Morgunblaðið - 29.11.2003, Blaðsíða 26
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
26 LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Hraunbær 72
Falleg 124 fm íbúð á 3ju hæð. Verð 13,8 m. Malla sýnir íbúðina milli kl. 13-17 í
dag. Verið velkomin.
Hraunbær 156
Falleg 2ja herbergja íbúð á 3. hæð. Ásett verð 9,6 millj. Það verður opið hús í
dag, laugardag, milli kl. 13-17. Halldóra og Gunnar bjóða ykkur velkomin.
Markholt - Falleg 3ja herbergja íbúð
til sölu í Mosfellsbæ
80 fm, 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á góðum og
rólegum stað í Mosfellsbæ. 2 góð svefnherbergi, eldhús
með fallegri hvítri innréttingu, nýtt parket og ný uppgert
baðherbergi. Frábært útsýni til Esjunnar. Góður garður.
Verð 11,2 millj.
OPIÐ HÚS - OPIÐ HÚS
Engjateigi 5 • 105 Reykjavík • S. 533 4200 og 892 0667,
arsalir@arsalir.is • Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali.
Ársalir - fasteignamiðlun Ársalir - fasteignamiðlun
Hafnarfjörður | Stærsti leikskóli landsins til
þessa mun rísa við Ásbraut 4 í Hafnarfirði, en
samningar um byggingu hans voru undirrit-
aðir á lóðinni við Ásbraut í gær. Lúðvík Geirs-
syni, bæjarstjóra Hafnarfjarðar, barst fjöl-
mennur og öflugur liðsauki þegar hann naut
aðstoðar tuga leikskólabarna frá leikskólanum
Tjarnarási við fyrstu skóflustungu hins nýja
leikskóla.
Áður en athöfnin hófst heyrðist í einu barni:
„Ég er að fara að moka.“ Spurði þá annað
barn, „hvað ertu að fara að moka?“ Svaraði þá
barnið, „ég er að fara að moka leikskóla!“ Þeg-
ar til kastanna kom tættu krakkarnir vægast
sagt í sig sandinn með litlu sandskóflunum sín-
um. Einu barninu varð starsýnt á að Lúðvík
var með nokkuð stærri leikfangaskóflu en hin
og stakk upp á skiptum og tók Lúðvík vel í þau
viðskipti. Var þá mikið hlegið og sagði eitt for-
eldri þetta vera dæmi um góða og upp-
byggilega sandkassapólitík. Annar faðir sagði
þá að hér væri stórkaupmaður framtíðarinnar
á ferð sem gæti platað bæjarstjórann til að
taka minni skóflu fyrir stærri.
Ánægja með gott samstarf
Það er verktakafyrirtækið Hagtak hf. sem
byggir leikskólann, sem er átta deilda og alls
rúmir fjórtánhundruð fermetrar. Hægt verður
að skipta honum í tvisvar sinnum fjórar deildir.
Alls munu um tvöhundruð og tuttugu börn
stunda skólann, en hann verður opnaður í
áföngum.
Hafrún Dóra Júlíusdóttir, formaður fræðslu-
ráðs Hafnarfjarðar, segir þetta áhugaverða til-
raun og þarna sé í raun um frumraun á leik-
skólasviði að ræða, þar sem svona stór leikskóli
hefur aldrei verið rekinn á Íslandi. Helga R.
Stefánsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í
fræðsluráði, tekur undir orð Hafrúnar og segir
þarna vonandi nást góða hagræðingu í rekstri
vegna þéttari yfirbyggingar skólans. Þær
segja báðar afar ánægjulegt hversu samvinna
meirihluta og minnihluta í fræðsluráði er góð í
þessum málaflokki eins og ýmsum öðrum.
Fyrstu skóflustungur teknar fyrir nýjan átta deilda leikskóla við Ásbraut
„Ég er að fara að moka leikskóla!“
Morgunblaðið/Þorkell
Í góðra vina hópi: Lúðvík Geirsson og hjálpsöm og iðin unga kynslóðin af Tjarnarási tóku höndum saman og rótuðu í sandinum.
inn 26. nóvember sl. Álagningarpró-
senta útsvars hækkar ekki á milli ára
og verður áfram 12,46%. Álagning-
arprósenta fasteignagjalda helst
einnig óbreytt. Þjónustugjöld hækka
í takt við verðlagsþróun. Holræsa-
gjald er ekki lagt á og mun Seltjarn-
arnes eitt sveitarfélaga um þá tilhög-
un. Elli- og örorkulífeyrisþegar
munu áfram njóta afsláttar af fast-
eignagjöldum íbúðarhúsnæðis til
eigin nota.
