Morgunblaðið - 29.11.2003, Blaðsíða 28
Morgunblaðið/Kristján
Hannes Sigurðsson í verslun Sand-
blásturs og málmhúðunar.
ELLEFU starfsmenn hjá þremur
fyrirtækjum á Akureyri, Slippstöð-
inni, Sandblæstri og málmhúðun og
Möl og sandi hafa lokið 100 klukku-
stunda fjölvirkjanámi. Þetta er fyrsti
hópurinn sem lýkur fjölvirkjanám-
inu, en það er skipulagt af Símennt-
unarmiðstöð Eyjafjarðar, SÍMEY, í
samvinnu við Einingu-Iðju og Félag
byggingamanna. Fjölvirkjanám er
starfsnám, ætlað sérhæfðum ófag-
lærðum lykilstarfsmönnum í iðnað-
ar- og framleiðslufyrirtækjum og er
þannig uppbyggt að það styrkir bæði
persónulega og faglega hæfni nem-
anna.
Fram kom í máli Katrínar Dóru
Þorsteinsdóttur forstöðumanns Sí-
menntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar
við útskriftina, að þótt fjölvirkj-
anámið gefi ekki formleg réttindi í
dag, sé í gangi vinna sem snýr að
mati á ófomlegu námi og hún bindur
vonir við að fjölvirkjanámið verði
metið til eininga á framhaldsskóla-
stigi í framtíðinni. Katrín Dóra sagði
að verið væri að kynna námið fyrir
fyrirtækjum á svæðinu og hún von-
ast eftir tækifæri til að bjóða upp á
þetta nám aftur eftir áramót.
Námið skiptist í þrjá hluta, al-
menn fög, fagleg fög og sérhæfð fög,
sem ætlað er að laga sig að þörfum
þeirra fyrirtækja sem eiga fulltrúa í
náminu hverju sinni. Landsmennt,
fræðslusjóður verkalýðsfélaganna
utan höfuðborgarsvæðisins, hefur
styrkt námið, sérstaklega þau fyr-
irtæki sem eru aðilar að Samtökum
atvinnulífsins.
Mikil upplifun að taka þátt
Hannes Sigurðsson starfsmaður í
verslun Sandblásturs og málmhúð-
unar var einn þeirra sem luku fjöl-
virkjanáminu. Hann sagði það hafa
verið gríðarlega upplifun að fá að
taka þátt í verkefninu. Starfsmenn-
irnir ellefu voru valdir til þátttöku af
fyrirtækjunum og sagði Hannes að
markmiðið væri að gera hæfa starfs-
menn hæfari og því væri töluverð
upphefð í því að hafa orðið fyrir val-
inu. „Ég hef fundið fyrir mikilli
ánægju meðal þeirra manna sem
tóku þátt og það er mjög jákvætt
fyrir menn sem komnir eru undir
miðjan aldur að finna að þeir geti
enn lært. Ég veit líka að sumir þeirra
hafa sett sér markmið um frekara
nám og það er vissulega jákvætt. At-
vinnurekendur gera sér þetta líka
ljóst og það er mjög jákvætt að þeir
skildu gefa okkur þetta tækifæri,
sem á eftir að nýtast öllum aðilum
máls vel,“ sagði Hannes.
Mikið framfaraspor
Allir fjölvirkjarnir ellefu eru fé-
lagsmenn í Einingu-Iðju. Björn
Snæbjörnsson formaður félagsins
sagðist mjög ánægður með að þetta
nám skildi komast á koppinn, enda
væri um mikið framfaraspor að
ræða. „Þetta nám hefði þó ekki kom-
ist á ef ekki hefði verið samið um
þennan menntasjóð, Landsmennt, í
síðustu kjarasamningum. Þá er
stofnun SÍMEYJAR einnig forsenda
þess að hægt sé að virkja svona hluti
hér á svæðinu. Það er einnig mjög
mikilvægt hversu fyrirtækin voru já-
kvæð fyrir því að taka þátt í verkefn-
inu. Og þetta er aðeins byrjunin“
sagði Björn.
Hópur starfsmanna hjá þremur fyrirtækjum útskrifast sem fjölvirkjar
Níu af þeim ellefu fjölvirkjum sem voru mættir við útskriftina.
