirra getið.
Það var sérlega gaman að vinna
bókina og ég átti hreinlega erfitt
með að hætta,“ sagði Gísli sem
verður níræður á næsta ári.
Bókin er rúmlega 500 blaðsíður
og koma nöfn 1400 Íslendinga við
sögu og mikill fjöldi ljósmynda
prýðir ritið.
Gísli Halldórsson hefur ritað bók um Íslendinga á Ólympíuleikum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gísli Halldórsson, heiðursforseti Íþróttasambands Íslands, heldur hér á
bók sinni, Íslendingar á Ólympíuleikum. Með honum á myndinni er Ellert
B. Schram, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
Átti hreinlega erf-
itt með að hætta
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ Vaka á
Siglufirði mótmælir tilkynningu
um hópuppsögn starfsmanna
Rækjuvinnslunnar Póla frá og með
næstu mánaðamótum. Félagið tel-
ur hópuppsögnina ólögmæta og
skorar á fyrirtækið að draga upp-
sagnir starfsmanna tafarlaust til
baka.
Signý Jóhannesdóttir formaður
Vöku sagði að samkvæmt tilkynn-
ingu fyrirtækisins hefði 21 starfs-
maður fengið uppsagnarbréf.
Segir fyrirtækið ekki
fara að samráðsreglum
Guðmundur Baldursson fram-
kvæmdastjóri Ljósavíkur í Þor-
lákshöfn, sem á og rekur Póla,
sagðist mjög óhress með að mót-
mæli verkalýðsfélagsins skyldu
fara fyrst í fjölmiðla og vildi ekk-
ert tjá sig um málið. Signý sagðist
hafa farið yfir það með fram-
leiðslustjóra fyrirtækisns að það
ætti að hafa samráð vegna þessara
uppsagna. Hún sagði að fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins hefði
lofað framleiðslustjóranum að hafa
samband við verkalýðsfélagið.
„Það var ekki gert öðruvísi en að
við fengum tilkynningu á faxi um
kl. 12 í dag, (í gær) að þessu fólki
hefði verið sagt upp störfum. Ég
sendi mótmæli okkar til þeirra
með sama hætti eftir hádegið.
Fyrirtækið fer ekki eftir samráðs-
reglum – samráð er ekki að til-
kynna um gerðan hlut. Þó svo að
samráðið hefði hugsanlega ekki
breytt neinu, þá eru lög til þess að
fara eftir þeim og það á að hafa
samráð við trúnaðarmann ef fyr-
irtæki áformar að segja upp fólki.
Það samráð hefur ekki farið fram,“
sagði Signý.
Hún sagði að í tilkynningu sem
lesin var upp fyrir hluta starfs-
manna í lok vinnudags á miðviku-
dag hefði komið fram að fyrirtæk-
ið væri í viðræðum um sölu þess
og að hugmyndir nýrra eigenda
væru að ráða starfsfólkið og hefja
vinnslu strax eftir áramót. „Ef það
er eitthvað að marka, þá er alveg
spurning hvort uppsögnin er ekki
líka ólögleg út frá lögum um aðild-
arskipti fyrirtækja. Þarna eru því
hugsanlega tvenn lög brotin.“
Hefur misst skipin
Ask og Gissur
Signý sagði að það kæmi í sjálfu
sér ekki á óvart að til tíðinda
drægi hjá fyrirtækinu. Það hefði
misst frá sér skipin Ask og Gissur
og einmitt þess vegna hefði verið
ástæða til að hafa samráð og funda
með starfsfólkinu. „Við höfum ekki
fengið nein viðbrögð frá fyrirtæk-
inu og ég er ekki vön að fá mikil
viðbrögð. Það er eins og að það sé
erfitt að halda sambandi við Ljósa-
vík – það er langt í Þorlákshöfn.
En fyrirtæki hafa þurft að draga
uppsagnir til baka, ef þau hafa
staðið svona að málum, “ sagði
Signý og nefndi Brim og Varn-
arliðið í því sambandi.
Um 25-30 manns eru á atvinnu-
leysisskrá á Siglufirði en innan við
400 félagsmenn greiða félagsgjald
til Vöku. Innan félagsins eru iðn-
aðarmenn, verkamenn, sjómenn og
verslunarmenn og að sögn Signýj-
ar hefur atvinnuástand sjómanna
verið að versna á síðustu mán-
uðum.
Vaka mótmælir tilkynningu um hópuppsögn starfsfólks Rækjuvinnslunnar Póla
Tuttugu og einn starfs-
maður fékk uppsagnarbréfLESENDUM mbl.is er að venjuboðið upp á að senda vefjólakort tilvina og vandamanna. Geta allir
skrifað kveðju og valið ókeypis
mynd en boðið er upp á 20 mismun-
andi myndir. Þeim sem skrá sig
sérstaklega býðst einnig aukin
þjónusta, svo sem yfirlit yfir hverj-
um þeir hafi sent jólakort og tölvu-
póstur sem staðfestir að kort hafi
verið lesin. Þá geta skráðir not-
endur keypt myndir úr Myndasafni
Morgunblaðsins og látið þær fylgja
með jólakortinu. Hver mynd úr
Myndasafninu kostar 500 kr. Þeir
sem senda jólakveðju frá mbl.is
fara sjálfkrafa í verðlaunapott og
geta unnið til verðlauna frá Hans
Petersen. 1. verðlaun eru stafræn
myndavél að verðmæti kr. 39.900
en 2.-10. verðlaun stafræn fram-
köllun á 28 myndum.
Hægt er að nálgast vefinn með
því að smella á hnapp efst í vinstra
horni á forsíðu mbl.is og einnig er
tengill undir hausnum Nýtt á mbl.is
á sömu síðu.
Hægt að
senda jóla-
kort á mbl.is
ÁRNI Magnússon félagsmálaráð-
herra segir að víðtækt samráð hafi
verið haft við hagsmunaaðila við und-
irbúning tillagna ríkisstjórnarinnar
um að koma á 90% húsnæðislánum.
Tilkynnt var í gær að slík lán verði
veitt innan vébanda Íbúðalánasjóðs.
Guðjón Rúnarsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka banka og verðbréfa-
fyrirtækja, sagðist í Morgunblaðinu í
gær ekkert hafa orðið var við það
samráð, við gerð tillagnanna, sem fé-
lagsmálaráðherra hafi boðað í sumar.
„Ég vísa þessu á bug og tel þvert á
móti að við höfum haft mjög víðtækt
samráð við alla sem okkur þótti að
málið ætti erindi við,“ segir Árni. Því
til staðfestingar tók ráðuneytið sam-
an lista yfir alla aðila sem ráðgjafa-
hópur fundaði með við undirbúning
tillagnanna. Bankastjórar og stjórn-
armenn allra viðskiptabanka eru þar
á meðal nema Kaupþings Búnaðar-
banka. Sagt er að stjórnarformaður
og bankastjóri hafi ekki haft tök á að
hitta ráðgjafahópinn þegar samráðið
stóð yfir. „Við höfum farið yfir málið
með mjög stórum hópi manna. Bæði á
tveimur fundum formlegs skipaðs
samráðshóps og svo við hvern og einn
aðila sem að málinu koma.“
Fundað
var með
fjölmörgum
aðilum
Árni Magnússon
félagsmálaráðherra