Gert er ráð fyrir að greiða 62 millj.
kr. í afborganir af langtímalánum á
árinu 2004 en áætlað er að heildar-
skuldir bæjarins og fyrirtækja í árs-
lok nemi alls um 400 milljónum
Seltjarnarnes | Fjárhagsáætlun
Seltjarnarnesbæjar fyrir árið 2004
gerir ráð fyrir að heildartekjur bæj-
arsjóðs og stofnana hans verði um
1.308 millj. kr., en rekstrargjöld án
fjárfestinga 1.154 millj. kr. Afgangur
frá rekstri A-hluta bæjarsjóðs er því
áætlaður um 154 milljónir króna og
nemur rekstrarhlutfall aðalsjóðs og
stofnana um 88,23% af skatttekjum.
Rekstrarafgangur eykst því um 12%
á milli ára. Veltufé frá rekstri nemur
tæplega 200 millj. kr. og hækkar um
tæpar 50 millj. kr. frá yfirstandandi
ári. Fjárhagsáætlunin var samþykkt
við seinni umræðu á fundi bæjar-
stjórnar Seltjarnarness miðvikudag-
króna eða u.þ.b 86.000 kr. á íbúa.
Engin ný langtímalán verða tekin á
árinu. Peningaleg staða Seltjarnar-
nesbæjar er með því besta sem ger-
ist á meðal sveitarfélaga og skuldir á
hvern íbúa þær lægstu á meðal
stærri sveitarfélaga, hvort sem litið
er til A-hluta bæjarsjóðs eða sam-
stæðu.
Rúmlega 115 millj. kr. verður var-
ið til nýframkvæmda á árinu 2004
sem er 12% aukning frá fyrra ári en
árið 2003 var þó eitt mesta fram-
kvæmdaár síðari ára á Seltjarnar-
nesi. Helstu framkvæmdir ársins
tengjast fræðslumálum, æskulýðs-
og íþrótta- og menningarmálum.
Fjárhagsáætlun Seltjarnarnesbæjar samþykkt
Aukin framlög til nýframkvæmda
Seltjarnarnes | Líkur eru á því að sam-
komulag náist við heilbrigðisráðuneyti um
starfrækslu dagvistunar fyrir aldraða á
Seltjarnarnesi.
Að sögn bæjaryfirvalda eru þessi mál-
efni í afar jákvæðum farvegi eftir farsæl-
an fund Jónmundar Guðmarssonar bæj-
arstjóra og Jóns Kristjánssonar,
heilbrigðisráðherra um málið.
Dagvistun getur leyst vanda þeirra sem
geta því aðeins búið áfram heima að þeir
séu undir stöðugu eftirliti. Hún er mik-
ilvægur þáttur í að rjúfa einsemd, tryggja
næringu, aðstoða við persónulegt hrein-
læti og almennt að styðja aldraða við að
ráða fram úr viðfangsefnum daglegs lífs.
Dagvistun
fyrir aldraða
Morgunblaðið/Ómar
Miðborgarrölt | Menningarfylgd Birnu
ehf. opnaði nýlega heimasíðuna:
www.birna.is. Fyrirtækið hefur í nokkurn
tíma boðið upp á gönguferðir um miðborg
Reykjavíkur og engin ástæða að hætta
þeim þótt skammdegið skelli á. Göturnar
hverfa ekki þótt dimmi og söguslóðir eru
samar við sig þótt snjóföl færist yfir.
Ferðirnar eru ekki síður fyrir innlenda
en erlenda og jafnvel borna og
barnfædda Reykvíkinga og eru prýðileg-
asta hugmynd að óvissu- eða vinaferðum.
Brátt má búast við jólasveinum á ferð, að
ógleymdum jólakettinum, og þeir eru til
alls vísir, uppátektasamir með afbrigðum
og geta brugðið á leik í miðri gönguferð.
Garðabær | Starfsmenn
Garðabæjar fengu óvænta
og vel þegna kennslu í
skyndihjálp og slysavörnum
í gær í tengslum við átak
vegna jólamánaðarins, en í
desembermánuði verða að
jafnaði flest slys.