Markmiðið að
gera hæfa starfs-
menn hæfari
Morgunblaðið/Kristján
AKUREYRI
28 LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Íslandsklukkunni hringt | Hátíð-
ardagskrá verður í Háskólanum á
Akureyri á mánudag, 1. desember, í
tilefni fullveldisdagsins. Hún hefst
kl. 16 með því að Jón Hjaltason
sagnfræðingur fjallar um valdar
jólabækur og les úr þeim. Erindi
Jóns verður í hátíðarsal háskólans
að Sólborg. Dagskrá hefst við Ís-
landsklukkuna kl. 16.45 og flytur
Hermann Óskarsson, dósent við HA,
stutt ávarp og að því loknu verður
Íslandsklukkunni hringt. Þá mun
Snorri Guðvarðsson tónlistarmaður
stjórna barnasöng. Dagskrá verður
svo haldið áfram innandyra. Flutt
verða tónlistaratriði frá Tónlistar-
skólanum á Akureyri, m.a. úr óp-
erunni um Hans og Grétu, og gest-
um boðið upp á léttar veitingar.
Sviptur ökurétti ævilangt |
Hálfþrítugur maður hefur verið
dæmdur í 30 daga fangelsi í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra og sviptur
ökurétti ævilangt fyrir ítrekaðan
ölvunarakstur.
Maðurinn viðurkenndi fyrir dómi
að hafa ekið bifreið undir áhrifum
áfengis á Akureyri í ágúst í sumar.
Hann gekkst árið 1998 undir sekt-
argerð lögreglustjóra og sætti þá
sviptingu ökuréttar í 4 mánuði fyrir
ölvunarakstur.
Þá var hann dæmdur árið eftir í
fjögurra mánaða skilorðsbundið
fangelsi og sekt fyrir fíkniefna-
umferðarlagabrot.
Sló löggu | Fertugur karlmaður
hefur verið dæmdur í Héraðsdómi
Norðurlands eystra í 30 daga fang-
elsi, skilorðsbundið til tveggja ára,
en hann var ákærður fyrir brot gegn
valdsstjórninni. Veitti maðurinn lög-
reglumanni högg í andlitið með þeim
afleiðingum að hann bólgnaði yfir
hægri augabrún og marðist um bæði
augu. Atburðurinn varð á veitinga-
staðnum Góða dátanum í mars á
þessu ári. Játaði maðurinn sakar-
giftir. Var honum gert að greiða
sakarkostnað.
Trompet úr járni | Sýningin
„Trompet úr járni og veltuminkur“
með listamönnunum Tuma og Pétri
Magnússonum verður opin í Gallerí
+, Brekkugötu 35 á Akureyri um
helgina.
Opið laugar- og sunnudaga frá 12–
17 og aðra tíma eftir samkomulagi í
síma 462 7818. Næstsíðasta sýning-
arhelgi.
Þetta er fyrsta sameiginlega sýn-
ing þeirra Péturs og Tuma.
NEMENDUR Myndlistaskólans á
Akureyri hafa hug á að lífga upp á
miðbæjarlífið nú á komandi aðventu
og verður fyrsta uppákoman á
þeirra vegum í dag, laugardag, um
kl. 16 eða strax og kveikt hefur verið
á ljósum jólatrésins á Ráðhústorgi.
Það eru nemendur í dagdeildum
skólans sem standa fyrir skemmt-
uninni, um 45 manna hópur. Nem-
arnir hafa útbúið heilmikið taflborð,
7X7 metrar að stærð, og verður því
komið fyrir á Ráðhústorgi. „Tveir
snillingar úr skákfélaginu, Halldór
Brynjar Halldórsson og Stefán
Bergsson, munu síðan tefla á torg-
inu með lifandi taflmönnum,“ sagði
Sigurlín Grétarsdóttir, formaður
nemendafélags í fornámi. Börn í
tveimur skólum, Brekkuskóla og
Glerárskóla, munu vera í hlut-
verkum peða en myndlistarnemar
verða aðrir skákmenn. Það verða
ekki hefðbundnir svartir og hvítir
taflmenn sem eigast við heldur
gamlir jólasveinar á móti nýjum.
„Það er svo hugmyndaríkt fólk
hérna og sköpunarkrafturinn alveg
með ólíkindum,“ sagði Sigurlín.
Hún sagði að hugmyndin væri að
lífga upp á miðbæjarlífið á aðvent-
unni – „gera eitthvað skemmtilegt í
bænum og fá bæjarbúa í lið með
okkur. Við vonum að þeir muni hafa
gaman af þessu,“ sagði Sigurlín.
Nemendurnir hafa einnig útbúið
fjögur aðventukerti í stærri kant-
inum og verður kveikt á því fyrsta í
tengslum við taflmennskuna í dag.