Síðasta föstudag í hverj-
um mánuði er haldinn morg-
unverðarfundur með öllum
starfsmönnum Garðabæjar.
Þar segja starfsmenn gjarn-
an frá verkefnum sem þeir
eru að vinna að. Í þetta sinn
var hefðin brotin upp og ut-
anaðkomandi leiðbeinandi
fenginn frá Garðabæjar-
deild Rauða krossins, til að
kenna grundvallaratriði í skyndi-
hjálp. Byrjað var með hefðbundnum
morgunverðarfundi frá átta til níu, en
síðan færði leiðbeinandinn sig yfir á
bæjarskrifstofurnar þar sem boðið
var upp á verklega kennslu frá níu til
tólf. Þar voru ýmis gögn til verklegr-
ar skyndihjálparkennslu, dúkkur,
sárabindi og fleira. Kenndi leiðbein-
andinn grundvallaratriði í skyndi-
hjálp, svo sem meðferð sárabinda,
blástursaðferð og hjartahnoð.
Í erindi Ásdísar Höllu
Bragadóttur, bæjarstjóra
Garðabæjar, á málþingi
Rauða Kross Íslands á
dögunum, kom meðal
annars fram að á þessu ári
hafa 288 heima- og frí-
tímaslys verið skráð í
Garðabæ. „Ekkert bendir
til að Garðabær sé ólíkur
öðrum sveitarfélögum hvað
þetta varðar, þannig að það
er til mikils að vinna að
finna leiðir til að fækka
þessum slysum,“ segir Guð-
finna B. Kristjánsdóttir,
upplýsingastjóri Garða-
bæjar, en á næstunni verð-
ur fræðsluefni dreift til
allra heimila í bænum þar sem m.a.
verður gátlisti sem fólk getur notað
til að fara yfir öryggi á eigin heimili.
Kennslan í gær var liður í því að færa
þetta átak til starfsmanna Garða-
bæjar.
Slysavarnir efldar í Garðabæ
Skyndihjálpin numin: Starfsmenn Garðabæjar fengu
skyndikúrs í skyndihjálp á morgunverðarfundi í gær.
Sólheimar í gamla pósthúsið | Sól-
heimar í Grímsnesi hafa samið við Íslands-
póst um afnot af gamla pósthúsinu við
Strandgötu í Hafnarfirði undir sölu á fram-
leiðslu Sólheima fyrir jólin. Verslunin mun
tengjast jólaþorpinu í miðbæ Hafnarfjarðar
á einhvern hátt, segir í Fjarðarpóstinum.
Vesturbær | Reykjavíkurakadem-
ían hefur tekið við rekstri og um-
sjón Bókasafns Dagsbrúnar, en
samningur þess efnis var undirrit-
aður nýlega milli Eflingar – stétt-
arfélags og Reykjavíkurakademí-
unnar, félags sjálfstætt starfandi
fræðimanna. Safnið hefur nú verið
flutt í húsnæði Akademíunnar á
Hringbraut 121 og er ætlunin að
þróa það sem sérsafn á sviði verka-
lýðsmála og atvinnulífsrannsókna.
Bókasafn Dagsbrúnar var stofnað
árið 1956 þegar Guðrún Pálsdóttir,
ekkja Héðins Valdimarssonar, gaf
Verkalýðsfélaginu Dagsbrún bóka-
safn hans, alls 2.400 titla. Að
grunni til er safnið komið frá for-
eldrum Héðins, Bríeti Bjarnhéð-
insdóttur og Valdimar Ásmunds-
syni. Margir aðrir, einstaklingar
og útgefendur, hafa gefið bækur til
þess. Nú eru um 17.000 titlar í
safninu.
Tilgangur Bókasafns Dags-
brúnar var að efla menntun og
menningu verkafólks og þjónaði
safnið því hlutverki um langt ára-
bil. Þörf fyrir slíkt starf hefur þó
ekki verið fyrir hendi lengi því að
nú á dögum hefur almenningur
góðan aðgang að bókum á opinber-
um bókasöfnum.
Akademían
ættleiðir
bækur
Bókasafnið afhent: Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, heilsar
Halldóri Björnssyni.
Morgunblaðið/Sverrir