Dagskrá nemanna í Myndlistaskól-
anum heldur svo áfram, en annan
sunnudag, 7. desember, munu þeir
safnast saman í kirkjutröppunum og
taka lagið og bjóða því næst upp á
veitingar auk þess að kveikja á kerti.
Þá verður risaskúlptúr afhjúpaður
sunnudaginn þar á eftir og loks ætla
nemarnir að bjóða fjölskyldum til
gleði á Ráðhústorgi, þar sem verður
sungið og gengið í kringum jólatréð
á fjórða sunnudegi í aðventu. „Okkar
markmið er að gleðja bæjarbúa, við
vonum að það takist og miðbærinn
verði dálítið líflegur,“ sagði Sigurlín.
Morgunblaðið/Kristján
Hugmyndaríkir myndlistarnemar: Teflt verður fram nýjum jólasveinum
gegn gömlum á risatafli á Ráðhústorgi síðdegis í dag.
Gamlir jólasveinar
á móti nýjum
Risatafl með lifandi mönnum
LIONSKLÚBBUR Akureyrar og
Lionsklúbburinn Ösp færðu ný-
lega Hæfingarstöðinni við Skóg-
arlund hljómflutningstæki að
gjöf. Formenn klúbbana þau Erla
Hallgrímsdóttir og Stefán Einars-
son afhentu gjafirnar og Margrét
Ríkarðsdóttir forstöðuþroska-
þjálfi veitti þeim viðtöku. Fyrr í
þessum mánuði færðu félagar í
Lionsklúbbnum Hæng Hæfingar-
stöðinni hljómflutningstæki. Um
er að ræða tvær samstæður og
fimm ferðatæki. Öll þessi tæki
koma í mjög góðar þarfir. Ein
þeirra verða staðsett í borðstofu
en þar eru oft samverustundir þar
sem bæði útvarp og tónlist af
hljómdiskum kemur við sögu. Eitt
tækjanna verður staðsett í svo-
kölluðum sælukrók en þar fer
fram skynörvun fólks með miklar
fatlanir. Umrætt tæki hefur mik-
inn bassa og er markmiðið að láta
fólk skynja tónlistina með öllum
líkamanum. Ferðatækin verða
staðsett á deildum Hæfingar-
stöðvarinanr og mun fólk geta
notið þess að hlusta á ,,lögin við
vinnuna.
Margrét þakkaði af alhug fyrir
góðar gjafir fyrir hönd notenda og
starfsfólks og kvað þær koma að
góðum notum. Hún sagði að það
verðugt að taka við þessum gjöf-
um á Evrópuári fatlaðra.
Lionsklúbbar
afhentu gjöf
NEYÐIN kennir naktri
konu að spinna, segir mál-
tækið, og segja má að fé-
lagar í íþróttahreyfingunni
þekki vel til þessa. Rekstur
íþróttafélaga er yfirleitt
erfiður og gjarnan gripið
til ýmissa óvenjulegra ráða
í því skyni að afla fjár til
rekstrarins. Forráðamenn
og nokkrir velunnarar
handknattleiksdeildar Þórs
á Akureyri tóku til dæmis
að sér einn morguninn á
dögunum að stinga út úr
fjárhúsi í nágrenni bæj-
arins. Taðið verður síðan
notað til þess að reykja
jólahangikjötið að ári. Á
myndinni eru Aðalsteinn
Sigurgeirsson, til vinstri,
fyrrverandi formaður Þórs
– og raunar faðir þjálfara
liðsins, Sigurpáls Árna, og
eins stjórnarmanna hand-
knattleiksdeildar, Geirs
Kristins – og Helgi Eyþórs-
son, sem nú situr í stjórn
handknattleiksdeildar fé-
lagsins, glaðhlakkalegir í
dyrum fjárhússins með
„fullhlaðna“ gafflana. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Óvenjuleg fjáröflun
Umhverfisþing | Á fundi bæjar-
ráðs Akureyrar var lagt fram minn-
isblað frá Sigríði Stefánsdóttur,
deildarstjóra KOMA, varðandi um-
hverfisþing ungmenna „Youth Eco
Forum“ á vegum Northern Forum
samtakanna sem haldið verður í
Hokkaido í Japan 2.–7. ágúst 2004.
Boð um þátttöku hefur borist og
miðað við að a.m.k. tvö ungmenni
ásamt fararstjóra komi frá hverjum
stað.
Bæjarráð samþykkir þátttöku
tveggja ungmenna ásamt farar-
stjóra.